Morgunblaðið - 05.02.1985, Síða 18

Morgunblaðið - 05.02.1985, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985 — eftir Hjálmar H. Ragnarsson Saga íslenzkrar píanótónlistar er hvergi til skráð, og einu heim- ildirnar sem í raun er hægt að fá um þetta svið íslenzkrar tónlistar eru verkin sjálf. Skrá íslenzkrar tónverkamiðstöðvar yfir íslenzka píanótónlist telur tæplega 50 verk. Þessi verk eru af ólíkum toga og af mjög mismunandi stærðargráð- um, allt frá stuttum „söngvum" til viðamikilla lagasafna og verka í stærri formum. í ofangreindri skrá eru aðeins talin tvö þekktustu píanóverk Sveinbjarnar Sveinbjörnssonar (1847—1927), en hann mun vera fyrsta íslenzka píanótónskáldið. Þessi verk eru IDYL og VIKI- VAKI, sem bæði hafa notið vin- sælda fram á þennan dag. Pianó- verk Sveinbjarnar munu hins veg- ar vera nær tuttugu talsins auk ýmissa útsetninga. Jón Þórarins- son segir svo um píanótónlist Sveinbjarnar: Ritháttur Sveinbjörns fyrir pí- anóið ber því vitni, að þar er hann heima hjá sér, ef svo mætti segja. Músíkin „liggur" vel og eðlilega fyrir hljóðfærið og er yfirleitt auðveld í meðför- um án þess þó að verða barna- lega einföld. Það eru hinir ljóð- rænu eiginleikar hljóðfærisins, sem bezt njóta sín í verkum hans... Línurnar í píanóverk- um hans eru „sönglínur", sem hagrætt er fyrir hljóðfærið af manni nákomnum og nákunn- ugum því, en engum „virtúós". Nýir vindar Áhugi annarra íslenzkra tón- skálda á fyrri hluta þessarar aldar á því að semja píanótónlist virðist hafa verið mjög takmarkaður. Tónskáld eins og Páll ísólfsson (1893-1974) og Jón Leifs (1899—1968) sömdu vissulega verk fyrir píanóið, en þau eru öll minni háttar sé tekið mið af öðrum tón- smíðum þeirra. Það er ekki fyrr en eftir síðari heimsstyrjöldina, að veruleg gróska færist í þetta svið tónsköpunar á íslandi. Ný kynslóð kveður sér hljóðs og nýir vindar blása erlendis frá. Jón Þórarins- son semur SÓNATÍNU (1945), og Jón Nordal KONSERT fyrir píanó og hljómsveit (1956), sem mun vera fyrsti íslenzki píanókonsert- inn. Leifur Þórarinsson kveður sér myndarlega hljóðs með SÓNÖTU (1957), sem Rögnvaldur Sigur- jónsson flutti víða um lönd, og síð- ast en ekki sízt kemur fyrsta ís- lenzka tólftónaverkið, FJÓRAR ABSTRAKSJÓNIR (1951), fyrir píanó úr smiðju Magnúsar Blönd- als Jóhannssonar. Þjóðhættulegir menn Með tónlist Magnúsar Blöndals og annarra „ungra tónskálda" á sjötta og sjöunda áratugnum má Hjálmar H. Ragnarsson. „Árangur þrotlausra til- rauna og vinnu síðustu áratuga kemur nú tónskáldum til góða. Formin stækka og tung- umálið dugir til stærri átaka segja að orðið hafi bylting í ís- lenzkri tónlist. Nýjar aðferðir, ný hljóð, ný hljóðfæratækni og ný viðhorf, sem voru gjörsamlega á skjön við almennar skoðanir í tónlist, voru flutt inn til landsins, varnarlausum tónlistarunnendum til miklillar skelfingar. Viðbrögð fólks létu ekki á sér standa og hlutu sum þessara skálda þann vafasama heiður að flokkast í hóp þjóðhættulegra manna. Til þess að koma þessum nýju hugmyndum í búning völdu menn oft á tíðum píanóið. Af píanó- tónsmíðum þessarar nýju bylgju má nefna SONORITIES I—III (1963—68) eftir Magnús Blöndal, MENGI (1966) eftir Atla Heimi Sveinsson, KLASA eftir Leif Þór- arinsson og FRUM (1967) eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Þessi verk eiga það ekki sízt sameiginlegt, að i þeim nota höfundarnir nýja hljóma og hljómasambönd og nýj- ar aðferðir til hljóðmyndunar, sem gefa aðrar tegundir tónblæs en menn áttu að venjast. Aðrir höfundar gengu ekki svona langt í tilraunum sinum til sköpunar nýs hljóðheims, en lögðu þeim mun meiri áherzlu á tón- byggingu verkanna. í þessu sam- bandi má nefna FIMM SKISSUR (1958) eftir Fjölni Stefánsson, en það verk er í allfrjálslegum tólf- tónastíl, en hvað form og notkun hljóðfærisins snertir er verkið fremur hefðbundið. Píanóverk af enn öðrum toga er BAROKK SVÍTA (1964) eftir Gunnar Reyni Sveinsson, sem hann samdi í til- efni af að hafa verið beðinn af hollenzkum tónlistarunnanda að útvega alla þá íslenzku barokk- tónlist, sem til væri á nótum. Ný bylgja Á áttunda áratugnum grípur um sig nokkur deyfð í íslenzkri píanótónsmíð þrátt fyrir að á flestum öðrum sviðum tónsköpun- ar sé mikill uppgangur. Undan- tekningin sem sannar regluna er Þorkell Sigurbjörnsson, sem á þessum tíma semur þrjú píanótón- verk: DER WOHLTEMPERI- ERTE PIANIST (1971), SO (1973), bæði verkin samin fyrir Halldór Haraldsson og síðast en ekki sízt HANS VARIATIONER (1979) sem samið var fyrir sænska píanó- leikarann Hans Palsson. Af öðrum verkum frá þessum tíma má nefna SÓNÖTU VIII (1973) eftir Jónas Tómasson, HVERALITI (1977) eftir Gunnar Reyni Sveinsson og píanókonsertinn SLÁTTA eftir Jórunni Viðar, en sá konsert hefur því miður ekki heyrzt frá því hann var frumfluttur. Árið 1981 rís svo önnur bylgja í íslenzkri píanótónlist, bylgja sem ekki er enn séð fyrir endann á. Snorri Sigfús Birgisson frumflutti nýtt tónverk, ÆFINGAR, á mið- næturtónleikum í Háskólabíói, en það verk má hiklaust telja til stórbrotnustu verka íslenzkrar hljóðfæratónlistar. ÆFINGAR er flokkur tuttugu laga og eins betur, sem tónskáldið tengir hvert um sig við trompspil tarot-spilanna. Atli Heimir tekur aftur til við smíði píanótónlistar: GLORIA (1982) fyrir Önnu Málfríði Sigurð- ardóttur, UÓSIÐ OG SKUGG- ARNIR (1983) fyrir Eddu Erlends- dóttur og ÓÐUR STEINSINS (1982—83), sem er safn þrjátíu smálaga er Jónas Ingimundarson hefur leikið. John Speight semur ÞRJÁR PRELÚDÍUR 1982, Karól- ína Eiríksdóttir EINS KONAR RONDÓ 1984, Gunnar Reynir Sveinsson SVITU 1984, Hjálmar H. Ragnarsson semur FIMM PRELÚDÍUR á árunum (1983-84) fyrir Önnu Áslaugu Ragnarsdótt- ur og nú í desember og janúar semur Jónas Tómasson SÓNÖTU XV einnig fyrir Önnu Áslaugu. Þá hefur Snorri Sigfús nýlokið við gerð 25 píanólaga fyrir byrjendur, en með þessum lögum gerir Snorri djarfa aðför að þeim hugmyndum sem ríkt hafa í byrjendakennslu á píanó hér á landi. Ennfremur er undirrituðum kunnugt um nokkur meiri háttar píanóverk sem eru nú í smíðum. I því sambandi má nefna væntanlegan konzert fyrir píanó og kammersveit eftir Átla Sveinbjörn Sveinbjörnsson á yngri árum. Heimi, konzert fyrir píanó og sin- fóníuhljómsveit eftir Áskel Más- son og konzert fyrir tvö píanó og sinfóníuhljómsveit eftir Jónas Tómasson. Sameiginlegt tungutak eða ... Þessi síðasta bylgja í íslenzkum píanótónsmíðum virðist um margt ólík þeirri, sem reis á sjötta og sjöunda áratugnum. í stað til- rauna til sköpunar nýs hljóðheims og leitar að nýjum búningum fyrir nýjar hugmyndir, þá virðist nú ríkja jafnvægi á milli nýjunga og hefða, og er eins og tónskáldum séu allar leiðir greiðar sem falla innan ramma einhvers sem ef til vill mætti kalla tónlistarleg skynsemi og lógík. Árangur þrot- lausra tilrauna og vinnu síðustu áratuga kemur nú tónskáldum til góða. Formin stækka og tungu- málið dugir til stærri átaka; hljóð- færaleikarar sitja um ný verk og áheyrendur vilja hlusta og virðast óhræddir við að hafa skoðanir á tónlistinni. Það má kannski varpa fram þeirri spurningu hvort við séum að nálgast eitthvað í tónlist- inni, sem kalla mætti sameigin- legt tungutak, en færa má rök fyrir því að slíkt tungutak hafi skapað þann sameiginlega skiln- ing, sem gerði smíði meistara- verka klassíska tímabilsins mögu- lega. Getgáta sem þessi lýsir mik- illi bjartsýni á þróun tónlistarinn- ar, og væri það fagnaðarefni ef í henni fælist sannleikskorn. Ríkjandi ástand vekur hins veg- ar aðrar spurningar, sem verðar eru umhugsunar. Getur þetta ástand allt eins verið vfsbending um, að tónskáldin séu stöðnuð og að þau tyggi aðeins hvert upp eftir öðru? Er jafnvægið á milli hefða og nýsköpunar blekking, einfald- lega vegna þess að menn hafa ekk- ert nýtt að segja? Síðast en ekki sízt: Hvað með neistann sem kviknar í hinni þrotlausu leit listamannsins að nýjum sannleik, neistann sem kveikir bálið? Er einhver að leita hans? Hjálmar H. Ragnarsson er tón- skáld. V/Ð TTLKYISNUM BREYTTÆ VEXTT A INNLÆiVDlM GJÆI,T>EYRISREIK1\I1\GEM BANDARÍKJADOLLAR. 7,25% ENSK PUND........10,00% . DANSKAR KRÓNUR....10,00% 1 ÞÝSK MÖRK......... 4,00% AJ BÚNAÐARBANKIÍSLANDS TRAUSTUR BANKI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.