Morgunblaðið - 28.06.1984, Side 34
%
Siggi Heljji — Sipiró- Jón Árnanon harmon
ur Helgi Jóhannsson. ikkuleikari.
Ilðvard F. Vilhjálms- llallbjörn Hjartarson
son — Eddi. kántrý-kón^ur.
Fjórar nýj-
ar íslenskar
hljómplötur
STÚDÍÓ Bimbó á Akureyri hefur
gefið út fjórar hljómplötur. Fyrsta
platan er med Sigurði Helga Jó-
hannssyni og nefnist hún „Siggi
Helgi — feti framar". Flest lögin á
hljómplötunni eru eftir Sigurð, svo
og nokkrir textar. Sigurður syngur
og leikur á bassa og hefur fengið tii
liðs við sig nokkra hljómlistarmenn,
sem sjá um annan hljóðfæraleik.
Bimbó gefur einnig út hljóm-
plötuna „Jón Árnason — Kleifar-
ball“. Á henni leikur Jón Árnason
frá Syðri-á á Kleifum við Ólafs-
fjörð nokkur harmonikkulög,
valsa, polka, skottís og ræl. Jón
hefur spilað með mörgum
hljómsveitum, s.s. KK-sextett.
„Eddi — Tvöfeldni" nefnist
hljómplata Eðvarðs F. Vil-
hjálmssonar frá Keflavík. Eðvarð
leikur á öll hljóðfæri sjálfur,
bassagítar, trommur, hljómborð
o.fl. auk þess sem hann syngur. Á
plötunni eru 8 lög, sem öll eru eft-
ir Eðvarð.
Síðast en ekki síst gefur Stúdíó
Bimbó út þriðju plötu kántrý-
kóngsins Hallbjarnar Hjartarson-
ar. Lögin eru flest eftir Hallbjörn
sjálfan, en Snorri Guðvarðsson út-
setti þau, auk þess sem hann spil-
ar á gítar og hljómborð. Fá hljóð-
færi eru notuð til að ná fram hin-
um raunverulega kántrý-blæ,
bæði amerískum og Skagastrand-
ar.
flr rrétutilkynaÍBgu
Islensk
fyrirtæki
sýndu vörur
í Aberdeen
Sjávarútvegssýningunni „Catch
’84“ í Aberdeen lauk á laugardag.
Fjögur íslensk fyrirtæki sýndu fram-
leiðslu sína þar. J. Hinriksson hf.
sýndi toghlera og seldi fyrirtækið yf-
ir 20 pör af þeim. Söluverðmæti er
um 2,4 milljónir króna. Plastein-
angrun hf. sýndi bæði sínar eigin
vörur, fiskkassa, trollkúlur og neta-
hringi, og einnig plastker frá Sæ-
plasti hf. Loks sýndi Stálvinnslan hf.
flokkunarvél sína fyrir loðnu, síld
o.fl. og gerði fyrirtækið ráð fyrir að
selja 6—8 vélar til írlands og eina til
Skotlands á þessu ári.
Um 100 fyrirtæki frá 8 löndum
tóku þátt í sýningunni, sem er sú
tíunda í röðinni, en þetta var í
annað sinn sem íslensk fyrirtæki
voru með.
loor h/T>r oo tjTT^ » rrrrr *
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984
Nordia ’84:
Stærsta frímerkjasýning sem
haldin hefur veriö hérlendis
Sýningin verður haldin í Laugardalshöllinni og hefði sjálfsagt fáum dottið i hug að svo stór og mikil bygging yrði til
þess að koma fyrir frímerkjum í. Standandi fyrir framan líkan af sýningarsvæðinu eru: (Lf.v.) Halfdán Helgason,
formaður sýningarnefndar, Gunnar Bjarnason, sem hannaði sýningarsvæðið, Jón Aðalsteinn Jónsson, formaður
Landssambands frímerkjasafnara, Sigurður Pétursson, aðalumboðsmaður sýningarinnar, og Sigtryggur R. Eyþórsson,
framkvæmdastjóri sýningarinnar.
NORRÆN frímerkjasýning, Nordia
'84, verður haldin 3.-8. júlí næst-
komandi í Laugardalshöll í Reykja-
vík. Þetta er í fyrsta sinn sem norræn
frímerkjasýning er haldin hér á landi
og er þetta jafnframt stærsta fri-
merkjasýning sem hérlendis hefur
verið haldin. Norræn frímerkjasýn-
ing var fyrst haldin í Helskinki í
Finnlandi árið 1966 en síðan hafa
sýningarnar einnig verið haldnar í
Svíþjóð og Noregi.
Sýningin er haldin á vegum
Landssambands íslenskra frí-
merkjasafnara og er hún haldin í
því skyni að efla samband og sam-
vinnu milli norrænna frímerkja-
safnara. Sýningin, Nordia ’84,
skiptist í tvær aðaldeildir, sam-
keppnisdeild og sýningu á frí-
merkjum þar sem engin keppni fer
fram en einstaklingum sem eiga
framúrskarandi söfn er boðið að
sýna þau. 1 samkeppnisdeildinni er
hins vegar keppt um hin ágætustu
verðlaun og til að öðlast rétt til
þátttöku þurftu þátttakendur fyrst
að ná ákveðnum árangri á frí-
merkjasýningum erlendis eða í
sínu heimalandi.
Á sýningunni að þessu sinni
gefst gestum kostur á að sjá 781
ramma með marskonar frímerkja-
efni sem 149 einstaklingar eiga. Þá
veðrur einni boðið upp á fleiri sýn-
ingar í Laugardalshöllinni á með-
an á frímerkjasýningunni stendur.
Til dæmis verður haldin blómasýn-
ing á vegum Blómamiðstöðvarinn-
ar í anddyri Laugardalshallarinn-
ar og einnig veðrur sýning á ker-
amik frá Gliti og ljosmyndasýning
á myndum eftir Ralph Hannan, en
það er Breti sem búsettur hefur
veirð hér á landi síðan 1948 og eru
myndirnar frá fyrstu árum hans
hér lendis. Einnig verða sýnd land-
abréf sem Kjartan Gunnarsson á
og myndverk eftir fjóra myndlist-
armenn.
í tilefni Nordiu ’84 hefur Póst-
og símamálastofnunin gefið út
þrjár smáarkir eða blokkir með yf-
irverði sem rennur til sýningarinn-
ar.
Þá teiknaði Snorri Sveinn Frið-
riksson minnispening í tilefni sýn-
ingarinnar og hefur hann verið
gerður í 300 eintökum. Pósthús
veður í sambandi við Nordiu ’84 og
sérstimplar notaðir fyrir hvern
sýningardag. Einnig verða póst-
stjórnir Norðurlanda með pósthús
og á sumum þeirra verða notaðir
hliðarstimplar, tengdir Nordiu ’84.
RJAFU
KERFIÐ
FRÁ
RÖNNING
fyrir lýsingu og raflagnir — „Allt í einu lofti"
sannkallað kerfisloft frá JÁRNKONST
í RJÁFURKERFINU má m.a. staðsetja lagnir fyrir rafmagnsdreifingu, loftræstingu, neyðarljós, síma-
og samskiptakerfi. Þaraðauki uppfyllir kerfið kröfur um hljóðdeyfingu og breytilega staðsetningu
ljósabúnaðar innan kerfisins.
RJÁFURKERFIÐ er auðvelt í uppsetningu
RJÁFURKERFIÐ er ódýrara en venjuleg loft.
RJÁFURKERFI má breyta á auðveldan máta.
RJÁFURKERFIÐ er hagkvæm lausn.
Ummæli Kolbeins Kristinssonar, frkvst. hjá Brauð hf.:
„Ég hef samanburð á tveimur loftum sem sett voru upp nýlega, — þ.e.
hefðbundnu og RJÁFURKERFI, og það er engin spurning að RJÁFURKERFIÐ er
hagkvæmara."
©
RÖNNING^
.//‘RÖNNING Sundabors
sirni 84000