Morgunblaðið - 28.06.1984, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984
Prestastefnan 1984:
Ýmsar breytingar á
döfinni hjá kirkjunni
Nú stendur yfir á Laugar-
vatni Prestastefnan 1984.
Aðalumræöuefni stefnunn-
ar eru tvö; ár Biblíunnar og
starfsmannafrumvarp kirkj-
unnar. Morgunblaðið tók
nokkra presta tali í gær.
Kirkjan ábyrgari um
eigin mál
Önundur Björnsson, prestur á
Höfn, Hornafirði, sagði mikil-
vægasta viðfangsefni Presta-
stefnunnar vera starfsmanna-
frumvarpið. Hann sagði enn-
fremur: „Ég er undrandi á að
kirkjan skuli setja allt löggjaf-
arvald í sínum málum í hendur
Alþingis. Kirkjan ætti að vera
ábyrgari varðandi eigin mál,
fjármál sem önnur. Reyndin
sýnir, að löggjafar- og fram-
kvæmdavald hefur ekki staðið
sig í stykkinu varðandi mál
kirkjunnar, og má sem dæmi
nefna eignir hennar, sem eru
látnar grotna niður þótt skylt sé
að halda þeim við. Kirkjan hefur
ekki sjálfstæð fjármál, eins og
mér fyndist hún ætti að hafa og
getur því ekki sinnt slíku sjálf.
Hvað starfsmannafrumvarpið
varðar, hefði ekki átt að breyta
gömlum lögum, heldur semja
nýtt frumvarp frá grunni, því
með þessu frumvarpi er aðeins
verið að bæta nýju klæði á
gamla flík. Auðvitað hlýtur
gamla klæðið að rifna, það er svo
fúið.“
Mikilvægast að fá
þrjá biskupa
Séra Halldór Gunnarsson, prest-
ur að Holti undir Eyjafjöllum, hef-
ur setið kirkjuþing undanfarin
ár, þar sem fjallað hefur verið
um starfsmannafrumvarpið.
Sr. Önundur Björnsson
Hann kvaðst ekki sammála séra
Önundi:„Ég tel okkur ekki búa
við þau skilyrði hér á landi að
uppstokkunar sé þörf. Við þurf-
um að líta til sögunnar, um leið
og við horfum fram á við. Að
mínum dómi er mesta hags-
munamál kirkjunnar nú að fá
þrjá biskupa, í stað eins, líkt og
nú er. Það er ógjörningur fyrir
einn mann að halda utan um alla
þá þætti, sem kirkjunni heyra til
og nýta þá aðstöðu, sem hún hef-
ur nú.“ Því skal bætt hér inn, að
biskuparnir þrír myndu sitja í
Skálholti, að Hólum og í Reykja-
vík, og yrði biskupinn í Reykja-
vík eins konar „yfir“-biskup.
Sr. Halldór Gunnarsson
Væntum mikils af
Biblíuári
Árið 1984 er Biblíuár hér á
landi og er svo í tilefni af því að
400 ár eru nú liðin frá útgafu
Guðbrandsbiblíu. Séra Arni
Pálsson, prestur í Kópavogi, sagði
tilgang kirkjunnar með Biblíuári
vera að vekja athygli fólks á
Biblíunni. „Við viljum fá fólk til
að lesa Biblíuna og kenna því að
lesa hana. Biblían hefur alltaf
verið meðal mest seldu bóka
heims, en okkur presta grunar
að hún sé ekki jafn mikið lesin
og salan segir til um. Lestur
Biblíunnar er mikil sálarbót og
ný útgáfa Biblíunnar frá 1981 er
þannig uppsett, að léttara er að
finna þá staði, sem leitað er að.
Prestar ætla að vera með Bibliu-
lestra, hver í sínum söfnuði, og
gefa fólki þannig kost á að nýta
sér þekkingu prestanna á Bibli-
unni. Einnig hefur sú nýjung
verið rædd hér á Prestastefn-
unni, að myndbönd verði notuð i
safnaðarstarfi. Við höfum fengið
Sr. Árni Pílsson
myndbönd frá Norðurlöndunum
og munum bæði texta slíkar
myndir erlendar og afla inn-
lendra."
Fróðleg Prestastefna
Dmvíð Baldursson, prestur á
Eskifirði, kvaðst mjög ánægður
með Prestastefnuna, erindi væru
öll mjög fróðleg og skipulag til
fyrirmyndar. Hann sagði, líkt og
aðrir viðmælendur Mbl., að
prestar væru ekki sammála um
starfsmannafrumvarpið og væri
líklegt að þeir krefðust þess að
það mál yrði skoðað betur.Hann
sagði ennfremur: „Það verður
örugglega gert stórátak i að
kynna fólki Biblíuna, nú á þessu
Biblíuári. Biblíuleshópar safn-
aða eru mikilvægir, markmið
þeirra er að fólk verði sér meira
meðvitað um þann trúarkjarna,
sem það byggir á og glöggvi sig á
því, hvernig hann verði ljósastur
í daglegu lífi þess.“
Starfsmannafrumvarp kirkj-
unnar, sem prestum er tiðrætt
Sr. Davíð Baldursson
um, er til umsagnar á Presta-
stefnu, en mun síðar verða sent
til Alþingis til afgreiðslu. Sam-
þykki Prestastefnu er ekki skil-
yrði fyrir afgreiðslu þess, en við-
mælendur Mbl. kváðust vona að
tillit yrði tekið til þess, er þeir
hefðu fram að færa.
Þjóðhátíðardagurinn í Kaupmannahöfn:
Á fjórða hundrað tók
þátt f hátíðahöldunum
Jónxhú.si, 18. júní.
ÍSLENDINGAR í Kaupmannahöfn
minntut 40 ára afmælis lýðveldisins
með veglegum hætti í blíðskapar-
veðri. Fór hátíðarfundurinn, sem ís-
lendingafélagið stóð fyrir, fram í
Austurgarði á móti Jónshúsi.
Kristín Oddsdóttir Bonde, ritari
félagsins, setti samkomuna og
stjórnaði henni. Fyrst var helgi-
stund, þar em sendiráðspresturinn
talaði og félagar úr íslenzka
kirkjukórnum leiddu sönginn und-
ir stjórn Guðrúnar Kristjánsdótt-
ur. Þá flutti Einar Ágústsson
sendiherra hátíðarræðu, minntist
40 ára afmælis lýðveldisins og
höfðaði m.a. til orða Gísla
Sveinssonar á Þingvöllum fyrir 40
árum. Ávarp fjallkonunnar flutti
Ásta Karlsdóttir Lauritzsen
skörulega, Hátíðaljóð Huldu frá
1944. Þá lásu nemendur fslenzk-
uskólans upp, en kennarar hans,
Bergþóra Kristjánsdóttir og Sig-
ríður Sigurjónsdóttir, stjórnuðu
leikjum hinna fjölmörgu barna.
En við lok samkomunnar afhenti
Éinar Már Guðvarðarson lista-
verk eftir Karl Júlíusson til varð-
veizlu í Jónshúsi.
Fór hátíðin hið bezta fram, en á
fjórða hundrað manns voru þarna
saman komin. Á eftir var gengið
til Jónshúss og var þar þröng á
þingi, en starfsfólk félagsheimilis-
ins undir forystu gestgjafa,
Bergljótar Skúladóttur og Arfeqs
Úr sýningu Leikfélags Sólheima á Lífmyndum í Eyrarsundsgarði.
Frá hátíðarfundinum í Austurgarði.
Jóhansen gerðu sitt til að sem
flestir nytu góðgerðanna.
Sýning Leikfélags
Sólheima um kvöldið
Um kvöldið var sýning Leikfé-
lags Sólheima í Grímsnesi á Eyr-
arsundsgarðinum á látbragðs-
leiknum Lífmyndum, sem fjaílar
um líf og kjör vangefins fólks. Var
sýning þeirra óviðjafnanleg og
eiga leikstjórinn Magnús J. Magn-
ússon og samhöfundur hans, Hall-
dór Júlíusson og heimilisfólk á
Sólheimum mikinn heiður skilinn
fyrir túlkun sína. Lét hún engan
ósnortinn þar í salnum. Var leikur
aðalleikarans, Árna Alexenders-
sonar, sérstakrar athygli verður,
en öll lögðu þau sitt fram til að
gera kvöldið ógleymanlegt.
Leikhópurinn frá Sólheimum
hefur verið á ferðalagi í rúmar 4
vikur, sýndi fyrst á Akureyri og
Egilsstöðum á leið til skips. Siðan
í Lögstör á Jótlandi, á Emma
Hjort-stofnuninni í Ósló, en þaðan
lá leiðin til Járna í Svíþjóð. Og nú
er ferðinni heitið til Árósa, en síð-
asta sýning fararinnar verður í
Færeyjum í heimleið. Hefur ferð
þessa 13 manna leikhóps ásamt 12
aðstoðarmönnum gengið vel og
víða verið góðar móttökur, einkum
hjá félögum aðstandenda þroska-
heftra.
G.L Ásg.