Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984
pltjrjpmMafoifo
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Arvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Agúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 20 kr. eintakið.
Fjárfesting og
skattfríðindi
Bankarnir keppast nú við að
auglýsa fjárfestingasjóðs-
reikninga. Þessir nýju reikn-
ingar eiga rætur að rekja til
breytinga á skattalögum sem
samþykktar voru á Alþingi 29.
mars síðastliðinn. Um tækni-
lega hlið þessara breytinga
verður ekki fjallað hér enda
geta menn auðveldlega kynnst
henni með því að lesa auglýs-
ingar bankanna í Morgunblað-
inu eða hafa við þá samband. Á
hinu er vert að vekja athygli að
með þessum auglýsingum er
verið að hrinda í framkvæmd
einum lið í víðtækari stefnu,
það er að segja þeirri stefnu að
almenningur verði virkur þátt-
takandi í atvinnulífinu og að
mönnum gefist kostur á að
lækka skatta sína með því að
leggja fram fjármagn til at-
vinnustarfsemi.
Þegar þessi breyting á
skattalögunum var til umræðu
á þingi kom til ágreinings á
milli þeirra Þorsteins Pálsson-
ar, formanns Sjálfstæðisflokks-
ins, og Svavars Gestssonar, for-
manns Alþýðubandalagsins.
Svavar taldi þessar hugmyndir
auðvitað stangast á við kenn-
ingar Karls Marx sem boðar að
allt fjármagn skuli vera í hönd-
um ríkisins og það síðan deila
og drottna. Þorsteinn Pálsson
sagði hins vegar að nauðsynlegt
væri að auka framleiðslu og
verðmætasköpun með því að
styrkja atvinnufyrirtækin og
það væri gert með því að auka
eigið fé í atvinnulífinu. Þá
skipti ekki minna máli að
dreifa eignarhaldi á atvinnu-
fyrirtækjum.
Auglýsingar bankanna um
fjárfestingasjóði eru því til
marks um að kenningum marx-
ista var hafnað á þingi síðast-
liðinn vetur og hinir urðu ofan
á sem vilja sem mest frelsi í
atvinnu- og fjármálum. Auðvit-
að ræðst það af framkvæmd-
inni hvernig til tekst. Eignar-
haldi á atvinnufyrirtækjum
verður ekki dreift með fyrir-
mælum stjórnmálamanna, en
skilningur þeirra og samþykki
er forsenda fyrir valddreifingu
á þessu sviði eins og flestum
öðrum.
í íslensk skattalög hefur
vantað ákvæði þar sem ríkið
linar klóna á þeim sem reiðu-
búnir eru að hætta fé sínu til að
ráðast í ný verkefni í atvinnu-
rekstri. í umræðum um þetta á
þingi sagði Þorsteinn Pálsson
að í útvarpinu hefði einn af að-
standendum kvikmyndarinnar
Atómstöðvarinnar kvartað
undan þessu „skilningsleysi" ís-
lenskra skattalaga. Eins og
auglýsingar bankanna sýna
urðu þáttaskil með samþykkt
þingsins 29. mars.
Astæða er til að hvetja alla
þá sem hafa tekjur af atvinnu-
rekstri til að kynna sér hin
nýju skattfríðindi. Enginn vafi
er á að það mun verða allri ís-
lensku þjóðinni til hagsbóta að
sem flestir verði virkir í átak-
inu sem nauðsynlegt er til að
blása nýju lífi í atvinnustarf-
semina. Vitlausar fjárfestingar
undanfarinna ára eru skýrustu
sjúkdómseinkenni vinstri-
mennskunnar sem byggist á
skömmtunarstjórn í peninga-
kerfinu.
Glæsilegur
árangur
Fyrir smáþjóð í landi úr al-
faraleið er mikilvægt að
fulltrúar hennar á erlendri
grundu standi sig þannig að at-
hygli veki vegna verðleika
þeirra og dugnaðar. Nú á tím-
um eru það helst íslenskir lista-
menn og íþrótt,amenn sem ná
til mikils fjölda fólks. Hinir
síðarnefndu eiga sér þó yfirleitt
fjölmennari hóp aðdáenda en
hinir fyrrnefndu og venjulega
gera fjölmiðlar meira úr afrek-
um á sviði íþrótta en lista.
Á þetta er minnst hér og nú í
tilefni af því að Ásgeir Sigur-
vinsson var um helgina valinn
knattspyrnumaður ársins í
Vestur-Þýskalandi en liðið frá
Stuttgart sem hann leikur með
varð Þýskalandsmeistari á
þessu keppnistímabili. Hvort
sem íslendingar hafa áhuga á
íþróttum eða ekki fylgjast þeir
grannt með því hvernig þeim
íslensku dugnaðarmönnum
vegnar er leika knattspyrnu
með erlendum liðum. Heiður-
inn sem Ásgeiri hefur verið
sýndur í Vestur-Þýskalandi
færir heim sanninn um að frá
okkar fámennu þjóð koma enn
sem fyrr menn sem ná hæsta
tindi meðal stórþjóða hver á
sínu sviði.
íþróttamenn og ekki síst
knattspyrnumenn eru hetjur
fjöldans meðal stórþjóðanna og
ef marka má frásögn íþrótta-
fréttamanns Morgunblaðsins er
Ásgeir Sigurvinsson „dýrkaður
í Stuttgart". Að standa undir
svo stórum orðum er ekki síður
vandasamt en að ná í fremstu
röð á knattspyrnuvellinum.
Eyrarfoss við bryggju í Sundahöfn. Ekkert bendir til að skipverjar séu viðriðnir smyglið.
Ekkert bendír til ac
Eyrarfossi séu viðri
FÍKNIEFNADEILD lögregl-
unnar í Reykjavík hefur unnið
um langt skeið að því að upp-
lýsa fíkniefnasmyglið sem upp
komst aðfaranótt þriðjudags-
ins og fylgst náið með mönn-
unum, sem voru handteknir.
Náin samvinna var við toll-
gæzluna, en ekkert hefur kom-
ið fram sem bendir til þess að
skipverjar á Eyrarfossi séu
viðriðnir smyglið, heldur hafí
smyglararnir komið fíkniefn-
unum fyrir á þilfari skipsins
án vitundar skipverja. Eyrar-
foss var að koma frá Evrópu,
Rotterdam og Hamborg, en
óljóst er í hvaða höfn fíkniefn-
BÚR-karfi:
„Krás á hvers manns borðu
NÆSTKOMANDI föstudag
mun Bæjarútgerð Reykjavík-
ur hefja dreifíngu á ferskum
karfa í verzlanir á höfuðborg-
arsvæðinu. Karfínn verður
bæöi roð- og beinlaus og
áætlað verð um 75 krónur út
úr búð fyrir hvert kiló. Sam-
svarandi verð á ýsu er nú um
100 krónur kílóið. Þar sem
BÚR-karfinn verður til sölu
verða einnig ókeypis bækl-
ingar með karfauppskriftum
og fyrirhugað er að kynna
matreiðslu á karfa í einhverj-
um verslunum.
Vegna þessa boðaði BÚR til
fundar með blaðamönnum f vik-
unni til að kynna þeim karfann og
þá nýjung, sem felst í því að hafa
ferskan karfa á boðstólum á höf-
uðborgarsvæðinu og síðar úti á
landi. Það voru þeir Brynjólfur
Bjarnason, framkvæmdastjóri
BÚR og Svavar Svavarsson, fram-
leiðslustjóri ásamt Bjarna
Grímssyni frá auglýsingastofunni
Gylmi, sem kynntu þessa nýjung. í
máli þeirra kom fram, að Bæjar-
útgerðin hefur lengi haft hug á
því, að bjóða landsmönnum upp á
ferskan karfa sem innlegg í fjöl-
breyttari matvælamarkað en verið
hefur. Mikill karfi bærist um þess-
ar mundir á land hjá BÚR enda
væru fengsæl mið rétt utan höfuð-
borgarsvæðisins. Ferskur karfi
hafi lengi verið markaðsvara í
Bandaríkjunum, Þýskalandi og
fleiri löndum og með þessu væri
ætlunin að stofna til veislu meðal
þjóðarinnar með því að bjóða
henni upp á ferskan roð- og bein-
lausan karfa beint á pönnuna.
Karfinn yrði unninn undir gæða-
eftirliti BÚR og þess vendilega
gætt, að hann yrði ávallt ferskur í
verslunum.
Þetta væri ennfremur eins kon-
ar könnun á markaðsmálum og
matarvenjum fólks og hugsanlega
gæti reynsla hér á landi orðið
vísbending um það, hvernig best
væri að bjóða erlendum kaupend-
um karfann. BÚR-karfinn verður
sérstaklega merktur í verslunum
undir einkunnarorðunum —
pönnuklár BÚR-karfi — krás á
hvers manns borð.
Brynjólfi Bjarnasyni borinn karfi með dalayrju. Honum
á hægri hönd er Svavar Svavarsson og á vinstri hönd
Bjarni Grímsson.
Morgunblaftiö/KEE.
Matreiðslumennirnir Úlfar Eysteinsson og Skúli Hansen
með sýnishorn af karfakræsingunum.