Morgunblaðið - 06.06.1984, Side 4

Morgunblaðið - 06.06.1984, Side 4
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1984 Svipmyndir frá innrásinni. baráttuandinn góður. í fótgöngu- liðinu voru hins vegar margar lé- legar sveitir, þar á meðal strand- gæzluliðið. Margir hermannanna voru of ungir, eða of gamlir, og margir þeirra voru „sjálfboðaliðar" frá Armeníu, Grúsíu og Azerbajdzh- an, eða Tartarar, sem höfðu held- ur kosið að klæðast þýzkum ein- kennisbúningum en tortímast í fangabúðum. Rommel gerði sér engar gylli- vonir. Þýzku herirnir á vestur- vígstöðvunum voru ekki nógu vei þjálfaðir, þeir áttu við samgöngu- erfiðleika að stríða, þá skorti nauðsynlegan ratsjárbúnað, þeir urðu stöðugt fyrir barðinu á loft- árásum og það eina sem þeir gátu * gert var að bíða þess að árásin hæfist. Ef til vill var heppilegt fyrir Bandamenn að hetjan frá Norð- ur-Afríku hafði ekki verið skipað- ur fyrr í stöðu sína, að áætlanir þessa þróttmikla herforingja nutu ekki heilshugar stuðnings yfir- manna hans og að undirmenn hans framfylgdu þeim ekki út í æsar. Um þetta leyti hafði þýzka and- spyrnuhreyfingin, undir forystu Ludwig Becks hershöfðingja, fv. herráðsforseta, og Karl Gördelers, borgarstjóra í Leipzig, valið hann æðsta yfirmann þýzka heraflans og forseta, að Hitler látnum. Rommel var gramur Hitler. Hann var í Þýzkalandi þegar inn- rásin var gerð til að leggja áherzlu á kröfur sínar um að varnirnar í Normandi yrðu efldar, m.a. með SS-skriðdrekaherfylkjum skammt frá Paris, og betur samræmdar. Hann átti að ganga á fund Hitl- ers 6. júní og gisti á heimili sínu f Herrlingen, skammt frá Ulm. Sjötti júní var afmælisdagur konu hans, en hann gat ekki haldið upp á afmælið og heldur ekki hitt Hitl- er að máli. Árla morguns hringdi síminn. Herráðsforseti hans, Hans Speidel hershöfðingi, tilkynnti að innrásin væri hafin. „Bölvaður bjáni get ég verið,“ hrópaði Rommel í símtólið. í meginatriðum tryggðu yfirráð Bandamanna í lofti (frá því árið áður, þegar langfleygar orrustu- fylgdarflugvélar af Mustang-gerð voru teknar í notkun) að Overlord heppnaðist. En þótt Banda- mönnum tækist að eyðileggja vegi og járnbrautir, sem lágu til orrustusvæðisins, leiddu þær að- gerðir til langra og harðvítugra deilna Bandamanna innbyrðis. „Flutningaáætlunin", eins og hin geysiharða loftsókn kallaðist, fólst í hárnákvæmri eyðingu mannvirkja, sem voru ómissandi til eftirlits með og til viðgerða og viðhalds á járnbrautaflutninga- kerfi Norður- og Vestur-Frakk- lands, Niðurlanda og Vestur- Þýzkalands. Um miðjan maí hafði tekizt að kljúfa þýzku herina í Frakklandi í tvennt með loftárás- um á samgöngukerfið. D-dagur Sautjánda maí ákvað Eisenhow- er til bráðabirgða að mánudagur- inn 5. júní yrði innrásardagur — D-dagur. Lokaákvörðun átti að fara eftir veðri. En veðrið var ekki hagstætt. J. N. Stagg yfirveðurfræðingur tilkynnti að rok og brim væri við strönd Normandí sunnudaginn 4. júní og Eisenhower ákvað að fresta innrásinni. Kl. 4 f.h. daginn eftir rofaði til og Eisenhower til- kynnti: „Gott og vel, við förum.“ Margir efuðust um að innrásin mundi heppnast. Forseti brezka herráðsins, Sir Alan Brooke hershöfðingi, skrifaði 5. júní: „Þetta geta hæglega orðið mestu ófarir stríðsins." Yfirmaður bandariska sprengjuflugvélaflot- ans í Evrópu, Carl Spaatz hers- höfðingi, lýsti því yfir fyrirfram að hann bæri enga ábyrgð á því hvernig færi. Áður en tveir klukkutímar voru liðnir frá því Eisenhower gaf skip- un um innrás sigldi voldugur floti út á úfið Ermarsund frá Fal- mouth, Fowey, Plymouth, Sal- combe, Dartmouth, Brixham, Tor-. bay, Portland, Weymouth, Poole, Southampton, Shoreham, New- haven og Harwich. Fjögur ár voru liðin, næstum því upp á dag, síðan brezki leið- angursherinn hafði sloppið með naumindum frá Dunkerque. Nú sneru Bretar aftur með öfluga bandamenn sér við hlið til þess að hefna auðmýkingarinnar og frelsa Frakkland. Meðan þessu fór fram höfðu flugvélar Bandamanna haldið uppi dreifiárásum á skotvirki og strandsvæði í Pas de Calais. Þáef voru endurteknar þegar líða tók á daginn til að ýta undir þá skoðun að innrásin yrði gerð á þessum slóðum. Nauðsynlegt var að óvinurinn kæmist ekki að því hvert innrás- arflotinn stefndi og því voru þær ratsjárstöðvar milli Cherbourg og Le Havre, sem höfðu ekki eyði- lagzt í loftárásunum, truflaðar. Villt var um fyrir starfsliði rat- sjárstöðva milli Le Havre og Cal- ais til að telja því trú um að flot- inn væri á leið til þess hluta strandlengj unnar. Brezk herskip drógu loftvarna- belgi og villtu þannig um fyrir ratsjám Þjóðverja að þeir héldu að stór skip væru á ferðinni. Sprengjuflugvélar færðu sig stöð- ugt nær Frakklandi, hringsóluðu yfir ströndinni og vörpuðu út þunnum álþynnum, sem villtu þannig um fyrir starfsmönnum þýzkra ratsjárstöðva að þeir töldu sig verða vara við ferðir stórrar skipalestar yfir Ermarsund. D-daginn, 6. júní 1944, lauk löngum undirbúningi og lang- vinnri skipulagningu afdrifarík- ustu aðgerða á sjó, landi og í lofti, sem um getur í sögunni. Tuttugu mínútum eftir mið- nætti stigu fyrstu hermenn Bandamanna á franska grund. Þeir voru úr 6. fallhlífaherdeild Breta og lentu í svifflugu skammt frá Bénouville til að ná brúnum yfir Caen-skurðinn og ána Orne. Hálftíma seinna vörpuðu her- menn úr 3. og 5. stórdeildunum sér til jarðar í fallhlífum austan við Orne. Þeir áttu að þagga niður í Merville-skotvirkinu, eyðileggja brýrnar yfir ána Dives og hreinsa svæði norður af Ranville, svo að 72 svifflugur gætu lent þar kl. 3.30 með fallbyssur, flutningatæki og þungan útbúnað. Á sama tíma og 6. fallhlífaher- fylkið tryggði austurjaðar innrás- arsvæðisins hafði mönnum úr 101. og 82. bandarísku fallhlífaher- fylkjunum verið varpað til jarðar í suðausturhorni Cotentin-skaga, skammt frá Ste Mere Eglise og Vierville, til að leysa af hendi sams konar verkefni á vesturjaðr- inum. Þrátt fyrir mannfall og ringulreið, sem stafaði af því að landgangan dreifðist yfir stórt svæði, neyddu Bandamenn óvin- inn til að heyja varnarhernað og þeir náðu mikilvægustu vegum. Á meðan fallhlífahermönnunum var varpað til jarðar réðust rúm- lega 1.100 brezkar og kanadískar sprengjuflugvélar á strandvirki á svæðinu milli Le Havre og Cher- bourg. I dögun, á siðasta hálftím- anum áður en fyrstu hermennirn- ir réðust til atlögu, var gerð geysi- hörð flota- og loftárás á strand- virkin á innrásarsvæðinu. Þjóðverjar voru vissir um að ekki yrði hægt að koma þeim að óvörum, en loftárásirnar og trufl- anirnar á ratsjártækjum þeirra höfðu villt þeim sýn. Þeir gátu því ekki stöðvað fallhlífaliðið og urðu ekki varir við innrásarflotann fyrr en hann var kominn svo nálægt ströndinni að þeir heyrðu í hon- um. Landganga Kl. 6.30 gekk „U-liðsaflinn“ (kjarni hans var 4. bandaríska fótgönguliðsherfylkið) á land syðst á Cotentin-skaga vestan- verðum nálægt þorpinu La Made- leine, á svæði, sem hafði verið dulnefnt Utah-strönd. Landgang- an gekk fljótt og greiðlega fyrir sig. Vegna rangra útreikninga hafði liðið verið sett á land einum og hálfum kílómetra sunnar en ráð- gert hafði verið, á svæði þar sem furðulítið var um varnir. Aðeins 12 féllu og liðinu tókst að koma 28 skriðdrekum af 32 á land, þar sem þess var gætt að setja þá ekki of snemma i sjóinn. „0-liðinu“, sem var sett á land á svæðinu milli Colleville og Omaha-strandar, tókst ekki eins auðveldlega að rjúfa skarð í Atl- antshafsmúrinn. Samkvæmt áætl- uninni um aðgerðirnar á þessu svæði átti 1. bandaríska fótgöngu- liðsherfylkið að ráðast til atlögu ásamt tveimur bardagasveitum og með stuðningi tveggja sveita DD-skriðdreka og tveggja sér- þjálfaðra verkfræðingasveita. Kl. 3 fóru hermennirnir í árás- arbátana og voru látnir síga f sjó- inn. Mikill öldugangur var og tíu litlir bátar fylltust af sjó næstum því á svipstundu, en hermönnum tókst að halda öðrum á floti með þvf að nota hjálma sína til að ausa úr þeim. Á leiðinni i land sukku 27 DD-skriðdrekar af þvf að ekki var beðið nógu lengi áður en þeir voru settir í sjóinn. Skyggni var slæmt, svo að lítið gagn var af skothríð, sem Banda- menn héldu uppi frá skipunum til að verja áhlaupssveitirnar. Eng- inn komst þurr í land. Mennirnir stauluðust upp í fjöru, kvíðafullir, kaldir, gegnblautir, þrekaðir og slæptir og veikburða eftir sjóveiki og þeir lentu strax í skothríð, sem Þjóðverjar létu dynja á þá úr ótal vélbyssum og fallbyssum. Þremur tímum síðar var ströndin þakin brennandi bílum, ónýtum bátum og dauðum, dauðþreyttum og dauðhræddum mönnum. í nokkra klukkutíma var staðan á Omaha-strönd mjög tvísýn. En menn hefðu ekki þurft af hafa svo miklar áhyggjur af því hvernig færi og orrustan hefði ekki þurft að kosta eins mörg mannslff, ef yfirmaður bandaríska árásarliðs- ins, Omar Bradley hershöfðingi, hefði notað meira af sérhæfðum bryndrekum Hobarts. Þar sem hann hafnaði þeim varð viður- eignin í Omaha-fjöru fljótlega að blóðbaði og Bandaríkjamenn misstu 1.000 menn fallna og 2.000 særða. Bandarísku hermennirnir mættu allharðri mótspyrnu frá djörfu fótgönguliðsherfylki, sem ekki hafði verið gert ráð fyrir á þessum stað, en manntjón þeirra af völdum skothríðar og jarð- sprengja hefði orðið langtum minna, ef nokkrir „Krabbar" hefðu verið tiltækir til að ryðja nauðsynlegar brautir út af svæð- inu. Þess var ekki gætt að setja DD-skriðdrekana, sem Bradley hafði verið tregur til að þiggja, á land á undan fótgönguliðinu og lftið gagn var af herskipaskothríð- inni og loftárásunum. Afleiðingin varð sú að fótgöngu- liðarnir nrðu auðveld bráð óvin- anna í virkjunum, sem þeir áttu að taka með áhlaupi. Þó tókst að lokum með samfelldum og ná- kvæmum árásum með fallbyssum herskipanna og þrákelknislegum áhlaupum fótgönguliðanna að brjóta mótspyrnuna á bak aftur og afstýra staðbundnum óförum, sem hefðu getað valdið meirihátt- ar hættuástandi. Aðgerðir Breta I landgöngu- svæðum, sem voru dulnefnd „Gold", „Juno“ og „Sword", hefðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.