Morgunblaðið - 25.11.1984, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1984
77
Dýrt
að móðga
lögreglu-
hund
London, 22. DÓTember. AP.
BRESKI þingmaðurinn Tom
Torney hefur fordæmt framferði
dómstóls nokkurs, sem dæmdi
18 íra gamlan pilt til að greiða
100 punda sekt fyrir að segja
„mjá“ við lögregluhund.
Jíæst verður maður e.t.v.
fangelsaður fyrir að segja
„bú“ við gæs,“ sagði Torney,
sem er þingmaður fyrir
Verkamannaflokkinn. Og
hann hefur ritað talsmanni
dómarafélagsins mótmæla-
bréf.
Það var dómstóll i York sem
dæmdi unga manninn til þess-
arar sektargreiðslu, og voru
málavextir þeir, að hann hafði
sagt „mjá“ við lögregluhund,
þegar lögreglumaður skipaði
honum og nokkrum félögum
hans að koma sér á brott af
götuhorni einu.
Lögfræðingur piltsins hélt
þvi fram, en án árangurs, að
langsótt væri að skilja „lit-
ilsvirðingu, hótun eða móðg-
un“ út úr orðinu „mjá“, sér-
staklega þegar hundur ætti i
hlut.
En dómstóllinn fann piltinn
sekan um að hafa notað „van-
virðandi orðfæri".
26,2% STRAXIFYRSTA MANUÐI
EFTIRINNLEGG
FASTAÐ 28% ÁVÖXTUN
Á12 MÁNUÐUM
Fyrirlestur um
kennslu alvar-
lega fatlaðra
barna á mánudag
ANDREAS Fröhlich yfirkennari
skólans fyrir fatlaða í Landstuhl f
V-Þýskalandi dvelur hér i landi dag-
ana 22.-28. nóvember í boði for-
eldra- og kennarafélags Safamýr-
arskóla og Foreldra- og vinafélags
Kópavogshælis.
A. Fröhlich mun halda nám-
skeið fyrir starfslið þjálfunar-
skóla ríkisins á Kópavogshæli og
Safamýrarskóla, en auk þess mun
hann flytja erindi fyrir almenning
í Borgartúni 6, mánudaginn 26.
nóvember kl. 20.30. í erindi sínu
mun hann segja frá niðurstöðum
þróunarstarfs sem fram fór í skól-
anum i Landstuhl á árunum
1976—1982 til þess að finna og
þróa þjálfunar- og kennsluaðferð-
ir til að beita við ofurfötluð börn.
Erindið verður túlkað á íslensku.
(Préttatilkynning)
Eins manns
mál
Parfs, 23. nÓTember.
My ami caro Julio, i me hast-
en de repondre a ta letra que i
co— receive ce matin e dont i
tener a te danken.
Á þennan hátt hefst bréf
sem Frakkinn Antoine Piras
skrifar ímynduðum vini sin-
um, Julio, sem er Spánverji.
En á hvaða máli ritar Piras?
Bréfið er skrifað á „adli“ og
Piras er enn sem komið er eini
maðurinn i veröldinni sem
talar það og skrifar reiprenn-
andi. En hann vonast til þess,
að menn í utanrikisþjónustu
allra landa heims muni dag
nokkurn ræðast við á „adli“.
Og hann vonast einnig til
þess, að visindarit verði gefin
út á málinu og að ferðamenn
sem hafi það á valdi sinu geti
bjargað sér um heim allan.
■
AUÐVTTAÐ GETUR ÞÚ TEKS) ÚT HVENÆR SEM ER
OG HALDIÐ ÓSKERTUM ÖLLUM VÖXTUM
SEMÞÚHEFUR SAFNAÐ
ÁBÓTÁ VEXTI
Þegar þú leggur inn á Innlánsreikning með Abót,
færðu að sjálfsögðu fulla sparisjóðsvexti á innstæðuna,
en að auki reiknar Útvegsbankinn þér Ábót á vextina
hvern mánuð sem iíður án þess þú takir út af reikningi þínum.
EKKISTIGHÆKKANDIÁVÖXTUN
og þar með margra
mánaða bið eftir hámarkinu.
SKÍNANDIÁVÖXTUN STRAX
ÁBÓT
A VEXTI
GULLS ÍGILDI
ÚTVEGSBANKINN
EINN BANKI • ÖU MÓNUSTA
<!C1HAJ2I >1UOOL221>1U1
Gylmir