Morgunblaðið - 25.11.1984, Síða 12
76
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1984
léttir Báröi störfin
Pað er í mínum verkahring að sjá um að salurinn
sé alltaf búinn stólum og borðum í samræmi við
þörfina hverju sinni. T.d. þegar sýna á börnunum
kvikmynd þarf ég að vera fljótur að skutla inn
svona hundrað stykkjum handa þeim stuttu.
Ef leikfélagið er svo með sýningu um kvöldið
þarf ég að bæta öðru eins við og kræki stólunum
saman á hliðunum svo raðirnar haldist beinar.
Svo þarf auðvitað allt að vera orðið tómt morgun-
inn eftir áður en skólaleikfimin byrjar.
Þetta er ekkert mál með Stacco stólunum sem
við eignuðumst í fyrra. Ég geymi þá eina fjögur
hundruð í litlu áhaldageymslunni okkar, ásamt
þrjátíu Stacco borðum, sem auðvelt er að
smeygja fótunum undan til að spara plássið.
Stólarnir staflast hreint ótrúlega vel, - mér reikn-
ast til að fjörutíu stykkja stafli sé rúmur metri á
hæð!
Þegar þeir héldu ráðstefnuna um daginn gerði
ég mér lítið fyrir og rúllaði þrjúhundruð stykkjum
inn í salinn og lagði síðan skrifplötu í hvern
þeirra þegar ég var búinn að raða upp. Ráð-
stefnugestir smelltu plötunum síðan á með einu
handtaki. Núna er ég svo að undirbúa salinn fyrir
dansleik og þá er auðvitað tilvalið að raða upp
borðunum og svona fimm til sex stólum í kring
um hvert þeirra, - annars eru menn nú ekkert
gefnir fyrir að sitja mikið þegar dansinn dunar á
góðu balli, - annálaðir dansmenn allt saman! En
auðvitað finnst þeim gott að tylla sér niður í
notalegan stól öðru hverju.
Já Stacco stólarnir hafa sparað honum mörg
sporin, enda sniðnir fyrir þessar aðstæður.
Arkítekt: Pétur B. Lúthersson
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
STEINARS HF.
SKEIFUNNI 6,SlMAR: 35110.39555,33590
50 þúsund
í lífshættu
Omf. 23. ■órember. AP.
FIMMTÍU þúsund íraskir
stríðsfangar í íran eru í alvar-
legri iuettu, að því er Alexandre
Hay, foraetl Alþjóða Rauða
krossins í Genf, sagði f dag á
fundi með sendiherrum þeirra
ríkja, sem eru aðilar að Genfar-
sáttmálanum um meðferð stríðs-
fanga.
Hay sagði, að franir hefðu
margbrotið mannréttinda-
ákvæði sáttmálans og hvatti
sendiherrana til að beita sér
fyrir því, að aðildarríki Gefn-
arsáttmálans stððvuðu fólsku-
verk þeirra.
Hann kvað atvik það, sem
fulltrúar Rauða krossins
hefðu orðið vitni að í Gorgan-
fangabúðunum i fran 10.
október sl., en þá voru sex ir-
askir stríðsfangar skotnir til
bana með köldu blóði og 35
særðir, alls ekki einsdæmi.
Hann sagði að stofnunin hefði
óvefengjanlegar heimildir
fyrir þvi að slíkt hefði gerst
margsinnis áður og ástæða
væri til að óttast að það yrði
endurtekið.
19 stiga
hiti í
Vínarborg
Vta, 23. aérnibn. AP.
VORVEÐRÁTTA sú, sem ríkt
hefur í Vínarborg, náði hámarki
í dag er hitinn komst upp i 19
stig á Celsíus. Er þetta mesti
hiti, sem mælzt hefur í Vín síð-
an 1873, er reglulegar hitamæl-
ingar hófust þar.
Kork-o-PIast
Gólf-Gljái
Kyrir PVC-filmur, linoleum,
giimmí, parket og steinflísar.
CC-Kloor Polish 2000 gefur end-
ingargóða gljáhúð.
Notkun: Þvoið gólfið.
Berið CC-Kloor Polish 2000
óþynnt á gólfið með svampi eða
rakri tusku.
Notið efnið sparlega en jafnt.
Látið |H)rna i 30 mín.
Á illa farin gólf þarf að bera
2—3svar á gólfið.
Til að viðhalda gljáanum er nóg
að setja í tappafylli af CC-Floor
Polish 2000 í venjulega vatnsfotu
af volgu vatni.
Til að fjarlægja gljáann er best
að nota R-1000 þvottaefni frá
sama framleiðanda.
Notið aldrei salmíak eða önnur
sterk sápuefni á Kork-o-Plast.
Kinkaumboð á Islandi:
1». 1‘orgrímsson & Co.,
^Armula 16, Keykjavík, s. 33640.
RÍKULEG ÁVQXTUN
KYNNIÐ YKKUR VEL KJÖR SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS I
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS