Morgunblaðið - 25.11.1984, Síða 7
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1984
71
Skónúmer
gáfu hæsta
vinning
1»_í- m _i_ i n
VINNIJFÉLAGAR á bar nokkr-
um í Parísarborg urðu nýlega 40
milljónum króna rfkari. Þeir
spiluðu saman f „Lottó“, sem er
nokkurs konar talnahappdrætti,
og kostuðu til þess 7 frönkum.
Afraksturinn varð stærsti vinn-
ingur sem hingað til hefur unn-
ist á einn miða, rúmlega 10
milljónir franka.
Og hvernig fóru þeir að
þessu? — Fyrst gáfu þeir sér
einhverja tölu af handahófi.
Því næst fengu þeir að vita
skónúmer nokkurra kunn-
ingja sinna, 39, 40 og 43, og
bættu við.
En þeir hafa ekki hugmynd
um, hvað þeir ætla að gera við
peningana.
Búsetafundur í
Norræna húsinu
BÚSETI heldur kynningarfund í
Norræna húsinu annað kvöld, mánu-
dag, klukkan 20.30.
Búseturéttarformið verður
kynnt i myndum og máli eins og
það er i dag á Norðurlöndum og
hvernig starfsemi húsnæðissam-
vinnufélaga er háttað. Einnig
verður kynnt þróun húsnæðismála
í þessum löndum og hvert stefnir
næstu áratugi. Fundurinn er hald-
inn á stofndegi fyrsta húsnæðis-
samvinnufélagsins hér á landi,
Búseta í Reykjavík, sem stofnað
var fyrir ári síðan.
#***
CaféTorg í miðpunkti
konditori MANNLÍFSINS!
í endurbættum og bjartari húsakynnum bjóöum við þig velkominn til að njóta síbreyti-
legra kræsinga sem notið hafa sérstakrar alúðar færustu bakarameistara Kökubankans.
Stöðug endurnýjun á köku- og tertulistanum, rjúkandi kaffi ásamt spennandi útsýni
yfir Lækjartorg, eru eiginleikar sem gera Café Torg að lifandi og fersku kaffihúsi.
Líttu inn og njóttu fyrsta flokks kaffiveitinga í notalegu umhverfi.
<eCaféTorg0«
konditori 3».......
^GpqpCÐ<$ Við Lækjartorg
Husgagnasyning
sunnudag kl. 2—5
Okkar húsgögn eru öðruvísi.
Ný og breytt búð, létt og stílhrein
húsgögn. Nýjar vörur í hverri viku.
Borgarhúsgögn
Hreyfilshúsinu viö Grensásveg, sími 686070.
Nýr þáttur í hverri viku