Morgunblaðið - 19.08.1984, Page 24

Morgunblaðið - 19.08.1984, Page 24
80 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984 ! Umsjón: Iragi Óskarsson Bardaginn við Dysiadrauginn Fri því er sagt í Grettlu er Grettir sterki glímdi við drauginn Glám og fór með sigur af hólmi. Varð Grettir frægur af þessari viðureign, en Glámur náði þó að gera honum mik- in skaða því Grettir varð aldrei sam- ur eftir viðureign þeirra sökum myrkfælni. Saga sú sem hér fer á eftir er um húnvetnskan bónda sem lagði galvaskur til atlögu við aftur- göngu, og varð aö vísu frægur fyrir en ekki myrkfælnari en áður. Sög- una er að fínna í safni Ingólfs Jóns- sonar frá Prestbakka, Þjóðlegar sagnir og ævintýr. Þeir, sem aka þjóðveginn um Húnavatnssýslu nú á árum, fara sæmilega breiðan og beygjulítinn veg. Fáir þeirra leiða hugann að þeim breytingum á þjóðháttum, sem tilkoma slíkra lífæða hefur valdið. Flestar breytingar hafa orðið til góðs, einangrun aldagöm- ul hefur rofnað og hver bær orðið meiri hluti af heildinni en hann var. En tennur véltækninnar hafa ekki hlíft því gamla, hafi það verið í vegi. Það varð að víkja fyrir nýj- um tíma. Á þriðja áratug þessarar aldar var gömul sakamannadys við veg- inn, sem lá af þjóðveginum út að Hvammstanga. Dysin var stór grjóthrúga, enda höfðu menn frá fornu fari gert sér að skyldu að kasta þrem steinum i dysina, ættu þeir leið um. Gilti sú regla jafnt um gangandi og ríð- andi menn. Var sú trú, að óhapp henti þá, sem brytu þessa gömlu venju, og jafnvel að dysbúi yrði þá fljótur til að hefna sliks virð- ingarleysis. Þegar bilaöldin hófst fyrir al- vöru, varð það nauðsyn að gera akfæra vegi og helzt sem beinasta. Þar sem dysin var, var beygja á vegi, svo að ekki væri skert at- hafnasvæði þessa forna graf- arbúa. En nú fannst yfirvöldum vegagerða sjálfsagt að rjúfa dys- ina og gera veginn beinan þvert yfir hana. Ekki leizt kunnugum sem bezt á þessar ráðagerðir og sögðu gamlir menn, að grálegar yrðu glettur þess gamla fjanda, sem þar lægi, væri slíkt óráð upp tekið. Verkfræðingar vegagerða hristu höfuðið yfir fávizku og hjátrú og létu ryðja burt kastgrjóti dysbúa og gröf hans hvarf undir veginn. Þetta var framkvæmt að sumar- lagi, en er hausta tók, fóru að ber- ast fregnir um, að dysjadraugur, svo nefndur, væri nú laus og frem- ur i illum ham. Unglingar, sem voru í hrossaleit eða kinda, urðu hans oft varir, og áttu að eigin sögn oft fótum fjör að launa. Eins fór fyrir fullorðnu fólki. Eins og oft vill við brenna, mögnuðust sögur þessar og ollu miklu umtali og óróa í nágrenn- inu. Ekki urðu menn neitt hissa á því, þegar það barst út, að bílar hefðu farið út af veginum, þar sem dysin hafði verið. „Sjáið til,“ sögðu þeir gömlu, „þessu vorum við bún- ir að vara við. — Nú er fjandinn laus!“ Og hann var svo sannarlega laus, því að frásagnir af ferðum dysbúa urðu æ litríkari og ægi- legri, sem meir leið á vetur. Bóndi austan úr sveitum átti leið til Hvammstanga að vitja meðala hjá lækni þar, þegar á var liðið janúar. Snjóalög voru mikil og illfært hestum og bílar ekki til á sveitabæjum í þá tið. Gekk bóndi þvi og hafði broddstaf stóran. Þegar hann hafði lokið erindum sínum á Hvammstanga og var að búast til heimferðar, vöruðu kunn- ingjar hans hann mjög við dysja- draugnum. Bóndi kvaðst hvergi hræddur, enda sæmdi illa að hans áliti sýslungum Grettis sterka Ás- mundarsonar að blikna fyrir fúl- um dysbúum. Áuk þess stæði hann vel að vigi og sýndi málvinum sín- um staf sinn, sem var sýnilega hið bezta vopn. Hélt hann svo af stað út í vaxandi kvöldmyrkrið. Ráðherra fyrir misskilning Sveinn Björnsson, fyrsti forseti íslands, segir frá þvf í ævisögu sinni, aó eftir utanför þeirra Ein- ars Arnórssonar, Guðmundar Hannessonar og hans á konungs- fund árið 1915, þegar stjórnar- kreppa var hér út af stjórnarskrár- málinu, hafí konungur beðið þá að tilnefna einhvern úr hópi þre- menninganna sem ráðherraefni. „í fyrstu færðumst við undan því, en kom að lokum saman um að gera þetta, ef konungur teldi sér ekki fært að fínna ráðherraefni“, segir Sveinn. „Vegna ófriðarins urðu símskeytin að vera á ensku máli.“ Lauk þessu svo, að konunugur sneri sér til Einars Arnórssonar, sem tók að sér að vera ráðherra eftir að hafa tryggt sér meiri- hluta Alþingis. Það einkennilega var, að þetta byggðist á misskilningi á síðasta símskeyti okkar um þetta efni. I skeytinu stóð, að ef konungur gæti ekki sjálfur fundið ráð- herraefni, „we will propose Arn- orsson Björnsson Hannesson". Höfðu öll skeytin, sem frá okkur fóru, haft þessa undirskrift, eftir stafrófsröð. En i Höfn var þetta skilið þannig, að skeytið væri frá „Björnsson og Hannesson", sem styngju upp á „Arnorsson". Þetta sagði Zahle forsætisráð- herra mér, er ég kynntist honum meir en fimm árum siðar, eftir að ég kom til Hafnar sem sendi- herra. Sagði hann mér, að kon- ungur hefði viljað gera mig að ráðherra, en skeytið breytt þeirri ákvörðun. Misskilningur þessi var samt heppilegur. I fyrsta lagi vorum við Guðmund- ur Hannesson búnir að koma okkur saman um að tilnefna Einar, ef óhjákvæmilegt væri. I öðru lagi hefði ég alls ekki tekið þetta að mér, ef til hefði komið, m.a. af sömu ástæðum sem ég hefði neitað tilnefningu sem ráð- herra árið áður, ef svo hefði skipazt þá. I þriðja lagi var Ein- ar að minni skoðun hæfastur okkar þriggja til þess að taka þetta að sér, eins og á stóð.“ Öruggur var bóndi með sjálfan sig lengi vel, en eftir þvi, sem myrkrið óx og styttra varð til staðarins þar sem dysin hafði ver- ið, fór að dökkna í álinn hjá hon- um. Hann fór að brjóta heilann um hvort broddstafurinn væri nú nægilega gott stríðsvopn á þann fúla fjanda, sem draugurinn væri. Var hann ekki fyllilega viss um það. Þegar bóndi var rétt kominn að dysstaðnum var nærri almyrkt orðið... Allt í einu sá bóndi dökka veru gaufast úti í myrkrinu. „Þarna var þá draugsi kominn," hugsaði bóndi, og í sömu andrá rak hann upp öskur, sem Grettir hefði verið ánægður með og rauk á óvættina. Greiddi hann draugsa þung högg, en hann flúði undan og skildi þar með þeim. Bóndi hélt heim og var ekki laust við aö hann hefði vaxið í eig- in augum og heimilisfólks sins, þar sem hann hafði borið sigurorð af hinum versta draug. Liðu nú nokkrar vikur, en þá lá leið bónda aftur til Hvamms- tanga. Var hann ekki fyrr kominn þangað, en hann var enn betur varaður við en fyrr, þar sem nú væri draugurinn enn magnaðri, sem bezt sæist á þvi, að sama kvöldið og bóndinn hefði farið heim hefði draugurinn ráðizt á mann, sem var að gá að kindum niður í mýri. Draugurinn hefði barið manninn með ryðguðu spjóti, 8vo að hann hefði komizt burt við illan leik. Hefði maðurinn orðið að vitja læknis til að fá gert við skrámur eftir árásina. Bóndi sagði fátt við þessum fregnum, en fór sina leið og sagði ekki oftar utanbæjar frá viðureign sinni, sem hann hafði þó verið svo glaður yfir. Eftir þetta var hljótt um málið, en einhvernveginn fékk það þó fætur, að austanbóndinn hefði barið fjármanninn, en draugurinn hvergi þar komið nærri ... Algleymi Leitis- Bjarnar Oft getur stundargleymska komið sér illa og ollið óþægindum. Það eru þó hreinir smáraunir við hliðina á gleymsku Leitis-Bjarnar, sem gleymdi sjálfum sér gersamlega og það oftar en einu sinni. Söguna skráði Ingólfur Jónsson frá Prest- bakka og birtist hún í safni hans, Þjóðlegar sagnir og ævintýri. „Gakktu ekki í leiðslu, drengur," sagði gömul kona við þann, er hér ritar, þá barn að aldri. „Þú getur þá orðið eins fjarhuga og Leitis- Björn, sem gleymdi, hver hann var svo fullkomlega, að hann gekk og gekk, unz hann var kominn í ann- an landsfjórðung, þar sem hann settist að og kvæntist og átti börn. Þrjátiu árum seinna rankaði hann við sér og mundi hver hann var og hélt heim, en gleymdi þá á leiðinni þeim árum, sem hann hafði lifað í fjarlægð. Þegar heim kom, vildi enginn við hann kannast. Kona hans, sú fyrri, var dáin og börnin burt flutt, en í kirkjugarðinum var leiði merkt nafni hans. Bein, sem talin voru af honum, höfðu fundizt upp á heiði eigi allfjarri heimili hans. Svona fór nú þar,“ sagði gamla konan og felldi niður prjón- ana andartak. „En hvað varð um þennan Leit- is-Björn?“ spurði sá, er hér ritar. „0, hann var nú ekki til stór- ræðanna talinn, orðinn vel sextug- ur, en þó gleymdi hann sér enn einu sinni og fór út í eyjar, kvænt- ist þar í þriðja sinn og drukknaði síðast af báti í heyflutningi." „Þetta hefur verið í eðli hans að gleyma,” sagði sá, er hér ritar. „1 eðli! Það má alltaf afsaka sig í ómennsku með eðli og innræti, en eins og þú hefur gleymt að sækja taðflögurnar, sem ég bað þig að sækja fyrir hálfum klukku- tíma, er það víst satt, að raun er að ráðleysingjum." Sá, er hér ritar, sótti strax taðflögurnar. Þar hitti skrattinn • • ommu sina Ýmislegt ber jafnan vió er sigið er I björg og hefur margt verið um það ritað. Sagan hér á eftir, sem tekin er úr bókinni Látrabjarg eft- ir Magnús Gestsson, fjallar þó ekki um bjargmenn eða fyglinga, heldur hinn slóttuga fugl hrafninn. Eitt sinn sem oftar fóru nokkrir menn úr Örlygshöfn út á Bæjarbjarg til eggja. Þegar mennirnir koma á Bjargbrúnina, er þar hrafn á flögri í grennd við þá. Hann er hinn kumpánlegasti og hoppar þarna um. Hefur hann víst farið nærri um, hverra er- inda þeir voru að fara. En krummi er áhugaskepna mikil um egg, því þau eru hans uppá- haldsmatur. Mátti sjá á krumma að hann var vel haldinn og glansaði á hann í sólskininu. Þegar sigmaður er kominn fáa metra niður fyrir brúnina, sjá þeir sem við vaðinn eru, að fálki flögrar undan sigmanninum, og þykjast menn þá vita að þarna eigi hann hreiður. Fálkar eru mannfælnir mjög, og fer fuglinn i nokkra fjarlægð, og flögrar þar um en fer ekki aftur á hreiðrið, enda var það mjög skammt frá mönnunum neðan brúnarinnar, og lá vaðurinn þar framyfir. Krummi bregður fljótlega við og rennir sér þangað, sem fálk- inn hafði flogið upp, en ekki sást í sjálft hreiðrið. Krummi stend- ur aðeins við, en kemur svo með egg í gogginum og fer með það í grastó í brúninni, örskammt frá mönnunum og grefur það þar til málamynda, svo sem þessara fugla er siður. Hann fer þegar aðra ferð og þá þriðju. Meðan á þessu stendur færir fálkinn sig nær og lætur ófrið- lega, en hættir sér ekki það nærri mönnunum, að hann nái til krumma. Þegar hrafninn hef- ur lokið flutningunum, hlakkar ánægjulega i honum og hann flögrar nokkuð fjær mönnunum, framan við brúnina. Hann er ekki kominn langt undan, þegar fálkinn rennir sér að honum sem örskot fari og slær hann með vængnum, og sjá mennirnir ekki betur en hausinn fjúki bókstaf- lega af krumma, og féll sá svarti þar í fjöru niður í tveimur hlut- um. Sigmaður er svo dreginn upp á brún og hafði eggjað vel. Brún- armenn spurðu hann hvort hann hefði ekki tekið eftir fálka- hreiðrinu. „Jú,“ segir hann, „en núna, þegar ég kom upp, var ekki annað í hreiðrinu en eitt brotið eggjaskurn." Sögur af strandstað Sagnaþættir þeir sem hér birt- ast eru teknir úr þætti Guðsteins Einarssonar „Frá Valahnúk til Seljabótar", en þáttinn er að finna í bókinni „Frá Suðurnesjum". Hvernig Bakka-Oddur strandaði tvisvar! í Járngerðarstaðahverfinu í Grindavík voru tvær gamlar varir innan við svonefnt Akurhúsnef, Suðurvör og Norðurvör. „Þar á milli varanna rak upp þýzka skonnortu, „Minnu“. Var hún að sækja járnið úr „Oddi“, er kallað- ur var Bakka-öddur, frá Eyrar- bakka, sem einnig hafði slitnað upp af legunni og lent nokkru inn- ar og verið rifinn. Rétt þegar járn- inu úr Oddi hafði öllu verið skipað um borð í „Minnu“, gerði suð- austanveður með nokkru brimi, svo hún slitnaði upp og rak í land, svo Oddur strandaði þannig aftur. Ekki var gefizt upp við svo búið, því „Minna“ var og rifin og síðan járnið úr báðum skipunum flutt í burt.“ Spíritusinn í kompásnum Árið 1917 strandaði kútter Resolut fyrir neðan svonefnt Sandvik sem er vestan við Grinda- vík. Allir skipverjar björguðust. „Eitthvað tveim dögum eftir að Resolut strandaði voru nokkrir menn að bera ýmislegt dót upp úr fjörunni, tilheyrandi strandinu. Þar á meðal voru þrír kompásar. Svo slysalega tókst til, að glerið á einum þeirra brotnaði. Sá var nokkuð stór, sennilega tekið 4—5 potta af spíritus. Þetta var á þeim góðu gömlu tímum, þegar ekki var banvæn ólyfjan á kompásnum. í hópnum voru aðeins tveir menn, sem heitið gátu fullorðnir; hinir allir innan við tvítugt. Þeim full- orðnu fannst vitanlega, að þeir yrðu að taka að sér varðveizlu spíritusins, enda gerðu þeir það; og annar fór þegar í gjá, sem þarna var skammt frá, að sækja vatn til að blanda. Þetta endaði svo þannig, að strákarnir urðu undir kvöldið að sækja hesta til að koma þeim fullorðnu til byggða. Og ekki gat nema annar setið á klárnum; hinn var reiddur þvers-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.