Morgunblaðið - 19.08.1984, Side 20
76
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984
Á Breste-setri
Myndlíst
Bragi Ásgeirsson
Það var mikið um að vera í hinum vistlegu
húsakynnum Braste-fyrirtækisins í Kristjáns-
höfn, miðvikudaginn 6. júní sl., er Helgi Tóm-
asson ballettdansari og kóreograf tók á móti
bjartsýnisverðlaunum ársins 1984.
Þetta var í fjórða skipti sem þau eru veitt
íslenzkum listamanni, er hefur sýnt stór-
hug á listaferli sínum með bjartsýnina að
vegarnesti — lagt á brattann og sigrað.
I þetta skipti var samankominn meiri
mannfjöldi en nokkru sinni áður þrátt fyrir
leiðindaveður og það, að athöfnin fór fram
um miðjan dag. Helgi Tómasson er vel
kynntur í Danmörku og einnig má það
koma fram, að á sl. ári hóf útkomu sína
„blað íslendinga í Kaupmannahöfn", er
nefnist Þórhildur og er öllum áskrifendum
nú boðið til veizlunnar (1.200). Þetta sýnir
vel áhuga Broste-fyrirtækisins á málefnum
íslendinga í Kaupmannahöfn, sem hér fá
myndarlega kaupbót. — Þá var ítarlegri
umfjöllun um Helga Tómasson sjálfan svo
og frá verðlaunaathöfninni i dönskum blöð-
um en áður hefur skeð — en minni í íslenzk-
um fjölmiðlum, að ég best veit...
Sá, er hér ritar, var staddur i borginni
við útfærslu nokkurra steinþrykkmynda á
verkstæði í Valby, og var honum sem fyrr-
um verðlaunaþega að sjálfsögðu boðið í hóf-
ið. Getur hann því staðfest, að ágæt
stemmning var í veizlugestum og fór at-
höfnin hið besta fram, var hin virðulegasta
og veitingar glæsilegar. Hinn geðugi og
fjallmyndarlegi Peter Broste setti hófið
með stuttri ræðu og gaf því næst orðið að-
alræðumanni dagsins, Niels Jorgen Kaiser,
forstjóra Tívolí. Hélt hann snjalla tölu við
góðar undirtektir og afhenti því næst
Helga Tómassyni verðlaunin. Þar næst sté
Helgi sjálfur í pontu og þakkaði fyrir sig af
því látleysi og prúðmennsku, sem er aðal
hans líkt og svo margra mikilla lista-
manna. Hann talaði blaðalaust og var auð-
Inngangurinn í Braste-setrið.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984
77
séð, að fólki líkaði mál hans stórvel. Að
lokum var stutt uppfærsla úr látbragðs-
leiksballettinum „Pjerrot viti sínu fjær af
ást“, og dansaði Fredbjörn Björnsson frá
Konunglega ballettinum (Pjerrot) ásamt
þeim Dennie Frank (Colombine) og Tommy
Edvardsen (Harlekin) frá látbragðsleikhúsi
Tívolí-garðsins. Undu menn svo hag sínum
svo sem hverjum og einum þóknaðist næstu
þrjár klukkustundirnar.
Þess skal getið, að það var einmitt Fred-
björn Björnsson ásamt Ingu Sand frá Kon-
unglega ballettinum, er kveiktu neistann
hjá Helga Tómassyni, er þau dönsuðu í
Vestmannaeyjum árið 1952.
Hér er einungis stiklað á stóru og fylgt
úr hlaði með nokkrum myndum, er teknar
voru við verðlaunaafhendinguna og stað-
festa hina ágætu stemmningu er þar rikti.
Er þetta upphaf greinaflokks, er getur daga
minna í Kaupmannahöfn og ferðalags um
Evrópu, og mun ég í næstu grein fjalla ítar-
legar um Broste-verðlaunin og Kristjáns-
höfn.
Á mynd nr. 1 sjáum við Peter Broste
setja hófið. Menn taki eftir styttunni af
Kristjáni fjórða í bakgrunni (eftir William
Friedrica), en sá lét gera Kristjánshöfn og
var í öllu æði eins konar Pétur mikli þeirra
Dana. Þar næst sjáum við Niels-Jorgen
Kaiser, forstjóra Tívolí, afhenda Helga Tóm-
assyni verðlaunin og svo Helga þakka fyrir
sig. Þá koma tvær yfirlitsmyndir, er gefa
dálitla hugmynd um mannfjöldann. Á
sjöttu myndinni er greinarhöfundur í góð-
um félagsskap þeirra Helga Tómassonar og
Ingver Petersen, fulltrúa Broste, er annast
framkvæmdir varðandi verðlaunin. Á sjö-
undu myndinni brosir vísast Anna Guðný
Brandsdóttir (Jónssonar, fyrrverandi
skólastjóra Heyrnleysingjaskólans), gleitt
við ljósmyndaranum, vafalítið komin alla
leið frá Malmö, þar sem hún er kóreograf
við ríkisballettinn. Svo sjást tvö atriði úr
ballettinum um hina viti firrtu ást trúðsins
Pjerrot. Loks kemur mynd af Helga og ball-
ettdönsurunum. Á hópmyndinni sjáum við
Peter Breste og freyju hans, Fredbjörn
Björnsson, Helga Tómasson, Dennie Frank,
Niels-Jorgen Kaiser, Malene Rizzo, eigin-
konu Helga og Tommy Edvardsen.
Fredbjörn Björnsson í gervi hins ást-
firrta trúðs Pjerrots.
Forsíða „Berlingske Magasin" 6.
júní meö greininni sem tók alla for-
síðuna. Myndin, sem var fimm
dálka af sex, var af Patriciu Mc-
Bride og Helga Tómassyni í ballett
Jcrome Robbins „Dances at a Gath-
ering“.
BERLINGSKE
Magasin
tv-radio
ONSIMG
tjMi i«É4. .
MpÐ
Islands noble danser