Morgunblaðið - 30.12.1984, Qupperneq 1
88 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
257. tbl. 71. árg._________________________________SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins
MorgunblaAiA/Fridþjófur
„Leysum vandamál okkar
með veittum styrk ykkar“
llehlf, 29. dinember. KV,
Fjárhagsað-
stoð til
Argentínu
Wuhington. 29. desember. AP.
SAMfírARFSNEFND innan alþjóAa
gjaldeyrissjóðsins hefur komið sér
saman um meiri háttar fjárhagsaóstoó
til handa Argentínu sem er meó ógur-
legan skuldahala í eftirdragi.
Erlendar skuldir Argentínu-
manna nema 45 milljörðum dollara,
en aðstoðin hljóðar upp á 500 millj-
óna dollara „brú“ eins og það er
kallað. Það eru bandarískir bankar
sem reiða fram féð, en gjaldeyris-
sjóðurinn mun sjá um afborganirn-
ar. _______ ^
OPEC vill
einangra
keppinauta
Onf. 29. desember. Al*.
OLÍURÁÐHERKAK olíuframleiðslu-
ríkjanna, sem kenna sig við OPEC,
hafa setið á stöðugum fundum i Genf
síðustu daga og rætt um yfirvofandi
verðstríð og skiptingu framleiðslu-
kvóta. Á fundum í dag var samþykkt
að einangra lönd utan OI’EC með
ýmsum leiðum, en það var eigi nánar
frá því greint hvaða meðulum yrði
beitt.
Verðstríðið sem talið hefur verið
yfirvofandi er vegna verðlækkana
Norðmanna og Breta sem boðið
hafa lægra verð fyrir Norðursjáv-
aroliu en OPEC-menn fyrir eyði-
merkurolfuna. Ráðstafanir þær sem
OPEC ætlar að grípa til verður
fyrst og fremst beitt gegn þessum
þjóðum.
Náttúruleg
efni vinna
á krabba
New Vork. 29. deoember. AP.
NÚ ER hafin framleiðsla á tveim-
ur efnum sem eiga að vinna á a*xl-
um í mannslíkömum, en efni þessi
hafa eytt krabbameini i rannsókn-
arstofumúsum. Er unnið að því að
þróa efnin þannig að nota megi
þau til krabbameinslækninga á
fólki.
Efni þessi heita lymphotoxin
og „tumor necrosís factor". Rick
Dernych, vísindamaður við
rannsóknarstofurnar Genetech í
San Francisco, ritaði nýlega um
rannsóknirnar í tímaritið „Nat-
ure“ og fór veglegum orðum um
framgang rannsóknanna og batt
miklar vonir við efnin. í sam-
anburði við krabbameinslyfið
interferon sagði Dernych að
innan tíðar myndi interferon
vera gersamlega úrelt og ónot-
andi þar sem umrædd tvö efni
muni skáka því. „Þessi efni ráð-
ast beint á krabbameinsfrum-
urnar og vinna á þeim og eru
þau hin einu efní sem þannig
vinna gegn krabbameini," sagði
Dernych.
Efni þessi eru náttúruleg og
var áður ókunnugt um eigin-
leika þeirra vegna þess að þau
eru í svo litlu magni ( likaman-
um. Þau myndast í blóðstreym-
inu, en f svo litlu magni að fram
til þessa hafa margir vfsinda-
menn efast um tilvist þeirra.
„MOKG vandamál steðja að Ind-
verjum, en ég er sannfærður um að
við leysum þau öll með þeim styrk
sem þið hafið veitt okkur,“ sagði
Kajiv Gandhi til stuðningsmanna,
sem voru saman komnir fyrir utan
heimili hans í morgun. Var þá Ijóst
að Kongressflokkurinn hefði unnið
stærri sigur en dæmi væru um frá
því Indverjar hlutu sjálfstæði frá
Bretum 1947.
Um hádegisbilið var búið að úr-
skurða sigurvegara í 427 kjör-
dæmum af 507 og hafði Kongress-
flokkurinn þá unnið 345 sæti, eða
fjögur af hverjum fimm. Tölvu-
spár bentu til þess að f fyrsta sinn
f 37 ár hlyti einn flokkur yfir 50%
atkvæða f kosningum. Sigur af
þessu tagi vann flokkurinn hvorki
undir forystu móður Rajiv, Indíru,
eða afa hans, Jawaharlal Nehru,
fvrsta forsætisráðherra landsins.
Arið 1957 hlaut flokkurinn undir
forystu Nehru 47,8% atkvæða og
371 þingsæti af 494.
Leiðtogar tveggja helztu stjórn-
arandstöðuflokkanna, A.B. Vajpa-
yee fyrrum utanrfkisráðherra og
Chandra Shekhar, náðu ekki
endurkjöri, töpuðu báðir fyrir
frambjóðanda Kongressflokksins.
Tveir kommúnistaflokkar stórtöp-
uðu, flokkur er styður málstað
Kfnverja hlaut 12 sæti en hafði 36
og flokkur á Moskvulinunni hlaut
3 sæti en hafði 13. Janataflokkur
Shekhar hafði hlotið 8 sæti en
hafði 21 og klofningsflokkur A.B.
Vajpayee 2 en hafði 16. Stærsti
stjórnarandstöðuflokkurinn eftir
kosningar verður Telegu Desam-
flokkur fyrrum kvikmyndastjörn-
unnar Rama Rao, sem hafði hlotið
25 sæti. Bauð flokkurinn aðeins
fram í Andra Pradesh.
Indversk blöð spá þvi i dag að
þegar Rajiv tilkynni ráðherralista
sinn muni vanta þar mörg nöfn er
hann hlaut f arf frá móður sinni.
Stjórnin sver líklega embættiseiða
á mánudag. Hins vegar eiga menn
ekki von á þvf að Rajiv sveigi af
þeirri stjórnarstefnu sem móðir
hans markaði. Auk stórsigurs
Kongressflokksins vann Rajiv
mikinn persónulegan sigur á Men-
aka Gandhi, mágkonu sinni, f Am-
ethi f Uttar Pradesh, hlaut 314.878
atkvæði en Menaka 50.163.