Morgunblaðið - 28.06.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.06.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JtJNl 1984 23- mm R il í Símamynd AP. Sovéskir liðhlaupar Tveir sovéskir liðhlaupar, Igor Rykov og Oleg Khlan, sem struku úr Rauða hernum og voru í haldi hjá frelsissveitum í Afganistan í eitt ár áður en þeim var leyft að fara til Bretlands. Hér eru þeir á blaðamannafundi í London, stuttu eftir komuna þangað. A-Berlín: Sendiráði lokað fyrir flóttafólki Berlín, 27. júní. AP. í DAG lokaði vestur-þýska sendiráðið í Austur-Berlín dyrum sínum fyrir Austur-Þjóðverjum, eftir að maður nokkur hafði hótað að svipta sig lífi í anddyri sendiráðshússins. Talsmaður sendiráðsins kvað Á fimmtudaginn var ákveðið lokunina tímabundna. Vitað er að takmarka aðgang að sendi- um 55 manns sem beðist hafa hælis í húsinu til þess að þrýsta á að austur-þýsk stjórnvöld leyfi þeim að flytjast til Vest- ur-Þýskalands. „Það er ekki hægt að gera sendiráðið að at- hvarfi fyrir þá sem vilja flytjast brott," sagði sendiherrann, Hans Otto Bráutigan, við vest- ræna fréttamenn á mánudag. Særðist á leiðinni yfir „dauðaspilduna“ ráðinu og fengu Austur-Þjóð- verjar þá aðeins að koma inn í anddyrið. Flestir sættu sig við þessa að- gerð og yfirgáfu húsið, en 10 manna hópur settist að í and- dyrinu til þess að leggja áherslu á kröfur sínar um brottfarar- leyfi. Seinna um daginn bættist maður á þrítugsaldri í hópinn. Hann hellti yfir sig bensíni og gerði sig líklegan til að kveikja í. Skarst þá vestur-þýskur ör- yggisvörður í leikinn og færði manninn inn í sendiráðið, þar sem honum var veitt hjálp og búið um minni háttar meiðsl. Á þriðjudag safnaðist enn saman fólk í anddyri sendiráðs- ins og var fólkinu veitt viðtaka, þegar leið á kvöldið. Síðan hefur húsið verið lokað fyrir Austur- Þjóðverjum. Ilannovcr, Vestur-Þýskalandi, 27. júní. AP. í MORGUN særðist tæplega þrí- tugur Austur-Þjóðverji, þegar hann var að fara yfir „dauðaspild- ERLENT una“ á mörkum Austur- og Vest- ur-Þýskalands, að sögn lögregl- unnar. Hörð loftárás á bækistöð PLO Tel Aviv, Líbanon, 27. júní. AP. ÍSRAELSKAR herflugvélar gerðu í dag harða loftárás á bæki- stöð palcstínskra skæruliða á eyju norður af ströndum Líbanon, sam- kvæmt fréttum frá heryfirvöldum í ísrael. Bækistöðin var í eigu stuðn- ingsmanna Yassers Arafats, leið- toga PLO, og var hún notuð sem áfangastaður í árásarferðum palestínskra fluvéla á fsrael. Þetta var 12. árás ísraela á þessu ári, en í fyrsta skipti sem þeir ráðast á eyjaklasann út af ströndum Líbanons. ísraelskar hersveitir héldu höfnum í Sidon og Tyre lokuðum annan daginn í röð, meðan skot- árásir dundu yfir á hæðunum austur af Beirút. Á sama tíma fór Amin Gema- yel, forseti Líbanons, í heimsókn til Karamis forsætisráðherra í Trípólí, til að votta honum hlut- tekningu sína vegna dauða móð- ur hans, sem lést sl. laugardag. Þetta var fyrsta heimsókn for- setans til Trípólí, síðan hann tók við völdum í september 1982. Carl Fore- man látinn Brverlj Hills, Kaliforniu. 27. júni. AP. Á ÞRIÐJUDAG lést á heimili sínu rithöfundurinn og kvikmyndafram- leiðandinn Carl Foreman, 69 ára að aldri. Meðal kvikmynda Foremans má nefna „The Bridge on the River Kwai“, „Born Free“ og „The Guns of Navarone". Carl Foreman flutti til Eng- lands árið 1952 en þá hafði hann orðið að gangast undir yfirheyrsl- ur hjá óamerísku nefndinni og lent á svörtum lista. Árið 1975 flutti hann svo aftur til Holly- wood. Maðurinn varð fyrir skoti úr sjálfvirkri hríðskotabyssu og hlaut sár á baki. fbúar vestan megin tilkynntu atburðinn og var læknalið sent á vettvang til að gera að sárum flóttamanns- ins. Var hann síðan fluttur á sjúkrahús en mun ná sér full- komlega, sagði talsmaður lög- reglunnar. Talsmaður innanríkisráðu- neytisins í Bonn sagði, að at- burður þessi sýndi, hversu grimmúðlegt það væri að búa við landamæri alsett sjálfvirk- um skotbúnaði. „Vestur-þýska stjórnin vonast til þess að Austur-Þýskaland fylgi þeirri yfirlýstu stefnu sinni að fjar- lægja þessi tól,“ sagði hann ennfremur. Kínamúrinn að hrynja Peking, 27. júní, AP. HLUTI Kínamúrsins fræga, sem liggur um útjaðar Peking, er við að hrynja sökum van- hirðu. Skýrði kvöldblað eitt í borginni frá þessu í dag. Held- ur blaðið því fram, að sam- kvæmt skýrslu, sem stjórnvöld hafa látið gera, sé sá hluti múrsins, sem opinn er ferða- mönnum, sums staðar blátt áfram varasamur og aðeins lít- ill hluti múrsins sé í viðunandi ástandi. Kínamúrinn var reist- ur á þriðju öld fyrir Krist og er meira en 2.400 km langur. Vopn finnast enn í Gullna musterinu Nýju Delhí, Indlandi, 27. júní. AP. GULLNA musterið, helgasta tákn síka, var í dag opnað aftur pfla- grímum, en musterinu var lokað í gær vegna hræðslu yflrvalda við múgæsingu og vegna þess að vopn hafa fundist þar. Musterinu var lokað í byrjun júní, þegar herinn gerði árás til að flæma hryðjuverkamenn síka þaðan út og komast yfir vopna- búr þeirra. Musterið var aftur opnað á mánudag og vildu þá 10.000 pílagrímar þangaö inn. Yfirvöld létu loka musterinu aft- ur á þriðjudag, vegna of mikillar ásóknar pílagríma. í dag var það svo opnað aftur og biðu þá um 5.000 síkar inngöngu. Yfirvöld sögðu að vegna vopna sem geymd væru í musterinu, væri ekki ráðlegt að hafa þar mikinn mannfjölda saman kom- inn í einu. Verkfall í aðsigi hjá sænskum flugtæknimönnum Stokkhólmi, 27. júni. SÆNSKIR flutningaverka- menn boðuðu á mánudag til verkfalls um 400 flugtækni- manna frá 3. júlí nk. Ef verk- fallið nær fram að ganga, mun allt innanlandsflug í Svíþjóð stöðvast og milli- landaflug verða fyrir ýmsum óþægindum. Deilan milli tæknimann- anna og vinnuveitenda snýst í aðalatriðum um grundvallardeiluefni, s.s. greiðslur vegna óreglulegs vinnutíma og ráðningu nýrra tæknimanna. Vinnuveitendur hafa ennþá ekki gert neinar áætlanir fyrir mótaðgerðir. Aðeins n sæti lau á Ólafs- vökuna Kemur bú ekki með okkur? Einhver skemmtilegasta þjóðhátíð á öllum Norðurlöndunum, - og þó víðar væri leitað - er einmitt hjá grönnum okkar og frændum í Færeyjum. Á Ólafs- vökunni er söngur, dans og skemmtun í fyrirrúmi, enda eru hátíðahöld þeirra þekkt víða um heim. Við eigum nokkur sæti laus þann 24 og 28. júlí nk., en annars er flogið til Færeyja alla þriðjudagá og laugardaga. Svefnpokapláss innifalið í fargjaldinu Ifavandi Vesturqötu 4, stmi 17445

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.