Morgunblaðið - 05.02.1985, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985
5
Minni halli á vöru-
skiptum við útlönd
— en spár gerðu ráð fyrir
í DESEMBERMÁNUÐI árið 1984 voni fluttar út vörur fyrir um 2.825 millj.
kr. fob. en inn voru fluttar vörur fyrir 3.278 millj. kr. cif. Vöruskiptajöfnuð-
urinn, reiknaður á þennan hátt, var því óhagstæður um 453 millj. kr. Sé
innflutningurinn hins vegar reiknaóur á fob.-verði, eins og gert er í íslensk-
um þjóðhagsreikningum og þjóðhagsspám, var vöruskiptajöfnuðurinn í des-
ember óhagstæður um 147 millj. kr, segir í frétt frá Hagstofu íslands.
Allt árið 1984 voru fluttar út
vörur fyrir 23.761 millj. kr. fob. en
inn voru fluttar vörur fyrir 26.744
millj. kr. cif. Reiknaður á þennan
hátt, var vöruskiptajöfnuðurinn
því óhagstæður um 2.984 millj. kr.
Sé vöruinnflutningurinn á árinu
1984 reiknaður á fob.-verði reynist
hann hafa numið 23.897 millj. kr.
Eftir þessum uppgjörsmáta, var
vöruskiptajöfnuðurinn því óhag-
stæður um 136 millj. kr. Þetta er
364 millj. kr. minni vöruskipta-
halli en gert var ráð fyrir í spám
Þjóðhagsstofnunar í lok sl. árs, en
því veldur meiri útflutningur en
spáð var.
Séu hlutfallslegar breytingar
vöruskiptanna við útlönd frá ár-
inu 1983 til ársins 1984 bornar
saman við meðalbreytingu á verði
erlends gjaldeyris (m.v. viðskipta-
vog) fæst sú niðurstaða, að vöru-
útflutningurinn á árinu 1984 hafi
reynst rösklega 9% meiri á föstu
gengi en árið áður. Þar af jókst
útflutningur sjávarafurða um 7%,
útflutningur á áli dróst saman um
4% en verðmæti annarrar út-
Jón Dan.
99
fluttrar vöru jókst um rösklega
9%, á föstu gengi. Vöruinnflutn-
ingurinn fob. reyndist nær 13%
meiri á föstu gengi árið 1984 en
árið 1983. Ef frá eru taldir ýmsir
liðir innflutningsins, sem oft eru
flokkaðir sérstaklega, þ.e. skip og
flugvélar, innflutningur til stór-
iðju, stórvirkjana og til flugstöðv-
arbyggingar, en á föstu gengi eru
þessir liðir alls svipaðir árin 1983
og 1984, kemur fram að annar
vöruinnflutningur hefur á föstu
gengi reynst 14 Vfe % meiri árið
1984 en á árinu 1983.
Helgi Skúlason í hlutverki sínu í Hrafninn flýgur.
U
„Hrafninn flýgur
í Austurbæjarbíói
Kvikmyndin „Hrafninn flýgur" verður endursýnd í Austurbæjar-
bíói í dag og næstu daga í tilefni þess að Sænska kvikmyndaaka-
demían útnefndi Hrafn Gunnlaugsson leikstjóra ársins 1984.
„Hrafninn" hefur fengið góða aðsókn í Svíþjóð og frábæra dóma í
fjölmiðlum, að því er segir í fréttatilkynningu, sem Morgunblaðinu
barst.
Öskjuhlíð:
Sótt um
lóð undir
veitingastað
LÖGÐ hefur verið fram í borgarráði
umsókn um lóð undir veitingastð í
Öskjuhlíð. llmsóknin er lögð fram af
framreiðslumönnunum Bjarna
Oskarssyni og Úlfari G. Rafnssyni.
í umsókninni er gert ráð fyrir
að fyrirhugaður veitingastaður
verði á svæði Hitaveitu Reykja-
víkur, en þar stendur til að hefja
framkvæmdir á vegum Hitaveit-
unnar vegna endurnýjunar á hita-
vatnstönkum. Er hér endurvakin
gömul umræða um veitingastað
við hitaveitutankana í Öskjuhlíð,
sem rekja má allar götur aftur á
sjötta áratuginn. Á fundi borgar-
ráðs nýverið var erindi fram-
reiðslumannanna vísað til um-
sagnar skipulagsnefndar.
Bréf til afa“
ný skáldsaga
eftir Jón Dan
„BRÉF til afa“ heitir bók eftir Jón
Dan, sem nýkomin er út á vegum
Bókaklúbbs Arnar og Örlygs. Sagan
fjallar um tvö systkin, Munda og
Fríðu og leit þeirra að öryggi í and-
snúinni veröld. Áður hefur Jón Dan
skrifað sögur fyrir böm og unglinga
og má þar nefna smásögurnar
„Kaupverð gæfunnar" og „Á ferð í
myrkri“. Ennfremur skáldsögurnar
„Speilvirki“, sem út kom 1981 og
„Viðjar" á síðastliðnu ári.
í kynningu á „Bréfum til afa“ í
fréttabréfi bókaklúbbsins segir
m.a. um þessa nýju bók: „Sagan er
í senn raunsæ og ævintýraleg ...
Hverja myndina af annarri ber
fyrir sjónir lesanda sem dokar við
og skyggnist bak við barnslega
frásögn drengsins. En samtímis
því sem atburðarásin líður fram
hillir öðru hverju undir aðra sögu:
þá sögu, sem gerist á sjúkrabeði
hans sjálfs. Sárindi hans og trún-
aðartraust, sveiflur hans milli
ótta og bjartsýni, rósemi hans og
sú „guðfræði" sem þau systkin
hafa komið sér upp, allt fær sinn
stað og tíma.
Sagan er lýsing úr hörðum
heimi en í raun og veru lofgjörð tii
hins góða.“