Morgunblaðið - 28.06.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.06.1984, Blaðsíða 36
^6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984 Steinunn Kristjáns- dóttir — Minning Fædd 16. des. 1893 Díin 18. júní 1984 í dag fer fram frá Dómkirkj- unni útför frú Steinunnar Krist- jánsdóttur, Skólavörðustíg 28 hér í bænum. Hún lést í sjúkrahúsi eftir nær tveggja ára spítalavist, 18. júní síðastliðinn. Hún var 90 ára. Steinunn var Suðurnesjamað- ur fædd á Lambastöðum í Garði. Foreldrar hennar voru Kristján Jónsson á Flánkastöðum og kona hans Sigríður Magnúsdóttir. Þau voru bæði af Suðurnesjunum. For- eldrar Steinunnar fluttu til Reykjavíkur er Steinunn var 7 ára gömul og hér í bænum átti hún alla tíð heima. Hún var í Kvenna- skólanum árin 1908—10. Hún var í foreldrahúsum uns hún giftist. Sem ung stúlka vann hún við af- greiðslustörf í Braunsverslun og hjá L.H. Möller. Mjög hafði verið kært með þeim mæðgum. Var það áfall nokkurt fyrir Steinunni er móðir hennar lést, aðeins 42 ára gömul, 1915. Þá var Steinunn lið- lega tvítug. t Eiginmaður minn og faöir okkar, EYÞÓR INGIBERGSSON, múrarameistari, Sólvallagötu 43, veröur jarösunginn frá Hverageröiskirkju laugardaginn 30. júni kl. 14.00. Þórdis Sveinbjörg Jónsdóttir og börn. t Eiginmaöur minn, GUDBJÖRN EIRfKSSON, fyrrverandi bóndi, Arakoti, Skeiöum, verður jarösunginn frá Ólafsvallakirkju laugardaginn 30. júní kl. 14.00. Dagný Sigurbjörg Jónsdóttir. t Útför móður okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, STEINUNNAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Skólavöróustíg 28, fer fram frá Dómkirkjunni í dag, fimmtudaginn 28. júní, kl. 13.30. Þeim sem vllja minnast hennar er vinsamlega bent á Styrktarsjóö Landakotsspitala. Halldór Magnússon, Jóhanna Guömundsdóttir, Sigríður Magnúsdóttir, Höróur Ágústsson, Magnús Magnússon, Helga V. Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur, ömmu og langömmu. ÞORBJARGAR EINARSDÓTTUR, fer fram laugardaginn 30. júní nk. frá Selfosskirkju kl. 13.30. Guöni Þorsteinsaon, Eggert Guönason, Valborg Gísladóttir, Emma Guðnadóttir, Ágúst Eiríksson, Guömundur Guönason, Fjóla Guömundsdóttir, Jóna Vigfúsdóttir, Guðfinna Guönadóttir, Eövarö Torfason, Ásdís Guónadóttír, Leifur Eyjólfsson, Benedikta Guönadóttir, Páll Árnason, Hulda Guönadóttir, Pélmi Jónsson, Ásgeir Guónason, Þyri Axelsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, MARTA S. ÞORSTEINSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Þjóökirkjunni í Hafnarfiröi föstudaginn 29. júní kl. 15.00. Jónatan Sveinsson, Guörún N. Jónsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Guómundur G. Jónsson. t Sonur okkar og bróöir, ÞORVALDUR STEINGRÍMSSON, Laugalaek 16, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. júní kl. 10.30. Steingrimur Þorvaldsson, Helga Sigurjónsdóttir, Bjarkí Steingrímsson, Sigurjón örn Steingrímsson. Árið Í921 giftist Steinunn Magnúsi Skaftfjeld Halldórssyni frá Kárastöðum í Þingvallasveit. Hann varð einn hinna fyrstu hér í bænum sem gerðu leigubílaakstur að ævistarfi. Hann var handhafi ökuskírteinis númer 4 í Reykjavík. Stundaði hann akstur um áratuga skeið. Um tíma rak hann leigu- bílastöðvar í Miðbæ Reykjavíkur. Heimili þeirra Steinunnar og Magnúsar var á Skólavörðustíg 28 alla þeirra sambúð, allt fram til ársins 1976 að Magnús lést. — Magnús reisti það hús ásamt vini sínum og sveitunga Ásgeiri Jón- assyni, skipstjóra, frá Hrauntúni í Þingvallasveit. Á Skólavörðustígnum fæddust börn þeirra þrjú. Eftir að Stein- unn giftist helgaði hún heimili og börnum alla starfskrafta sína og gaf sig lítt að öðrum störfum en heimilishaldi og barnauppeldi. Góður andi ríkti á Skólavörðu- stígnum. í þau nær 60 ár, sem Steinunn og Guðrún Gísladóttir ekkja Ásgeirs voru að heita má undir sama þaki ríkti vinátta sem fór vaxandi milli heimilanna, með hverju árinu sem leið. Steinunn var afbragðs húsmóðir í besta skilningi þess orðs. Heimili og allur heimilisbragur bar þess vott að þar var gengið til starfa af heilum hug. Steinunn var frekar ómannblendin. Hún var sannur vinur vina sinna. Hún var við- ræðugóð kona. Hafði til að bera góða kímnigáfu og var glögg á hið kátbroslega í tilverunni og í sam- skiptum við aðra. Heimili hennar stóð vinum og vandamönnum ætíð opið er þeir áttu leið hjá. Tengdamóðir hennar Jóhanna Magnúsdóttir frá Kára- stöðum, naut vináttu hennar í rík- um mæli. Var hún á heimilinu í ein 10—12 ár hvern vetur. Og fleiri af ættingjum þeirra nutu gestrisni Steinunnar og velvildar. Var oft mannmargt á Skólavörðu- stígnum. Minning: María Celestina St. Jósefssystir Faedd 13. desember 1901 Dáin 23. júní 1984 I dag er jarðsungin frá Landa- kotskirkju St. Jósefssystirin Marie Celestine, en svo var systra- nafn hennar. Nafnið Anna María Jósefsdóttir hlaut hún með íslenska ríkisfang- inu. Skírnarnafn hennar var Lutcia. Hún var elst af 9 systkinum, 4 munu á lífi. Foreldrar voru af pólskum ætt- um en fluttust til Þýskalands og ríkisfang fjölskyldunnar varð þýskt 1921. Fyrir komuna til Islands starf- aði systir Celestine 17 ár á sjúkra- húsi í Esbjerg í Danmörku á handlæknisdeild. Hingað til Hafnarfjarðar flutt- ist hún 1948 og hóf störf á St. Jós- efsspítala, Hafnarfirði, og nutu Hafnfirðingar og aðrir er spítal- t Faöir okkar og tengdafaöir, SNÆBJÖRN GUOMUNDSSON OTTESEN, Syöri-Brú, áöur bóndi Gjábakka, veröur jarösunginn frá Þingvallakirkju föstudaginn 29. júni kl. 14.00. Ferö verður frá Umferöarmiðstööinni kl. 12.45. Börn og tengdabörn. t Jaröarför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, SIGURBJARGAR JÓNSDÓTTUR, Hólmgaröi 17, sem lést t Borgarspítalanum 18. júní, fer fram frá Bústaöakirkju föstudaginn 29. júni kl. 13.30. Guörún Árnadóttir, Níels Karlsson, Hrönn Árnadóttir, Kristínn Kristinsson, Diana Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn hinnar látnu. t Móöir okkar, amma og langamma, KRISTÍN J. JÓNSDÓTTIR frá Brekku-þingi, Austur-Hún., andaöist 20 þ.m. á hjúkrunarheimilinu Sunnuhliö í Kópavogi. Jarösungiö veröur frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. júní kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuö. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á hjúkrunarheimíliö Sunnuhlíö. Jóhannes Sölvi Sigurösson, Halldóra Ólafsdóttir, Ingimar Sigurösson, Hulda Alexandersdóttir, Þórketill Sigurösson, Jóhanna Guölaugsdóttir, Jón Ebbi Björnsson, Stasia Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. Steinunn og Magnús áttu vissu- leg barnaláni að fagna. — Þau eignuðust þrjú börn. Halldór, deildarstjóri hjá Skeljungi, kvæntur Jóhönnu Guðmundsdótt- ur, Sigríður, menntaskólakennari í MR., gift Herði Ágústssyni og Magnús Magnússon, prófessor, kvæntur Helgu Vilhjálmsson. Barnabörn hennar eru niu talsins. Sem fyrr segir var Steinunn í sjúkrahúsi í nær tvö síðustu ár ævi sinnar. Þegar ég kynntist henni var hún orðin allfullorðin. Hún var ætíð einstaklega alúðleg í viðmóti. Hafði áhuga á að fylgjast með framvindu mála vina sinna og kunningja, án þess þó að fara yfir strikið. Kurteisi var henni í blóð borin og hún vissi hvar mörkin lágu. Þegar Steinunn kvaddi þennan heim, 18. júní, hafði hún vissulega skilað löngu og góðu dagsverki. Minnist ég þá þess að í veikindum Magnúsar annaðist hún hann á heimili þeirra uns yfir lauk, en hann lést heima á Skólavörðu- stígnum. Vinir og kunningjar Steinunnar, sem kveðja hana í dag þakka mis- langa samfylgd. Allir þakka þeir góða samfylgd. Minningin um svo mæta konu er gott veganesti fyrir eldri sem yngri. Sv. Þ. ann gistu hjúkrunar hennar fram á miðjan áttunda áratuginn, er hún hætti hjúkrunarstörfum. Undirritaður varð þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga samleið með henni á lyflæknisdeild spítalans þar sem hún stjórnaði hjúkrun- arstörfunum, frá 1963 til þess að hún lét af störfum. Systir Celestine var skarp- greind kona, smá vexti en kvik í hreyfingum, svipurinn hreinn og bjartur, lundin ætíð létt. Afköst hennar voru ótrúleg er hún var upp á sitt besta og aldrei naut hennar betur en þegar ein- hver átti við þungan sjúkdóm að stríða, eða átti hér síðustu spor lífs sins, aldurhniginn og þrotinn af kröftum. Þá sat systir hjá þeim og baðst fyrir og veitti þeim ör- yggi og frið trúarinnar síðustu stundirnar. Störf hennar öll hér á spítalan- um voru rómuð í Hafnarfirði, bæði meðal ungra og aldinna, mun orðstýr hennar og annarra Jós- efssystra er hér störfuðu og minn- ingin um farsæl störf þeirra í Hafnarfirði lifa meðan St. Jós- efsspítali stendur. Síðustu árin bjó systir á heimili St. Jósefssystra er þær reistu í Garðabæ í hópi samstarfssystra af stofnun reglunnar í Hafnarfirði og Reykjavík. Elliárin voru ekki eins gjöful henni og skyldi, þau voru lituð af sjúkdómi þeim er hún var farin að finna fyrir nokkur seinni árin áð- ur en hún flutti af spftalanum. En úr hefur bætt að hún naut í ríkum mæli kærieika og umönn- unar samsystra sinna á systra- heimilinu. Síðustu sporin átti hún hér á deildinni sinni, sem hún stjórnaði fyrrum með svo mikilli röggsemi, og naut nú þess, af hendi einnar gömlu samstarfssystra sinna, héð- an af spítaianum, sem hún fyrrum hafði veitt mörgum við andlátið. Ég flyt kveðjur og þakkir fyrir samstarfið frá samferðafólkinu á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði. Jósef Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.