Morgunblaðið - 08.07.1984, Blaðsíða 13
61
% * ♦ r»*W <- i -
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1984
Áratugur þjáning-
ar, biðar og bæna
AVITAL Shcharansky á bráö-
um 10 ára brúðkaupsafmæli.
I‘á eru einnig liðin 10 ár frá
því að hún sá mann sinn, An-
atoli, síðast. Þetta hefur ver-
ið áratugur þjáningar, biðar
og bæna, segir hún í viðtali
við New York Times.
Þau giftu sig í Moskvu 4. júlí
1974. Skömmu síðar lét hún
undan þrábeiðni hans og flutt-
ist til ísrales, um það bil sem
fararleyfi hennar var að renna
út. Þau voru sannfærð um, að
hann fengi einnig leyfi til að
fiytjast úr landi, þótt það gæti
dregist nokkra mánuði.
En mánuðirnir urðu að árum.
Það urðu sífellt fleiri Gyðingar
til þess að sækja um brottfar-
arleyfi og sovésk yfirvöld tóku
óþyrmilega á móti. Árið 1977
hlaut Shcharansky, sem er
stærðfræðingur að mennt, 13
ára fangelsisdóm fyrir landráð.
Hafði hann þá um tíma verið
opinskár talsmaður þeirra, sem
flytjast vildu úr landi.
Þegar hér var komið sögu,
voru þau enn ung og glöð og
bjartsýn.
„Eftir að við giftum okkur,
leið okkur eins og við hefðum
unnið stórsigur," segir Avital
Shcharansky, „og þegar leiðir
okkar skildi, vorum við þess
fullviss, að við fengjum að hitt-
ast á ný.“
Hann er orðinn 36 ára gam-
all; hún 33 ára. Hluti úr lífi
þeirra er horfinn. Ef dæma á
hins vegar eftir bréfunum, sem
hann sendir úr fangelsinu, eða
stöðugri viðleitni hennar til
þess að fá hann leystan úr
haldi, hafa þau ekki horfið
hvort öðru. Samband þeirra er
jafnnáið og það var.
Hún hefur farið á fund Ron-
ald Reagans Bandaríkjaforseta
og forvera hans, Jimmy Cart-
ers. Hún hefur rætt við Marg-
aret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, Francois Mitt-
errand Frakklandsforseta og
marga af æðstu embættis-
mönnum Ítalíu.
Mótlætið hefur ekki gert
hana bitra. „Ég er sannfærð
um, að hann kemur. Ef til vill
Avital Shcharansky: „Sam-
band okkar er mjög náið. Við
kunnum að hafa breyst að
ytra útliti, en hið innra er allt
óbreytt.“
ekki á næstunni, en hann kem-
ur.“
Hún segir, að eiginmaður
sinn sé bjartsýnn og hafi alltaf
verið. Fólk geti ekki annað en
hrifist með og trúað því, að
hann verði frjáls. Og þetta gef-
ur henni byr undir báða vængi.
„Á síðastliðnu hálfu ári hef
ég fengið tvö bréf,“ segir hún.
Þriðja bréfið hefur verið gert
upptækt. En móðir Anatolis,
Ida P. Milgrom, sem býr rétt
fyrir utan Moskvu, fær bréf
mánaðarlega. Þá hringir hún í
Avital og les fyrir hana.
Móðir hans fær að heim-
sækja hann tvisvar á ári. Hann
kvartar við móður sína, þegar
honum finnst hún ekki segja
honum nógu ítarlega af kon-
unni, sem hann elskar. Þegar
minnst er á þetta við Avital,
breiðist út innilegt bros yfir
andlitið.
Síðustu bréfin frá honum
hafa verið full af rómantískum
og fyndnum vangaveltum. Hún
man eftir honum þannig, þegar
þau voru saman í Moskvu.
„Þeir hjá KGB reyna að
drepa hverja tilfinningu í
brjósti hans,“ heldur hún
áfram. „Þeir reyna að brjóta
hann niður andlega til þess að
hann verði einn af þeim. Þeir
sögðu við Anatoli, að þeir
skyldu leysa hann úr haldi,
þegar hann hefði afplánað
helming tímans, ef hann skrif-
aði æðsta ráðinu, segðist vera
veikur og bæðist afsökunar.
Hann var ófáanlegur til að gera
slíkt. Með því hefði hann orðið
samsekur í glæpnum.
Avital býr í ísrael. Fyrir
þremur árum hóf hún að nema
gömul gyðingleg fræði. Og svo
lærir hún að mála í kvenna-
skóla rétt fyrir utan Tel Aviv.
En allt hennar líf snýst um mál
eiginmanns hennar.
Hverju hefur þetta breytt
fyrir hana? Hefur hún sjálf
breyst? Á hvern hátt ætli
Shcharansky finnist hún hafa
breyst, þegar þau ná saman á
nýjan leik?
„Hann sér auðvitað, að ég er
orðin eldri,“ segir hún hlæj-
andi. „Samband okkar er mjög
náið. Við kunnum að hafa
breyst að ytra útliti, en hið
innra er allt óbreytt."
QOTT P0I.K
mmmmmmm
“wr im
TILNOREGS
Nú er svo komið að það er aðeins eftir ein sérstaklega ódýr
Úrvalsferð til Noregs í sumar.
Flogið verður í beinu leiguflugi til Oslóar þann 18. júlí með
heimkomu 1. ágúst.
Flugfar báðar leiðir ásamt bílaleigubíl, í eina viku,
kostar aðeins krónur 8.600 á mann miðað við 4 í bíl.
Flugfar og bílaleigubíll í 2 vikur kostar aðeins krónur
10.000 á mann miSað við 4 í bíl.
Samfara þessari síðustu Noregsferð bjóðum við
Úrvalsgistingu í sumarhúsum eða íbúðum í
Alpia Apartments í ævintýradalnum
Hemesdal, sem er miðja vegu á milli Oslóar
og Bergen.
Vikuleiga á íbúð fyrir 2-4 er
kr. 5.280.-
Vikuleiga á íbúð fyrir 3-6 er
kr. 6.720.-
Þar að auki getum við útvegað úrval
annarra gististaða í höfuðborginni
Osló eða annars staðar í Noregi.
Það fer hver að verða síðastur
að tiyggja sér far - því það eru
aðeins fá sæti óseld.
FBHHsiammaN
Ert þú ekki samferða í síðustu Noregsferðina í sui
Síminn er 26900.