Morgunblaðið - 05.02.1985, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 05.02.1985, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985 Þegar ég var krakki höfðum við enga fyrirmynd! Skil ég það rétt, að beiðni minni um launahækkun sé synjað? HÖGNI HREKKVÍSI „Nién pyKlfZ f’APLE/TT, pBTTA AtéP NCT/P. * Nú hefur Friðþægingarkirkjan við Berlínarmúrinn endanlega verið jöfnuð við jörðu en mynd þessi var tekin þegar að kirkjuskipið var sprengt þann 22. janúar. Eyðileggingu a-þýsku kirkjunnar verði mótmælt Heiðraði Velvakandi: Þann 28. jan. sl. jöfnuðu austur-þýsk yfirvöld Friðþæg- ingarkirkjuna við Berlínarmúr- inn endanlega við jörðu með sprengiefni. Astæðan var sú, að nokkrir Austur-Þjóðverjar hafa á undanförnum árum flúið vest- ur yfir í skjóli kirkjuveggjanna. Yfirvöld ákváðu því að brjóta þessa lútersku kirkju niður til þess að auðveldara væri fyrir „alþýðulögregluna" að skjóta niður fólk, sem reyndi að flýja land á þessum slóðum. Sá sem þetta ritar, hefur sjaldan litið dæmi um fólskulegri helgispjöll og guðníð en sjá má af þessari mynd. Nú vil ég spyrja Bernharð Guðmundsson fréttafulltrúa Þjóðkirkjunnar, hvað heims- samtök lúterskra manna hafi gert til að mótmæla þessum verknaði? Ef þau hafa ekkert að- hafst, hljótum við, sem skráð er- um í hina evangelísku-lútersku kirkju landsins, að ætlast til þess að íslenska Þjóðkirkjan hafi frumkvæði að því að láta senda þeim sem kirkjuna brutu, harð- orð mótmæli, áður en þeir hefja manndráp á rústum hennar. Lokaspurningin er því þessi: Vill Þjóðkirkjan taka frumkvæði í þessu máli? Sóknarbarn. Þessir hringdu . . . Tekið verði á málum hús- næðiskaupenda Kona hringdi: Á ekkert að gera fyrir okkur íbúðareigendur sem getum ekki lengur staðið í skilum vegna húsnæðiskaupa? Á bara að hugsa um þá sem byggja eða kaupa sér þak yfir höfuðið í framtíðinni? Við hin sem sitjum í súpunni vegna verðtryggðra lána og óhag- stæðra skammtímalána virð- umst algerlega hafa gleymst. Þessu mætti líkja við að einung- is væri hugsað um að fyrir- byggja hungur í Eþíópíu en ekk- ert gert fyrir þá sem þessa stundina eru að deyja úr hungri. Væri vit í slíku? En nú er mál til komið að við sem ekki lengur rísum undir af- borgunum af húsnæðislánum stofnum með okkur samtök og krefjumst leiðréttingar okkar mála. Við erum hinir almennu skattgreiðendur sem borgum brúsann fyrir þessi nýju bygg- ingarfélög s.s. Búseta. En nú segjum við stopp. Nú verður að taka á málum okkar sem erum að kikna undan afborgunarbyrð- inni í dag, en ekki bara tala um þá sem byggja munu í framtíð- inni. Fyrir stuttu var þáttur um húsnæðismál í sjónvarpi í umsjá Páls Stefánssonar fréttamanns. Alexander Stefánsson félags- málaráðherra, sem sat fyrir svörum, var sérstaklega spurður um okkur sem nú erum í krögg- um. Langar mig að spyrja Alex- ander hvort hann hyggist standa við það sem hann sagði í þessum þætti. Hver fengi að fara? Gitta hringdi: Núna undanfarna daga hafa krakkar verið að skrifa sem brjálaðir um það að efnt verði til tónleikaferðar til að sjá Duran Duran, þá stórgóðu hljómsveit. Það væri að sjálfsögðu gaman að fá að berja goðin augum en krakkar, hvað með mömmu og pabba? Já, aldrei datt ykkur það í hug. Hvaða foreldrar haldið þið að muni leyfa börnum sínum á aldrinum 7 til 14 ára að fara á trítilóða tónleika einhvers stað- ar úti í heimi? Allir sem eru með heilann á réttum stað hljóta að sjá þetta. Hvernig væri að við Duranist- arnir stæðum frekar saman og héldum áfram að biðja um Dur- an Duran til landsins? Að lokum vil ég þakka sjónvarpinu fyrir hvoratveggju tónleikana sem hafa verið með Duran Duran með von um að sjá fleiri af því tagi. Stundin okkar verði bætt Ingunn hringdi: Ég er svo óánægð með Stund- ina okkar þessa dagana. Það er leiðinlegt að horfa á mann sitja og spila á gítar. Heldur vildi ég að sýnd væru fleiri leikrit, spurningakeppnir og sagðir brandarar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.