Morgunblaðið - 25.11.1984, Síða 8

Morgunblaðið - 25.11.1984, Síða 8
72 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1984 TILRÆÐIS Fyrst kveðjan þá bana- skotin Beant Singh, undirforingi, fór heim í þorpið sitt í Punjab- ríki fyrir rúmum tveimur mánuð- um. Hann var þá í tveggja daga fríi frá störfum sem einn af traustustu öryggisvörðum Indiru Gandhi og langaði til að verja því meðal síns fólks, sikhanna. Beant Singh var 34 ára gamall og að því er virtist fyrirmyndarborgari, lögreglumaður og fjölskyldumað- ur. Beant Singh var menntaður maður, lagði stund á rússnesku við háskólann í Punjab og hafði unnið sig upp í starfi, byrjaði sem óbreyttur lögreglumaður en var loksins skipaður í það eftirsótta starf að vera öryggisvörður for- sætisráðherrans. Hann bjó í Delhí ásamt konu sinni, sem er hjúkrun- arkona, og þremur börnum. Síðustu átta árin hafði Beant gætt öryggis Indiru Gandhi í öll- um hennar utanferðum og sjálf benti hún oft á hann með stolti og sagði, að hann væri sín helsta vörn og skjól. „Líf mitt er í hönd- BEANT SINGH: „Ég hef gert það sem ég varð að gera.“ um sikha," sagði hún einu sinni við erlendan fréttamann og benti á túrbanbúinn undirforingjann við hlið sér. Síðustu fimm mánuðina hafði Beant Singh hins vegar verið að undirbúa morð. í ferðinni til Punj- ab var lögð síðasta hönd á þá ráðagerð að koma fram hefndum á konunni, sem skipaði hernum að ráðast á helgasta vé sikhanna, Gullna musterið í Amritsar. Þeg- ar lögreglan leitaði á heimili hans í Delhí fannst þar mikið af áróð- ursritum hinna öfgafyllstu í hópi sikha og upptökur á ræðum Jarna- il Singh Bhindranwale, hryðju- verkaforingjans, sem var einn af þeim mörgu sem létu lífið í árás- inni á musterið. Daginn sem Indira var myrt sinnti Beant Singh störfum sinum á jafn óaðfinnanlegan hátt og jafnan áður. Að vísu gerði hann þá breytingu á, af einkaástæðum að MAÐURINN sögn, að hann bað um að vera sett- ur á morgunvaktina þennan til- tekna dag og standa vörð við garðshliðið við heimili forsætis- ráðherra. Var fúslega orðið við beiðni hans og klukkan rúmlega 9 um morguninn þegar Indira gekk frá heimili sínu, stóð Beant við hliðið. Beant Singh heilsaði Indiru með hinni þjóðlegu namaste-kveðju. Hann hafði verið átta ár í þjón- ustu og þekkti hana því vel. Síðan skaut hann þrisvar sinnum á hana úr marghleypunni sinni. Fyrir aft- an hann stóð lögreglumaðurinn Satwant Singh og þegar hann sá Indiru falla til jarðar beindi hann að henni hríðskotabyssu og lét 16 skothrinur dynja á henni. „Ég hef gert það sem ég varð að gera,“ sagði hann um leið og hann kast- aði byssunni frá sér en augnabliki síðar lá hann á stígnum alvarlega særður. Beant Singh var látinn. Úr- valshermenn í öryggisverði Ind- iru, fjallabúar frá landamærahér- uðunum við Tíbet, brugðu fljótt við, en þó ekki nógu fljótt til að bjarga lífi hennar. Satwant Singh, hinn morðingi Indiru, 21 árs gamall og sikhi eins og Beant, hafði aðeins verið í lög- reglunni í tvö ár. Hann var frá Gurdaspur-héraði í Punjab, þar sem öfgamenn meðal sikha hafa látið mikið að sér kveða, og hafði verið þar helgina áður. Hann hef- ur ekki sýnt þess nein merki við yfirheyrslur hjá lögreglunni, að hann iðrist verksins. — ROBIN LUSTIG og SHYAM BHATIA. FRAMTIÐAKBIL Það kjaftar á þeím hver tuska IToyota-borg, bíla- borginni japönsku og aðsetri annars stærsta bílaframleiðanda í heimi, er hægt að fá for- smekkinn af framtíð- arbílnum, „bráðgáfaða" bílnum, sem nú er unnið að í Toyota-verksmiðj- unum. Þessi bíll mun ekki hleypa neinum þjófum inn í sig, laga sig sjálfur að ólíkum veður- og birtuskilyrðum og mis- munandi þunga og hann mun sjá til þess að öku- maðurinn meiði hann ekki með því að aka utan í bíla eða aðra hluti. Hann mun hjálpa öku- manninum að rata rétt- an veg á ókunnum stig- um og vara hann við umferðaröngþveiti framundan og hann mun gera óþarft allt fikt í mælaborðinu sem dregur athygli öku- mannsins frá veginum, með því að hlýða munn- legum fyrirskipunum. Að bíl framtíðarinnar ganga engir lyklar. Til að komast inn i hann og setja í gang verður að ýta á nokkra lykiltakka en þegar ökumaðurinn er sestur notar hann segulkortið sitt til að stilla sætisstöðuna, loft- blásturinn og annað, sem á sérstaklega við þarfir ökumannsins. Allar þessar skipanir eru skráðar á segulkort- ið. Á aldamótabílnum rnunu ratsjá að framan- verðu og hljóðbylgju- tæki að aftanverðu koma í veg fyrir árekstra. Ratsjáin, sem er sambyggð stjórnkerf- inu fyrir ökuhraðann, mun halda bflnum á ákveðnum hraða og gæta þess samtímis að hann sé í réttri fjarlægð frá ökutækinu fyrir framan. Ef bilið minnk- ar dregur niður í vélinni. Þegar bílnum er ekið aftur á bak „skynjar" hljóðbylgjutækið á aft- urstuðaranum allt sem á veginum verður og gefur það til kynna með ljósi ef ökumaðurinn þarf að vara sig. Þurrkurnar og aðal- ljósin á framtíðarbiln- um verða búin sérstök- um skynjurum, þannig að þurrkurnar munu laga sig sjálfar að hraða bílsins og rigningunni, sem fellur á rúðuna. Á aðalljósunum kviknar þegar skyggir og þegar öðrum bíl er mætt minnkar ljósmagnið. Örtölva mun sjá um að hæð bílsins yfir jörðu sé alltaf rétt og tekur þá tillit til fjölda farþega, farangursþunga, hraða og yfirborðs vegarins. Tölvur munu líka láta til sín taka við hemlunina til að minni hætta sé á að bíllinn renni. í Toyota-verksmiðj- unum er verið að gera tilraunir með tvö leið- sögukerfi. Annað er þannig, að litill sjón- varpsskjár i mælaborð- inu sýnir á korti hvar bíllinn fer, en hitt er Hk- ast áttavita þar sem nál- in bendir ökumanninum hvort hann skuli beygja til vinstri eða hægri. Er þá áður búið að mata tækin á ákvörðunarstað, stefnu og fjarlægð. Hugvitsamlegast og flóknast af öllu er þó lfk- lega tækið, sem á að taka við munnlegum fyrirskipunum og gera þar með útlægt takka- farganið í mælaborðinu. Þá verður jafnvel hægt að hringja heim til sín úr bílnum með þvi einu að biðja bílinn að vera svo vænan að ná i ákveð- ið símanúmer. Þvi er spáð að þessi reyfarakenndi framtíð- arbíll verði orðinn að veruleika um næstu aldamót. — SUE BAKER. (iIÆPIR Mennirnir sem myrða sér til afþreyingar Lucas 360 morð Bandaríska alríkis- lögreglan kallar þá „tómstundamorð- ingjana" en John van de Kamp, ríkissak- sóknari í Kaliforníu, kýs að kalla þá „færi- bandamorðingjana". Hvort nafnið, sem er notað, þá er hér um að ræða alameríska morðhunda, sem hafa komið fram á sjón- arsviðið á síðustu tveimur áratugum og virðist fara fjölgandi. „Kamikaze“-morð- ingjarnir svokölluðu, menn sem brotna und- ir andlegu álagi og drepa alla, sem þeir ná til, eru alþekkt fyrirbrigði í Banda- ríkjunum, en „færi- bandamorðinginn" er af öðru sauðahúsi. Hann drepur ein- göngu ánægjunnar vegna. Hann getur leikið lausum hala ár- um saman og fórnar- lömbin skipta stund- um hundruðum. Mesti fjöldamorð- ingi i bandarískri sögu heitir Henry Lee Lucas, 48 ára gamall, eineygður flækingur, sem stærir sig af því að hafa myrt 360 manneskjur víðs veg- ar um landið og beitt við það öllum hugsan- legum aðferðum: stungið, skotið, kyrkt, misþyrmt líkum, höggvið höfuðið af fólki o.fl., o.fl. Til þessa hefur tekist að sanna sögu hans f 144 tilfellum. Lucas bíður nú dauða síns í Texas en yfirvöld í 12 öðrum ríkjum vilja gjarna koma höndum yfir hann, ekki bara til að leiða hann fyrir rétt, heldur til að hann geti bent á hvar fórnar- lömb hans eru niður- Tbeodore Bundy 40 morð komin, þannig að Ijúka megi formlega hundruðum óleystra morðmála. Lucas, sem var þrettánda barn drykkjusjúks manns og átti móður, sem var vændiskona, er meira en fús til að hjálpa lögreglunni. Hann féllst t.d. á að tekin væri kvikmynd af honum þar sem hann sagði frá ferli sínum og lék fyrir lögregluna óhugnanlegustu atrið- in. Þetta gerði hann með því eina skilyrði, að hann fengi nóg af uppáhaldsdrykknum sínum, sem er mjólk- urhristingur með j arðarberj abragði. Starfsmenn alríkis- lögreglunnar, FBI, sem vilja þó fara var- lega í sakirnar, áætla, að á síðasta ári hafi „færibandamorðingj- arnir“ drepið 5000 menn i Bandaríkjun- um og að jafn margir muni falla fyrir þeim á þessu ári. „Þetta er eins og farsótt," segir einn lögreglumann- anna, „og hún færist stöðugt í aukana". Hvers vegna skyldi þessum morðingjum fara fjölgandi og hvers vegna einkum f Bandaríkjunum? Nýj- ustu rannsóknir, sem byggðar eru á upp- vexti og andlegu um- hverfi þessara manna, sýna, að þeir eiga þetta þrennt sameig- inlegt: Næstum allir voru þeir beittir ofbeldi f æsku af foreldrum eða öðrum uppalendum. Ef þeir sluppu við beinar misþyrmingar eða kynferðislegt ofbeldi komust þeir á bragðið þegar feður Ottia Toole 50 morð þeirra lömdu eða nauöguðu mæðrum þeirra. Á bak við morðin býr oft einhvers konar hugmynd um endur- fæðingu. „Þeir verða að komast yfir fórnar- lambið og útrýma því á sama hátt og farið var með þá sem börn,“ segir dr. Barnoff Red- ick, sálfræðingur við háskólann í Suður- Kaliforníu. Morðing- inn hefur af því mikla andlega ánægju að vinna traust fórnar- lambsins og svíkja það síðan. Margir sögðu frá því, að þeir hefðu fengið kynferð- islega fullnægingu þegar þeir frömdu morðið. Næstum undan- tekningalaust eru „færibandamorðingj- arnir“ menn, sem ár- um saman hafa látið sig dreyma kynferðis- lega drauma og nært þá á hryllingsmynd- um og ofbeldisfullu klámi. Að því kemur, að ímyndunin verður raunveruleikanum yf- irsterkari og þá brýst ótti morðingjans út í heiftaræði og losta. Theodore Bundy, 37 ára gamall maður, sem myrti á átta ár- um u.þ.b. 40 ungar konur og stúlkur, tal- aði um fórnarlömbin sem „dúkkur" og „brúður". Ottis Toole, kynvilltur sadisti, sem segist hafa myrt 50 unga menn síðustu 15 árin, hafði þetta að segja: „Að drepa er fyrir mér eins og að reykja sígarettur, bara eins og hver annar ávani.“ - WILLIAM SCOBIE KUWAIT Konur í Kuwait eru vel settar í menntun og öðru tilliti sam- anborið við kynsystur sínar í öðr- um ríkjum við Persaflóa, en hið langvinna stríð I þessum heims- hluta og aukin strangtrúarstefna virðist nú stefna sérstöðu þeirra í nokkra hættu. Abdulla Faraj A1 Ghanim, hershöfðingi, yfirmaður herafla Kuwait, skýrði fréttamönnum frá því fyrir skömmu, að stúlkur yrðu ef til vill kvaddar til að gegna her- þjónustu. Stúlkur I framhaldsskól- um sækja námskeið í herfræðum, og ætlunin er að auka við námsefn- ið og gera nemendur I stakk búna til að ganga í herinn síðar. Konur í Kuwait hafa tekið þessari yfírlýs- ingu vel og sagt hug sinn þar um i blaðaviðtölum og víðar. Þær hafa lýst yfir því, að þær væru reiðu- búnar að berjast, ef þær yrðu til þess kvaddar. „Konur geta sinnt hernaði eins veí og mannúðarmál- um,“ segir Elu’at A1 Rifai prófessor við listadeild Háskóla Kuwait. I Kuwait heur lengi ríkt frjáls- lyndi í garð kvenna samanborið við það sem gerist í grannríkjunum. Hundruð kvenna hafa lokið dokt- ors- og meistaraprófum frá erlend- um háskólum og allar hafa þær komið heim til starfa. í bönkum og ríkisstofnunum, einkum á sviði heilsugæzlu og menntamála, eru margar konur í áhrifastöðum svo og hjá olíufélaginu Kuwait Petrole- um Corporation. Ibúar í landinu eru 1,6 milljón talsins, en innfæddir eru aðeins tæpur helmingur þeirra. Stjórn landsins vinnur nú að áætlunum um að landsmenn sjálfir taki meiri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.