Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.05.1984, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984 Leiðtogar grannríkja Helmut Kohl, kanzlari V-Þýzkalands, (tv.) og Francois Mitterrand, Frakklandsforseti, svara spurningum blaðamanna á sameiginlegum blaðamannafundi við lok leiðtogafundar þeirra í París í gær. Hermaður týndi lífi í sprengingu á írlandi Belfast, 29. maf. AP. ÍRSKIR hryðjuverkamenn sprengdu jarðsprengju nærri landamærum írska lýðveldsins í dag. Hermaður á eftirlitsferð týndi lífi í sprengingunni og annar stórslasaðist. Lögregla setti þegar upp veg- tálma á helstu undankomuleiðum i nágrenninu og hermönnum var flogið til svæðisins til þess að reyna að hafa hendur í hári hryðjuverkamannanna. Grunur leikur á að hér hafi hryðjuverkamenn írska lýðveld- ishersins (IRA) verið að verki, en bið hefur orðið á að einhver sam- tök lýstu ábyrgð á verknaðinum. Samtökin lýstu hins vegar ábyrgð á árás á 24 ára mann, sem særður var skotsári í Downpat- rick, í Downsýslu í gærkvöldi. Var skotið í báða fætur hans og lýst yfir að með því hefði honum verið refsað fyrir glæpi gegn málstað þjóðernissinna. 1 Belfast fer nú huldu höfði maður er leyft var að fara út fyrir fangelsismúra til þess að vera viðstaddur útför móður sinnar. Maðurinn, Robert James Watson, er sakaður um morð fjögurra kaþ- ólikka á árinu 1972. Chernenko sæmdur spænskri friðarorðu Moskva, 29. maí. AP. SPÆNSKA ÞINGIÐ veitti í dag Konstantin Chernenko, forseta Sov- étríkjanna og aðalritara Kommún- istaflokksins sérstaka orðu sína fyrir „frábær störf í þágu friðar í heiminum,“ eins og Jose Frederico De Carvajal forseti öldungadeildar þingsins sagði í ræöu í Kreml. De Carvajal er í farabroddi nokkurra öldungardeildarþing- manna spænskra sem eru í heim- sókn í Sovétríkjunum og hann bætti við að þetta væri framlag Danir andvíg- ir auknum völd- um þings EBE Kaupmannahöfn, 29. maí. AP. DANSKA þingið ákvað í dag að tillögu jafnaðarmanna að leggjast gegn tilraunum til að auka völd þings Efnahagsbandalags Evrópu eða gera EBE að stjórnmálabandalagi. Mikill meirihluti þingmanna greiddi tillögunni atkvæði, en gegn henni lögðust aðeins þing- menn vinstriflokka, sem vilja úr- sögn Dana úr EBE. Tveir stjórn- arflokkar, sem fylgjandi eru því að bandalagið eflist, sátu hjá. lögðu áherslu á þá skoðun sína að bandalagið ætti fyrst og fremst að beita sér í vandamálum er einstök ríki gætu ekki leyst á eigin spýtur, svo sem atvinnuleysi og umhverf- isvernd. Spánverja til að tengja austur og vestur friðsamlegri böndum. Hér er um mjög nýlega orðu að ræða, aðeins tveir menn aðrir hafa hreppt slíkan grip á undan Chern- enko, þeir Juan Carlos Spánar- kóngur og Miguel De La Madrid, forseti Mexíkó. Chernenko sagðist djúpt snort- inn er hann veitti orðunni viðtöku og sagðist líta á hana sem virð- ingarvott um „viðleitni Sovétríkj- anna til að stuðla að friðsamleg- um heimi", eins og hann komst að orði áður en hann nældi gripinn í jakka sinn. Juan Carlos Spánar- kóngur var á ferð í Sovétríkjunum og er litið á orðuveitinguna sem afleiðingu þeirrar ferðar. Hermenn frá E1 Salvador á æfing- um í Hondúras iVgucigalpa, 29. maí. AP. HERMENN frá El Salvador taka nú fyrsta sinni þátt í æfingum ásamt með hermönnum frá Bandaríkjun- um og Hondúras og er það von bandarískra stjórnvalda að æf- ingarnar verði til þess að Nicaragua dragi úr hemaðarsamvinnu við Kúbu og Sovétríkin og hætti að út- vega skæruliðum í El Salvador vopn. Æfingarnar eiga sér stað í Cuc- uyagua í Hondúras, um 40 km frá landamærum E1 Salvador og 32 frá landamærum Nicaragua. 1.300 hermenn frá E1 Salvador taka þátt í æfingunum, 1.800 frá Hond- úras og 1.000 frá Bandaríkjunum. Æfðar verða ýmsar hliðar hernað- araðgerða úr lofti og á landi. Æf- ingunum lýkur 30. júní næstkom- andi. Ekki eru allar ferðir til fjár Kaupmannahörn, 29. maí. AP. EKKI ERU allar ferðir til fjár seg- ir máltækið og til eru fleiri sem hafa það innihald að glæpir borgi sig ekki. Þeir eru áreiðanlega sam- mála þessu öllu, innbrotsþjófarnir sem hugðust ræna peningaskápa bifreiðavarahlutaverslunar f út- jaðri Kaupmannahafnar síðustu nótt. Skal nú sagt frá: Er starfsmenn verslunarinnar mættu til vinnu sinnar í morgun, var aðkoman allt annað en fög- ur. Þjófarnir höfðu borað gat á hnausþykkan útvegg með raf- magnsbor, en augsýnilega komið inn í rangt herbergi. Þaðan lá leiðin í gegn um fjóra inniveggi, alla þykka, með sama raf- magnsbornum. Loks komu þeir að peningaskápunum og boruðu sig niður í gólfið og undir annan þeirra, boruðu þar gat á botn hans. Ekki fundu þeir annað þar en lykilinn að hinum skápnum. Með lyklinum opnuðu þeir hann og fundu aðeins um 10.000 krón- ur danskar, eða sem nemur um það bil mánaðarlaunum verka- manns. „Við teljum að all margir menn hafi verið að verki og þeir hljóta að hafa unnið eins og skepnur í alla nótt. Þetta er mátulegt á þá, en þeir hafa ber- sýnilega ekki verið ánægðir með afraksturinn, því þeir skildu eft- ir rafmagnsborinn og öll verk- færi önnur, sum hver rándýr," sagði talsmaður lögreglunnar. Flokkur Mubaraks fær 391 sæti af 448 Kairó, 29. maí. AP. FLOKKUR Hosni Mubaraks, for- seta Egyptalands, hlaut rúmlega 72% atkvæða í þingkosningunum um helgina, en endanleg úrslit voru tilkynnt í dag. Flokkur Mubaraks hlaut sam- tals 391 þingsæti af 448, sem kosið var um, en 458 þingmenn sitja í egypska þinginu. Þingið situr fimm ár í senn. WAFD-flokkurinn, sem er hægriflokkur, er stærstur stjórn- arandstöðuflokkanna fjögurra eft- ir kosningarnar með 15,2% at- kvæða og 57 þingsæti. Flokkurinn er stofnaður upp úr eldri flokki sem var afl í egypskum stjórnmál- um fram til 1952. Hinir þrír stjórnarandstöðuflokkarnir hlutu engin þingsæti þar sem þeir fengu minna en átta prósent atkvæða í kosningunum hver. Þrír menn særðust í bardögum í Beirút Beirut, 29. maí. AP. HARÐIR bardagar geisuðu í dag í tvo klukkutíma milli múham- eðstrúarmanna og kristinna manna í Beirút, þar sem beitt var fallbyssum, eldflaugum og vél- byssum. Harðastir voru bardag- arnir í hæðunum suðaustur af borginni. Sprengikúlur lentu í grennd við dómsmálaráðuneytið, sem stendur nærri miðju borgarinn-' ar. Þá lentu sprengikúlur einnig í íbúðarhverfi kristinna manna í Austur-Beirút. Vitað var um þrjá menn, sem særzt höfðu al- varlega í þessum átökum. Rashid Karami forsætisráð- herra brást í dag ókvæða við. þeirri gagnrýni, sem fram hefur komið í hans garð þess efnis, að „ekkert hafi gerzt", síðan stjórn hans var mynduð. Sagði Kar- ami, að stjórn sín væri mynduð við óvenjulegar aðstæður og á mjög óvenjulegum tímum. Eng- inn gæti í einlægni haldið því fram, að unnt ætti að vera að koma á styrkri stjórn í Líbanon á einum mánuði. Verkfalls- verdir í átökum í samþykkt þingsins segir að að- ild Dana byggist á núverandi fyrirkomulagi bandalagsins, þar sem ráðherranefndir fari með völd í einstökum málaflokkum en að- ildarríki geti beitt neitunarvaldi ef þeim finnst ákvarðanir ráð- herranefnda ganga gegn þjóðar- hagsmunum. Uffe Ellemann-Jensen, utanrík- isráðherra, sagði í umræðum um ályktunina að starf EBE ætti að takmarkast innan gildandi sam- starfsramma ríkja bandlagsins, og talsmenn jafnaðarmannaflokksins Tortryggni í garð Botha í Sviss SVISSNESKA stjórnin reyndi í dag að láta sem minnst bera á fyrirhugaðri „hálf-opinberri“ heimsókn P. W. Botha, forsætisráðherra Suður-Afríku til Sviss. Af öryggisástæðum var ekki skýrt frá einstökum atrið- um varðandi heimsókn hans. Af hálfu svissneska utanríkisráðuneytisins var aðeins sagt, að á föstudag myndi Botha sitja „kurteisis-hádegisverðarboð" Leon Schlumpfs, forseta Sviss. „Botha hefur farið fram á þennan fund til þess að gera grein fyrir ástandinu í Suður-Afríku," sagði Georges Martin, talsmaður svissneska utan- ríkisráðuneytisins í dag. Pierre Aubert, utanríkis- ráðherra Sviss, kveðst ekki geta verið viðstaddur hádegisverðarboðið á föstudag „sökum anna“. Mótmælendakirkjan í Sviss hefur birt opið bréf þar sem skorað er á Schlumpf forseta að „endur- skoða réttmæti þessarar heimsóknar", sem lýst er sem „óæskilegri", sökum þess að meirihluti blökkumanna í Suður-Afríku er enn „framandi fólk í heimalandi sínu þrátt fyrir allt yfirskin með umbætur". Sh. m. ld, 29. maí AP. KOLANÁMUMENN í verkfalli lentu í dag í átökum við lögreglu fyrir utan koksverksmiðju í Sheffield á Norð- ur-Englandi. Samkvæmt frásögn lög- reglunnar slösuðust 30 manns og 63 voru handteknir. Átökin blossuðu upp, er um 6.000 verkamenn reyndu árangurslaust að stöðva för vörubifreiða, sem fluttu kol til verksmiðjunnar, er framleiðir úr þeim koks fyrir stál- iðnaðinn. Köstuðu verkfallsverðir grjóti, flöskum og öðru tiltæku að lögreglunni, er hún kom á vett- vang.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.