Morgunblaðið - 28.06.1984, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1984
Árni Jóhannsson
kennari — Minning
Fæddur 21. febrúar 1926
Diinn 21. júní 1984
Árni fæddist á Eyrarbakka,
sonur Jóhanns Bjarna Loftssonar
og Jónínu Hannesdóttur. Árni
lærði vélsmíði í Vélsmiðjunni
Héðni, lauk iðnskólaprófi 1948 og
vélstjóraprófi 1951.
Hann varð kyndari á ms. Goða-
fossi 1944, þá aðeins 18 ára gam-
all. Skipið var kolakynt og þýddi
ekki fyrir neina aukvisa að gegna
því starfi. Þá varð hinn ungi mað-
ur fyrir mikilli lífsreynslu. Eins
og kunnugt er geisaði heimsstyrj-
öldin þá og varð Goðafoss fyrir
kafbátaárás í Faxaflóa þegar skip-
ið var að koma frá Ameríku. Með
skipinu voru 12 farþegar en
skipshöfnin var 31 maður. Tíu far-
þegar fórust og 14 skipverjar.
Skipið sökk svo skjótt að björgun-
arbátum varð ekki komið á flot.
Þeir sem björguðust höfðu kastað
sér í sjóinn og komist á fleka.
Goðafoss var að koma heim eftir
rúmlega tveggja mánaða fjarveru
og átti aðeins eftir þriggja tíma
siglingu til heimahafnar. Þetta
gerðist fvrir 40 árum og vafalaust
hefur þessi harði skóli reynslunn-
ar haft varanleg áhrif á hinn unga
upprennandi sjómann og vél-
stjóra. Árni starfaði á skipum
Eimskipafélagsins og hjá ísbirn-
inum um 10 ára skeið. Árið 1960
hóf hann kennslu á mótorvél-
stjóranámskeiðum Fiskifélags ís-
lands. Árið 1966 var allt vélstjóra-
námið sameinað í Vélskóla íslands
í Sjómannaskólanum og hóf þá
Árni störf þar og kenndi um ára-
bil við skólann og sigldi sem vél-
stjóri á togurum á sumrin. Síðan
réðst hann sem vélstjóri á ms. ísa-
fold, sem gerð var út frá Dan-
mörku, og starfaði þar þangað til
hann veiktist. Árni var ákaflega
þægilegur maður í allri umgengni,
ljúfur og glaðvær enda vinsæll
sem kennari og yfirmaður. Hann
var mjög fær í sínu starfi.
Kennarar og skólastjóri Vél-
skólans minnast Árna og þakka
liðnar samverustundir, sem varpa
yl og Ijóma á liðna ævi hins lífs-
glaða og góða drengskaparmanns.
Við kveðjum hann með þakklátum
huga og sendum eftirlifandi eig-
inkonu, fjölskyldu og öðrum að-
standendum hlýjar samúðarkveðj-
ur.
Andrés Guðjónsson
skólastjóri.
Unnur Þorsteins-
dóttir — Minning
Fædd 11. mars 1912
Dáin 15. maí 1984
Á vordögum barst mér óvænt sú
fregn, að vinkona mín, Unnur
Þorsteinsdóttir væri látin. —
Hugur minn flaug til löngu liðinna
daga, vestur á æskustöðvarnar við
Breiðafjörð, fyrir meir en 50 ár-
um, þegar fundum okkar bar fyrst
saman.
Við vorum í heimsókn hjá sam-
eiginlegum vinum í hópi kátra
jafnaldra. „Þá var lífið fagurt og
eftirsóknarvert", eins og skáldið
segir. Allt var svo auðvelt — og
létt að blanda geði við aðra og
ævintýri að hitta telpu frá
Reykjavík. Fljótlega urðum við
Unnur miklir mátar og kynni
okkar á sveitaballinu forðum, hafa
varað vel og lengi.
Unnur átti heima í Reykjavík og
ólst hér upp með foreldrum sínum,
Katrínu Guðmundsdóttur og
Þorsteini Jóhannssyni kaupm.,
sem bæði voru breiðfirskrar ætt-
ar.
Unnur og móðir hennar áttu
saman heimili hér í Reykjavík í
mörg ár, þar til Katrín dó i hárri
elli. — Frá unglingsaldri stundaði
Unnur alla tíð störf utan heimilis;
lengst af hjá Landsíma íslands.
Oft lágu leiðir okkar saman þegar
haldið skyldi í sumarfrí og kom
sér þá vel skipulagsgáfa Unnar og
fyrirhyggja, svo stuttur frítími
rynni ekki út í sandinn.
Stór hópur skyldfólks og vina
var Unni alla tíð handgenginn og
gott var að koma á heimili hennar
og gleðjast með þessu góða fólki,
þar sem og annars staðar sem
fundum bar saman. Húsmóðir var
hún frábær og átti auðvelt með að
láta öðrum líða vel í návist sinni.
Með þessum fáu kveðjuorðum
ætla ég ekki að fjölyrða um störf
Unnar og hæfiieika, sem vissulega
voru miklir og nýttust vel.
Það sem mér er efst í huga eru
þakkir fyrir öll árin, sem liðin eru
frá vordögunum góðu fyrir vestan.
Systkinum hennar og nánum
ættingjum og vinum, votta ég
innilega samúð, og í fullri vissu
þess, að leiðin hennar Unnar ligg-
ur nú góð og greið, þar sem sam-
úðin ríkir og fegurðin býr.
Þangað sendi ég henni mína
allra bestu kveðju.
GJ.
Kveðjuorð:
Guðrún Sigurborg
Kristbjörnsdóttir
Guðrún Sigurborg Kristbjörns-
dóttir lést hinn 1. júní síðastlið-
inn. Ætt hennar og uppruna hafa
verið gerð ítarleg skil. Hún var
komin af sterku, kjarnmiklu fólki,
sem sjá mátti af öllu hennar
svipmóti og lífsstíl. Lífsskólinn
var henni strangur, vegna veik-
inda eiginmannsins, sem oft var
úr helju heimtur, ekki síst vegna
hjúkrunar hennar og þrautseigju.
Það var lærdómsríkt að fylgjast
með samstöðu þeirra hjóna,
hvernig þau studdu hvort annað í
blíðu og stríðu.
Þegar litið er til baka, þau þrjá-
í GÆR lést hér í borg dr. Oleg Ker-
ensky, sonur Alexanders Kerenskys,
síðasta forsætisriðherra f Rúss-
landdi fyrir byltingu.
Dr. Oleg Kerensky var verk-
fræðingur að mennt og þekktur
hönnuður á sviði brúarsmíði.
tíu ár, sem við þekktumst, unnum
við saman að málefnum sem
okkur voru báðum hugstæð. Ég
gleymi aldrei hlýjunni í handtak-
inu, þegar hún bauð mig velkomna
til starfa. Henni var einkar lagið
að vinna að hugsjónum sínum. Þá
var aldrei séð eftir tíma eða fyrir-
höfn, eða kvartað um álag, þó búið
væri að skila löngum vinnudegi
við önnur störf. Hún kunni að
þjóna í kærleika. Með sínu létta
brosi veitti hún mörgum innsýn og
kjark, og gaf þeim skilning á erf-
iðleikum líðandi stundar.
Mörg sumur stóð hún fyrir
sumardvöl barna, ásamt manni
Hann fluttist til Englands árið
1920.
Alexander Kerensky var forsæt-
isráðherra þegar bolsévíkar tóku
völdin árið 1917. Hann varð að
flýja land og settist loks að í
Bandaríkjunum.
sinum Friðþjófi, bæði á Jaðri og
Sogni. Það voru hamingjusöm
börn, sem þar dvöldu við leik og
störf. Þegar hún var kvödd í kirkj-
unni, hljómaði yndisfagur söngur.
Þar var fagur samhljómur, eins og
lífið hennar, engir falskir tónar,
ekkert ósamræmi, bara fegurð og
mildi.
Friðþjófur minn og þið öll vin-
irnir hennar. Það er mikil blessun
að hafa átt samleið með henni,
minnast áranna sem aldrei féll
neinn skuggi á.
Magnea Hjálmarsdóttir,
kennari.
Dr. Oleg Kerensky látinn
London, 26. júní. AP.
'&7
FRÁ CLOSE YOULE
I ALLAR HEYVINNU-
VÉLAR FRÁ OKKUR
MJOG HAGSTÆTT VERÐ
Algengasti KUHN tindurinn á kr. 79,00 með söluskatti.
VÉIADEILD SAMBANDSINS
BÚVÉLAR Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900
VARAHLUTAVERSLUN SÍMI 39811
Alltaf á fóstudögum
MEINLOKA, AÐ
EKKI SÉ HÆGT
AÐ LEIKA TENNIS
Á ÍSLANDI
Rætt viö tennisáhugafólk
DALALÍF
Rætt viö Þráin Bertelsson leik-
stjóra og Ara Kristinsson kvik-
myndatökumann um nýja kvik-
mynd, sem verið er aö taka og er
framhald af Eyjaævintýrinu Nýju
lífi.
GÖNGUFERÐ
Á HORNSTRANDIR
Föstudagsblaðid er gott forskot á helgina
i!--------------------------------------
augivswgastofa KRJSTI