Morgunblaðið - 19.08.1984, Síða 32
88
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984
Sigrún Pétursdóttir
Ólafur Albertsson
Morgunbladið/Árni Sæberg.
Ungt og upprennandi íþróttafólk
Það eru ekki ýkja mörg ár síðan
fæstum hefði dottið í hug að þeir
sem eiga við einhverja fótlun að
stríða gstu með nokkru móti verið
liðtækir í margkyns íþróttum. Á
þessu sviði hefur orðið mikil breyt-
ing. Það telst tæpast lengur til tíð-
inda að fatlaðir stundi allskonar lík-
amsrækt sér til heilsubótar og að
auki keppnisíþróttir. Er ástæða til að
þakka þeim, sem hafa sýnt skilning
á þessum málum og haft áhuga og
dug tii þess að skapa fdtluðum að-
stæður til þessara hluta. Þessi mál
hefur nokkuð borið á góma að und-
anfdrnu vegna frækinnar þátttöku
okkar fólks í Ólympíuleikum fatl-
aðra fyrir skömmu. Þá hafa hjólreið-
ar fatlaðs fólks frá Noregi vakið
verðskuldaða athygli að undan-
förnu. Svona stórleikir eru kannski
ekki aðalatriðið þegar fjallað er um
þjálfun og íþróttir fatlaðra, þar sem
það verða aldrei margir sem eiga
tök á því að taka þátt í þeim. En það
er dugnaður og þrautseigja þessa
fólks sem er umfjöllunar verð jafn-
vel þó ekki sé farið á Ólympíuleika
eða unnið til einhvers konar viður-
kenninga. Blm. hitti að máli tvö
ungmenni sem sýnt hafa mikinn
dugnað í hinum ýmsu íþróttagrein-
um.
Sigrún Pétursdóttir:
Fékk þrjú verðlaun
á Ólympíuleikunum
í New York
Sigrún er fimmtán ára göm-
ul, býr á Seltjarnarnesi og
stundar nám í Valhúsaskóla.
Sigrún var á nokkurra vikna
námskeiði á Reykjalundi þar
sem blm. hitti hana fyrir
skömmu. Aðspurð sagði Sigrún
þetta námsskeið vera kallað
heilsusportnámskeið og þar
fengju þau að synda, fara á
hestbak, sigla á bát og margt
fleira. Sigrún geislar af fjöri
og nýtur sín vel á þessu nám-
skeiði þar sem svo margt er að
gerast. Eins og flestir vita ef-
laust var árangur íslendinga á
Ólympíuleikunum í New York
afar eftirtektarverður en af
þeim 9 verðlaunum sem þar
áunnust átti Sigrún heiðurinn
af þremur.
„Ég fékk þessi þrenn verð-
laun fyrir sund, silfrið fyrir 25
metra baksund en bronsið
fyrir frjálst sund sem var
skriðsund. I 50 metra skrið-
sundinu setti ég einnig ís-
landsmet. Þegar úrslit voru
ljós, vorum við kölluð upp á
verðlaunapall þar sem við sem
unnum stóðum og fánar land-
anna voru dregnir að húni um
leið og við veittum verðlaunun-
um viðtöku. Þetta var ofsalega
gaman, bæði að fá að vera með
í slíku stórmóti. Þökk sé Er-
lingi Þ. Jóhannssyni, og að sjá
hina sem voru fatlaðir, hvern-
ig þeir syntu og tóku þátt í
hinum ýmsu greinum. Það var
t.d. einn drengur þarna sem
synti og var þó bæði handa og
fótalaus. Við fórum 10 kepp-
endur og 8 hjálparmenn á
Ólympíuleikana og gátum
skoðað okkur um heilmikið.
Við sigldum t.d. í kringum
Manhattan, skoðuðum bygg-
ingu Sameinuðu þjóðanna og
versluðum."
Nú hefur þú unnið til verð-
launa áður á erlendum vett-
vangi, ekki satt?
„Jú ég hef tekið þátt í mót-
um í Danmörku, Noregi og Sví-
þjóð. í Noregi og Svíþjóð var
ég númer fjögur en í Dan-
mörku fékk ég fern silfurverð-
laun.“
Hvað er framundan hjá þér?
„Ég fer í 9. bekk Valhúsa-
skóla en hvað við tekur að því
loknu veit ég ekki. Mér finnst
gaman að læra og krakkarnir
eru góðir og skilningsríkir við
mig. Það var keyptur sérstak-
ur stóll handa mér til að kom-
ast á milli hæða í skólanum.
Þetta er rafmagnsstóll sem fer
á einni og hálfri mínútu aðra
leiðina eftir brautinni og ég
ein hef lykil að. Fögin sem ég
hef einna mest gaman að sem
stendur eru handavinna og
bókmenntir.
Ólafur Eiríksson:
10 ára með 10
„medalíur“
Það eru ekki margir tíu ára
drengir sem geta státað af
jafnmörgum verðlaunagripum
og árin sem þeir hafa lifað, og
af þessum tíu verðlaunum sem
þessi ungi piltur getur státað
af eru tvenn gullverðlaun.
Ólafur Eiríksson er 10 ára,
búsettur í Kópavogi og gengur
í Kópavogsskóla.
Hvaða íþróttir eru það sem
þú hefur mestar mætur á?
„íþróttir yfirleitt eru áhuga-
mál mitt en uppáhaldsíþrótt-
irnar mínar eru helst sund,
körfubolti og taflmennska. í
sundi hef ég þó náð hvað best-
um árangri og þykir þar af
leiðandi mest gaman í því.
Nú verður maður bara að
æfa sig mikið og takmarkið er
að komast á Norðurlandamót
og seinna á Ólympíuleikana.
Núna vona ég bara að við vinn-
um á íslandsmótinu í körfu-
bolta og unglingamótinu í
sundi."
Hvernig finnst þér í skólan-
um?
Mér finnst bara gaman og
engin fög eiginlega leiðinleg.
Skemmtilegast er þó í leikfimi
og sundi en það er eitt fag sem
ég þoli alls ekki og það er söng-
ur. Svo er skák í skólanum og
þjálfarinn hefur æft mig og
eins pabbi og ég hef tekið þátt
í skákmótum með skólanum og
haustmótið vann ég.“
Háir fóturinn þér ekkert, t.d.
í fótbolta?
„Nei, ég beiti bara vinstri
fætinum til að sparka með. Ég
var í æfingum með fótinn en
fannst það leiðinlegt svo ég
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASEfí
LYKILLINN AO VANDAÐRI
LITPRENTUN
MYNDAMÓT HF
20% afslátt
veitum viö næstu viku af eftirfarandi vörum:
FURUGÓLFBORÐUM 22 mm þykkum.
HANDRIÐAEFNI (PÍLÁRUM o.fl.).
Eigum fyrirliggjandi: gluggakistuefni, viðarþiljur,
lofta- og veggjaplötur, panelkrossvið, haröplast,
eikarparkett, askparkett, og birkiparkett, sem er
mjög sterkt, fallegt og á ótrúlega hagstæöu verði.
PÁLL Þ0RGEIRSS0N &C0,
Armúla 27. — Símar 34000 86100.
Ofnþurrkaöur haröviður
fyrirliggjandi:
BRASIL MAHOGNI 2“ — EIK 2“ OG 1“ — RAMIN
1“ — ABACHI 1“ — DARK RED MERANI 21/2X5“..
ENNFREMUR: OREGON PINE 21/2x5“ (ofnþ.) —
OREGON PINE KROSSVIÐUR, 1/2“ rás. SPÓNA-
PLÖTUR, 1. fl. sænskar — SPÓNAPLÖTUR, raka-
varöar. PLASTHÚÐAÐAR SPÓNAPLÖTUR —
MAH. KROSSVIÐUR, margar þykktir.
• PÁLL ÞORGEIRSSON &C0,
Ármúla 27. — Símar 34000 og 86100.