Morgunblaðið - 08.07.1984, Síða 1
Sunnudagur 8. júlí
Réttarhöldin
yfir sovézkum
andófsmönnum
Sá alvarlegi glæpur, sem Victor
Krasin og félagi hans höfðu gert
sig seka um og leiddi til handtöku
þeirra í Moskvu árið 1972, var virk þátt-
taka þeirra í mannréttindasamtökum,
sem höfðu haft andóf í frammi. Á þeim
tíma var Júrí Andropov yfirmaður sov-
ézku leynilögreglunnar KGB, og þar sem
henni hafði ekki tekizt að stemma stigu
við starfsemi andófsmannanna með því
að beita harkalegum lögregluaðgerðum
gegn hópnum, ákváðu yfirmenn KGB að
grípa til annarra og nýstárlegri ráða:
Hugmynd þeirra var sú að velja sér-
staklega úr tvo vel þekkta forvígismenn
samtakanna og sauma það rækilega að
þeim, að hægt væri að knýja þá til að
fordæma sovézku mannréttindahreyf-
inguna opinberlega. Yfirstjórn KGB
vonaðist til, að slík yfirlýsing yrði því-
líkt áfall fyrir mannréttindasamtökin,
að það myndi lama þau og gera að mestu
óvirk eða að þau myndu jafnvel hrein-
lega leysast upp.
Victor Krasin hefur búið í New York
frá árinu 1975; hefur hann skrifað bók,
sem ber titilinn „Réttarhöldin" og kom
út á rússnesku í fyrra hjá útgáfufyrir-
tækinu Chalidze Publicat-
ions, New York. í bókinni
segir Krasin frá reynslu sinni af KGB og
xaðferðum þeirra til að brjóta niður sið-
ferðisþrek þeirra einstaklinga, sem þeir
hafa klófest.
í greinaflokki þeim, sem Morgunblað-
ið mun birta í heild í þrem greinum,
gefur Victor Krasin ítarlega lýsingu á
aðgerðum KGB gegn sovézku mannrétt-
indasamtökunum og því slynga ráða-
bruggi leynilögreglunnar að gera hann
sjálfan að aðalskotspæni sínum. Hann
segir meðal annars frá fyrstu kynnum
sínum innan veggja fangelsisins af þeim
KGB-foringja, sem hann hafði yfirum-
sjón með yfirheyrslunum yfir honum.
Greinaflokkurinn er útdráttur úr áð-
urnefndri bók Victor Krasins og birtist
nýlega í New York Times Magazine.
Ljósm./ Fridþjófur.
64