Morgunblaðið - 05.02.1985, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 05.02.1985, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985 Skoda aftur í efstu sætunum SKODA-ökumennirnir Baldur Hlöðversson og Gunnlaugur Rögnvaldsson endurtóku leikinn frá fyrri helgi er þeir náðu fyrsta og öðru sæti í ísaksturs- keppni Bifreiðaíþróttaklúbhs Reykjavíkur á Leirtjörn á sunnudaginn. Varð Baldur fyrstur á Skoda 130 L, en Gunnlaugur annar á sama bfl og var þetta því önnur keppnin í röð, sem þcir ná þessum árangri. Þriðji varð Kristján Ari Einarsson á VW-„bjöllu“, en aðeins sekúndubrotum á eftir honum þeir Ari Arnórsson og Hjörleifur Hilmarsson, Tuttugu keppendur tóku þátt í ísakstrinum og var keppnin mun tvísýnni en helgina áður. Tíu bíl- anna komust í úrslit, þar af fimm sem þóttu líklegastir til afreka. Baldur hafði verið flótastur á Skoda-bílnum, en Ari kom honum næstur á Toyota Hjörleifs, sem náði þriðja besta tíma, sekúndu- broti á undan Skoda Gunnlaugs. Kristján á VW var síðan skammt undan þessum bílum á tíma. Fyrstur af þessum ökumönnum í úrslitaaksturinn var Gunnlaugur á Skoda, fékk hann tímann 1:12,7, besta tíma dagsins, eftir að hafa fengið tvær tilraunir við að aka hringlaga ísilagða brautina, sem var afmörkuð með dekkjum. Var betri tíminn úr tveim hringjum látinn gilda. Kristján á VW þeysti næstur af stað og ók vel, bætti eigin tíma úr undanúrslitum um þrjár sekúndur og var 1:14,3 mín- sem skiptust á að aka Toyota Starlet. útur á leiðinni um ísinn. Toyota Hjörleifs reif sig næst af stað og fór bíllinn greitt, þrátt fyrir að vélin væri ekki yfir drifhjólunum í afturdrifnum bílnum. En tími hans, 1:14,7, nægði ekki til að ná efstu sætunum. Meistari síðustu keppni, Baldur á Skoda, tók nú til við aksturinn, sló undantöldum mönnum við með öryggi og yfir- vegun, hlaut tímann 1:11,6 mínút- ur og nældi í fyrsta sætið. Þá var aðeins eftir að sjá hvort Ari á Toyota gæti gert efstu mönnum einhverja skráveifu. Hann ók grimmt og var svo upptekinn af akstrinum að hann fór aukahring! En tími Ara, 1:14,6 nægði aðeins til fjórða sætis. Trónuðu því Bald- ur og Gunnlaugur enn á ný á toppnum á Skoda, en Kristján á VW nældi í þriðja verðlaunasætið, rétt á undan Ara og Hjörleifi á Toyota Starlet-bílnum. Jón S. Halldórsson Baldur Hlöóversson (Lv.) sigraði í ísakstri BÍKR um helgina, en Gunnlaugur Rögnvaldsson varð annar á sama bfl, Skoda 130 L. Glæsilegt frá Bing & Gröndahl Hinar gullfallegu og eftirspuröu styttur frá Bing og Gröndahl eru komnar: Sjáv- arbörn, Pínurnar, og Börn að leik, ásamt nýrri seríu, Dyggðirnar 3, Tala ekki, Sé ekki, Heyri ekki. Stílhnífapör í þýsku gæðastáli, spegilslípuð og með 23 karata gyllingu 24, 30, 36 eöa 72 stk. í glæsilegum gjafakössum. Einnig selt í stykkjatali. Sl RAMMAGERÐIN KRISTALL& POSTULÍN HAFNARSTRÆTI 19 Mælskukeppni MORFÍS: Fjórir skólar eftir í LOK janúar lauk 3ju umferð mælsku- og rökræðukeppni fram- haldsskóla á íslandi. Af þeim 19 skólum sem upphaflega hófu keppni í MORFÍS eru nú eftir fjórir sem keppa í undanúrslitunum 14. febrúar næstkomandi. Dregið verður til undanúrslita sunnudaginn 3. febrúar og skólum tilkynnt strax að því loknu hver andstæðingur verði og hvort þeir eigi að útvega dómara. Úrslit 3ju umferðar voru sem hér segir: MR sigraði Fjölbraut í Ármúla, Flensborg í Hf. sigraði Kvennaskólann og Framhalds- deild Samvinnuskólans sigraði Fjölbraut Suðurnesja. MORFÍS hefur hlotið að gjöf tölvu frá tölvufyrirtækinu Sterío sem reiknar úr dómsblöðum og hefur þess vegna biðtími eftir úr- slitum úr keppni styst til muna. Siglufjörður: Hættir hjá Þormóði ramma hf. Siglufirði, 4. febrúar. EINAR Sveinsson, framkvæmda- stjóri Þormóðs ramma hf., hefur sagt starflnu lausu. Hann tekur við starfl framkvæmdastjóra Sjólastöðv- arinnar í Hafnarflrði í lok marz. Einar Sveinsson tók við Þor- móði ramma þegar gagngerar breytingar voru gerðar á fyrir- tækinu í fyrra. Síðan hefur rekst- ur fyrirtækisins orðið allur annar og betri og á Einar ekki minnstan þátt í þeim ánægjulegu breyting- um. Er Siglfirðingum mikil eftir- sjá af Einari. Honum fylgja beztu óskir á nýjum vettvangi. Starf framkvæmdastjóra Þor- móðs ramma hf. var auglýst laust til umsóknar í Morgunblaðinu á sunnudaginn. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar. Vonandi verðum við Siglfirðingar jafn heppnir með nýjan mann og við vorum með Einar. — m.j.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.