Morgunblaðið - 08.07.1984, Page 11

Morgunblaðið - 08.07.1984, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1984 59 og grófu á þeim stað er Sigurður hafði áður vísað á og gengu þar að öllu svo sem hann hafði áður við skilið og frá sagt, segir séra Lárus. Frásögn séra Lárusar í tímarit- inu Morgni, um beinaleitina og fundinn, er afar ítarleg, vegna þess að hans eigin sögn, að „sumir hafa dregið í efa, að það hafi verið bein Solveigar, sem flutt voru“, og af því að „í miðilssambandi því, sem fyrr um getur, var svo látið um mælt, að bein Solveigar mundu ekki finnast fyrr en við aðra tilraun”. Þaö sem fannst Séra Lárus og Stefán Jónsson á Höskuldsstöðum mældu lengd helstu beinanna, svo sem höfuð- kúpu og lærlegg. Af stærð höfuð- kúpunnar virtist þeim hún vera sem samsvaraði fremur litlu kven- mannshöfði, og af tönnum álykt- uðu þeir að hún hefði verið á þrí- tugsaldri. Af lengd lærleggs álykt- uðu þeir að um fremur lágvaxna mönnum hér í lífi megi um kenna. — Annað er það, að hún hafi ekki fengið blessun kirkjunnar, eins og tíðkast um þá, er deyja; þvert á móti verið útskúfað. Hitt atriðið, sem tafið hefir þroska hennar, var hugsunarháttur fólksins: Hvernig kynslóðirnar síðan daga hennar hafa hugsað og hugsa til hennar. I þeirri staðhæfingu felst, að það sé ekki holt fyrir þroska framliðins manns, að stöðugt sé hugsað til hans eins og einhverrar óvættar, er ofsæki og geri mein .. “ Annar draumur Þorsteins Það var, að því er virðist, ekki sama hvar í Glaumbæjarkirkju- garði gröf Solveigar var tekin. Zophonías Pétursson samdi við Þorstein á Hrólfsstöðum um að taka gröfina að kistunni, en Þor- steinn tók það fram að hann vildi ekki ráða grafarstæðinu. „En þá gerðist það eina nótt, að mig Ljósmynd Halldórs Laxness rithöfundar, sem viðstaddur var beinaflutning- inn 1937. Á myndinni má sjá þegar verið er að bera kistu með beinum Solveigar frá Miklabæ inn í Glaumhæjarkirkju. Ljósmynd/ Halldór Laxness. konu væri að ræða. Járnhringur fannst í moldinni og hafði hann verið í gafli kistunnar. Gat Stefán á Höskuidsstöðum sér til um að þetta hafi verið fatakista Solveig- ar, sem hún var grafin í og munu sögusagnir til vera fyrir því, að svo hafi verið, segir séra Lárus. Ein silfurmilla og ofurlítil pjatla af mjög sterkum dúk fannst einn- ig í gröfinni en hvorugur sá hlutur var grafinn með beinunum. Pjötl- unnar hafði sérstaklega verið get- ið í miðilssambandinu. Tilgangurinn Tilgangur beinaflutningsins var tvíþættur að mati séra Lárusar. í fyrsta lagi var hann sá að veita Solveigu þá blessun, sem kirkjan er vön að veita hverju barni sínu, jafnt breisku sem staðföstu. í öðru lagi var tilgangurinn sá að hafa áhrif á hugsunarhátt fólksins, að lægja óttann og andúðina, en skapa öryggi og samúð. Með þessu átti að hjálpa Solveigu. „Hún var,“ segir Lárus, „sögð styttra á veg komin en æskilegt væri og sumir kynnu að ætla, eftir þeim tíma, sem liðinn er síðan hún flutti héð- an ... var það látið í veðri vaka, að það sé aðallega tvennt, sem tefji fyrir þroska hennar — það er dreymdi, að ég væri kominn í Glaumbæ og út í kirkjugarð. Þótt- ist ég þá sjá þar opna gröf, og ég sá svo vítt um garðinn, að ég var alveg hárviss um á hvaða bletti þetta væri, sem ég sá gröfina," sagði Þorsteinn í Tímaviðtalinu. Fóru hann og Stefán á Höskulds- stöðum eftir það í Glaumbæjar- kirkjugarð og voru að velta því fyrir sér hvar réttast væri að taka gröfina. En þegar Þorsteinn gekk lengra inn í garðinn, sá hann stað blasa við, sem leit nákvæmlega eins út og i draumnum. Þar liggur Solveig nú. Beinaflutningurinn Beinaflutningurinn fór fram sunnudaginn 11. júlí, 1937. Séra Lárus flutti guðsþjónustu í báðum kirkjum, Miklabæ og Glaumbæ, og jafnframt fyrirbæn fyrir Solveigu. Séra Hallgrímur Thorlacius var þá prestur í Glaumbæ en hann vék sér undan því að syngja yfir bein- um Solveigar. Hann var spurður að þvi hvers vegna hann hefði neitað og hann sagði: „Þeir vildu láta mig fara að jarða draug." Séra Lárus segir í grein sinni: „Til eru þeir, sem telja það furðu gegna, að prestur skuli hafa feng- izt til að leggja lið slíkri athöfn, Nýja húsið á Miklabæ og í fjarska sést til Víðivalla en á milli bæjanna hvarf séra Oddur. Morgunbt/ - ai. Nýja kirkjan á Miklabæ en í forgrunni má sjá gömlu garðhleðsluna og sáluhliðið. Morgunbl./ — ai. sem þeirri, er hér var lýst.“ Og seinna: „ ... sannleikurinn mun vera sá, að sú lítilsvirðing, sem þessi beinaflutningur og önnur gvipuð tilfelli fá úr átt kirkju- manna, mun stafa mest af því, að hvatningin er runnin úr skeytum á miðilsfundum. Það er gamla óvildin til spíritismans, sem þar rekur enn á ný upp kollinn, en kirkjunnar menn verða að skilja, að sú óvild er þeim eingöngu til minnkunar ... “ Eins og kom fram í fyrrihluta þessarar greinar var Halldór Laxness rithöfundur viðstaddur endurgreftrun Solveigar. „Ég var í bíl á leiðinni norður í land og frétti í sveitinni að það ætti að grafa Solveigu í dag og við frest- uðum því för okkar um nokkra klukkutíma og biðum eftir að lík- fylgdin kæmi,“ sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið fyrir stuttu. „Svo kom hún og ég tók mynd af mönnum, sem voru að bera kistuna. Mér þótti þetta mjög sérkennilegt og þykir enn, hvenær sem mér dettur það í hug. Sveitin var mætt þarna til leiks og kirkj- an var full út að dyrum. Ég hafði aldrei heyrt um Solveigu nema eitthvað gamalt kvæði eftir Einar Benediktsson og ég vissi aldrei hvort þetta var sönn saga eða lygasaga frá rótum." Mestmegnis mold Ljósmynd Halldórs birtist í Þjóðviljanum skömmu eftir at- höfnina í Glaumbæ og var skrifuð með henni grein i gamansömum tón undir heitinu: „Endurgreftr- anir: Nýtt líf að færast í kirkju- legt líf á íslandi." 1 greininni segir m.a.: „Nú á dögunum krafðist Sol- veig þess gegn um miðil [þennan] hér í Reykjavík, að hún yrði grafin upp og flutt úr Miklabæjarkirkju- garði yfir í Glaumbæjarkirkju- garð, var orðin þreytt á að liggja í Miklabæ. Annar andi kom gegn um sama miðil hér i Reykjavík, sagðist vera kerling gömul úr Norðurlandi, og lægju bein sín grafin fjórar álnir í jörðu undir hinni svokölluðu „bláu stofu“ á Reynisstað, vill nú láta grafa sig upp og flytja bein sín i fjarlægan kirkjugarð. Af öðrum öndum, sem kvað vera orðnir órólegir, má nefna Englendinga þá, sem Skag- firðingar drápu á sínum tíma með hryllilegum hætti og dysjuðu á Mannskaðahóli. Kvað nú vera orð- inn mikill átroðningur af þeim hjá miðlum hér í bænum. Heimta nú Englendingar þessir að láta grafa sig upp, mann fyrir mann, og flytja víðsvegar um landið, á ýmsa kirkjugarða sem þeir tilnefna." Um athöfnina í Glaumbæjar- kirkju segir í Þjóðviljagreininni: „ ... séra Lárus Arnórsson framdi athöfnina. Ekki var viðstöddum leyft að skoða í kistuna, en sagt var að inntak hennar hafði verið mestmegnis mold, en þó fyllyrtu sumir að fundist hefði annar lær- leggur Miklabæjar-Solveigar og jafnvel einnig ein tönn úr henni, og hefði þessu verið komið fyrir í kistunni. Kistan var skrýdd blómvöndum úr fögrum íslenskum túnblómum og jarðarförin fór hið besta fram með viðeigandi hátíð- leik og alvörusvip." Oddur veginn? Séra Lárus segir að marga hafi fýst að vita hvort nokkuð hafi komið fram um séra Odd á mið- ilsfundunum í Reykjavík. Svo hafði verið. Það kom fram að Sol- veig hefði ekki orðið honum að bana, heldur hafi hann verið veg- inn af jarðneskum mönnum. Af- drif hans hafi orðið þau, að honum hafi verið sökkt í svonefndum Solkupytt, sem er yst í læknum Gegni skammt frá Miklabæ og að þar séu leifar hans enn. Aðrir vildu vita hvort Solveig hafi orðið ánægð eftir flutninginn og séra Lárus svarar því til að svo væri að heyra af skeytum, sem borist hefðu frá henni eftir flutn- inginn. Hún væri ánægð og þakk- lát. Var þörf á að breyta hugsun- arhætti manna til Solveigar?, spyr séra Lárus og hann svarar: „Ég svara þeirri spurningu hiklaust játandi. Þetta „umstang" hefir ljósar en nokkuð annað hefði get- að gert, fært mér heim sanninn um það. Ég hefi orðið þess svo víða var, að hugsað hefir verið til henn- ar með lítilsvirðingu og nærri að segja hreinni andúð ... hefi ég orðið þess var, að það þarf þó nokkur átök til þess að uppræta með öllu þenna heimskulega og óbilgjarna hug.“ Nióurlag Síðasta kafla í tveggja alda langri sögu Solveigar frá Miklabæ lauk þegar krossinn var settur á leiði hennar í Glaumbæjarkirkju- garði um síðustu hvítasunnu. Það framtak var hvorki unnið eftir draumsýnir eða beiðni í gegnum miðilssambönd heldur af kærleika bóndans Sigurjóns Jónassonar á Syðra-Skörðugili í Seyluhreppi í Skagafirði til Solveigar. Sá kær- leikur er einn þátturinn í því að breyta þjóðsögunni um hinn hryllilega og ægilega draug Sol- veigu og eitt dæmi um hvernig hugsunin um hana hefur breyst frá því að hinn tvíþætti harmleik- ur gerðist á Miklabæ í Blönduhlíð- inni á seinni hluta átjándu aldar- innar. Það er margt á huldu um hvað raunverulega átti sér stað á þessum örlagaríku árum á Mikla- bæ og víst er að aldrei fæst neitt úr því skorið héðan af. En hugsun- in um Solveigu hefur án efa breyst frá því menn bjuggu í dimmum moldarkofum og draugatrúin og trú á afturgöngur var ríkur þáttur í baðstofulífi landsmanna. Kross Solveigar er minnisvarði um lífið sem var um leið og hann er tákn þess tíma, sem við nú lifum á. Hann er minnisvarði um hugsun- arhátt, sem gerði unga konu að draug, minnisvarði um alræmda þjóðsögu og minnisvarði um bónda, sem vill breyta henni. — ai „Krossinn á að standa í 1000 ár“ — Sjá næstu síðu —

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.