Morgunblaðið - 28.06.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNl 1984
3
Máli Batys frestað í
hæstarétti til hausts
MÁLI Þjóðverjans Miroslav Peter
Baly, sem taka átti fyrir í hæstarétti
á föstudag, hefur verið frestað til
hausts.
Að sögn Björns Helgasonar rit-
ara hæstaréttar eru breyttar for-
sendur í málinu i Ijósi atburða síð-
ustu daga ástæða þess að ákveðið
var að fresta málflutningi til
haustsins. Björn sagði að Miroslav
Peter Baly hefði verið settur í far-
bann til 5. júlí en þar sem hann
slapp úr landi virtist það skipta
litlu máli hvort dómurinn yrði
kveðinn upp nú eða í haust. Hann
bætti því við að á sumrin væru
einungis þau mál tekin fyrir í
hæstarétti sem væru mjög aðkail-
andi.
Baldur Möller ráðuneytisstjóri í
dómsmálaráðuneytinu sagði að ís-
lensk yfirvöld mundu hugsanlega
upplýsa þýsk yfirvöld um einstök
atriði málsins, en jafnframt þyrfti
að taka fram að ekki væri búist
við dómi í hæstarétti hér fyrr en í
haust. „Þýskir dómstólar verða að
fjalla sérstaklega um þetta mál
því að íslensk lög gilda ekki þar í
landi, en mér finnst ólíklegt að
það verði tekið þar fyrir ef það
verður sent áður en hæstiréttur
kveður upp úrskurð sinn hér,“
sagði Baldur Möller.
Frá tennisvöllum TBR við Gnoðarvog.
MorKunblaðið/Bmilía
Tennis nýtur nú
vaxandi vinsælda
TENNISÍÞRÓTTIN, sem nýtur mik-
illar hylli um heim allan, virðist loks
vera að skjóta rótum hérlendis að
einhverju marki. Framtakssamir
menn í Kópavogi hafa æft tennis á
malbikuðum völlum þar í bæ um
nokkurt skeið og þá hefur tennis
verið stundað í Hafnarfirði. Nú hef-
ur TBR, Tennis- og badmintonfélag
Reykjavíkur, komið upp þremur af-
girtum tennisvöllum við hús sitt í
Gnoðarvogi.
Að sögn Stefáns Kristjánsson-
ar, íþróttafulltrúa Reykjavíkur-
borgar, höfðu menn orð á því í
íþróttaráði, að slæmt væri að eng-
inn löglegur tennisvöllur væri til í
höfuðborginni. Reyndar hafði ver-
ið notast við velli við Laugardals-
höllina, Melaskólann og kannski
víðar, en þeir voru ekki afgirtir og
ekki byggðir sem slíkir. Varð það
úr að samband var haft við TBR
og þess farið á leit að félagið gerði
átak í þessum efnum gegn því að
íþróttaráð styrkti framkvæmdirn-
ar.
Vellirnir þrír, sem gerðir hafa
verið vestanvert við hús félagsins,
hafa verið í notkun um nokkurt
skeið og hefur fjöldi þátttakenda
farið vaxandi með viku hverri.
Fyrir skömmu var efnt til móts og
fór það vel fram utan hvað veður-
guðirnir settu strik í reikninginn
undir lokin. Fóru síðustu leikirnir
fram innanhúss.
Tillögur Seölabankans í kjölfar takmarkana
á erlendar lántökur vióskiptabankanna:
Dregið verði
úr útlánum
DRAGA ÚR útlánum, krefja inn lán
og laga stöðu sína innanlands eru
helstu leiðir viðskiptabankanna til
þess að mæta takmörkunum Seðla-
bankans á erlendar lántökur þeirra
að sögn heimildarmanns Mbl. innan
Seðlabankans. „Þetta er mjög erfitt
þar sem mörg útistandandi lán eru
keðjuverkandi," bætti heimildar-
maður blaðsins við.
Seðlabankinn hefur haft
áhyggjur af skuldastöðu við-
skiptabankanna erlendis og þá sér
í lagi Landsbankans og Utvegs-
bankans. Hafa bankarnir m.a.
notað lánin að greiða yfirdrátt
sinn hjá Seðlabankanum. í 10.
grein laga nr. 63/1979 er að finna
heimild til handa Seðlabankanum
til þess að grípa fram í fyrir
viðskiptabönkunum. Segir þar
m.a. að gjaldeyrisviðskiptabönk-
um sé heimilt að semja um yfir-
dráttarheimilidir hjá erlendum
bönkum til skamms tima enda
verði Seðlabanka gerð grein fyrir
þeim samningum sé þess óskað. Þá
segir í greininni, að notkun slíkrar
yfirdráttarheimildar skuli ekki
vera meiri en sem svarar erlend-
um innistæðum í viðkomandi
banka á sama tíma, nema þess er
viðskiptaástæður krefjast um
skamma hríð. Ennfremur segir i
þessari 10. grein að Seðiabankinn
geti veitt undanþágu frá þessu séu
sérstakar ástæður fyrir hendi.
í ljósi þessara laga setti Seðla-
bankinn þann 1. mars sl. bönkun-
um reglur, þar sem ætlast er til
þess að bankarnir séu að jafnaði
með núllstöðu erlendis. Þessum
reglum mun þó ekki hafa verið
fylgt af verulegri hörku enn sem
komið er og standa yfir samninga-
viðræður á milli Seðlabankans og
ofangreindra tveggja banka.
Stigahiíð:
Lóðin tekin úr
endursölu
SÚ EINBÝLISHÚSALÓÐ sem
Reykjavíkurborg seldi hæstbjóð-
endum i Stigahlíð og var auglýst
til sölu hjá fasteignasölunni
Húsafelli, hefur verið tekin úr
endursölu í bili. Þær upplýsingar
fengust hjá sölumanni hjá Húsa-
felli, að eigandi lóðarinnar hafi
tekið hana úr sölu, en engin skýr-
ing var gefin á ástæðu þess.
Það erstóra spurningin. Hverjir
hreppa 14 glæsilega Ford bíla þann
14. ágúst þegar dregið verður. Með
því að kaupa miðann sem þú hefur
fengið sendan heim, styður þú
æskufólk okkar á Olympíuleikunum
í Los Angeles, og hefur um leið
möguleika á að hreppa einn af
bílunum fjórtán.
Verðmæti vinninga 4,7 millj. króna
VINNINCSVON PÍN -VON
I ÞJÓÐARINNAR UM
VERÐLAUN ILOS ANCELES
SCuðningurviðxskufolkoMfaríljosAngeles
" UAPPDRÆTTI
ÓLYMRUNEFNDAR fSLANDS