Morgunblaðið - 08.07.1984, Page 8

Morgunblaðið - 08.07.1984, Page 8
56 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1984 Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON LAX Heilsoöinn Iax meÖ sveppasósu 1 lax, u.þ.b. 2 Vfe kg 2 msk. salt. 3 lítrar vatn 3 sítrónur í sneiðum 2 stórar gulrætur 2 sellerístönglar 2 lárviðarlauf 8 svört piparkorn l.Setjið vatn, sítrónusneiðar, piparkorn, lárviðarlauf og salt í pott. Þvoið gulræturnar og sellerístönglana og skerið í bita, setjið í pottinn og látið sjóða við hægan hita í 30 mínútur. 2. Hreinsið allt blóð úr laxinum og hreinsið himnur innan úr kviðnum. Takið tálknin úr hausnum, skafið slím af laxinum. Kippið af ugga, skolið allan laxinn vel. 3. Hitið bakaraofn í 180°C, setjið soðið í steikingarpott eða aflanga skál með loki sem rúmar laxinn vel. Ef laxinn er of langur, verður að skera hann í tvennt. Setjið laxinn í diskaþurrku og leggið á botn steikingar- pottsins, látið soðið fljóta alveg yfir laxinn. Sjóðið lax- inn þannig í 40 mínútur. Gætið að hvort hann sé soðinn að þeim tíma liðnum. Laxinn er soðinn, þegar hann er laus frá beinum. 4. Takið laxinn upp úr pottinum í diskaþurrkunni og setjið á aflangt fat. Ef þið hafið skorið laxinn í sundur, er hægt að hylja samskeytin með salatblöðum eða steinselju og raða sítrónusneiðum ofan á. 5. Berið laxinn fram með soðnum kartöflum, hrásalati og sósu. Sósan: Væn grein fersk steinselja 1 lítill laukur 1 hálfdós niðursoðnir sveppir Gylfaginning segir frá því er Loki Laufeyjarson neitaði að gráta Baldur úr helju. Æsir vildu hefna þess á Loka, en hann brá sér í laxlíki og faldi sig þar sem heitir Fránangrsfoss. Gerðu þá æsir sér net og drógu á, en Loki hljóp yfir netþinulinn. Þór sem stóð í miðri ánni „greip eftir honum ok tók um hann, ok renndi hann í hendi honum, svá at staðar nam höndin við sporðinn, ok er fyrir þá sök laxinn afturmjór." Sögur sagðar af glímunni við laxinn eru oft það ótrúlegar að líkast er sem Loki sé í hverjum laxi, því kraftur þeirra og kænska er með ólíkindum, en það er líka eins og Þór búi í sumum veiðimönnunum. Við fréttum af einum sem kom úr Laxá í Ásum með 12 laxa, 60 kíló, eftir daginn og nú er veitt á flugu og þær heita hver sínu nafni. Sá sem hér segir frá hafði mest veitt á flugur sem heita Þingeyingur og Red Frances. Já, og veiðistaðirnir við ána heita hver sínu nafni. í Norðurá er farið upp á Spyrock til þess að sjá niður í Myrkhyl og á vetrarkvöldum er auðvelt að lifa það upp sem gerðist hjá Gaflhyl við Laxfoss. Upp úr áramótum er farið að gera klárt — yfirfara stangir — fara í gegnum fluguboxin. Skyldi nú veiðast mest á blue-charm, Kröflu eða þá á doktorana á næstu vertíð? Það er óvissuþátturinn sem gerir veiðarnar svo spennandi, t.d. eins og þegar annað hollið sem var í Hallá í sumar fékk þriðja og síðasta laxinn grálúsugan rétt áður en haldið var heim. Fréttu svo að þeir sem á eftir komu hefðu fengið tíu. Gangan hafði komið aðeins of seint. Margt ber líka að varast og verst er þegar menn fara að veiða eftir klukku í stað þess að gefa sér tíma til þess að kasta sér í grasið, finna ilm lands og angan blóma, hlusta á suðið í flugum og huga að skýjafari og flugi fugla og litbrigðum lands og náttúru. Laxinn er göfugastur allra fiska. Því má ekki kasta til höndunum á matreiðslu á honum. Bestur er hann vægt kryddaður. Um laxinn gildir hið sama og um annan fisk. Varast ber að ofsjóða hann. Honum hættir til að verða of þurr sé það gert. 2 dl sveppasoð 2 dl soð af laxinum 1 lítil dós rjómaostur 1 msk smjör örlítill nýmalaður pipar 6. Setjið sveppasoð, laxasoð, saxaða steinselju og saxað- an lauk í pott. Látið sjóða í 10 mínútur. 7. Skerið sveppina smátt og setjið út í ásamt rjómaosti. Hrærið vel í svo að osturinn bráðni. 8. Setjið smjörið út í, malið piparinn yfir og hellið í sósuskál. Glóðarsteiktar laxasneiðar Handa 4 4 stórar sneiðar lax, 3 sm á þykkt 1 'h. tsk salt !4 tsk nýmalaður hvítur pipar safi úr 1 sítrónu 30 g smjör væn grein fersk steinselja 1. Hitið glóðarristina í 10—15 mínútur. 2. Hellið sítrónusafa yfir sneiðarnar, stráið síðan salti og pipar á þær og látið bíða í 15 mínútur. 3. Bræðið smjörið, klippið steinseljuna og setjið saman við. Penslið stykkin öðrum megin með helmingi steinselju- smjörsins, glóðarsteikið í 5—7 mínútur, snúið við, penslið hina hliðina á sama hátt og glóðarsteikið í aðrar 5—7 mínútur. Meðlæti: Soðnar kartöflur, gúrkustafir, sitrónubátar og steinselj ukryddsmj ör. Steinseljukryddsmjör: 100 g lint smjör væn grein fersk steinselja 'k msk sítrónusafi Hrærið smjörið með saxaðri steinselju og sítrónus- afa. Setjið síðan í álpappír og mótið rúilu. Setjið í frysti í 1 klst. Skerið í sneiðar og berið fram með laxinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.