Morgunblaðið - 28.06.1984, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984
„Við ættum ekki
að tapa á þessu“
*
— segja starfsmenn Alafoss, sem
hyggjast kaupa hlut í fyrirtækinu
UM 200 starfsmenn Álafoss hf.
hafa lýst áhuga sínum á að kaupa
20% hlutabréfa í fyrirtækinu af
Framkvæmdastofnun ríkisins.
Upphaf þessa var, að Albert
Guðmundsson, fjármálaráð-
herra, lýsti vilja til að selja eign-
arhluta ríkisins í fyrirtækjum.
Starfsmenn Álafoss voru fúsir
til kaupa á Vh hluta fyrirtækis-
ins, eða 20% hlutabréfa. Skipuð
var sameiginleg nefnd Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins og
starfsmanna. Nefndin skilaði
áliti í apríl og skömmu síðar
ákvað Framkvæmdastofnun að
selja umrædd 20% hlutabréfa.
Enn er ekki búið að meta bréfin
til fjár, en það mun verða á
næstu dögum.
Starfsmenn Álafoss, sem Mbl.
ræddi við, voru sammála um
ágæti þess, að eignast hlut í
fyrirtækinu. Guðríður Pálsdóttir
hefur starfað hjá Álafossi í tvö
ár. Hún sagði m.a.: „Mér finnst
þessi kaup alveg sjálfsögð og
starfsmenn ættu að hafa for-
gangsrétt á hlutabréfum í fyrir-
tækjum, sem þeir starfa hjá.
Fólk, sem kann vel við sinn
vinnustað, ber meiri virðingu
fyrir fyrirtækinu ef það á hlut í
því. Þetta er mjög góð hugmynd
og svona mætti þetta vera víð-
ar.“
Guðjón Hjartarson, verk-
smiðjustjóri, sagði: „Ég hef trú á
fyrirtækinu og okkur starfs-
mönnum þykir vænt um það. Við
vitum að fyrirtækið er vel rekið
og hefur skilað hagnaði, svo ekki
ættum við að tapa á þessu."
Sigvaldi Haraldsson, verk-
stjóri, sagði mjög jákvætt að nú
sæju starfsmenn fram á að fá
fulltrúa í stjórn fyrirtækisins og
væri ýmislegt sem þeir gætu
komið á framfæri þar. Það feng-
ist góður vinnukjarni með stór-
um hóp starfsfólks, sem ætti
hlut í fyrirtækinu. Það hefði líka
sannast þegar verksmiðjan
brann fyrir rúmu ári að starfs-
fólki væri verulega annt um
hana og hefði allt viljað gera til
að hún kæmist í gagnið aftur.
Það væri því gott að þetta fólk
ætti kost á að eignast hlut í
fyrirtækinu.
Loks var rætt við Harald G.
Guðmundsson, litunarmeistara.
Hann sagðist taka þátt í kaup-
unum í gróðaskyni og svo væri
auðvitað traust að vera eigin
vinnuveitandi. Hann sagði einn-
ig, að það væri enginn tilgangur
með því að ríkið væri með putt-
ana í rekstrinum þegar fyrir-
tækið væri rekið með gróða. Ála-
foss stæði undir sér sjálft og
einu tengsl þess við ríkið ættu að
vera skattagreiðslur. Það kom
einnig fram í samtali við
starfsmenn, aö áhuga þeirra á
kaupunum má að hluta rekja til
laga, sem nýlega voru sett, um
Sigvaldi Haraldsson
að fjárfesting í atvinnurekstri
væri frádráttarbær frá skatti.
Álafoss hf. var stofnað árið
Guðjón Iljartarson Mbl./Júllus.
Haraldur G. Guðmundsson
1898 og eru starfsmenn nú um
370. Hagnaður fyrirtækisins síð-
asta ár var 18,5 milljónir.
Guðríður Pálsdóttir
Vinnuhópur unglinga í tengsl-
um við starfsemi æskuiýðsráðs
Á sl. vikum hafa farið fram
miklar umræður hjá Æskulýðsráði
Keykjavíkur um atvinnumál ungs
fólks í Reykjavík nú í sumar og
hafa starfsmenn ráðsins lagt fram
ákveðnar hugmyndir fyrir æsku-
lýðsráð í þessum efnum.
Sú hugmynd var kynnt í vor
hvort möguleiki væri á því að
stofna vinnuhópa unglinga í
tengslum við félagsmiðstöðvar
æskulýðsráðs í Reykjavík og í hóp-
um þessum yrðu unglingar sem
ekki fá vinnu hjá borginni, á al-
mennum vinnumarkaði eða hjá
Vinnuskóla Reykjavíkur.
Borgarráð Reykjavíkur og At-
vinnumálanefnd Reykjavíkur hafa
fallist á tillögur æskuiýðsráðs um
að ráðið megi í sumar gera tilraun
með vinnuhóp unglinga í tengslum
við starfsemi sína og mun hópur-
inn hafa aðsetur f Tónabæ. Fyrir-
hugað er að hópur 15 unglinga
ásamt 2 verkstjórum verði til
þjónustu fyrir borgarbúa, fyrir-
tæki og stofnanir í Reykjavík.
Verkefni fyrir hópinn verður aflað
með tilboðum I ýmiss konar verk,
t.d. garðhreinsun, gluggaþvott,
hreingerningu, snyrtingu og um-
hirðu kringum fyrirtæki og stofn-
anir og fl.
(FrétUtilkynnini!)
Starfsmaður
Ellihjálpar
á ferð um
Snæfellsnes
StykkÍHhólmi. 21. júni.
STARFSMAÐUR Ellihjálparinnar,
sem er hluti af starfsemi Elliheimilis-
ins Grundar í Reykjavík, hefír undan-
farna daga ferðast um Snæfellsnes til
að kynna sér viðhorf sveitarfélaga og
ýmissa samtaka þessara sveitarfé-
laga, um viðhorf þeirra til málefna
aldraðra hér á landi. Einnig hefír
hann kynnt starfsemi Ellihjálparinnar
og hugmyndir um framtíðaráform.
Hann befír á þessum tíma hitt að máli
þá sem að þessum málum vinna og
áhuga hafa fyrir meira starfí í þágu
aldraðra. Þá var rætt um hvort ekki
kæmi til mála nánara samstarf og
samhugur milli staða á Snæfellsnesi
og Ellihjálparinnar í Reykjavík.
í dag hélt hann svo fund í Stykk-
ishólmi með þeim aðilum sem eru i
fararbroddi þessara ágætu menn-
ingarmála og skýrði viðhorf og
sagði frá ferðum sínum um héraðið.
Var þessi fundur fróðlegur og lögðu
bæjarbúar skerf til af sinni reynslu,
en hér eru áform um að bæta við
dvalarheimili aldraðra og þegar
hafa verið gerðar teikningar af
fyrirhugaðri viðbót. Dvalarheimili
aldraðra hér í Hólminum hefir
starfað um árabil við vaxandi vin-
sældir og traust og má segja að
þetta sé eitt af þeim bestu verkefn-
um sem sveitarfélagið hefir unnið.
Það er vitað mál að Gísli Sigur-
björnsson, sem unnið hefir að mál-
um aldraðra í hálfa öld, hefir mikla
þekkingu og er óbilandi að gera
alltaf betur og betur með hverju ári
sem líður. Það er ekki lítið sem
hann hefir áorkað í þeim málum í
Reykjavík og víðar. Líklega hefir
enginn hér á landi, að öðrum ólöst-
uðum, lagt meiri alúð og vinnu í að
bæta aðstöðu aldraðra i þessu landi.
Hann hefir einnig sýnt hug sinn til
annarra byggðarlaga með leiðbein-
ingum og hjálp. Óþreytandi er hann
að ræða við menn um málefni aldr-
aðra og ekkert tækifæri hefir hann
látið ónotað til að koma til liðs við
málefni þeirra. Þetta þekkir undir-
ritaður vel af löngum kynnum sín-
um við Gísla og starfsemi hans.
Hann kynnir sér vel hugmyndir og
vinnu annarra og styður allar góðar
hugmyndir og í því skyni að lengra
mætti þoka þessum málum er þessi
ferð farin. Þökk sé honum fyrir það.
TILBOÐ
Furuborö 75X115. + bekkur + 2 stólar.
Aðeins kr. 7.900.
Borö á hvítum járnfæti 70X110 cm. kr.
2.280.
Hvítur járnstóll kr. 903.00.
Fururúm 90X200 cm. kr. 5.500.
Fururúm 140X200 cm. kr. 6.800.
Ath: Verðiö er meö dýnu.