Morgunblaðið - 06.06.1984, Síða 16

Morgunblaðið - 06.06.1984, Síða 16
64 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1984 Litli klæöskerasonurinn sem kjörinn var „ Knattspy r numaður heimsins“ > Zico þykir hafa ótrúlega mikið jafnvægi í leik sínum. Þessi litlí en snöggi knattspyrnumaður smýgur á milli mótherja sinna eins og lítill fugl, þrátt fyrir aö þeir reyni oft og iöulega aö sparka hann niður. Margur er knár þó hann sé smár Artur var bæöi smávaxinn og veikbyggöur þegar hann 14 ára gamall kom fyrst til knattspyrnufé- lagsins Flamengo. Hann fékk strax viöurnefniö „Arturzico" — eða Art- ur litli. En líkamsburöir hans og knattspyrnuhæfileikar döfnuöu hratt og vel og áriö 1983 var Zico kjörinn besti knattspyrnumaöur heims sem íþróttablaöið „World Soccer" stóö aö. Zico varö fyrir valinu vegna góörar frammistööu hans hjá Flamengo svo og ítalska félaginu Udinese þar sem hann leikur nú og er orðinn átrúnaöargoö margra þar í landi. Meöan á æfingum liösins stend- ur eru áhorfendabekkir þétt setnir fólki sem fýsir aö sjá Artur Antun- es Coimbra ööru nafni Zico. Þaö var á sl. ári sem Udinese, félag í borginni Udine í norö-austurhluta Ítalíu, keypti knattspyrnumanninn snjalla frá Flamengo í Rio de Jan- eiro fyrir um 120 milljónir króna. En það er mál manna þar í þorg aö Zico sé allra þeirra peninga viröi því hann kann aö skora mörk. Hann hugsar vel um aðdáendur sína Þaö er ekki aö undra þótt Zico sé einn vinsælasti knattspyrnu- maður heims því hann er orölagö- ur fyrir elskusemi og þægilegt viö- mót og gefur sér ævinlega tíma til aö gefa eiginhandaráritun og sinna aödáendum stnum, sem hópast í kringum hann eftir æfingar á „Via Montana". Já, þeir eru margir sem vilja eiginhandaráritun og biöa lengi í biöröö eftir aö rööin komi aö þeim, jafnt drengir sem stúlkur og fleiri eru eldri en Zico sjálfur, sem nú er þrítugur. Smátt og smátt tvístrast hópurinn og Zico kemst loks aö bílnum sínum BMW 735 enda er stærsta stjarna liös- ins, best launaöi leikmaðurinn og hefur efni á aö aka á dýrum bíl þessa tvo kílómetra, sem skilja aö æfingastaöinn og einbýlishús hans í útjaöri Udine. Þar býr Coimbra-fjölskyldan; Zico og eiginkona hans, Sandra, börn þeirra þrjú, foreldrar Söndru og fjórir vinir þeirra. „Mér líöur vel á Ítalíu en þaö er kalt hérna yfir vetrarmánuöina" segir Artur Ant- unes Coimbra. „Allir eru sérlega vingjarnlegir og mér og fjölskyldu minni finnst viö velkomin hér í landi.” Hræddur um að verða fyrir meiöslum Zico sem hefur skorað yfir 600 mörk á knattspyrnuferli sínum í Brasilíu er ánægöur meö italska knattspyrnu en hann óttast stöö- ugt aö veröa fyrir alvarlegum meiöslum. „Mér er illa við harövítuga and- stæöinga," segir hann. „Sjáiö hvaö kom fyrir Maradona hjá Barcelona: Þaö var sparkaö svo illa í hann aö hann hefur ekki snert bolta í hálft ár. Ég óttast æ meir aö eitthvað álíka komi fyrir mig.“ Zico kann ráö til aö hindra ódrengilega framkomu leikmanna á vellinum; „Bæði dómarar og línu- veröir þurfa aö vera enn betur á veröi gagnvart haröskeyttum leik. Þaö þarf aö heröa reglurnar og auka eftirlit meö ólöglegu fram- feröi gagnvart leikmönnum sem ekki eru meö boltann." Þaö er einkum tvennt sem heill- ar Zico mest á Ítalíu: Fólkiö og landslagiö. En þaö er kalt í noröur- hluta Ítalíu fyrir Brasilíubúa, sem er vanur hitanum i Rio. Ævintýrið um Zico Lífshlaup Zicos er ævintýri lík- ast. Sagan um fátæka klæöskera- soninn úr fátækrahverfinu Quint- iono Bocaiuva í stórborginni Rio, sem varö átrúnaöargoö heimsins. Zico er yngstur fimm bræðra, sem allir leika knattspyrnu. Faöirinn er Portúgali en móöirin ítölsk. Bæöi komu þau ung sem innflytjendur til Brasilíu. Zico, sá minnsti í fjölskyldunni, varð sá stærsti meö um 10 milljón króna árslaun hjá Flamengo. Hann sigraði heiminn þrátt fyrir skugg- ann sem leikur Brasilíumanna gegn itölum í heimsmeistara- keppninni á Spáni varpaöi á frægöarferil hans um skamman tíma. Þegar stjarnan yfirgaf Flamengo og Rio síöastliöiö sumar fór allt á annan endann í borginni. Enginn vildi sjá á bak hetjunni. Þjálfarinn Carlos Alberto gat ekki hafnaö 120 milljónum þrátt fyrir hávær mót- mæli og peningasöfnun fátækra íbúanna. Alberto fékk kaldar kveöjur vegna sölunnar á þessum snjalla leikmanni, sem haföi veriö markakóngur brasiliskrar knatt- spyrnu í áraraöir, og hann sá aö þaö var nokkuö til í því sem sagt var aö Zico væri jafn ómissandi fyrir Flamengo eins og kaffiö fyrir Brasilíu. Afleiðingar sölunnar Þaö varö ekki aftur snúiö og af- leiöingarnar létu ekki á sér standa. Bæöi þjálfarinn, Carlos Alberto, og forseti Flamengo, Antonio Dushee- de Abranches, voru reknir frá fé- laginu. í Brasilíu eru leikmenn taldir of gamlir þegar þeir hafa náö 26 ára aldri. Ööru máli gegndi um Zico. Þó að hann heföi náö 29 ára aldri vildu aödáendur hans ekki sjá af honum. En knattspyrnan er hans líf og yndi og hann tekur óþægindunum sem henni fylgja meö jafnaöar- geði. „Ég er 30 ára gamall og vonast til aö geta leikiö knattspyrnu næstu fimm til sex árin. Knatt- spyrnan veitir mér mikla ánægju og ég mun aldrei fá leiö á henni. Knattspyrnan er dásamleg at- vinna, hún er mitt líf.“ Hinn hvíti Pele Vinsældum sínum á Zico aö þakka frábærum knattspyrnuhæfi- leikum. Auk titilsins sem besti knattspyrnumaöur heims áriö 1983 getur hann státaö af því aö hann var kjörinn besti knatt- spyrnumaöur Noröur- og Suður- Ameríku áriö 1982. En hann hefur ólíkt yfirbragö annarra Brasilíu- manna. Húölitur hans er Ijós og hefur hann þess vegna oft veriö nefndur „hinn hvíti Pele“. Sjálfur er hann óánægöur meö þá nafngift. „Þaö er bara til einn Pele eins og þaö er til einn Zico í heiminum. En ef þaö er nauösynlegt aö líkja leikstíl mínum viö leikstíl annars þá ætti þaö aö vera Tostao, hinn snjalli miöframherji Brasilíu, sem meöal annars tók þátt í heims- meistarakeppninni áriö 1970.“ Margir hinna snjöllu leikmanna Brasilíu hafa æft sig á sendnum ströndum Brasilíu. En ekki Zico. Litli klæöskerasonurinn byrjaöi æfingar á tiltölulega góöum völlum í úthverfi borgarinnar. Þar æföu drengirnir á grasvöllum með góöa bolta og alvöru mörk. Þaö var oft þröngt í búi hjá fjöl- skyldunni og þaö komu dagar sem engan mat var aö fá. Enda var Art- ur grannur og heilsa hans bág en viljinn til aö ná langt sem knatt- spyrnumaöur var mikill. 14 ára gamall var hann tekinn í draumafé- lagið Flamengo. í reynsluleiknum skoraöi sá stutti fjögur mörk og þrátt fyrir litla líkamsburöi fékk hann inngöngu. Nýja félagiö hans hefur aldrei unniö keppni „milljóna félaganna" eins og ítalska fyrsta deildin er jafnan kölluö. Félögin hreinlega synda í peningum vegna áhorf- endafjöldans, sem aö meöaltali er um 40.000 manns á leik. Hlutverk Zicos er aö skjóta Udinese á topp- inn í ítalskri knattspyrnu. Félagiö var stofnaö áriö 1896 og er í dag fjármagnaö af Zanussi- samsteypunni en hún ein stóö aö kaupunum á besta knattspyrnu- manni heims. „Zanussi hefur ekki efni á aö greiða starfsfólki sínu þokkaleg laun en hefur nægilegt fjármagn til aö kaupa knattspyrnumann dýru veröi,“ er haft eftir þjónustustúlku í bænum þar sem búa um 103.000 íbúar. Gárungarnir segja aö kaup- in á Zico hafi kostaö 1.000 manns vinnuna hjá Zanussi-verksmiöjun- um. Fleiri áhorfendur Þegar Udinese leikur á heima- velli á móti sterkum liöum eins og Roma og Juventus þá er hvert sæti skipaö eöa 50.000 áhorfendur. Á venjulegum leik á heimavelli eru áhorfendur á bilinu 40.000 til 45.000. Það eru um 10.000 fleiri áhorfendur en í fyrra þegar liðiö hafnaöi í fimmta sæti án Zicos. Artur litli fékk ógleymanlegar móttökur á flugvellinum þegar hann steig á ítalska grund í fyrsta skiptiö. Þúsundir manna tóku á móti honum og feröin þaöan var í stíl viö sigurgöngur rómversku keisaranna foröum. Segja má aö hann hafi verið hylltur sem Zico konungur viö hátíölega athöfn stuttu eftir komu sína til Ítalíu. Vinsældir hans hafa fylgt honum æ síöan og áhangendur hans fylgjast grannt meö honum. Vilji og hæfileikar Þjálfarar Flamengo og aðrir knattspyrnuáhugamenn sáu strax aö mikið bjó í þessum mjóslegna dreng. Á leikvellinum sýndi hann vilja og hæfileika ásamt sjálfsaga af Guös náö og Flamengo tók hann undir sinn verndarvæng. Hann fékk eins mikiö aö boröa og hann gat í sig látiö, læknisaöstoð, tannviögeröir og allt þaö sem unglingur þarfnast. Smátt og smátt varö hann aö framúrskar- andi knattspyrnumanni. I Brasilíu segja menn aö hann sé fyrsti knattspyrnumaöurinn sem fram- leiddur hefur veriö. Á fjórum árum hafði hann þyngst um 13 kíló og lengst um 17 sentimetra. í dag er Zico þrítugur milljónamæringur, 69 kg aö þyngd og 172 cm á hæö. Hann hefur komist í góöar álnir og getur veitt sér þaö sem hugur hans girnist. Öllu tali um hann sem átrúnaö- argoð heldur hann í hæfilegri fjar- lægö enda finnst honum slíkt ein- ungis eiga viö æöri trúarlega vætti. Eitt er víst aö þaö er ekki fyrir tilviljun aö Artur Antunes Coimbra — litli, fátæki drengurinn frá Rio — er oröinn „konungur“ í Udine.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.