Morgunblaðið - 08.07.1984, Blaðsíða 12
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ 1984
„Krossinn á að
standa í 1000 ár“
Rætt við Sigurjón Jónasson á Syðra-Skörðugili, sem átti frum-
kvæði að því að kross var settur á leiði Solveigar frá Miklabæ
„l»að er stutt á milli þess, sem maður ályktar og þess, sem
maður veit að er rétt,“ sagði Sigurjón Jónasson bóndi á
Syðra-Skörðugili í Seyluhreppi í Skagafírði þegar blaðamaður
heilsaði uppá hann og samræöurnar beindust að dulrænum
eða yfírnáttúrulegum efnum. Þetta var skömmu eftir að hann
hafði sett krossinn á leiði Solveigar frá Miklabæ í Glaumbæj-
arkirkjugarði. „Þetta er kross, sem á að endast í 1000 ár,“
sagði Sigurjón.
Sigurjón Jónasson er afkom-
andi Odds Gíslasonar. Sigur-
björg Guðmundsdóttir í Nesi,
móðir Jóns Ósmann, var amma
Sigurjóns, móðir föður hans,
Jónasar Gunnarssonar, en móðir
Sigurbjargar var Helga Gísla-
dóttir prests á Hafsteinsstöðum,
Oddssonar prests á Miklabæ,
sem hvarf, Gíslasonar biskups á
Hólum Magnússonar, kominn af
biskupunum Oddi Einarssyni,
Guðbrandi Þorlákssyni og Jóni
Arasyni eins og segir í ættartölu
Sigurjóns.
Sigurjón flutti í Hátún með
foreldrum sínum 1921 en hann
tók Syðra-Skörðugil á leigu 1936.
Hann var leiguliði á jörðinni
fram til ársins 1940 og var leigan
átta gemlingar á ári, en svo
keypti hann jörðina af Svaða-
staðafólki.
Sigurjón fæddist 27. ágúst ár-
ið 1915 í Garði í Hegranesi. Það-
an fíuttist hann til Húsabakka.
Hann var í Búnaðarskólanum á
Hólum í tvo vetur áður en hann
fluttist að Syðra-Skörðugili. „Ég
hef því aðeins búið á fjórum
jörðum," sagði hann eins og með
stolti í röddinni. Hann var einn-
ig til sjós fjóra vetur og „kunni
vel við sig“.
Foreldrar Sigurjóns, sem kall-
aður er Dúddi manna á meðal,
voru Jónas Gunnarsson og
Steinunn Sigurjónsdóttir. „Þeg-
ar pabbi og mamma bjuggu í
Garði bjuggu á móti þeim Páll
Pálsson og Steinunn Hallsdóttir
en hana kallaði ég ömmu. Hún
orti þessa vísu til mín:
Lifðu ávallt laus við tjón.
Lýst þú þinni ömmu.
Sért þú ætíð, Sigurjón,
sólargeisli mömmu."
Þegar Sigurjón var spurður að
því hvers vegna hann hafi ákveð-
ið að setja kross á leiði Solveigar
sagði hann:
„Af sérvisku. Mér finnst gam-
an að því að merkja þetta leiði.
Það er gott fyrir aðra, sem nú
geta gengið inn í garðinn og séð
hvar hún liggur."
„En af hverju heldur þú að það
hafi ekki verið settur kross á
leiðið hennar þegar hún var flutt
í Glaumbæjarkirkjugarð á sín-
um tíma?“
„Menn voru nú ekki að gera
meira en þeir þurftu."
„Er langt síðan þú fórst að
hugsa um að setja krossinn á
leiðið?“
„Já, fyrir mörgum árum. Al-
veg frá því ég var smákrakki
heima í Hátúni heyrði ég mikið
um þetta mál Solveigar rætt og
hvarf séra Odds. Það hefur alltaf
þótt skrítin saga að ekkert
skyldi sjást af honum en það vita
allir að Solveigu var kennt um
þetta hvarf.“
„Hvaða augum leit fólk Sol-
veigu á þessum árum?“
„Ég held að fólk hafi yfirleitt
haft samúð með henni.“
„Af hverju heldur þú að hún
hafi valið Glaumbæjarkirkju-
garð?“
„Það er eitt af því sem ég skil
aldrei. Mín skoðun er sú að
eitthvað sé við Glaumbæ. Það
kann líka að vera að hún hafi
viljað það af því Gísli Oddsson,
sonur Odds Gislasonar, liggur í
þessum garði. Ég held að það sé
lukka fyrir Glaumbæ að hún var
færð þangað. Mér hefur aldrei
liðið betur á ævinni en þegar
krossinn var settur niður. Það
var eitthvað þarna sem verkaði
mjög notalega á mig og tengda-
sonur minn, Sigurður Jónsson
smiður á Akureyri, sem smíðaði
krossinn, fann fyrir því sama.“
Sigurjón er í sálarrannsókna-
félagi héraðsins og hann segist
hafa trúað á dulræn öfl allt frá
barnæsku og hann var að því
spurður hvort hann héldi að trú
á slíkt færi vaxandi meðal fólks.
„Þetta hefur alltaf verið deilu-
efni og mikið var deilt hér áður á
spíritismann en það hefur breyst
hin síðari ár með vaxandi tækni
og hugsun. Mér finnst þetta vera
heldur í framför en maður fær
enga miðla núna eða fólk, sem
hefur slíka hæfileika til að bera.
Það er nú hvellurinn við það hve
erfitt er að fá þetta fólk til að
halda fyrirlestra hérna í Sálar-
rannsóknafélaginu. Áhuginn fer
vaxandi en það er mín skoðun að
það vanti fólk til að vinna að
þessu.“
„Hvernig gengur starfsemi
Sálarrannsóknafélagsins hér?“
„Hún gengur heldur vel að
öðru leyti en þessu. Eldra fólk
hefur mikinn áhuga á störfum
félagsins og það hefur góð áhrif
á það að vera í snertingu við
þetta. Félagið er ekki mjög gam-
alt en það er þó nokkuð margt
fólk í því eða uppundir 200
manns held ég. Og helsta við-
fangsefnið er að fá miðla á
fundi.“.
„Þegar þú talar um dulræn
eða ókunn öfl, hvað áttu þá
nákvæmlega við?“
„Það er vandi að útskýra það
og ég vil helst ekki gefa mikið
upp um þá hluti. Það er eitt af
þessu sem hver og einn verður
sjálfur var við, það kemur af
sjálfu sér og verður aldrei kennt
neinum. Það byggist allt á hugs-
un einstaklingsins."
„Sérðu sjálfur sýnir?"
„Það segi ég engum manni. Ég
vil ekki offra því. Enda er það
einstaklingsbundið hvernig
menn verða fyrir þessari
reynslu. Ég geri lítið af því að
segja frá því. En það er alveg
sama með skáldagáfuna, hún
gengur í ættir og erfðir. Það geta
ekki allir ort.“
„Hefur þú þá fengið dulargáf-
una í arf?“
„Sennilega hefur þetta legið í
föðurættinni langt aftur i aldir.
Um móðurættina skal ég ekkert
segja um en pabbi minn og móð-
ir Hafsteins Björnssonar miðils
voru systkinabörn."
„Hvaða augum lítur þú
miðla?"
„Ég vil ekki láta minn dóm
uppi um það. En það er eins og
sálin komist úr likamanum á
fólki og það geti séð það sem það
langar til. Ég hef hitt þrjá menn
um ævina sem allir hafa sagt þá
sögu að sálin hafi farið úr líkam-
anum. Þeir þekktu ekki hver
annan en hjá öllum er sagan eins
og þetta voru allt heiðursmenn.
Bara venjulegir menn, sem
höfðu orðið fyrir sömu lífs-
reynslunni. Þeir sjá líkama sinn
í rúmi sínu en sálin fer úr hon-
um og þeir fljúga um geiminn og
sjá það sem enginn annar sér.
Einn sagði frá skepnum er hann
átti hinumegin og horfði á í
Sigurjón Jónasson bóndi í Syðra-Skörðugili I Skagafirði við kross Solveig-
ar. „Mér hefur aldrei liðið betur á ævinni en þegar krossinn var settur
niður.“
þessari ferð.“
„Hefur þú orðið fyrir þessari
reynslu?"
„Það segi ég ekkert um. Ég tel
mig engan miðil enda hef ég ekki
lagt mig eftir því. Ég hef nóg að
hugsa um, búskap og söng og
flæking. Ég á nóg af ljúfum
minningum og ég hef aldrei séð
neitt nema sólskin í lífi minu.
Áhyggjur hafa aldrei leitað á
mig. Eg veit ekki hvað það er.
Hitt er annað mál að hann er
lengur að fara úr mér lúinn og
margt er farið að ganga úr sér,
sem er ekki nema eðlilegt.
En það þykir mér einkennilegt
að ekki skuli vera hægt að kom-
ast að því í gegnum miðla hvar
Oddur er. Slíkt er ekki óhugs-
andi. Við getum til dæmis tekið
Ragnheiði Brynjólfsdóttur, sem
kom fram í gegnum miðil og
skrifuð var saga hennar 300 ár-
um eftir að hún deyr.“
„Hefur þú nokkurntíma orðið
Solveigar var?“
„Nei, ég hef aldrei orðið var
við Solveigu."
„En sérð sýnir?"
„Já, en það er nú ekki alltaf.
Það er mjög vandfarið með þetta
samband á milli lifandi og
dauðra. Það er ekki öllu offrandi
þótt það sé heillandi. Það er mín
skoðun að átökin í þessari veröld
séu á milli góðs og ills, ekki bara
meðal okkar þjóðar heldur í öll-
um heiminum. Þetta eru höfuð-
atriðin í öllum mannlegum sam-
skiptum. Hvort við getum lært
eitthvað af dulrænum öflum
hefði ég haldið að færi eftir
þróuninni og hvað náið samband
kemst á milli þessara tveggja
heima.“
Við fórum nú út í aðra sálma
og Sigurjón sagði:
„Eitt það dýrmætasta, sem við
eigum, fólk á mínum aldri, er að
hafa lifað á þessum miklu breyt-
ingaárum í lífi þjóðarinnar. Mér
finnst nefnilega að sjálfsbjarg-
arviðleitni manna sé alltaf að
minnka og það finnst mér
slæmt. Nútímamenn eru ekki
eins duglegir að bjarga sér sjálf-
ir og þegar við vorum að alast
upp.
Ur ungmennafélagshreyfing-
unni frá aldamótum og til 1960
komu einhverjir bestu og dýr-
mætustu leiðtogar þessarar
þjóðar. Nú finnst mér ekki hugs-
að um annað en íþróttir. Hér áð-
ur var rætt í félögunum um þau
mál í sveitum, sem mest lá á að
koma í framkvæmd en nú er að-
eins rætt um hlaup og stökk. Fé-
lögin þjóna ekki sama tilgangi
og hér áður fyrr. Við höfum tap-
að þarna mikið góðum lið, sem
reyndist okkur vel.“
Þegar ég var að kveðja Sigur-
jón sýndi hann mér vísu, sem
Kári Jónsson frá Valadal orti
eitt sinn til hans en hún er
svona:
Haltu um búið heiðursvörð,
heyjaðu á grænum teigi.
Sjálfur á þinni sittu jörð,
sæll að hinsta degi.
— ai
reglulega af
öllum
fjöldanum!
AE 50 KR. 45.000 AR 50 KR. 51.000
Eigum nokkur hjól til afgreiöslu strax á þessu frábæra verði. Einnig hægt aö fá meö
stuttum fyrirvara GPZ 750 turbo og GPZ 900 Ninja.
SVERRIR ÞÓRODDSSON
K-kawasaki Sími 91-82377