Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 24
Fyrstudeildarliðin í knattspyrnu Skagamennirnir skemmtilegu! Pétur og Karl fengu Morgunblaðsverðlaunin 1978 MORGUNBLAÐIÐ hefur mörg undanfarin ár verðlaunaö íþróttamenn fyrir afrek þeirra, knattspyrnumenn og fleiri. Skagamenn hafa löngum verið sigursælir á knattspyrnuvellin- um og eru þeir ófáir Skaga- mennirnir sem farið hafa í Vík- ing og reynt fyrir sér í atvinnu- mennsku þessarar vinsælu íþróttar. Sigurður Jónsson, leikmaðurinn ungi, var valinn leikmaöur íslandsmótsins í fyrra, ásamt landsliðsmark- verðinum Þorsteini Bjarnasyni, ÍBK, af íþróttafréttamönnum Morgunblaðsins. Tveir skemmtilegustu knatt- spyrnumenn sem leikið hafa með Akurnesingum eru Pétur Pétursson og Karl Þórðarson. Sem kunnugt er hafa þeir báðir gert garðinn frægan með erlendum félagsliðum, og var Pétur fyri'r nokkrum árum einn markahæsti leikmaður Evrópu, er hann lék með hollenska stórliöinu Feyeenord. Hann leikur nú með Antverpen í Belgíu. Karl Þórðarson lék fyrst í Belgíu en nú síöast meö Laval í Frakklandi, en eins og Morg- unblaðið skýrði frá fyrir skömmu hefur hann nú hætt atvinnu- mennsku og snýr heim. Hann mun leika með Skagamönnum í sumar, og mun fyrsti leikur hans með liðinu aö nýju aö öllum líkindum veröa gegn Val á Akranesi 6. júní. Þaö er að sjálfsögðu mikill styrkur fyrir ís- landsmeistarana að fá þennan leikna og skemmtilega leikmann aftur í sínar raðir og víst er að Karl mun lífga mikið upp á knattspyrn- una hérlendis sem skort hefur til- finnanlega „nöfn“ undanfarin ár. Leikmenn sem fólk kemur eingöngu á völlinn til að sjá, og víst er að slíkra leikmanna þarfnast íslensk knattspyrna í dag, þegar áhorfend- um fer sífækkandi. Morgunblaöiö heiörar árlega Knattspyrnumann ársins sem íþróttamenn velja skv. einkunnagjöf blaösins svo og markahæsta leik- mann íslandsmótsins. Þeir Karl og Pétur hrepptu þessi verðlaun áriö 1978, áður en þeir héldu út í hinn harða heim atvinnuknattspyrnunn- ar. Karl var þá knattspyrnumaður ársins og Pétur markahæsti leik- maðurinn. Hann skoraöi þá 19 mörk í 1. deildinni, en það er met sem stendur enn í dag. Árið 1978 varð ÍA í öðru sæti í 1. deildinni á eftir Val, en sigraöi síðan Val 1:0 í úrslitaleik bikarkeppninnar á Laug- ardalsvelli, með marki Péturs Pét- urssonar. Það var fyrsti bikarsigur Skagamanna í níu tilraunum! Hér sjást þeir Pétur Pétursson og Karl Þóröarson með Morgunblaösverðlaunin sem þeir hlutu áriö 1978. Dómarar í nýjum búningum ENGINN leikur fer fram án dóm- ara. Þeir svartklæddu eru valda- miklir menn meöan leikurinn stendur yfir og oft eru þeir ekki vínsælustu menn vallarins hjá áhorfendum. Starf þeirra er van- þakklátt og erfitt, en engu aö síö- ur skemmtilegt á stundum. Knattspyrnudómarar hér á landi hafa tekið upp þann siö aó velja mark ársins, og sú nýbreytni var tekin upp í sumar aö velja besta mark hverrar umferðar. Eins og undanfarin ár verður að loknu leiktímabilinu valinn SEIKO- dómari ársins, en dómarafélagiö hefur endurnýjað auglýsinga- samning sinn viö þýsk-íslenska verslunarfélagið hf., umboösaö- ila Seiko á íslandi. Það eru fyrir- liðar liöanna sem velja bestu dómara ársins, Seiko-dómara ársins úr 1. deild og B-Seiko dómara ársins úr 2. deild. Dóm- ararnir sjálfir velja Seiko-mark ársins og mark hverrar umferðar. Prúöasti leikmaðurinn veröur einnig valinn í haust og sjá dóm- ararnir um það val. Seiko-leik- maður ársins verður síðan valinn af dómurum og þjálfurum í sam- einingu. Á myndinni má sjá þrjá dómara, Björn Björnsson, Baldur Scheving og Magnús Theódórs- son í nýjum búningum sem dóm- arar klæöast í sumar. EINN merkasti bikar, sem keppt hefur veriö um í knattspyrnu er bikarinn, sem Fram gaf viö upphaf ís- landsmótsins áriö 1912. Um þennan bikar segir Friðþjófur Thorsteinsson, einn snjallasti knattspyrnumaöur Fram, í viðtali í afmælisblaöi Fram árið 1958. „Það kom fram tillaga á fundi hjá Fram, að nauðsyn- legt væri að keppa hér um bik- ar að erlendum sið. Hófum við þá sníkjur til aö festa kaup á bikar frá Þýskalandi, sem kostaði að mig minnir hvorki meira né minna en kr. 85.00. Gekk allvel að safna þeirri upphæð, nema hvað síðasti hjallinn reyndist örðugastur. Þegar aliir höfðu lagt af mörk- um hvað þeir gátu vantaði kr. 1.75. Var gripið til þess aö safna handbærri smámynt, allt niður í einseyringa, svo aö við gátum fest kaup á gripnum; Var samin reglugerö um að ís- landsbikarinn ynnist aldrei til eignar og ekki að breyta regl- unum, nema með samþykki Fram.“ Um bikarinn var keppt í 50 ár, eða til ársins 1961, en þá var hann tekinn úr umferð og er nú varðveittur í skrifstofu KSÍ í Laugardal. KR vann bik- arinn oftast allra félaga, eða 17 sinnum, Fram 13 sinnum, Valur 12 sinnum, ÍA 6 sinnum og Víkingur tvisvar sinnum. KSÍ gaf nýjan bikar til keppni í 1. deild og var keppt um hann í fyrsta skipti árið 1962 og það var Fram, sem vann hann það ár. Um hann er keppt enn í dag. Stofnaö var til Bikarkeppni KSÍ árið 1960 og gaf Trygg- ingamiðstöðin hf. í Reykjavík bikar til keppninnar. Bikarinn var farandgripur og fylgdu honum 10 litlir bikarar, sem „Bikarmeistarar" hverju sinni unnu til eignar. Keppt var um bikarinn í 15 ár, eða til ársins 1974, er hann var tekinn úr umferð. Bikarinn er nú varö- veittur í Félagsheimili KR við Frostaskjól, en KR vann hann 7 sinnum á þessum 15 árum, Valur, Fram og ÍBV unnu hann tvisvar sinnum hvort félag og ÍB Akureyrar einu sinni. Tryggingamiðstöðin hf. gaf aftur bikar til keppninnar og var keppt um hann í fyrsta sinn árið 1975 og vannst það ár af ÍBK. Um þann bikar er keppt enn í dag og hann vinnst ekki til eignar, frekar en islandsbik- arinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.