Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ1984 Hví þennan hroka í garð sjónvarpsins? eftir Œle Berglund og Œoph Hansson Hinn 10. maí sl. birtist í Morgun- blaðinu grein eftir Arne Ruth, menn- ingarritstjóra Dagens Nyheter, um sjónvarpsmál á Norðurlöndum. Dag- inn eftir birti Morgunblaðið svar- grein frá Sam Nilsson, yfirmanni sænska sjónvarpsins. Hér fer á eftir grein eftir dagskrárstjóra sænska sjónvarpsins og er hún skrifuð af sama tilefni. Við hjá sjónvarpinu kynntumst því fyrir skömmu hversu mismun- andi mat menningarpostularnir sem stýra menningar- og leik- hússkrifum blaðanna leggja á kvikmyndir og sjónvarp. Fyrir fáeinum árum hafði önn- ur sjónvarpsrásin í hyggju að efna til samvinnu við kvikmyndaiðnað- inn um kvikmyndun „Slas’Henri- etta“. Af ýmsum ástæðum varð samstarfsaðilinn, Europafilm, að hverfa frá þessu ráði og ákvað rásin þá að fjármagna fyrirtækið á eigin spýtur. Þegar myndin var fullgerð lét Europafilm i ljós áhuga á að sýna hana í kvik- myndahúsum sínum. Samningur var gerður og þar með varð Henri- etta að verzlunarvarningi sem átti að koma á markað eftir þeim fag- legu leiðum sem venjulega eru farnar á þeim vettvangi. Með vax- andi undrun fylgdumst við með því hvernig slíkt gerist innan kvikmyndaiðnaðarins þar sem samkeppnin er hörð. Auglýs- ingarherferðin kostaði upphæð sem kom okkur innan sjónvarps- ins í opna skjöldu, þ.e.a.s 10% af framleiðslukostnaði við myndina sjálfa. Afraksturinn kom í ljós þegar blöðin fóru að fjalla um myndina. Blöðin fengu ýmsa af sínum beztu kvikmyndagagnrýn- endum til að skrifa um hana og þessum skrifum var léð rúm sem aldrei hefði verið lagt undir þessa mynd hefði hún borizt sjónvarps- áhorfendum beint og án millilend- ingar í fáeinum kvikmyndahúsum. Að baki þessa mismunandi mats liggur hrokafull afstaða ýmissa menningarblaðamanna til starf- andi sjónvarpsstöðva. Þessi af- staða kemur líka fram í tillögu Arne Ruths um norræna dag- skrárstofnun sem greinilega er ekki unnt að renna stoðum undir án þess að dauðadæma fyrst þá sjónvarpsstarfsemi sem þegar fer fram, bæði í Svíþjóð og annars staðar á Norðurlöndum. Lítum því á nokkrar staðhæf- ingar hans og gáum hvort líkið sér ekki a.m.k. smáglætu: 1. Ruth heldur því blákalt fram að sjónvarpið hafi ekki gert neinar minnisstæðar leiknar kvikmyndir, framhaldsmyndaflokka, leiksýn- ingar og heimilldarmyndir á þeim fjórtán árum sem liðin eru síðan tveggjarásakerfið komst á. Annað hvort gerir Ruth svo strangar kröfur að ekkert sjón- varp í heiminum er þess umkomið að verða við þeim, eða hann hefur ekki horft á neitt sjónvarp, ellegar þá að minnið bregzt honum. Við höldum því fram að sem dæmi um minnisstæðar myndir megi nefna Mobergs-þættina Din stund pá, jorden, Raskens og Soldat með Brutit Gevár. Aðrir minnisstæðir framhaldsmyndaflokkar eru Nágonstans í Sverige, eftir skáld- sögu Jolos, og Babels hus, eftir sjúkrahússögu Jersilds. Tvær sænskar myndaraðir hafa hlotið mikla athygli á alþjóðavettvangi: Scener ur ett ákteskap eftir Ing- mar Bergman og hinir frábæru barnaþættir, Den vita Stenen, eft- ir Gunnel Linde. Meðal leikinna mynda má einnig nefna Peter Watkins-myndina Edvard Munch, sem reyndar er eitt norrænna samvinnuverkefna. Þau eru ekki fátíð og þeim fer fjölgandi. Þegar um óperu er að ræða er Töfraflautan í gerð Ingmar Bergmans í sérflokki og á alþjóða- vettvangi hefur hún vakið mesta athygli af því sem sænska sjón- varpið hefur látið frá sér fara, en allmargir Cullberg-ballettar, langflestir gerðir fyrir sjónvarpið, hafa einnig hlotið verðskuldað lof um víða veröid, og sama er að segja um Christinu og Gustav III. Þetta er valið af handahófi. Um leið er þó ástæða til að benda á að á áttunda áratugnum voru megin- viðfangsefni sænska sjónvarps- leikhússins nútímaverk sem frem- ur var ætlað að vera liður í þjóð- félagsumræðu en að verða ódauð- leg listaverk. Hvað heimildarmyndir áhrærir þarf ekki annað en benda á Sagan om livet eftir Nilsson, Erikson og Löfman, sem hlaut amerísku Emmy-verðlaunin og sex verðlaun að auki sl. haust. Frami á alþjóðlegum hátíðum er vitaskuld jafnfráleitur mæli- kvarði á listræna sköpun og gæði sænskrar sjónvarpsframleiðslu og sleggjudómar Ruths, en það hlýt- ur þó að viðurkennast að það er ekki laust við að vera merkilegt að þessum tveimur máttlausu sjón- varpsrásum skuli hafa tekizt að næla sér í 76 verðlaun á alþjóðleg- um hátíðum. Það er meira en við vitum til að nokkurt annað sjón- varpsfyrirtæki með nokkurn veg- inn sama starfsmannafjölda hafi afrekað. Tvær þessara hátíða þykja öðrum merkari. Þrívegis hefur sænska sjónvarpið fengið fyrstu verðlaun í flokki leikinna mynda í prix Italia síðan tveggja- rásakerfið komst á og fjórum sinnum í flokki tónlistarmynda, eða samtals sjö sinnum, sem verð- ur að teljast stórkostlegt þegar svo lítið sjónvarpsland sem Sví- þjóð á í hlut. Til samanburðar má geta þess að BBC hefur hlotið verðlaunin 8 sinnum, ITV 11 sinn- um, V-Þýzkaland 10 sinnum, Frakkland 4 sinnum og Austur- ríki, Finnland og Danmörk hafa hlotið þau tvívegis hvert. Prix Jeunesse veitir sambærileg verð- iaun fyrir barnaefni og þar hefur sænska sjónvarpið verið verðlaun- að 12 sinnum og er þar efst á blaði ásamt BBC sem hefur þó á bak við sig afnotagjöld 60 milljóna íbúa. Norðmenn, Danir og Finnar leggja mikið i barnaefni og þessar þrjár þjóðir eru líka meðal hinna fimm efstu. Á áttunda áratugnum hefur því miður ekki reynzt unnt að halda í horfinu hvað magn leik- ins efnis áhrærir. Framleiðsla þess er kostnaðarsamari en fram- íeiðsla á öðru efni. 8—10 sinnum dýrari en framleiðsla mynda úr ríki náttúrunnar og 6—7 sinnum dýrari en framleiðsla á fréttaefni. Af þessum ástæðum er fram- leiðsla leikins efnis vitaskuld mjög háð heildarafkomu sjónvarpsins. Samdráttur í framleiðslu leikinna mynda stafar ekki af skorti á listrænum sköpunarmætti heldur af fjármagnsskorti. Sá samdrátt- ur sem hófst um miðjan áttunda áratuginn fór smám saman að jafna sig þegar leið að 1980 og einnig á árunum þar á eftir. I þeirri þriggja ára áætlun sem nú er starfað eftir hjá báðum rásum, samhliða víðtækri hagræðingu, er áherzla lögð á aukna framleiðslu leikinna mynda. í því sambandi er sjónvarpið nauðbeygt til að gæta ýtrasta sparaðar og halda fram- leiðslukostnaði niðri svo um mun- ar, ef unnt á að vera að ná settu marki í framleiðslunni. Sá bar- áttuandi sem fer vaxandi innan fyrirtækisins tryggir að það muni takast. Nú, þegar allt kemur til alls þá gekk þetta kannski ekki svo bölv- „Þessi afstaða kemur Ííka fram í tillögu Arne Ruths um norræna dagskrárstofnun sem greinilega er ekki unnt að renna stoðum undir án þess að dauðadæma fyrst þá sjónvarpsstarf- semi sem þegar fer fram, bæði í Svíþjóð og annars staðar á Norður- löndum.“ anlega á áttunda áratugnum en er vesöldin nú um stundir á borð við það sem Ruth er að lýsa? Nærtæk- asta aðferðin til að athuga hvað hæft er í fullyrðingum hans er að líta á sjónvarpsdagskrána þann dag sem þær eru settar fram. Föstudaginn 6. apríl var eftirfar- andi menningarefni á dagskrá: Rás 1: Bein útsending frá hljóm- leikum Útvarpssinfóníunnar í Berwald-salnum. Einleikari: Frans Helmerson. „Hún gafst aldrei upp“, amerísk heimildarmynd um bæklað barn. Myndin hefur hlotið 5 Emmy- verðlaun. Rás 2: Frumsýnd gamanmynd Vilgot Sjömans, „Hvernig fer fyrir Petterson?" „Skemmtivélin", einn vinsælasti skemmtiþáttur allra tíma án er- lendrar fyrirmyndar. Sé litið á laugardaginn 7. apríl þá var á rás 1 heimildarmynd um landslagsmálara, Waldheimat, sí- gild æskusaga úr Ölpunum með sænsku tali. Síðan sakamálaþátt- ur frá Gautaborg, gerður af sjón- varpinu, og Hár har du ditt lif með Lasse Holmqvist og Vera Siö- crona. Sama kvóld sendi rás 2 út upp- töku óperunnar á Otello með Ragnari Ulfung. Samtímis fór fram útsending í útvarpi. Án þess að halda lengra með dagskrá vik- unnar má benda á sjónvarpsmynd Ingmar Bergmans, Áð lokinni æf- ingu, sem var frumsýnd á mánu- dagskvöld. Algjörlega „larnað", svo notað sé orðalag Ruths, var sjónvarpið varla um þessa helgi. 2. Ruth gerir líka veður út af því að sænska sjónvarpinu skuli ekki hafa tekizt að ala af sér einn ein- asta framúrskarandi kvikmynda- stjóra. Staðreynd málsins er sú að sænska sjónvarpið hefur ekki vilj- að byrgja sig innan sinna eigin múra. Þar eru starfandi fámennar leiklistarnefndir sem hafa þá stefnu að gefa framúrskarandi kvikmyndastjórum tækifæri til að njóta hæfileika sinna innan þess miðils sem sjónvarpið er án þess að vera þar fastráðnir. Við teljum slíka samvinnu á sviði leiklistar, kvikmyndunar og sjónvarps koma öllum þessum aðilum til góða. Þess vegna hefur t.d. Ingmar Bergman gert ýmsar annálaðar sjónvarpsmyndir og fleiri eru í bígerð, Bo Wilderberg hefur stjórnað A Streetcar Named De- sire og Death of a Salesman, sem einnig eru minnisstæð verkefni. Ruth gleymir því líka að sjónvarp- ið hefur fóstrað kvikmyndastjóra eins og Kaj Pollack, Lasse Hall- ström og Kjell Sundvall. Hann gleymir því líka að utan hins fá- menna fasta kjarna, þ.e. Bengt Lagerkvist, Carin Mannheimer og Berndt Callenbo, eru kvikmynda- stjórar sem koma aftur og aftur til starfa og má þar nefna Per Sjöstrand, Staffan Roos, Christian Lund, Lars R. Forsberg, Lars Mol- in, Jonas Cornell, Pelle Berglund og Gun Jönsson. Hvort nokkur þeirra á eftir að jafnast á við Still- er og Bergman er kannski of snemmt að segja fyrir um. 3. Ein fullyrðing Ruths er sú að ekk- ert Norðurlandanna hafi efna- hagslegar eða listrænar forsendur til að sjá tveimur ríkisreknum sjónvarpsrásum fyrir efni. Sú fullyrðing er dálítið undarleg með tilliti til þess að hinir snauðu Svíar höfðu efnahagslegar og listrænar forsendur til að tvöfalda nærri því leikhússtofnanir úr 13 í 24 og nærri því þrefalda tölu leik-, dans- og tónlistarhópa úr 19 í 52, en þetta hefur vitaskuld krafizt mikilla listrænna krafta og mik- illa fjármuna. Og ágætt er það. Án fjölda leikhúsa og óháðra hópa væri ekki fyrir sú breidd sem þarf til að ná frábærum árangri. Án þess að slík starfsemi ætti sér menningarlegar rætur mjög víða skorti forsendur fyrir því að Svíar gætu kallast menningarþjóð. Hitt er lakara að leikhúsum og leikhóp- um hefur ekki tekizt að ná því markmiði sem að var stefnt, þ.e. að ná til fjöldans og umfram allt til nýrra áhorfenda. Ástæðan er sú að sem dreifingartæki hefur sviðsleikhús mikla annmarka. Það sem lagt hefur verið undir í þess- ari starfsemi hefur ekki skilað sér í því að fleiri komi í leikhús. Þær tölur sem tiltækar eru varðandi aðsókn að leikhúsum benda til þess að þar hafi engar meiriháttar breytingar orðið á frá því á sjöunda áratugnum. Þetta þýðir að % hlutar þjóðarinnar hafi ekki séð leiksýningu á sviði síðasta ár- ið. Sama er að segja um kvik- myndasýningar. Um það bil helm- ingur þjóðarinnar kynnist kvik- myndum aldrei í kvikmyndahús- um. Erfiðast er að ná til gamla fólksins, unglinganna, þeirra sem hafa hlotið litla menntun og þeirra sem búa í hinum dreifðu byggðum. Fjölbreytni þess menningarefn- is sem í boði er er forsenda þess að sjónvarp komi að gagni sem menningarmiðill. Verði á því mis- brestur er menningarpólitíkin orðin nokkurs konar umsnúin Hróa hattarstefna. Tekið verður frá hinum fátæku og það gefið hinum ríku, verði sjónvarpinu ekki unnt að starfa áfram. Sjón- varpið er þegar alls er gætt ekki kostnaðarsöm útgerð. Allir, líka þeir sem ekki komast í óperuna, Dramaten og hin mörgu stofnana- leikhús, leggja sitt af mörkum með háum skattagreiðslum svo sjónvarpið getið starfað áfram, og þetta verður svo að vera. En rétt menningarstefna er líka í því fólg- in að þeir sem af ýmsum ástæðum komast ekki í leikhús fái hlutdeild í sænskri og alþjóðlegri leikhús- menningu fyrir gjald sem nemur um það bil krónu á mann. Við vonum að jafnvel Bengt Gjransson sé farinn að skilja þetta og haga sér samkvæmt því. Hefðu útvarps- og sjónvarps- gjöld verið há eða hækkað í sama mæli og t.d. áskrift að Dagens Ny- heter þá hefðum við getað skilið fullyrðingar Arne Ruths varðandi reksturinn. En jafnvel eftir hækk- unina 1. júlí nk. nemur kostnaður hvers heimilis ekki nema tveimur krónum á dag, eða 736 krónum á ári (fyrir kynstur af fréttum, leiksýningum, kvikmyndum og skemmtiefni, sem flutt er um þrjár útvarpsrásir, 26 svæðis- stöðvar útvarps og tvær sjón- varpsrásir). Fyrir meira framboð á efni (lengri útsendingartíma sjónvarpsrásar 2, svæðisútvarp og lengri útsendingartíma útvarps) en var árið 1971 greiða neytendur minna en í upphafi áttunda ára- tugarins. Væri verðlagsþróun af- notagjaldsins hin sama og áskrift- argjaldsins hjá Dagens Nyheter þá væri afnotagjaldið komið langt upp fyrir þúsund krónur. Það þjóðfélag sem Ruth telur ekki hafa ráð á tveimur sjónvarpsrás- um eyðir nú meiri peningum í myndbandaútgerð en þeim sem fara í allan sjónvarpsrekstur. Hér skal líka bent á að þrátt fyrir örari útbreiðslu myndbanda hér en víðast hvar annars staðar í heiminum hafa sjónvarpsáhorf- endur haldið áfram að horfa á sjónvarp í svipuðum mæli og áður var. Helmningur myndbandanotk- unar beinist að þvi að taka upp efni úr sænska sjónvarpinu þann- ig að myndband hefur líklega auk- ið möguleika fólks á að horfa á sjónvarp. Dagens Nyheter og Arne Ruth þekkja örugglega hvað minnkandi áhuga neytenda getur verið niðurdrepandi fyrir fjölmið- il. Enda þótt spilaborgin sem Ruth hefur reist til að renna stoðum undir sína eigin tillögu sé harla veikbyggð getum við verið honum sammála um eitt: Það er ekki heppilegt að fyrritæki sem hefur einokunaraðstöðu á sviði dreifinar Vandamál upplýsinga — eftir Ame Ruth þjóðfélags Á __norræn lausn „ h«nd. S»n^.r „NÍJ* «lirirBU>fBu® - a®*11 nrs konmr SAS þwf ** Hkipulegg)* knnnig *ð hwíU verðl kU þeim •nnmörkum sem núvernndi "1«. ,arp«rtoðy»r eru taAw Miklum rekHturHkontn í»ur thkur •• •jarsitSíAý® _ I „Akorr-.ndi Idndun. Oi u tp* zzsr ,„kUk*krrr.- ■‘„“sSf'.i , rtU«rr**'"*V' i StokkkM*"4 ,,,• aSiirSisar ^ iB “ •-» S£s3~rE‘JaÍ í-l3t‘r I fj0i •P"nw þeírri I *ri Mmi er hið r 2S *.Æ I Wpuhnn hefur d«®»krir. aatf-Míaisí SSgSg s5§SS °* “n.r. en rian- ku.naöur « 1,1 »U»v, hí'r| R^h JÍ þV‘ bUAl ,™ h*i rú”l «"> rrTr,‘ ssr.ss-~: ------- sssf '-zsisss Sslgg sg&r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.