Morgunblaðið - 05.02.1985, Page 3

Morgunblaðið - 05.02.1985, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985 3 Helgi Tómasson ráðinn aðalstjórn- andi San Francisco-dansflokksins San Francisco, 4. febrúar. Frá Magnúsi l>rándi I»órrtarsyni. HELGI Tómasson var í gær ráðinn aðalstjórnandi San Francisco-dansflokks- ins. Hann hlaut yt'irgnæfandi meirihluta atkvæða stjórnarinnar. Helgi er ráðinn til þriggja ára og mun hefja störf í júlí. Það var ljóst fyrr í vikunni að stjórnin sóttist eftir Helga í starf- ið. Dansararnir lögðust hins vegar ntjög gegn honum og gáfu út yfir- lýsingu í því tilefni og lýstu jafn- framt stuðningi sínum við Michael Veðurfar í janúar 1985: ÓVENJUHLÝTT var fram yfir miðj- an janúarmánuð á landinu. Sfðan skipti um og frá og með 18. janúar hefur verið samfellt frost. í Reykjavík var hlýjast dagana 15. og 16. janúar, en þá komst há- marskhitinn upp í 6,5 stig. Meðan á hlýindakaflanum stóð var mjög snjólétt um allt land, en eftir miðjan mánuðinn fór að snjóa fyrir norðan. Seinni part mánaðarins hefur yfirleitt verið stillt veður. Þó var tvisvar sinnum stormur í Reykja- vík. Þann 1. janúar voru 9 vindstig og mikil rigning og þann 12. janú- ar voru 10 vindstig og þá rigndi einnig mjög mikið. Að sögn Óddu Báru Sigfúsdótt- ur veðurfræðings er janúar í ár ólíkt betri en í fyrra. Þá var oft suð-vestanátt og gerði það að verkum að veðrið var mjög slæmt hér fyrir sunnan. Nú eru áttirnar aftur á móti austlægari, austan- og sunnanáttir í hlýindunum og norðan- og norð-austanáttir á kalda tímabilinu. í fyrra var alhvít jörð á Akur- eyri allan janúarmánuð. Snjódýpt var yfirleitt alltaf yfir 20 senti- metrar. Nú var þar alauð jörð fram til 17. janúar og snjódýptin eftir það 10—20 sentimetrar. í Reykjavík fór snjódýpt oft yfir 20 sentimetra í janúar 1984 og alhvít jörð allan mánuðinn. En nú var alhvít jörð í aðeins fjóra daga og snjódýpt 2—4 sentimetrar. Meðalhiti í Reykjavík var 0,1 stig og er það hálfu stigi hlýrra en í janúar á árunum 1931—1960 og heilu stigi hlýrra en á árunum 1971—1980. Úrkoman var 80 mm í Reykjavík og er það 10% minna en í meðalári. Sólskinsstundir í Reykjavík voru um 22 og er það rétt um meðallag. Norður á Akureyri var meðal- hiti +2,4 stig og það er 0,8 stigum undir meðallagi. Úrkoma á Akur- eyri var 30 mm og sólskin mældist Dregið úr leit að piltinum LEIT að Hafþóri Má Haukssyni, 18 ára pilti, sem hvarf að heiman frá sér 20. janúar síðastliðinn, hefur engan árangur borið. Dregið hefur verið úr leit að Hafþóri, því engar nýjar vísbendingar hafa komið fram um afdrif hans. Kafarar leituðu í höfninni í Borgarnesi um helgina. Sú leit bar ekki árangur. Hafþór Már er 175 sentimetrar á hæð með ljóst hrokkið hár. Hann var klæddur í svartar leðurbuxur, svartan mitt- issíðan leðurjakka og hvíta skyrtu þegar hann fór að heiman frá sér þann 20. janúar. Hann fór á bif- reiðinni X-5571, sem er Willys- jeepster-jeppi, árgerð 1967, blágrá að lit með svörtum toppi. Þeir sem kunna að hafa orðið Hafþórs varir eru vinsamlega beðnir um að láta lögregluna vita. Smuin, sem unnið hefur lengi við flokkinn og sóttist mjög eftir starfinu. Fundu dansararnir Helga helzt til foráttu reynslu- leysi og þekkingarskort á flokkn- um og þeim hefðum, sem hann í 14 klukkustundir og er það það mesta sem mælst hefur í janú- armánuði síðan 1941. Meðalhiti á Hveravöllum var +7,3 og er það svipað og í meðalári. byggir á. Þeir töldu hann einnig fáskiptinn og kuldalegan. Aðal- áhyggjuefnið er hins vegar talið hafa verið, að Helgi kynni að fyrirskipa afgerandi breytingar á dansstíl flokksins og taka upp stíl læriföður síns, George Balanchine. Balanchine-aðferðin krefst mikils vöðvaálags og orsakar oft meiðsl, sem styttir feril dansaranna. Helgi átti einkafund með döns- urunum í kjölfar yfirlýsingarinn- ar til þess að ná betra sambandi við flokkinn, heyra áhyggjuefni og eyða misskilningi. Það virðist hafa tekizt, því að í lok fundarins höfðu menn ekkert nema gott eitt um Helga að segja. Að tillögu hans mun verða ráð- inn listrænn framkvæmdastjóri að flokknum, sem sjá mun um daglegt þras. Mun Helgi því geta helgað sig fagurfræðinni og samn- ingu dansa, en þar liggur hans sterka hlið. Helgi Tómasson verður form- lega boðinn velkominn og óskað til hamingju af borgarstjóra San Francisco, Dianne Feinstein, í fyrramálið. Helgi, sem nú er 42 ára, lauk dansferli sínum á sunnudaginn var á sýningu hjá New York City Ballet. Hann hóf feril sinn 1958, en var ráðinn til New York City Ballet 1970. Hann kaus að enda á „Divertimento" úr „Le Baiser de la Fée“ eftir Stravinsky, sem Bal- anchine samdi fyrir hann, en í því verki kom Helgi einmitt fyrst fram með New York-dansflokkn- um. Þar er að finna mjög frægt og erfitt sóló, sem Helgi mun hafa dansað af sérstakri snilld þennan sunnudag. Samkvæmt frétt í New York Times gáfu áhorfendur til- finningunum lausan tauminn, risu allir úr sætum að lokinni sýning- unni og margklöppuðu Helga fram. Stjórnendur flokksins, Jer- ome Robbins og Peter Martins, þustu upp á sviðið og tóku Helga í fang sér. Hann tók þessu öllu af sömu reisn og hæversku, sem ein- kennir listsköpun hans og hefur skipað honum í flokk fremstu dansara heims. Helgi Tómasson Hið nýja starf opnar nýjar leið- ir fyrir Helga. Hann hefur þegar getið sér gott orð sem danshöf- undur og mun geta þroskað þá gáfu sína vel hér í San Francisco. San Francisco Ballet hefur gott orð á sér og er óumdeilanlega í flokki beztu dansflokka Banda- ríkjanna. Flokkurinn er í miklu uppáhaldi hér og gegnir veiga- miklu hlutverki í fjölbreyttu lista- lífi borgarinnar. Flokknum eru nú greinilega ætluð enn frekari átök til fullkomnunar og Helga stórt hlutverk. Ráðning hans er því meiriháttar viðburður. Hefur þú góðan smekk? Ef svo er átt þú erindi til okkar. Við teljum okkur vera svolítið sér á báti í hönnun og fam- leiðslu á vönduðum innréttingum. Við ffamleiðum eldhússkápa, baðskápa, fataskápa, stiga, hurðir, handrið og ýmsa sérhluti, Við smíðum einnig utan um hugmyndir þínar. Smiðir okkar sérsmíða að óskum þínum og útkoman er góð þegar lögð eru saman fagleg vinnubrögð, gott hráefni, falleg hönnun og smekkur kaupandans. I Óvenjuhlýtt framan af en skipti síðan í samfellt frost

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.