Morgunblaðið - 28.06.1984, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.06.1984, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984 Arnarstofninn vex hægt Athugasemd frá Fugla- verndunarfélagi íslands Nokkuð hefur verið skrifað und- anfarið um hafernina á íslandi, meinta fjölgun þeirra og tjón sem þeir eru sakaðir um að valda. Þar hefur verið fremstur í flokki Árni G. Pétursson, hlunnindaráðunaut- ur, en hann virðist hafa misskilið upplýsingar sem hann fékk hjá Náttúrufræðistofnun fslands. Því vill Fuglaverndarfélagið taka fram eftirfarandi: 1. Skv. athugun sem gerð var sumarið 1984 eru nú 30—40 arn- arpör á landinu. Hærri talan er fengin með þvi að telja par alls staðar þar sem fullorðinn örn sást um sumarið og eins ef gert er ráð fyrir pari á þeim stöðum sem ekki voru kannaðir 1983, en ernir hafa sést á undanfarin ár. Til samanburðar má geta þess að á árunum 1974—1976 töldust vera 30—35 pör á landinu svo að fjölgun um 10 pör á undanförnum þrem árum, eins og haldið hefur verið fram, hefur ekki átt sér stað. Arnarstofninn hefur vissulega farið vaxandi undanfarna tvo ára- tugi (á miðjum sjöunda áratugn- um voru um 20 pör á landinu), en aukningin hefur verið mjög hæg og allt tal um að stofninn hafi vaxið um þriðjung á þrem árum er út í hött. Slíka stofnstærðaraukn- ingu væri frekar að finna hjá kan- ínum en haförnum. Þess má geta að hjá nokkrum af arnarpörunum hérlendis er annar fuglinn ókyn- þroska en slíkt er merki þess að stofninn sé langt fyrir neðan eðli- lega stærð. 2. Ungir ernir eru á flakki fyrstu árin og sjást því víða um land. Það er því ekkert nýtt að ernir sjáist utan hefðbundinna arnarsvæða. 3. Undanfarinn áratug hafa ernir byrjað að verpa á nýjum stöðum en á móti kemur að arn- arvarp hefur lagst af á nokkrum gömlum og grónum stöðum. 4. Því er haldið fram að skýring á dauða þeirra arna sem fundist Tirc$tonc Nýbýlavegi 2 Kópavogi Sími 42600 W S-211 ER FJOLSKYLDA MN . GOÐRA HJOLBARÐA VIRÐI? Firestone S-211 radial hjólbarðarnir eru framleiddir undir ströngu gæðaeftirliti sem tryggir öryggi þitt og fjölskyldu þinnar. JÖFUR HF Sérstæð lögun og mynstur gefa frábært grip og mýkt bæði á malarvegum og malbiki, sem veitir hámarks öryggi og þægindi í akstri, innanbæjar sem utan. Firestone S-211 eru einu radial hjólbarðarnir sem eru sérhannaðir jafnt til aksturs á malarvegum og malbiki. Og þeir eru úr níðsterkri gúmmíblöndu sem endist og endist og endist . .. UMBOÐSMENN UM LAND ALLT! hafa sjóreknir sé sú að þeir hafi drukknað við veiðar, en ekki farist af eitri. Þessi skýring stenst ekki því örninn veiðir oft fisk með því að skella sér í sjóinn og á þá ekki í neinum vandræðum með að ná sér aftur á flug. Mörg dæmi um slíkt hafa verið kvikmynduð og má t.d. minna á breska mynd um haförn- inn sem sýnd var í sjónvarpinu ekki alls fyrir löngu. 5. Það er ekki unnt að sanna að þeir ernir sem fundist hafa dauðir hafi drepist af svefnlyfi því (fen- emali), sem dreift er á arnarsvæð- um, en það er þó ekki ólíklegt. Eitrinu er dreift á slor og hræ og er eins líklegt að ernir komist í eitrið eins og svartbakur og hrafn- ar. Einnig getur örninn étið hræ þeirra fugla sem drepist hafa af völdum eitursins. Sl. ár var dreift tæplega 55 kg af fenemali á strendur landsins. Banvænn skammtur fyrir mann er um 1 gr og á einu ári var því dreift eitri sem nægir til að bana fjórð- ungi íslendina. Má telja furðulegt að slíkt skuli viðgangast, sér í lagi þar sem slíkur eiturútburður er gersamlega tilgangslaus til fækk- unar máfum. Það hefur margoft komið fram að álit sérfróðra manna er að dráp nokkurra þúsunda, jafnvel tug- þúsunda, máfa árlega hefur lítil sem engin áhrif á stofnstærð þeirra. Miklu árangursrikara væri að reyna að minnka hið takmarka- lausa framboð á fæðu í formi fisk- úrgangs, sem þessir fuglar hafa aðgang að. Á þetta hefur aldrei verið hlustað, enda myndu umsvif embættis veiðistjóra minnka mjög ef þessi leið væri farin. Það er ljóst að arnarstofninn er enn mjög lítill og því full ástæða til að vara við þeim áhrifum sem útburður svenflyfs kann að hafa á arnarstofninn. Nægir þar að minna á að eitrun fyrir refi hafði nær útrýmt örnum af landinu. Eigendaskipti að hárgreiðslustofu HÁRGREIÐSLUSTOFAN að Blönduhlfð 35 í Reykjavík hefur nú skipt um eigendur. Nýju eigendurnir eru hárgreiðslumeistararnir Lovísa Sampsted og Anna Dýrfjörð. Stofan nefnist nú hárgreiðslustofan Aida. Fjallamaraþon á Suðvesturlandi LANDSSAMBAND hjálparsveita skáta gengst fyrir svokallaðri „fjalla- maraþon“keppni á Suðvesturlandi dagana 25. til 26. ágúst nk. Keppnin verður haldin fyrir starfandi félaga í björgunarsveitum landsins, og er hún sú fjórða í röðinni sem LHS hefur staðið að. Keppnin felst í því að kom- ast milli tveggja staða innan ákveð- inna tfmamarka, og lcysa ýmis rötun- arverkefni á leiðinni. Fjallamaraþonkeppnin mun hefj- ast að morgni laugardags, á stað sem verður tilgreindur með skömm- um fyrirvara, og henni lýkur á Laugarvatni síðdegis á sunnudag. Keppt verður í karlariðli og kvenna- riðli á sömu vegalengd og er þáttaka heimil öllum úr björgunarsveitum landsins, að þvi er segir í fréttatil- kynningu Landssambands hjálpar- sveitar skáta. Keppninni verður skipt i tvo áfanga, álíka langa, með náttstað á milli. Á Laugarvatni verður báða keppnisdagana starfrækt upplýs- ingamiðstöð, þar sem aðstandendur keppenda og annað áhugafólk geta fylgst með framvindu keppninnar innandyra. Myndin var tekin í einni af fyrri fjallamaraþonkeppnum Landssambands hjálp- arsveita skáta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.