Morgunblaðið - 08.07.1984, Page 16

Morgunblaðið - 08.07.1984, Page 16
64 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚLÍ1984 JL. á Samtökum sundrað — S; Um aðgerðir KGB gegn sovézku mannréttindahreyfingunni Dyrnar á fangaklefanum opnuð- ust og liðsforingi í leynilögregl- unni KGB leit inn. „Vertu til- búinn,“ sagði hann,“ og það fljótt.“ Ég var varla kominn í jakkann, þegar dyrnar opnuðust á nýjan leik. „Áfram með þig.“ Hann leiddi mig í flýti eftir fangelsisganginum og fékkk mig verðinum í hendur, sem fór með mig rakleiðis til skrifstofu hans. Hávaxinn, þrekinn maður reis á fætur við skrifborðið og sagði: „Ég er Andropov, yfirmaður KGB.“ Hann rétti fram hönd sína. Ég tók í hönd hans og sagði: „Ég þekkti yður aftur af myndum." Hann bauð mér sæti og virti mig fyrir sér gegnum gleraugun á ró- legan og vinsamlegan hátt. „Mér hefur verið tjáð, að KGB hafi illan bifur á yður.“ „Á ég sök á því,“ anzaði ég. „Við stóðum við loforð okkar í réttar- höldunum, en dómarinn dæmdi okkur samt til sex ára fangavistar hvorn um sig.“ Þetta var í september 1973, níu árum áður en Júrí Andropov hóf sinn skamma valdaferil sem æðsti leiðtogi Sovétríkjanna. Vettvang- urinn var Lefortovo-fangelsið í Moskvu. Sovézka mannréttinda- hreyfingin hafði þá verið við lýði í átta ár. í fyrsta sinn í sögu Sov- étríkjanna hafði fólk unnið bug á ótta sínum, hafði vogað að segja hug sinn og leitast við að skýra opinskátt frá brotum á lögfestum grundvallar mannréttindum sov- ézkra þegna. í þessari mannrétt- indahreyfingu fólst sigur okkar yfir því helst og þeirri ánauð, sem við Sovétmenn höfðu búið við hartnær hálfa öld. Fram til þessa hafði KGB ekki tekizt að kyrkja andófshreyfing- una með margvíslegum harkaleg- um lögregluaðgerðum gegn okkur, og leynilögreglan virtist því hafa aðra áætlun á prjónunum — það er að segja að fá kastað opinber- lega rýrð á sovézku mannréttinda- hreyfinguna. Vikið frá aðgerðum stalíntímabilsins í þessu skyni urðu yfirmenn ör- yggisdeildar KGB að verða sér úti um velþekkta einstaklinga meðal andófsmanna, neyða þá til að venda sínu kvæði algjörlega f kross og svfkjast þannig aftan að mannréttindahreyfingunni. KGB-forystan áleit, að þetta myndi vekja almenna reiði og fyrirlitningu í garð samtakanna og gera það að verkum, að menn tækju almennt að fordæma mannréttindahreyfinguna sov- ézku, og að samtökin myndu upp frá þvf smátt og smátt verða með öllu óvirk og taka að leysast upp af sjálfu sér. KGB valdi tvo forvígismenn mannréttindabaráttunnar til að fara með lykilhlutverkin í þeirri pólitfsku leiksýningu, sem þeir hugðust setja á svið: Annar þeirra var sagnfræðingurinn Pjotr Jakir, hinn maðurinn var svo ég, en ég er hagfræðingur að mennt. Báðir höfðum við þá þegar verið reknir frá þeim stofnunum innan Sov- ézku Vfsindaakademfunnar, þar sem við höfðum starfað. Pjotr Jakir var 49 ára að aldri, þegar við vorum handteknir; ég var fjörutíu og þriggja. Báðir höfðum við áður verið hnepptir í þrælkunarbúðir Stalíns þegar á unga aldri og fundum báðir til rótgróins ótta við sovézka leynilögreglubáknið og starfsaðferðir þess. Með því að velja okkur til að koma fram á sýndarréttarhöldum, hafði KGB vissulega tekið þennan ótta okkar með í reikninginn. Réttarhöldin yfir okkur fóru fram f ágústmánuði árið 1973 og voru haldin í Moskvu. Við vorum opinberlega ákærðir samkvæmt ákvæðum 70 f refsilöggjöf Lýð- veldisins Rússlands innan Sam- bands sósíalísku ráðstjórnarlýð- veldanna — en þetta ákvæði fjall- ar um „andsovézka undirróðurs- starfsemi og áróður, sem rekinn er með það fyrir augum að grafa undan sovézku þjóðfélagsskipulagi eða veikja það.“ Við játuðum sekt okkar og vor- um dæmdir til þriggja ára vistar í þrælkunarbúðum og þríggja ára dvalar á einhverjum ákveðnum stað í Sovétríkjunum utan höfuð- borgarsvæðisins að lokinni fanga- búðavistinni. Málið hlaut mikla umfjöllun f fjölmiðlum, bæði í Sovétríkjunum og á Vesturlöndum. í frásögnum sumra dagblaða f Vestur-Evrópu og í Bandarfkjunum var hinum opinberu málaferlum gegn okkur líkt við sýndar-réttarhöld þau, sem fram fóru í Moskvu á árunum milli 1930 og 1939 að undirlagi og undir yfirstjórn Jósefs Stalfns. En réttarhöldin yfir okkur voru hins vegar frábrugðin hinum alræmdu sýndarréttarhöldum Stalfns f tveimur mjög þýðingarmiklum grundvallaratriðum. Annað atriðið var það, að f sýndar-réttarhöldum Stalfns voru allir sakborningar skotnir þegar í stað eftir réttarhöldin, þrátt fyrir játningar" sínar. Lffi okkar var hins vegar þyrmt — og það sem meira var: Dómarnir yfir okkur voru mildaðir mjög verulega, eftii að við höfðum áfrýjað og kom st stytting refsivistarinnar til fram- kvæmda hálfu öðru ári eftir að réttarhöldunum yfir okkur lauk. Ég fékk þá leyfi stjórnvalda til að fara úr iandi og settist að á Vest- urlöndum. Hitt atriðið, sem var algjörlega frábrugðið því, sem tíðkaðist á dögum Stalíns, fólst í þvf, að sov- ézka leynilögreglan notaði áður fyrr hinar hrottalegustu aðferðir til að pína „játningarnar" út úr föngunum, en þær aðferðir fólu meðal annars í sér svæsnar lík- amlegar pyndingar, ógnvænlegar hótanir og andlegar misþyrm- ingar. Sovézka leynilögreglan, sem eftir dauða Stalíns árið 1953, hlaut nýja nafngift og kölluð KGB eftir það, vinnur á mun lævísari og ísmeygilegri hátt, þar sem lögð er höfuðáherzlan á að beita fórn- aNömbin sálfræðilegum aðferð- um. Langtíma áhrif KGB á sálarlífiö í langan tíma eftir að ég fluttist til Bandaríkjanna árið 1975 var ég að reyna að festa á pappír frásögn mína af þvi, hvernig þetta hefði allt borið að höndum — hvernig þessum nýju leynilögreglu-sér- fræðingum KGB af Andropov- gerðinni tókst að brjóta sálarþrek mitt, þrátt fyrir fastan ásetning minn fyrst eftir handtökuna og á fyrstu vikum gæzluvistarinnar hjá KGB að láta hvergi bugast. En mér var eins og fyrirmunað að ná. nokkrum tökum á ritaðri frásögn af reynslu minni hjá KGB. Mór gekk hreinlega ekkert með ritstörfin; ég var enn þá al- tekinn því hugar- og sálarástandi, sem KGB-sérfræðingarnir höfðu innprentað mér í yfirheyrzlustof- um Lefortovo-fangelsisins. Þegar ég gat farið að rifja það upp fyrir mér, á hvern hátt ég hafði að lok- um látið undan síga fyrir KGB- mönnum, allt að þvf marki, að ég var farinn að bera vitni gegn fé- lögum mínum í andófshreyfing- unni, var ég í fyrstu meira en fús að skella skuldinni á aðra og leit- ast við að réttlæta sjálfan mig. Það liðu mörg ár, áður en ég tók að gera mér fulla grein fyrir því, hve víðfem sök mín gagnvart fé- lögum mínum var. Og þá fyrst varð ég fær um að segja sögu mína Fundur minn með Andropov átti sér stað aðeins hálfri klukku- stund eftir að farið hafði verið með mig aftur í fangelsið eftir dómsuppkvaðninguna yfir mér. Andropov hafði þá verið yfirmað- ur KGB í sex ár. Við, sem vorum í sovézku mannréttindasamtökun- um, litum alla tíð á hann sem gáf- aðan og afar ófyrirleitinn mann. Andropov sagði mér að hafa ekki minnstu áhyggjur af lengd fangavistarinnar, sem dómurinn hefði hljóðað upp á. „Þér munuð áfrýja," sagði hann. „Fangavistin mun þá verða stytt niður í það, sem þér þá hafið þegar afplánað, og þá verður einungis eftir útlegð- arvistin frá Moskvu. Þér getið kos- ið einhverja borg ekki langt und- an. Eftir átta mánuði eða um það bil, skúlið þér svo fara fram á náð- un og getið þá snúið aftur til Moskvú." Sú atburðarás, sem náði há- marki með sýndar-réttarhöldun- um árið 1973 hafði hafizt 24 árum 4» áður í heimspekideild Ríkishá- skólans f Moskvu. Árið 1949 var ég handtekinn ásamt sex öðrum sam- stúdentum mfnum fyrir „að gagn- rýna marxisma-leninisma frá hugmyndalegum sjónarhóli“. Glæpur okkar var f því fólginn, að við höfðum hafnað gildi hinnar opinberu hugmyndafræði en fært rök að yfirburðum annarra heim- spekilegra kenninga, sérstaklega f heimspeki Hegels, Schopenhauers og Kants. Eftir sjö mánaða yfirheyrzlur í Lúbjanka, aðalfangelsi leynilög- reglunnar við Dsérzhiniskij-torgið f Moskvu, vorum við dæmdir til átta ára fangavistar í þrælkun- arbúðum. Ég lenti f Taishet- þrælkunarbúðunum f Mið-Síbirfu. Skömmu sfðar, þegar við vorum í litlum vinnuhópi fanga lengst inni f skógi, tók ég höndum saman við fjóra samfanga mína úr búðunum; við afvopnuðum verðina og flýðum á vörubfl, sem við tókum trausta- taki í því skyni. Við vorum allir gripnir þremur dögum sfðar, hlut- um hrottalega barsmið og tfu ára framlengingu á fangavistinni. Vorið 1950 var ég fluttur til fangabúðanna í Kolyma. Árið 1953 dó Stalín. Mál okkar var þá tekið fyrir á nýjan leik, og okkur var sleppt úr haldi og hlutum fulla uppreisn æru í október 1954. Skömmu eftir að ég var aftur kominn til Moskvu, kvongaðist ég og tók aftur til við námið í Moskvuháskóla. Árið 1963 útskrif- aðist ég frá hagfræðideild háskól- ans og hóf framhaldsnám í þjóð- hagfræði. Andóf og útlegðardómar Ég hafði skrifað vísindalega doktorsritgerð um hagfræði Bandarfkjanna og annarra vest- rænna ríkja, en mér var hins veg- ar ekki veitt leyfi til að verja hana við doktorspróf í Moskvuháskóla. Ástæðan var sú, að ég hafði neitað að sýna Marx og Lenin hefð- bundna og fyrirskrifaða lotningu í ritgerð minni, og var mér því af háskólans hálfu neitað um þessa lærdómsgráðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.