Morgunblaðið - 05.02.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.02.1985, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR MEÐ 12 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI STOFNAÐ 1913 29. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Comorra á bak við lás og slá Lögreglumaður stendur fyrir framan eitt af sautján fangelsisbúrum þar sem 252 meðlimir glæpasamtak- anna Nuova Comorra Organizzata eru geymdir, á meðan réttarhöld yfir þeim fara fram. Comorra er annað heiti á mafíunni í Napólí á Ítalíu, en þar var þessi mynd tekin við upphaf réttarhaldanna yfir Comorra-samtökunum í gær. Sjá nánar frétt á bis 22. Bretland: Yfir 2.300 kola- námumenn til r * vinnu a ny 1 gær London, 4. febrúar. AP. FLEIRI námamenn sneru aftur tii vinnu í dag en Indland: Coomar Narain játar á sig njósnir Seldi ríkisleyndarmál til erlendra aðila í 25 ár Nýju Delhi, 4. febrúar. AP. INDVERSKUR kaupsýslumaður, ('oomar Narain, viðurkenndi í dag að hafa undanfarin 25 ár selt ind- versk ríkisleyndarmál til annarra landa, aðallega þó Póllands, Austur- Þýzkalands og Frakklands. Narain er talinn vera höfuðpaurinn í njósna- máli því, sem nú er komið upp í Indlandi og er hið umfangsmesta sinnar tegundar frá því að landið hlaut sjálfstæði. Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands leysti í dag tvo ráðherra í stjórn sinni frá störfum. Var annar þeirra M.C. Sarin, sem fór með yfirstjórn á hergagnafram- leiðslu í landinu en hinn var J.S. Baij al, aðstoðarfj ármálaráðherra. Samtímis var rannsókn hafin á hvarfi mikilvægra leyndarskjala frá ráðuneytum þeirra. Coomar Narain játaði í dag á sig njósnir. Tilgreindi hann tvo franska sendistarfsmenn og einn pólskan úr hópi þeirra manna, sem keypt höfðu af honum leyni- legar upplýsingar, er hann hafði komizt yfir hjá ýmsum háttsett- um embættismönnum í Indlandi. Hvorki franska stjórnin né franska sendiráðið í Nýju Delhí hafa viljað segja neitt um málið, en Alain Bolley, hernaðarráðu- nauti sendiráðsins var vísað burt frá Indlandi 20. janúar sl. Sendi- ráð Austur-Þýzkalands og Pól- lands í Nýju Delhí hafa ekki held- ur fengizt til þess að tjá sig um þær ásakanir, að njósnir hafi ver- ið stundaðar þaðan. Svíþjóð Hægri flokkurinn vinnur á Stokkhólmi, 4. febr. Frá fréttariUra Mbl. NÝJASTA skoðanakönnun SIFO-stofnunarinnar í Svíþjóð bendir til að Hægri flokkurinn (Moderaterna) sé enn að auka fylgi sitt og njóti nú fylgis um 31 % kjósenda. Miðflokkurinn, sem gerði fyrir stuttu bandalag við Kristilega lýðræðisflokkinn, fær minna fylgi en nokkru sinni áður, eða níu prósent. Kristilegi lýðræðisflokkur- inn virðist hafa grætt á þessu bandalagi og fær í fyrsta skipti þau 4 prósent sem þarf til að koma manni á þing. Jafnaðarmenn hafa aukið fylgið nokkuð frá síðustu skoð- anakönnun og hafa nú 40,5 prósent, sem er 1,5 prósent aukning frá því síðasta könn- un var gerð. Kommúnistar fá fimm prósent, en höfðu sex prósent í síðustu athugun. Þjóðarflokkurinn fær 9,5% minna en síðast. Borgara- flokkarnir hafa 8% meira fylgi en jafnaðarmenn og kommúnistar. nokkru sinni fyrr á einum degi, síöan verkfall brezkra koianámamanna hófst. Skýröi stjórn ríkisreknu kolanám- anna frá þessu í dag. Sagði í tilkvnningu hennar, að 2.318 „ný andlit“ hefðu birzt við upphaf vinnudags í morgun. Flestir höfðu verkamenn, sem tóku upp vinnu á ný, áð- ur verið 2.282 hinn 19. nóv- ember sl. Ástæðan fyrir því, hve margir verkamenn taka upp vinnu nú, er talin sú, að viðræður til lausnar verkfallinu hafa farið út um þúfur. Arthur Scargill, leið- togi kolanámamanna reyndi að vísu að vekja nýjar vonir um lausn á verkfallinu með samn- ingum í dag, er hann sagði, að stjórn kolanámanna hefði sent sér „sennilega sáttfúsasta bréf- ið, sem við höfum fengið i marga mánuði“. Scargill gerði hins vegar enga frekari grein fyrir þessu bréfi og Michael Eaton, talsmaður stjórnar kolanámanna, sagðist í dag ekki vita til þess, að þetta bréf hefði verið sent. Sagði Eat- on ennfremur, að námamenn væru „að láta í ljós sína eigin afstöðu til verkfallsins með því að taka upp vinnu á nýjan leik, því að það er eina leiðin til að tjá forystumönnum samtaka þeirra, að þeir vilji hætta verk- fallinu og ná samkomulagi með samningum". Coomar Narain Stjórnvöld á Ítalíu: Alþjóðlegt átak gegn hryðjuverkum nauðsyn Vilja kalla saman sérstakan ráðherrafund Evrópubandalagsins Kóm, 4. febrúar. AP. ÍTALIR hyggjast leggja til að efnt verði til sérstaks ráðherrafundar ríkja F'vrópubandalagsins til að ræða aukin umsvif hryðjuverkamanna í Vestur-Evrópu að undanförnu. Það var blaðafulltrúi Luigi Scalfaro, inn- anríkisráðherra Ítalíu, sem greindi frá þessu í Róm í dag. ítalir, sem nú sitja í forsæti í ráðherranefnd Evrópubanda- lagsins, hyggjast einnig hafa samráð um þessi mál við stjórn- völd ríkja utan bandalagsins, s.s. í Júgóslavíu og á Spáni. Scalfaro, sem hefur ekki leynt þeirri skoðun sinni að hryðju- verkin í Evrópu að undanförnu kunni að hafa verið skipulögð í kommúnistaríkjunum, fer á morgun til Madrid og hittir þar að máli Jose Barrionuevo, inn- anríkisráðherra. Hann hefur þegar átt viðræður við ráðherra í Frakklandi, Belgíu, Hollandi og Lúxemborg og fyrirhugaðar eru viðræður hans og Leons Brittan, innanríkisráðherra Bretlands, í Róm innan skamms. Þá er einnig fyrirhugað að Scalfaro ræði um hryðjuverka- starfsemi og eiturlyfjasölu í Vestur-Evrópu við ráðamenn í Belgrad í Júgóslavíu síðar í þess- um mánuði. Að sögn blaðafulltrúa Scalfar- os hafa Italir miklar áhyggjur af þeirri öldu hryðjuverka, sem að undanförnu hefur gengið yfir Evrópu. Hann sagði að nauð- synlegt væri að bregðast við þeim með alþjóðlegu átaki. Scalfaro sagði sjálfur eftir að honum höfðu borist tíðindin um morðið á vestur-þýska iðjuhöld- inum Ernst Zimmerman, sem kom í kjölfar morðsins á franska hershöfðingjanum Rene Audran og sprengjuárása á mannvirki Atlantshafsbandalagsins i Belgíu og Portúgal: „Hér er ekki lengur um skæruliðabaráttu að ræða. Þetta er stríð, háð með nýjum hætti." „Það er augljóst," sagði blaða- fulltrúi ráðherrans, „að engin tilviljun ræður því hver skot- spónn hryðjuverkamannanna er. Það er ekki lengur um að ræða einangraða hópa hermdar- verkamanna í einstökum lönd- um, s.s. Rauðu herdeildirnar á Ítalíu og Rauða herflokkinn í Vestur-Þýskalandi, heldur einn alþjóðlegan hóp ódæðismanna.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.