Morgunblaðið - 25.11.1984, Síða 4

Morgunblaðið - 25.11.1984, Síða 4
68 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1984 „Ég titra og skelf,“ skrifaði Guð- rún Kristmannsdóttir, leikkonan unga frá Selfossi í gesta- bók sem liggur frammi í safni Önnu Frank í Amsterdam, en í þessa bók eru gestir safnsins hvattir til að skrifa nokkrar línur um þau áhrif sem þeir verða fyrir á ferð sinni um safnið. Guðrún leikur sem kunnugt er gyðingastúlkuna Önnu Frank í samnefndu leikriti sem Leikfé- lag Reykjavík- ur sýnir í Iðnó um þessar mundir. í síðustu viku bauð flugfélag- ið Arnarflug Guðrúnu í eins dags ferð til Amsterdam, gagngert til að skoða hinn raunverulega felu- stað Önnu, vöruloftið fræga þar sem Anna dvaldist frá vorinu 1942 til haustsins 1944 ásamt Fyrstu spor Guórúnar á erlendri grund. Ég titra skelf Á ferð með leikkonunni ungu frá Sel- fossi Guðrúnu Kristmanns- dóttur um safn Önnu Frank í Amsterdam Þessi mikli áhugi hollensku blaðanna á heimsókn Guðrúnar vakti undrun okkar samferða- manna hennar, eða þar til i ljós kom að þetta er aðeins f annað sinn sem leikkona, sem farið hefur með hlutverk önnu Frank, heim- sækir safnið. En það sem vakti mesta athygli hollensku blaða- mannanna var sú staðreynd að Guðrún „kom í morgun og fer í kvöld“ og ennfremur að þetta var fyrsta ferð hennar til útlanda. „Og ég sem hélt að ísland væri hinum megin á hnettinum," taut- aði hollensk blaðakona í hálfurn hljóðum, og bætti við upphátt: „Þetta er þín fyrsta ferð — hvern- ig finnst þér Amsterdam?" „Dá- samleg,“ svaraði Guðrún, „það sem ég hef séð af henni í gegnum bílrúðu. Ég á örugglega eftir að koma hingað aftur og dvelja lengi.“ HÚS ÖNNU FRANK Það er i sjálfu sér ekki mikið að sjá í húsi önnu Frank: Á yfirborð- inu er þetta ósköp hversdagsleg ibúðarkytra, auð að mestu, ef frá eru tnna notaði til að lífga upp á herbergi sitt. En sagan hefur gert þessi hrörlegu húsakynni stór og tignarleg. Árlega kemur um hálf milljón manna hvaðanæva að úr heiminum til að sjá með eigin augum það umhverfi sem var heimur þessa fólks í rúm tvö ár. Gömul hús hafa lif, stendur ein- hvers staðar, og þetta hús hefur lif og merkingu sem nær langt út fyrir morkna veggina: Hér er herbergi önnu, þarna er glugginn sem hún stalst til að horfa út um á nóttunni, og þetta er klósettið sem Dussel sat á tímunum saman, stiginn upp í risið þar sem vistirn- ar voru geymdar og þetta er þak- glugginn, sá eini i húsakynnunum sem þorandi var að opna. Við þennan glugga sátu þau Pétur og Anna þegar ást þeirra stóð sem hæst. Og bókaskápurinn, svo þetta er hann, sem inngangurinn að leyniheimilinu var hulinn bak við. Hvernig skyldi það hafa verið þann örlagaríka dag 4. ágúst 1944 þegar þýska lögreglan stóð fyrir framan skápinn og hrópaði te ek r nk oog Heti*d»afom eo-nazi het *aac»ame 5 hetaool- ifi«Hi.taite m Peatsdibnd veniast ftowftatinnelle EnthuHungen /s. e u ? ■■ . ' ^ R 2295 C National+Zeitung terker rtog: rínsel van de gte van jaren aklopte >akt het ook •laeen pamftetten f paeodo- iaam vande >rdt een jediend « an 9normou$ é thorn in the rhotryto make* it the nail mass Ein af mörgum blaðaúrklippum í safninu. Þessi er úr nasistablaðinu National Zeitung frá því í aprfl 1979. í fyrirsögninni er getið um mikla „uppljóstrun", „Enginn gyðingur í Þýskalandi settur í gasklefa"! Fyrir neðan er talað um Dagbék Önnu Frank sem eitt stórt og mikið svindl. foreldrum sínum og systur og fjór- um öðrum gyðing- um. Anna hefur gert til- veru þessa huldu- fólks ódauðlega með dagbók sem hún hélt þetta örlagaríka tímabil, þá aðeins unglingsstúlka, 13—15 ára gömul. HOLLENSKA PRESSAN Á STAÐNUM Koma Guðrúnar í hús önnu Frank vakti mikla eftirtekt: hol- lenska pressan sat fyrir henni í safninu, og hafði Guðrún varla stigið fæti inn fyrir þröskuldinn þegar blaðmenn og ljósmyndarar hófu á hana skothríð. „Hvað ertu gömul? Hvaðan ertu? Hvenær heyrðirðu fyrst getið um önnu Frank? Hvenær komstu? Hvenær ferðu? Og að sjálfsögðu: Er ekki kalt á islandi? Guðrún tók þessu með mikilli ró, og sagði sem var, að hún væri 16 ára stúlka frá Selfossi, hefði fyrst leikið önnu Frank 14 ára í uppfærslu Leikfélags Selfoss og þá fyrst heyrt getið um önnu Frank. Hún hefði byrjað á því að lesa söguna Hetja til hinstu stundar, sem greinir frá afdrifum söguhetjanna eftir að þýska lög- reglan fann felustað þeirra. Guð- rún sagði að sú bók hefði haft mikil áhrif á sig og síðan hefði hún drukkið í sig allt sem hún hefði komist yfir um ofsóknir nas- ista á hendur gyðingum. Guðrún og Anna Frank.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.