Morgunblaðið - 28.06.1984, Side 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
145. tbl. 71. árg.
FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Óreyndur
maður í
stól Lambs-
dorffs
Bonn, 27. júní. AP.
HELMUT Kohl kanzlari útnefndi
Martin Bangcmann eftirmann Otto
Lambsdorffs á stól efnahagsráðherra,
en Lambsdorff sagði af sér í gær-
kvöldi vegna hneykslismálsins, sem
kennt er við Flick-auðfélagiö.
Lambsdorff sagði af sér þegar
honum varð ljóst að hann yrði
ákærður fyrir mútuþægni, sem
hann ber af sér. Er hann sagður
hafa þegið 135 þúsund mörk í mút-
ur frá Flick-félaginu.
Bangemann, sem er 49 ára, er úr
flokki frjálsra demókrata (FDP) og
hefur lítið sýslað við efnahagsmál.
Búist er við að hann sverji embætt-
iseið á morgun, fimmtudag.
Saksóknari í Bonn gaf sekt
Lambsdorffs í skyn í desember sl.
en hann neitaði þá og sat sem
fastast, en ákvað að segja af sér nú
til að veikja ekki stjórn Kohls í
sessi.
Bangemann hlaut tilnefningu
flokks síns eftir rúmra tveggja
stunda neyðarfund í morgun, eftir
að Hans Dietrich Genscher flokks-
formaður hafði náð samkomulagi
við Franz Josef Strauss, forsætis-
ráðherra Bæjaralands, sem sótzt
hafði eftir sætinu.
Sjá nánar á bls.22.
Martin Bangemann
Sáttum í
EB fagnað
Briissel, 27. júnt. AP.
LEO Tindemann, utanríkisráðherra
Belgíu, og Gaston Thorn, formaður
stjórnarnefndar Evrópubandalagsins
(EB), lýstu fögnuöi sínum með sam-
komulagið, sem náðst hefur um fjár-
framlög Breta til EB.
Tindemann sagði samkomulagið
marka „upphaf nýrrar Evrópu" og
Thorn sagði bandalagið nú starf-
hæft að nýju. Einnig táknaði sam-
komulag um hækkun þess hluta
virðisauka- og söluskatts í banda-
lagslöndunum, sem rennur í sjóði
EB, að gjaldþrot myndi ekki blasa
við bandalaginu næstu fimm árin
a.m.k.
Evrópumeistarar fagna
Simamynd AP.
Nýbakaðir Evrópumeistarar í knattspyrnu, Frakkar, fagna hér ásamt þjálfara sínum, Michel
Hidalgo, eftir-2:0 sigurinn á Spánverjum í úrslitaleik Evrópukeppni landsliða á Parc des Princes-
leikvanginum í París í gærkvöldi. Fremstir eru, frá vinstri: Joel Bats, Manuel Amoros, Alain
Giresse og Didier Six. Þjálfarinn Hidalgo er í ljósum jakkafötum með bindi. Það er Luiz Fernand-
ez, fyrir miðju, sem greinilega stjórnar sigursöngnum. Sjá nánar á íþróttasíðum.
írakar ráðast á
svissneskt skip
Manama, 27. iúní. AP.
Manama, 27. júní. AP.
íraskar orrustuþotur réðust á
svissnesk tankskip suður af
Kharg-eyju, að sögn Lloyd’s-
tryggingafélagsins, og er það
spurðist út hækkaði dollar
skyndilega á gjaldeyris-
mörkuðum, eftir að hafa farið
lækkandi í morgun. Hefur sterl-
ingspundið aldrei verið lægra
gagnvart dollar, en það kostaði
1,35 dollara í kvöld.
írakar kváðust hafa ráðist á tvö
stór skip, en aðeins hefur verið
staðfest árás á tankskipið Tibur-
un, sem er 260 þúsund smálestir.
Hæfði flugskeyti vélarúm skips-
ins, sem laskaðist, en skipið var þó
ofansjávar þegar síðast spurðist.
Á sunnudag sögðust írakar hafa
hæft fjögur skip á Persaflóa, en
aðeins var staðfest árás á eitt, Al-
exander mikla. írakar lýstu hafn-
banni á Kharg-eyju í febrúar.
íranir kváðust hafa hrakið á
íranir fá hæli í írak
Bagdad, 27. júnf. AP.
írönsku flugræningjarnir, sem
rændu Boeing 727-farþegaþotu í
innanlandsflugi í íran og stefndu
henni til Egyptalands, eru komnir
til Bagdad í írak þar sem þeir
hafa fengið hæli sem pólitískir
flóttamenn.
Flugvélin hélt frá Kaíró í kvöld
og var á leið til írans þegar síðast
fréttist.
brott íraskar orrustuþotur sem
rufu hljóðmúrinn yfir Teheran.
Yfirmenn herafla Saudi Arabíu,
Kuwait, Sameinuðu furstadæm-
anna, Bahrain, Qatar og Oman
hittust í dag til að leggja á ráðin
um sameiginlegar loftvarnir á
skipaleiðum við strendur ríkjanna
sex. Telja þeir árangursríkast að
verja lögsögu sína, strendur og
skipaleiðir undan þeim með þess-
um hætti.
Verkföll á enda
í V-Þýskalandi:
Samið um
38,5 klst.
vinnuviku
Stuttgut, 27. júní. AP.
Málamiðlun tókst í dag í deilu
málmiðnaðarmanna og vinnuveitenda
þeirra og sagðist ríkissáttasemjari
eiga von á því að samningarnir yrðu
samþykktir og verkföllum aflýst, en
þau hafa staðið í sjö vikur. Samkomu-
lag tókst um styttingu vinnuvikunnar
í 38,5 stundir.
Rúmlega 400 þúsund málmiðnað-
armenn hafa setið auðum höndum
vegna verkfalla og refsiaðgerða
vinnuveitenda, en deilan er hin
kostnaðarsamasta fyrir V-Þýska-
land eftir stríð. Hlaupi engin
snurða á þráðinn ætti framleiðsla
að vera komin i eðlilegt horf í
næstu viku.
Af hálfu vinnuveitenda er því
haldið fram að í síðustu viku hafi
framleiðslutap af völdum verkfalls-
ins verið komið upp í níu milljarða
marka, eða um 90 milljarða króna.
Samkvæmt samkomulaginu
gengur ákvæðið um 38,5 stunda
vinnuviku í gildi 1. apríl 1985, en
um næstu mánaðamót fá málmiðn-
aðarmenn 3,3% kauphækkun. Einn-
ig fær hver maður um sig 250
marka uppbót á tímabilið frá því
samningar runnu út 31. janúar sl.
Jökull á
60 m. kr.
Skm, Sriss, 27. júní. AP.
ST/F'.RSTI jökull í einkaeign í
Sviss, Rhone-jökullinn, verður
senn almenningseign, þar sem
fylkisþingið í Valais hefur sam-
þykkt að kaupa jökulinn af erf-
ingjum Alexander Seiler, stofn-
anda frægrar hótelkeðju, fyrir
jafnvirði tveggja milljóna doll-
ara, eða 60 milljónir króna.
Rhone-jökullinn er einn af
stærstu jöklum Sviss, um 38
ferkílómetrar að stærð. 1 kaup-
bæti fylgja tvö hótel og hellir,
sem vinsæll er meðal ferða-
manna.
Reagan friðmælist viö Rússa:
Vill meiri viðræður
en hótar gagnrýni
Washington, 27. júní. AP.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti sagði í dag aö hann vildi
ræða oftar við Rússa en kvaðst mundu gagnrýna þá ef ástæða
væri til.
Reagan fjallaði í ræðu sinni
fyrst og fremst um þau svið í sam-
skiptum Bandaríkjamanna og
Rússa þar sem allt er með felldu.
Ræðunni var ætlað að draga úr
ótta heima fyrir vegna aukins
kulda í samskiptum stórveldanna.
Hefur Reagan m.a. verið ákaft
hvattur af flokksmönnum sínum
og demókrötum að stofna til fleiri
viðræðufunda við Rússa. Hefur
hann sætt ámæli fyrir aðgerða-
leysi í því að koma viðræðum um
vígbúnaðartakmörkun af stað að
nýju.
Reagan sagði að þegar Rússar
stofnuðu friði í hættu með aðgerð-
um sínum, eða tröðkuðu á lýðrétt-
indum, væri útilokað að þegja
þunnu hljóði, því það jafngilti
sviksemi við dýrmætustu verð-
mæti hins frjálsa manns og myndi
síðar meir draga úr stöðugleika í
heiminum og friðarvonum.
Reagan sagði að hegðan Rússa
varðaði sambúð stórveldanna og
jafnan hefðu aðgerðir þeirra orðið
til að veikja sambandið. íbúar
Sovétríkjanna, og reyndar heims-
byggðarinnar allrar, þyrftu jafn-
an að gjalda það dýru verði er
Rússar gripu til kúgunaraðgerða.
Notaði Reagan tækifærið til að
draga athyglina að örlögum sov-
ézkra andófsmanna, þ.á m. Andrei
Sakharovs.