Morgunblaðið - 25.11.1984, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 25.11.1984, Qupperneq 44
108 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1984 Ást er ... ... ad leyfa honum að hvíla sig. TM Rag. U.S. Pat. Olt.-tU rights reserved •1984 Los Angeles Times Syndicate IVfeð þesKU kemst ég hjá öllum umrerðartruflunum. Við vorum heppin að geta bjargað utanborðsmótornum? HÖGNI HREKKVlSI jjtAVUDI PABBI þlMN VILJA TALA VIE> FULLTf^A kl Ef?kyls réiTA rimma r?" Hvað vakir fyrir þessu fólki? Eins og fram hefur komið leggj- ast vinstri flokkarnir gegn nýja álsamningnum, Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og Samtök um Kvennalista. Þessir flokkar finna samningnum flest til foráttu, þeir nefna lágt rafmagnsverð sem nú hefur verið tvö til þrefaldað, þeir segja að framleiðslukostnaðarverð raforkunnar til álversins sé 16 millidalir þegar staðreyndin er sú að það er innan við 9 millidalir, þeir segja að við fáum lægra verð fyrir okkar raforku en önnur Evr- ópulönd sem eru með álver, þegar staðreyndin er hin gagnstæða og þeir segja fleira í þeim dúr. Ég hef fylgst mjög grannt með því hvern- ig þetta mál hefur þróast allt frá því að Hjörleifur Guttormsson lagði í pólitíska krossferð gegn ál- verinu og fram á þennan dag og er sannfærð um að miðað við aðstæð- ur er nýi álsamningurinn okkur fslendingum mjög til hagsbóta. Það er af þessum sökum algjör- lega ofvaxið mínum skilningi að vinstri flokkarnir skuli reyna að blekkja almenning til að trúa að hér sé um „útsölusamning“ að spyrja foringja vinstri flokkanna ræða. Ég vil helst ekki efast um hvað leggst ykkur til? hugarfar þeirra, en hlýt þó að B.I. Þó kjósi núna kvennalið kommatrúna um álverið Sigríði Dúnu gefum grið, því góð er hún í eldhúsið. Hákur. Þessir hringdu . . . Hver á mynd af Valdimar? Ólafur Björnsson hjá Félagi ís- lenskra loftskeytamanna, hringdi: Nú er verið að vinna að bók um íslenska loftskeytamenn, en það vantar eina mynd í bókina. Það er mynd af Valdimar Bjarnasyni, loftskeytamanni á Lagarfossi árin 1920—1922. Valdimar tók loft- skeytapróf árið 1920, en hann lést aðeins 2 árum síðar. Faðir hans var Bjarni póstur fæddur í Bakka- gerði í Borgarfirði eystra, Ketils- sonar bónda á Hólalandi í Borgar- firði. Móðir Valdimars var Atina Guðrún, fædd á Sómastöðum í Reyðarfirði 1853, en bóndi hennar var fæddur 1860. Ef einhverjir ættingjar Valdimars eru á lífi og eiga af honum mynd, þá væri það mjög vel þegið ef þeir vildu hafa samband við mig í sfma 52385, eða í síma 11030 í Loftskeytastöðinni. Góð þjónusta Heimilistækja Húsmóðir í Garóabæ hringdi: Mig langar til að vekja athygli á og þakka fyrir frábæra þjónustu hjá Heimilistækjum. Þannig er, að ég á 19 ára Philco Bendx þvotta- vél, sem ég keypti hjá Johnson og Kaaber í gamla daga, en nú er það víst Heimilistæki sem sér um þessa þjónustu. Nú, þessi gamla vél mín bilaði um daginn. Eg fór því í Heimilistæki og fékk alla varahluti! Þetta kom mér nokkuð á óvart, jafn gömul og vélin er, en mér finnst þetta dæmi um mjög góða þjónustu. Kærar þakkir, Heimilistæki! Þættir Hals og Höllu Linker Gyða Jónsdóttir hringdi: Mig langar til að skora á sjón- varpið að taka til sýningar sjón- varpsþætti þá er hjónin Hal og Halla Linker gerðu. Þau hjónin hafa getið sér mjög gott orð fyrir þætti þessa og þeir hafa verið sýndir víða um heim. Þættirnir eru vandaðir og með þeim hafa Linker-hjónin aukið hróður Is- lands. Þættirnir eru einnig menn- ingarlegir og hafa ekkert úrelst. Sjónvarpið hefur sýnt okkur mikið af þáttum víðs vegar að og finnst mér því vel til fundið, að falast eftir þáttum Hals og Höllu. Hal Linker byrjaði að taka myndir hér á landi árið 1950 og það voru fyrstu heimildamyndir frá ís- landi, sem teknar eru I litum. Það er því vissulega orðið tímabært að sýna þessa ágætu þætti hér heima. ÞAÐ VEUA ALUR m UÓSALAMPA fpÞÝZK ÍSLENZKA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.