Morgunblaðið - 08.07.1984, Side 10

Morgunblaðið - 08.07.1984, Side 10
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLl 1984 Miklibær í Skagafirði áður en nýja kirkjan var þar reist. Kirkjan og kirkjugarðurinn nær en gamii bærinn fjær. Solveig biður um flutning Á miðilsfundum í Reykjavík, fyrrihluta árs 1937, virtist sem Solveig (eða vera og jafnvel verur, sem báru hag hennar fyrir brjósti), hafi gert vart við sig og beðið um að bein sin yrðu tekin úr jörðu á Miklabæ og færð að Glaumbæ. Farið var að þessari beiðni og fór beinaflutningurinn fram þá um sumarið. Séra Lárus Arnórsson á Miklabæ var mikið við beinaflutninginn riðinn og skrifaði hann ítarlega grein um málið í Morgun, tímarit um and- leg mál, útgefnu að tilhlutan Sál- arrannsóknafélags Islands. Segir séra Lárus að á miðils- fundunum hafi óskum Solveigar um beinaflutninginn verið beint að sér, Pétri Zophoníassyni ætt- fræðingi í Reykjavík og þriðja manni og þeir beðnir um að koma þessu máli í framkvæmd. Lá fyrst fyrir að leita nákvæmra upplýs- inga um, hvar bein Solveigar lægju grafin. Frá fornu fari var talið að Solveig lægi norðan undir kirkjugarðinum á Miklabæ aust- anverðum. Á þeim stað stóð rétt eftir aldamótin þúfa eða þúst út úr kirkjugarðsveggnum, sem köll- uð var „Ieiðið hennar Solveigar", en nálægt 1910 var kirkjugarður- inn á Miklabæ stækkaður til norð- urs og komst þá gröf Solveigar inn í garðinn. Beinaleitin Þess var getið hér i fyrri grein- inni að árið 1914 hafi verið komið niður á ieiði, sem talið var Sol- veigar. Lá kista hennar út og suð- ur, þvert fyrir gröfinni, sem verið var að taka. Þegar hreyft var við kistunni liðaðist hún í sundur og lögðu grafarmenn fjalirnar úr henni samhliða kistu þeirri, sem þeir voru að taka gröf að. En þeg- ar kista Solveigar var upp tekin, kom fram skúti sunnan við nýju gröfina og i þann skúta lögðu þeir beinin. Við leit að beinum Solveigar 1937 höfðu séra Lárus og Zophoní- as Pétursson, sonur Péturs ætt- fræðings, samband við annan grafarmanninn frá 1914, Sigurð Einarsson í Stokkhólma, sem ver- ið hafði heimamaður Þorsteins Þorsteinn Björnsson fyrrum bóndi á Hrólfsstöðum. Hann dreymdi margt í sambandi við Solveigu. Björnssonar bónda á Hrólfsstöð- um. Einnig höfðu þeir samband við son konunnar, sem grafin var þegar komið var niður á kistu Sol- veigar. Þessum tveimur mönnum bar ekki saman um legstaðinn og munaði a.m.k. grafarlengd eftir skoðun þeirra. Grafið var eftir til- lögu sonarins en árangurslaust. Þá gerðist það einni eða tveimur nóttum síðar að áðurnefndan Þorstein á Hrólfsstöðum dreymdi, „að til hans kemur maður hár og herðibreiður og var festa og ró yf- ir svipnum. Þykir honum maður- inn vera sr. Oddur á Miklabæ. Þorsteini finst sr. Oddur segja við sig: „Ég sé á þér, að þú ætlar að gera þetta fyrir okkur." Þorsteini þótti sr. Oddur eiga við það, að hann legði lið sitt að því, að leita beina Solveigar." Þannig segir séra Lárus frá í Morgni frá 1937. Þorsteinn segir frá En Þorsteinn sagði sjálfur frá þessum draumi í Sunnudagsblaði Tímans (11. árg., 29. tbl.) og hvernig hann vissi um leiði Sol- veigar. Hann sagði: “Ég þekkti gamlan mann, sem mundi gamla konu, sem var á barnsaldri þegar Solveig dó. Þessi gamli maður hafði sagt mér hvar leiðið væri að finna, enda gekk það alveg eftir.“ Og seinna sagði hann: „Svo liðu árin, unz hinn ágæti gestur kom úr Reykjavik (Zophonías Péturs- son, innskot Mbl.) með þau tilmæli að Solveig yrði flutt í vígðan reit. Þá stóð svo á að ég var í vegavinnu úti í Blönduhlíð. Bar þá svo til, að ég lagði mig að afloknum morg- unmat, eins og ekki er í frásögur færandi. Ég veit ekki hvort mér hefur runnið í brjóst, en ég efast um það. En hvort sem ég hef verið vakandi, sofandi eða mókandi, þá sá ég ekki betur en inn í tjaldið til mín kæmi maður, hár og mikill með svarta skeggbrodda, sem mik- ið bar á. Mér fannst hann segja við mig: „Þú gerir það, sem þú verður beðinn um.“ Meira var það ekki.“ Séra Lárus segir í grein sinni að eftir draum þennan hafi Þorsteinn haldið til fundar við Sigurð Ein- arsson og beðið hann að leita með sér beinanna. í viðtalinu segir Þorsteinn að hann hafi haldið til Miklabæjar daginn eftir draum- inn að garfa í stóðrekstri, hitt þar gestinn að sunnan, sem lagði fast að honum að grafa upp beinin. Fóru þá Þorsteinn og Sigurður Um flutninga á beinum Solveigar frá Miklabæ áriö 1937 rfyrri hluta þessarar greinar, sem birtist í síðasta sunnudagsblaði Morgunblaðsins, var fjallað nokkuð um afdrif Solveigar og séra Odds Gíslasonar á Miklabæ og verð- ur hér haldið áfram þaðan sem frá var horfíð og greint frá flutningi á beinum Solveigar úr kirkjugarðinum í Miklabæ yfír í Glaumbæjarkirkjugarð árið 1937. Teikning/ Gísli Sigurðsaon. á þjóðsögu V

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.