Morgunblaðið - 06.06.1984, Síða 30

Morgunblaðið - 06.06.1984, Síða 30
78 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNl 1984 -.Klæðum og bólstrumj ígömul húsgögn. Gott ,úrval af áklæðum BÓLSTRUNi ASGRÍMS, Bergstaðastræti 2, Simi 16807. Sandur: Kvikmyndatökur hefjast 19. júní TÖKUR vegna „Sandsins", kvik- myndar Ágústs Guðmundssonar, leikstjóra, hefjast að öllum líkindum þann 19. júní nk. á Kirkjubæjar- klaustri, en þeim verður væntanlega lokið um verslunarmannahelgina. Að sögn Ágústs er ráðgert að kostn- aður við gerð myndarinnar verði um 7 milljónir króna, en kvikmynda- sjóður, við síðustu úthlutun, 1,8 milljónir króna til hennar. Tökur fara að mestu fram á Kirkjubæjarklaustri og í Land- broti, en einnig verður kvikmynd- að í Reykjavík og víðar á Suður- landi. Á fimmta tug manna vinna við gerð myndarinnar, þar af 25 leikarar í nafngreindum hlutverk- um, auk staðgengla og 12 manna hópur vinnur við upptökur. Leik- stjórinn, Ágúst Guðmundsson, gerði jafnframt kvikmyndahand- ritið, Sigurður Sverrir Pálsson annast kvikmyndatöku, Guðný Halldórsdóttir, framkvæmda- stjórn og Halldór Þorgeirsson gerði leikmynd. Að sögn Ágústs er ekki búið að velja i öll hlutverkin, fyrir utan þau helstu. Aðalleikarar eru Pálmi Gestsson, Edda Björgvinsdóttir og Arnar Jónsson, en vegna meiðsla hans er ekki útséð með hvort hann geti leikið í myndinni. Þá eru þeir Jón Sigurbjörnsson og Borgar Garðarsson einnig í stórum hlut- verkum. Nýr sykurlaus Nýjung! Sætefnið Nutra Sweet er notað í Topp appelsínudrykkur Fæst í öllum matvöruverslunum SÓL H/F. Aóalgeir Pálsson, skólastjóri Iðnskólans á Akureyri, við skólaslit. * ^ ™ í'V’*'ric Akureyri: Iönskólanum slit- ið í síðasta sinn Akurerrj, 4. júní. IÐNSKÓLANUM á Akureyri var slitið í 79. og síðasta sinn af skólastjóra, Að- algeiri Pálssyni, á fimmtudag í síðustu viku. Skólinn sem slíkur hefur nú verið lagður niður og við hlutverki hans tek- ur Verkmenntaskólinn á Akureyri, sem formlega bóf starfsemi sína 1. júní sl. I skólaslitaræðu Aðalgeirs Páls- sonar kom m.a. fram, að nemenda- fjöldi skólans á haustönn var 265 en á vorönnn 270. Einnig að 360 ein- staklingar voru innritaðir í skólann á síðasta starfsári. Af þessum nemendafjölda eru 64% frá Akur- eyri, 29% frá öðrum stöðum á Norð- urlandi og 7% annars staðar frá. Brautskráðir iðnnemar frá skólan- um að þessu sinni voru 58. í lokaorðum sínum sagði Aðalgeir Pálsson m.a.: „Á þessum krossgötum f lífi ykkar skulum við hver um sig nota örfá andartök til að staldra við og hugsa til framtíðarinnar. í leit að lífsþægindum og skemmtunum gleymist alltof oft að í sjálfri vinn- unni er fólgin lífsnautn, sem ekki skilur eftir sig tóm eða timburmenn. I hverju starfi er fólgin bæði sköpun og ábyrgð. Að lokum bætist við fögn- uðurinn yfir loknu verki. Vinnugleð- in er undirstaða hamingjusams lffs, en lífshamingja einstaklinganna er ein þess megnug að skapa farsælt þjóðfélag... Þegar upp verður stað- ið verður það skyldurækni f starfi og siðgæði mannsins, sem mun vega mest í sjóði okkar. Minnist þess að hamingjuna er að finna á veginum, ekki á enda vegarins." Að lokum flutti skólastjóri árnað- aróskir til nýs skólameistara Verk- menntaskólans, óskaöi honum og skólanum velfarnaðar og sleit síðan Iðnskólanum á Akureyri f síðasta sinn. GBerg KUNGER Gæðavara á góðu ver%: Við eigum nú til á lager 8 stærðir af KLINGER kúlulokum frá W' til 2". Mjög hagstætt verð. Heildsala — Smásala Allt til pípulagna Burstafell Byggingavöruverslun Bíldshöfða 14 Sími 38840 _ Plastpoka og prentun færðu hjá I1.ISÍ.OS lll 82655

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.