Morgunblaðið - 08.07.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.07.1984, Blaðsíða 2
50 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1984 „Hvað er mannskepnan annað en vani?“ Rœtt við Guðjón Sigurðsson bakarameistara á Sauðárkróki Svo lengi sem elstu menn muna hefur aðeins eitt bakarí verið á Sauðár- króki frá því bærinn byggðist. Þetta bakarí stendur nú við Aðalgötu númer fimm. Húsið er frekar lítið en í stórri íbúð á efri hæðinni býr Guðjón Sigurðs- son bakarameistari, sem var kóngur í ríki sínu í um 51 ár, en hann lét af störfum um síðustu áramót. Þetta er langur tími en Guðjón gefur lítið út á það. Hann hefur bakað brauð alla sína tíð og gefur lítið út á það líka. Segir þetta allt hafa verið tíðindalaust. Og hann hefur fengist við meira en bakaraiðnina, því hann hefur lengi verið frammámaður í leik- listarlífi á Króknum og svo hefur hann líka fengist við pólitík á lífsleiðinni eöa um 28 ára skeið. Guðjón er ekki Sauðkræklingur heldur Skagfirðingur, segir hann með áherslu en hann hefur búið á Króknum frá árinu 1927 „mínus tvö ár“. Frá Mannskaðahóli „Ég er nú eiginlega allra sveita kvikindi," sagði hann aðspurður um hvaðan hann væri úr Skaga- firði. „Ég fæddist á Mannskaða- hóli í Hofshreppi." „Hvernig stendur á þessu heiti, Mannskaðahóll?" „Ég er nú ekki alveg viss um það en ég held að þarna hafi verið drepnir útlenskir ræningjar í eina tíð. Þeir voru þá búnir að vinna spjöll á heimilinu og misþyrma konu bóndans. Bóndinn gerði sér hægt um hönd, eftir því sem sag- an segir, reið á bæi og fékk bænd- ur og búalið á hestum til liðs við sig og leitaði hefnda. Ræningjarn- ir og óbótamennirnir uggðu ekki að sér. Þeir lágu þarna í laut skammt frá bænum og bændurnir riðu yfir þá og drápu. Einhverjir munu hafa komist undan og leitað hælis í Hóladómkirkju." „Varst þú lengi á Mannskaða- hóli?“ „Nei, það var ekki lengi. Ég var tekinn í fóstur á næsta bæ, sem nú er ekki til lengur. Svo fór ég fram í Lýtingsstaðahrepp og vann sveitastörf til 16 ára aldurs. Næstu tvö sumur var ég á Siglu- firði til sjós og uppúr því byrjaði ég að læra hér á Sauðárkróki hjá forvera mínum, Snæbirni Sigur- geirssyni bakara. Ég hafði verið hjá honum vorið áður.“ „Hvernig leiddist þú út í bak- araiðnina?" „Mér þótti vínarbrauðið og púð- ursykurinn svo mikið sælgæti," sagði Guðjón og hló. „Svo var ekki auðhlaupið að fá vinnu í þá daga. Ég var hjá Snæbirni að læra í þrjú ár og fór eftir það til Kaup- mannahafnar og var þar í tvö ár og tók þar próf. Snæbjörn hvatti mig til að fara út til Danmerkur. Hann hafði sjálfur verið í Kaup- mannahöfn og var mjög mikil- hæfur fagmaður. Hann dó nokkru eftir að ég kom að utan. Það var lítið um vélakost á þessum árum. Allt var gert í höndunum. Bakaríið var þá hérna rétt við rafstöðina í Gamla bak- aríinu eins og húsið hefur verið kallað en 1940 flutti ég það hingað á Aðalgötu fimm. Þá kom raf- magnsofninn til sögunnar og hann er ennþá við lýði hérna niðri.“ Af dönskum brandara „Ég heyrði eina sögu ..." „Það hefur ekki verið ..." „ ... um þig.“ „ ... stóra lygasagan um rottu- skítinn?" „Jú.“ „Það var nú meiri vitleysan. Þetta er 100 ára gamall danskur brandari, sem lærlingarnir hjá Anker Jörgensen bakarameistara sem ég lærði hjá í Kaupmanna- höfn sögðu mér. Hann er um bak- ara, sem var ákærður fyrir að hafa selt brauð með rottuskít. Svo var hann kallaður fyrir dómara, sem tilkynnti honum að það væri rottuskítur í brauðunum hans. Dómarinn rétti fram lófann til að sýna bakaranum sönnunargagnið en bakarinn var snöggur upp á lagið og sagði: „Dommer, er De rfgtig klog? Kan De ikke se at det er kun en brændt rusine," um leið og hann krækti í sönnunargagnið úr lófa dómarans og stakk uppí sig. Þegar ég kom heim til íslands sagði ég Friðriki Sigurbjörnssyni þennan brandara en hann vann á Morgunblaðinu, og hann snéri honum uppá mig og tilgreindi meira að segja dómarann, sem átti að vera Sigurður Sigurðsson sýslumaður. Sigurður hringdi í mig þegar hann heyrði þetta og var vondur eins og vonlegt var. Og sagan flaug svo hratt um bæinn að innan skamms héldu allir bæj- arbúar að þetta væri heilagur sannleikur. Ég var öskuvondur út af þessu, mér þótti þetta ekki gott eins og þú skilur en ég erfði þetta aldrei við Friðrik vin minn. Það góða við þetta allt saman var að þessi danski brandari er engin íygi heldur sönn saga.“ Leiklistin „Þú hefur mikið unnið að leik- listinni hér á Króknum í gegnum tíðina. Hvenær fékkstu áhuga á henni?" „Það mun hafa verið ... vertu nú rólegur, veturinn 1925 eða sex. Þá átti ég heima hér nokkuð frá, úti á Reykjaströnd og kom hingað á Krókinn til að horfa á uppsetn- ingu á „Skugga-Sveini". Það var dæmalaus upplifun. Alveg stór- kostlegt allt saman. Svo fór ég upp á svið. Húsbóndi minn, Snæ- björn, narraði mig til að leika smáhlutverk í leikriti árið 1927, árið sem ég kom hingað. Ég lék svértingja í stykki sem hét „Gæfumunurinn". Það var sett upp á vegum stúkunnar. Þeir voru þá mikið með leiklistarstarfsemi í Templarahúsinu. Síðan þegar Bifröst var opnuð árið 1925 fór fram leiklistarstarfsemi í báðum þessum húsum. Svo byrjaði ég að leika aftur eftir að ég kom frá Kaupmanna- höfn. Það var í Bifröst árið 1932 í „Lénharði fógeta“. Það var örlítið hlutverk. Og svo hefur þetta geng- ið svona í gegnum árin. Tímarnir eru sko aldeilis breyttir. Á þess- um árum var mikið um að haldið væri upp á félagsafmæli og það þótti engin skemmtun ef ekki var boðið upp á einþáttunga. En nú hefur fólkið við svo margt að vera.“ „Það hefur þá alla tíð verið blómlegt leiklistarstarf á Krókn- um?“ „Já, það hefur verið blómlegt. Leikfélagið var stofnað árið 1941 og þá voru nú mörg stórstykki tekin. Það var alltaf eitthvert stórstykki tekið einu sinni á ári, á Sæluviku, og svo var annað á milli jóla og nýárs og var kallað jóla- leikrit. Félagssamtök settu líka upp leikrit í fjáröflunarskyni. Og það hefur yfirleitt verið mikið um íslensk leikrit og þau voru afar vel sótt. Ég man sérstaklega eftir einu leikriti, sem var sérstaklega vel sótt og gekk ægilega vel en það var „Á útleið" eftir danska prest- inn Kaj Munk. Og ef ég áð að telja upp fleiri leikrit, sem eru ofarlega í huga, þá má nefna „Gullna hlið- ið“, „Fjalla-Eyvindur", „Nýárs- nótt“, „Maður og kona“ og „Piltur og stúlka", „íslandsklukkan" og „Kjarnorka og kvenhylli", eftir Agnar Þórðarson, sem var mjög vel lukkað. Ég held það sitji nú í fólki að vilja helst íslensk stykki. Það voru sýnd hér mörg ágætisstykki fyrir nokkrum árum en ég held að leikfélagið sé i lægð núna, ekki fyrir það að fólk hafi ekki skilað hlutverkum sínum vel, þetta hef- ur allt verið mjög vel gert, en leik- ritin hafa ekki fallið að smekk fólksins hin síðari ár. Sjálfur fer ég á hvert einasta stykki, sem sýnt er hérna, ef ég er heima. Mér finnst að það hafi komið upp mik- ið af ungu hæfileikafólki, sem hefur gert sína hluti vel. Það var voðalega gaman að vinna þarna í þessu. Eyþór Stef- ánsson var leiðandi maður í ára- tugi í þessu öllu saman og I vel- flestum tilvikum var hann leik- stjóri þótt aðrir kæmu þar einnig við sögu.“ Pólltíkin „En svo er það pólitíkin. Hvern- ig gerðist það að þú fórst að taka þátt I henni?" „Ég get nú ekki lýst því eigin- lega. Ég var nú bara þessu mark- inu brenndur að ég hneigðist að ákveðnum flokki, sem er Sjálf- stæðisflokkurinn. Ég fór útí þetta, er óhætt að segja, fyrir áeggjan Eysteins heitins Bjarnasonar, sonar Bjarna frá Vogi. Hann plat- aði mig í framboð til bæjarstjórn- ar 1947 þegar Sauðárkrókur fékk kaupstaðarréttindi og fyrst var gengið til slíkra kosninga." „Og hver voru helstu málin á oddinum í þá daga?“ „Það voru þessi venjulegu bæj- armál. Það var margt ógert sem þurfti að gera, margt framundan. Allt hefur þetta þróast í áttina sem betur fer. Svona hægt og bít- andi.“ „En af hverju kaustu Sjálfstæð- isflokkinn fram yfir aðra?“ „Ég var mjög andvígur komm- únisma. Hann braut i bága við mínar skoðanir. Maður vissi ým- islegt um hann. Þeir hópuðust hingað þessir áróðursmeistarar kommanna og það átti að hertaka Krókinn alveg. Það var auðheyrt strax að það var tvíræður sann- leikur sem þeir fóru með.“ „Og hverjar voru varnirnar?" „Varnirnar voru þær að menn mættu á fundum hjá þeim og rif- ust við þá. Þetta voru gamma- menn allir og þeir voru allir vel máli farnir. Annars var pólitíkin yfirleitt róleg. Það voru skiptar skoðanir og það var deilt svona heiðarlega. Við misstum óskap- lega mikið sjálfstæðismenn þegar Eysteinn Bjarnason dó árið 1951.“ Fótaferðartíminn „En svo við snúum okkur aftur að bakaraiðninni, ævistarfi þínu. Er til eitthvað sem kalla má heimspeki bakarans?" „Ekki heid ég það, nema þeir láta fólk vita að þeir búi til góðan mat. Ef bakari ætti að fara eftir einhverjum boðorðum þá væri fyrsta boðorð hreinlæti, annað boðorð hreinlæti og þriðja boðorð hreinlæti. Það er absalútt höfuð- dyggð hvers bakara. Faginu hefur farið gífurlega fram um allt land, sérstaklega hvað vélakost áhrærir og fjölbreytni I framleiðslu. Það hefur hreinlega orðið bylting í brauðgerðinni síðan farið var að nota meira af korntegundum, það er að segja ómöluðu korni." Mestan hluta ævi sinnar hefur Guðjón farið á fætur klukkan fjögur á morgnana þegar aðrir eru enn í fastásvefni. Þannig er starf bakarans. „Það er gott að einhverjir íslendingar fari snemma á fætur. íslendingar eru mjög morgun- svæfir. Maður sér það bara í Reykjavík. Þar eru engir bílar á ferðinni snemma á morgnana. ís- lendingar eru latir á morgnana, held ég, í samanburði við ýmsar aðrar þjóðir. Svo vakir fólk fram- eftir allri nóttu. Það er nú meiri andskotans vitfirringin. Svo kem- ur það grútsyfjað til vinnu. Þetta er geysilegur hluti fólks, sem byrjar ekki að vinna fyrr en klukkan átta og níu á morgnana. Tímann á milli sex og sjö á morgnana myndi ég telja eðli- legan fótaferðartíma." Af gömlum vana „Og vaknar þú enn klukkan fjögur þótt þú sért hættur í bak- aríinu?“ „Já, ég vakna enn klukkan fjög- ur. Þetta er orðið vani. Hvað er mannskepnan annað en vani?" „Hvernig er sú tilfinning að vera hættur að vinna eftir öll þessi ár?“ „Ég get ekki lýst því. Get það ekki. Því er ekki hægt að neita að það er mikil breyting á lífi manns.“ — ai.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.