Morgunblaðið - 19.08.1984, Blaðsíða 38
94
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. ÁGÚST 1984
jJR l l\VII\MyNDANNA ■
Julie Walters:
„Educating Rita“
er hennar fyrsta kvikmynd
FYRIR fjórum mánudum vissi
enginn hérlendis hver Julie Walt-
ers er, nú vita þaö allir. Nú hefur
Stjörnubíó sýnt „Educating Rita“
í fjóra heila mánuði og er myndin
oröin ein sú allra vinsælasta í ár.
En vinsældir þessarar myndar
eru ekki bundnar viö ísland,
myndin var vinsæl í Bretlandi sl.
ár og einnig í Bandaríkjunum.
Julie Walters var útnefnd til
Óskarsverölauna fyrir leik sinn,
en það er mikiö afrek fyrir fyrstu
mynd, en Shirley MacLaine
hreppti verölaunin. Michael
Caine var einnig útnefndur til
Óskarsverðlauna, ekki í fyrsta
sinn og ekki í annaö sinn; Micha-
el er orðinn því vanur.
Julie Walters er 33 ára gömul og
á undanförnum árum hefur hún
vakiö eftirtekt í Bretlandi fyrir góö-
an leik á fjölunum. Þá hefur hún
einnig leikiö í fjölmörgum sjón-
varpsleikritum og framhaldsþátt-
um. Þaö var því aöeins tímaspurs-
mál hvenær henni byðist hlutverk í
kvikmynd.
Þegar Julie haföi leikiö Ritu á
leiksviöi í sjö mánuöi, alls 800 sýn-
ingar, þá var ákveöiö aö kvik-
mynda leikritiö. Julie geröi sér
engar vonir um kvikmyndahlut-
verkiö því vaninn er aö ráöa þekkt-
ar „stjörnur". En leikstjóri myndar-
innar, Lewis Gilbert, var harö-
ákveöinn í aö fá Julie til aö leika í
myndinni. Sýningum lauk í mars
1981, en það liðu átján mánuöir
þar til kvikmyndatakan hófst sept-
ember 1982. Þaö var svo á 31.
afmælisdegi hennar sem Lewis
hringdi og sagöi aö hlutverkiö væri
hennar.
Julie átti auövelt meö aö setja
sig inn i hlutverk Ritu. Sjálf hefur
Julie litla menntun aö baki og hún
er komin af verkamannafólki. Hún
Gamia brýniö Michael Caine í hlutverki drykkfellda prófessorsins og Julie Walters í hlutverki hinnar
menntunarþyrstu Ritu.
Julie Walters.
f
hætti i skóla sautján ára en vann í
tvö ár sem hjúkrunarfræöingur. En
Julie vildi ekki festast í þvt starfi;
þáverandi kærasti hennar sagöi
henni frá leiklistarnámskeiöi, sem
Juiie tók síöan þátt í. Þaö var upp-
haf aö leiklistarferli hennar, það
hefur tekiö hana tíu ár aö ná
frama, og nú standa henni allar dyr
opnar.
Michael Caine, sem leikur próf-
essorinn drykkfellda, á varla nógu
sterk orö til aö lýsa aðdáun sinni á
Julie Walters og leikhæfni hennar.
Michael ætti aö vita hvaö hann
syngur því hann hefur leikiö á móti
flestum kvenleikendum síöustu
fimmtán árin. Michael spáöi því aö
Julie yröi útnefnd til Óskarsverð-
launa fyrir Ritu, sem kom á daginn.
Sjáif ypptir Julie aöeins öxlum
þegar henni er hælt, hún segist
vera ósköp venjuleg kona og hana
þyrstir ekki í líf stórstjarnanna.
Julie hefur leikið i einni mynd
eftir aö hún lauk viö Ritu. Þaö var í
mynd fyrir bresku sjónvarpsstöö-
ina Channel 4, og nefnist myndin
„She’ll Be Wearing Pink Pyjamas".
Þaö vakti heimsathygli þegar Julie
átti aö afklæðast fyrir framan
myndavélina í þessari mynd og
henni tókst aö plata alla tækni-
mennina úr fötunum líka. Julie
fannst þaö mátulegt á karlana í
tækniliöinu sem horföu á hana af-
klæöast og demba sér í sturtu.
Fréttapunktar
Ein af næstu myndum Bíóhallar-
innar verdur hin vinsæla mynd
um hafmeyjuna sem tók iand á
Manhattan, Splash. Þessi, víst
bráðskemmtilega gamanmynd er
fyrsta myndin undir nýju merki
tri Walt Disney-fyrirtækinu og
nefnist Touchstone. Undir því er
fyrirhurtað aö framleiða myndir
fyrir fullorðna og verður ekki ann-
að sagt en að það hafi farið vel af
stað því Splash er ein af vinsæl-
ustu myndum þessa sumars í
Vesturálfu.
Meö hlutverk hafmeyjunnar ter
rísandi stjarna, Daryl Hannah, en
myndinni leikstýrir Ron Howard.
Annað fyrirtæki sem fariö hefur
af staö af miklum krafti í sumar er
nýjasti risinn í kvikmyndafram-
leiöslu og dreifingu vestan hafs,
Tri-Star. Fyrsta myndin frá fyrir-
tækinu, sem m.a. er stofnsett af
stærsta kapalsjónvarpshringnum i
Bandaríkjunum, Home Box Office,
var The Natural, en á henni birtist
sjálfur Robert Redford í fyrsta
skipti á hvíta tjaldinu í rösk þrjú ár.
Og ekki var aö sökum aö spyrja,
myndin hefur hlotiö mjög góöa aö-
sókn.
Fyrir skömmu var svo frumsýnd
mynd nr. 2, The Muppets Take
Manhattan. Gengur hún vel líkt og
fyrri myndir meö hinum óborgan-
legu Prúöuleikurum.
Þaö er mikiö líf í kvikmynda-
heiminum vestra. Þegar Evrópu-
menn eru aö spá kvikmyndunum
hægfara dauödaga á næsta áratug
hefur hagur strympu aldrei veriö
vænlegri hinum megin hafsins. Ár-
iö 1984 stefnir nefnilega örugglega
í aö veröa metaðsóknarár í sögu
kvikmyndanna. Er reiknaö meö aö
heildarinnkoman veröi í fyrsta sinn
yfir 4 billjónum dala. Ghostbust-
ers, Gremlins og Indiana Jones
raöa sér í efstu sætin.
Mel Gibson hlaut heimsfrægö
fyrir skeleggan leik sinn í framtíö-
arvestrunum áströlsku, Mad Max I
og II. Nú er rööin komin aö þriöju
myndinni í seríunni, en munurinn
er sá aö sú fyrsta kostaöi hálf-
geröa smáaura, 400 þús. dali, en
sú þriöja kemur til meö aö kosta
yfir 14 milljónir!
Nú eru hafnar sýningar á gömlum
meistaraverkurr Hitchcock í
Laugarósbíó. Hér sjáum viö Doris
Day og James Stewart í einu
þeirra. The Man Who Knew Too
Much.
Leikstjórar veröa tveir, Georg-
arnir Miller og Ogilvy.
Metsölubók Umberto Ecos, The
Name of the Rose, hefur selst
grimmt hérlendis uppá síökastiö.
Nú er ákveöiö aö kvikmynda sög-
una snemma á næsta ári og er
leikstjórinn .mörgum Islendíngnum
aö góöu kunnur, en það er Frans-
maöurinn Jean-Jacques Annaud
(Leitin að eldinum).
Annaud leitar þessa dagana aö
leikurum víðsvegar aö úr heimin-
um. Ákveðiö er aö þekktur,
bandartskur leikari fari meö aöal-
hlutverkiö en hinir koma víösvegar
aö, líkt og munkarnir í sögunni.
Myndin veröur gerö í samvinnu af
franska kvikmyndafyrirtækinu Ari-
ane Films og 20th Century Fox.
Jack Nicholson keypti fyrir
skömmu kvikmyndaréttinn á
skáldsögunni Murder of Napo-
leon, þar sem höfundurinn kemur
fram meö nýjar hugmyndir um siö-
ustu ár keisarans.
Nicholson ætlar sér aö hóa
saman sömu kröftunum og geröu
One Flew Over The Cuckoo’s
Nest svo aö allar líkur benda til aö
hér sé mjög svo athyglisverö mynd
í uppsiglingu. Meöal þeirra sem
voru á höttunum eftir kvikmynda-
rétti bókarinna, sem nú hefur kom-
iö út á níu tungumálum, er gamal-
kunnur Napoleon-leikari, Marlon
Brando.
Ekkert lát er á kvikmyndagerð-
um skáldsagna Stephen Kings. Nú
hefur hryllingsmeistarinn George
A Romero keypt réttinn á nýjustu
bók Kings, Pet Semetary. Þess
má geta aö þetta er langóhugnan-
legasta bók höfundar, aö mati
undirr., hér örlar hvergi á gamal-
kunnri væntumþykju fyrir persón-
unum af hálfu höfundar, allt er á
sama vegin, Ijótt og kalt. Upplagt
efni fyrir Romero sem fyrst mun
Ijúka viö sína stærstu mynd til
þessa, The Stand. Þar kemur King
jafnframt viö sögu sem höfundur
kvikmyndahandritsins.
Næsta mynd Taylor Hackfords
(An Officer and a Gentleman, Aga-
inst AU Odds), veröur Glory Boys.
Meö aöalhlutverkiö mun fara Dust-
in Hoffman en áöur lýkur hann viö
hiutverk sitt í Yellow Jersey sem
er fyrsta mynd Michael Ciminos
eftir Heaven’s Gate. Svo viröist
sem mógúlar Hollywood séu farnir
aö fyrirgefa Cimino Himnahliös-
hneyksliö. s V
Stjörnugjöfin
STJÖRNUBlÓ:
Einn gegn öllum ☆ ☆ 'h
Educating Rita ☆ ☆ ☆ ☆
Maöur, kona og barn ☆ ’A
REGNBOGINN:
Times Square ☆ 'h
The Cannonball Run ☆ ☆
48 stundir ☆ ☆ ☆
í eldlínunni * ☆
Atómstööin ☆ ☆ ☆
TÓNABÍÓ:
Monty Python og rugluöu riddar-
arnir * ☆ ☆
Tímabófarnir ☆ ☆ V4
HÁSKÓLABÍÓ:
Local Hero ☆ ☆ 'h
Beat Street ☆ ☆
AUSTURBÆJARBÍÓ:
Ég fer í fríið ☆ ☆ V4
10 ☆ ☆ *
Breakdance ☆ ☆ V4
NÝJA BÍÓ:
Rithöfundur, eöa hvaö? ☆ ☆ 'h
LAUGARÁSBÍÓ:
Glugginn á bakhliöinni ☆ ☆ ☆ ☆
BÍÓHÖLLIN:
Allt á fullu ☆
Hrafninn flýgur ☆ ☆ ☆
Hetjur Kellys ☆ ☆ ☆
Einu sinni var í Ameríku * * 'h
Harrison Ford og Kate Capshaw ( vinsælustu mynd ársins víöa um
heim (vonandi hérlendis líka), Indiana Jones and The Temple Of
Doom.