Morgunblaðið - 05.02.1985, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985
Napólí:
Réttarhöld yfír 250 manns
úr Camorra-samtökunum
Napólí, Ítalíu, 4. febrúar. AP.
RETTARHÖLD yfir 250 grunuðum
hófust í dag í fangelsi í Napólí. Var
sveimuóu yfir og skyttur á nálægum
Fangaverðir í fangelsinu fengu
800 manna liðsauka frá lögreglunni
til að girða fyrir, að glæpamenn, sem
ganga lausir, geti jafnað um fyrrum
félaga sína, sem leyst hafa frá skjóð-
unni við lögregluna. Öllum nálægum
götum var lokað og hunHar, sem
glæpamönnum og sökunautum þeirra
viðbúnaður lögreglunnar mikill, þyrlur
húsþökum.
þjálfaðir hafa verið til að finna
sprengjur, voru á hverju strái.
Réttarhöldin eru þau fyrstu af
þremur yfir 640 manns, sem hand-
teknir voru 17. júní árið 1983 þegar
lögreglan lét til skarar skríða gegn
Camorra-samtökunum, en þau eru
Júgóslavía:
Þrír andófsmenn
dæmdir í fangelsi
Relflnd A fohnur AP ^ *
önnur helstu glæpasamtökin í Nap-
ólí. Sakborningarnir eru af ýmsu
sauðahúsi, allt frá byssumönnum
Camorra til 57 ára gamallar nunnu,
sem er sökuð um að hafa borið skila-
boð frá Cutolo, foringja samtakanna,
sem afplánar 10 ára fangelsi, til
manna hans utan múranna. Kveðst
nunnan hafa gert það vegna áhuga
síns á að bjarga sálu hans frá kvöl-
um vítis.
Sömu sakir eru bornar á fangels-
isprestinn þar sem Cutolo afplánar
vistina, en hann var skriftafaðir
hans. Á sakborningabekknum eru
einnig Franco Califano, vinsæll
söngvari á Ítalíu, og Enzo Tortora,
kunnur skemmtikraftur í sjónvarpi.
Hinn umdeildi klettadrangur, Rockall, 80 metrar á hverja hlið og 60 metra
hár.
Belgrad, 4. febrúar AP.
ÞRÍR júgóslavneskir andófsmenn
voru í dag fundnir sekir um að út-
breiða fjandsamlegan áróður og voru
dæmdir í eins til tveggja ára fangelsi.
Noregur;
Bylting í
fiskiðnaði
Norðmenn ætla að
hasla sér völl á eftir-
líkingarmarkaðinum
Ósló, 4. febrúar. Frá Lauré,
frétUriUra Mbl.
Rannsóknastofnun atvinnuveg-
anna í Noregi hefur tryggt sér
einkaleyfi um allan heim á mjög
fullkominni, bandarískri líftækni
og binda menn vonir við, að hún
geti valdið nokkurs konar byltingu
í fiskiðnaðinum.
Mörg norsk fyrirtæki hafa áð-
ur árangurslaust reynt að kom-
ast yfir einkaleyfið á þessari
tækni, „Swanson-aðferðinni"
svokölluðu, en með henni er unnt
að nýta betur fisk, sem hingað
til hefur verið verðlítill, t.d.
loðnu og kolmunna, og gera úr
honum nýjar og verðmeiri afurð-
ir.
Með „Swanson-aðferðinni" er
hráefninu breytt þannig, að það
líkist öðru fiskmeti, sem eftir-
sóknarverðara er hjá neytend-
um. Japanir framleiða t.d. mikið
af krabbakjötseftirlíkingu og
það er á hinum stóra eftirlík-
ingamarkaði, sem Norðmenn
ætla nú að hasla sér völl.
GENGI
GJALDMIÐLA
Metgengi
dollarans
London, 4. jonúor. AP.
Bandaríkjadollar snarhækkaði í dag
og var gengi hans hærra en nokkru
sinni gagnvart gjaldmiðlum Frakk-
lands og Ítalíu. Þessu ollu likur á
hækkandi vöxtum í Bandaríkjunum,
sem fylgja muni í kjölfar á auknum
opinberum lántökum þar, en þær séu
óhjákvæmilegar sökum vaxandi halla
ríkissjóðs þar í landi.
Gengi dollarans varð í dag einnig
hærra en nokkru sinni undanfarin
12 ár gagnvart vestur-þýzka mark-
inu. Breytti þar litlu um, þótt
vestur-þýzki seðlabankinn kæmi til
skjalanna og seldi 100 millj. dollara
á opnum markaði. Þá seldi Japans-
banki 100—300 millj. dollara.
í London fengust 1,1155 dollarar
fyrir pundið (1,1250), en að öðru
leyti var gengi dollarans þannig síð-
degis í dag, að fyrir einn dollara
fengust 259,10 japönsk jen ( 255,45),
3,2065 vestur-þýzk mörk (3,1740),
2,7335 svissneskir frankar (2,6885),
9,7795 franskir frankar (9,6825),
3,6280 hollenzk gyllini (3,5855),
1.969,50 ítalskar lírur (1.954,25) og
1,3337 kanadískir dollarar (1,3275).
Hinir ákærðu gátu átt yfir höfði sér
allt að tíu ára fangelsi og þykja því
dómarnir yfir þeim fremur mildir mið-
að við það, sem búizt var við.
Mennirnir þrír eru Miodrag Milic,
sem dæmdur var í tveggja ára fang-
elsi, Milan Nikolic, sem hlaut 18
mánaða fangelsi og Dragomir Oluj-
ie, sem dæmdur var í eins árs fang-
elsi.
Af hálfu verjenda hinna ákærðu
var þessum mildu dómum lýst sem
sigri fyrir málfrelsi í Júgóslavíu.
Höfðu þeir lagt á það áherzlu í
málflutningi sínum, að tilgangurinn
með réttarhöldunum væri að kæfa
málfrelsi og koma í veg fyrir alla
umræðu um efnahagsleg og félags-
leg vandamál í landinu.
Danmörk með í slag-
inn um Rockall-svæðið
„DANSKA STJÓRNIN mun nú gera opinbera kröfu til umráðaréttar yfir
Rockall-svæðinu á Norður-Atlantshafi,“ að sögn Atla Dam, lögmanns Fær-
eyja, sem nýlega átti fund með Poul Schliiter forsætisráðherra og Uffe
Ellemann-Jensen utanríkisráðherra.
Þar með hefur danska stjórnin
ákveðið að taka þátt í slagsmálum
fjögurra vinveittra ríkja í Vest-
ur—Evrópu.
Danmörk, vegna Færeyja, Bret-
land, ísland og Írska lýðveldið
gera öll kröfu til yfirráðaréttar yf-
ir Rockall-svæðinu. Til mikils er
að vinna, og er þá ekki aðeins um
að ræða fiskveiðiréttindi, heldur
geta einnig verið í húfi gífurleg
gas- og olíuauðæfi.
Bretar urðu fyrstir til að veita
klettaeyju þessari athygli. Sendu
stjórnvöld þyrlu þangað í sept-
embermánuði 1955, öllum að óvör-
Sprengingin f Aþenu:
Tilræðismannsins
leitað í Grikklandi
Grískt blað segir hryðjuverkamenn ganga á lagið
vegna andúðar Papandreous á Bandaríkjamönnum
Aþenu, 4. febrúar, AP.
GRÍSKA lögreglan leitar nú um
land allt að hörundsdökkum manni
vegna sprengingarinnar aðfaranótt
sunnudagsins í veitingahúsi í Aþenu
en í henni slösuðust 80 manns, þar
af 69 bandarískir hermenn.
Maðurinn, sem leitað er að, kom
á veitingahusið Bobby’s Bar í
Glyfada-úthverfinu í Aþenu og
segja vitni, að hann hafi virst vera
25—30 ára gamall, dökkur á hör-
und og með skjalatösku í hendi.
Hefur lögreglan nú strangar gæt-
ur á höfnum, flugvöllum og landa-
mærum.
Þrettán bandarískir hermenn
slösuðust alvarlega í sprenging-
unni og hefur verið farið með þá í
hersjúkrahús í Vestur-Þýskalandi.
Aðrir meiddust minna og fengu að
fara til stöðva sinna eftir að gert
hafði verið að sárum þeirra.
Ókunn samtök, sem kalla sig
„Þjóðfylkinguna", segjast hafa
komið sprengjunni fyrir í veit-
ingahúsinu og kváðust þau munu
koma öðrum fyrir á þeim stöðum,
sem Bandaríkjamenn sækja,
vegna þess, að þeir beri ábyrgð á
„ástandinu á Kýpur".
Lögregluforingi, sem ekki vildi
láta nafns síns getið, kveðst hafa
sínar efasemdir um „Þjóðfylking-
una“ svokölluðu. „Við höfum eng-
ar upplýsingar um þessi samtök
en munum gera allt, sem í okkar
valdi stendur, til að hafa uppi á
glæpamönnunum. Þeir eru stór-
hættulegir og höfðu greinilega
fjöldamorð í huga,“ sagði hann.
Lögreglan vildi ekkert um það
segja hvort sprengingin sé í ein-
hverjum tengslum við árásir á
mannvirki á vegum Atlantshafs-
bandalagsins en þau hafa verið tíð
í Vestur-Evrópu að undanförnu.
Dagblaðið Apoyevmatini í
Aþenu sagði í dag, að stjórn Pap-
andreous lítist nú illa á blikuna
vegna aukins uppgangs vinstri-
sinnaðra öfgamanna, sem teldu
það sjálfsagt að taka undir hatur
hans á Bandaríkjamönnum með
hryðjuverkum.
Papandreou komst til valda árið
1981 og hefur andúð hans á
Bandaríkjamönnum sett mestan
svip á stjórnartíma hans. í kosn-
ingabaráttunni sór hann þess dýr-
an eið að koma Grikkjum úr Atl-
antshafsbandalaginu og Evrópu-
bandalaginu en að sögn vestrænna
sendimanna hefur stjórnin breytt
um stefnu í þeim efnum.
Finnland:
Flest fundið
úr flauginni
Sovétmenn krefjast þess að fá hana aftur
Heknnki, 4. febrúar. AP.
FINNSKI flugherinn hætti í dag leit að leifum sovésku flaugarinnar í
Inari-vatni en búió er að finna flesta hluta hennar, sem einhver mynd er
á.
„Hún kom niður í heilu lagi,“
sagði Olof Fredriksson, major í
flughernum, í viðtali við finnska
útvarpið, „en okkur leikur hugur
á að vita hvort hún varð elds-
neytislaus eða var látin falla til
jarðar.“
Nef flaugarinnar, stélbúnaður
og vélarleifarnar hafa fundist og
einnig miðhluti hennar, sem sér-
fræðingar búast við að hafi að
geyma leiðarkerfið. Sagði Fred-
riksson, að nú væri vitað, að
eldflaugin er af gamalli gerð og
hefði verið notuð sem fljúgandi
skotmark.
Sovétmenn hafa krafist þess
af Finnum, að þeir skili flaugar-
leifunum, en finnska utanríkis-
ráðuneytið ætlar ekki að taka
um það ákvörðun fyrr en flaug-
arbrotin hafa verið rannsökuð
nákvæmlega. Lokaorðið mun þó
Mauno Koivisto, forseti, hafa en
hann er væntanlegur heim til
Finnlands í kvöld frá Bandaríkj-
unum. Hefur hann verið í fríi og
á ferðalagi um allan heim.
um, og dró áhöfn hennar breska
fánann að húni á eynni.
Rockall, sem er aðeins 80 metr-
ar á hverja hlið, en u.þ.b. 60 metra
há, liggur næst Stóra-Bretlandi.
Aðeins 355 km eru til Suðureyja
úti fyrir vesturströnd Skotlands.
Um 400 km eru til írska lýðveldis-
ins, 600 km til Færeyja og 700 km
til íslands.
En það var ekki fjarlægðin sem
réð úrslitum í mati dönsku stjórn-
arinnar.
„Danmörk og Færeyjar styðja
kröfu sína þeim röksemdum, að
landgrunn Færeyja og Rockall séu
á sama neðansjávarhryggnum,“
segir Atli Dam lögmaður.
Danska stjórnin heldur því
einnig fram, að mikil gjá skilji að
landgrunn Rockall og Suðureyja.
Breska stjórnin staðhæfir á
hinn bóginn, að landgrunnið milli
Skotlands, Suðureyja og Rockall
sé frá náttúrunnar hendi beint
framhald breska landgrunnsins.
„Á allra næstu dögum mun
danska stjórnin tilkynna opinber-
lega, að hún muni láta gera
jarðskjálftamælingar á þessu
svæði vegna hugsanlegrar olíu-
vinnslu þar,“ sagði Atli Dam og
vísaði til fundar síns með dönsku
ráðherrunum.
Strax og Bretar létu til sín taka
á Rockall árið 1955, mótmæltu fs-
lendingar og frar, en danska
stjórnin sinnti málinu ekki að
neinu marki fyrr en 1970.
Lúterska
heimssambandið:
Norðmaður
kjörinn fram-
kvæmdastjóri
Gcnf, 4. febrúar. AP. "
NORSKUR guðfræðingur, Gunnar
Johan Staalsett, sem sæti á í úthlut-
unarnefnd friðarverðlauna Nóbels,
var kjörinn framkvæmdastjóri Lút-
erska heimssambandsins á óvænt-
um fundi framkvæmdastjórnar sam-
bandsins um helgina, að því er
greint var frá í höfuðstöðvum þess í
Genf í dag.
Staalsett, sem er fimmtugur að
aldri, tekur við starfi Carls H.
Mau, 62. ára gamals Bandaríkja-
manns, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri frá 1974. Aðild að
Lúterska heimssambandinu eiga
99 kirkjur víða um heim, sem telja
54.4 milljónir lúterstrúarmanna,
en þeir eru samtals 68,5 milljónir.
Staalsett hefur verið fram-
kvæmdastjóri Norska biblíufé-
lagsins frá 1982. Hann á einnig
sæti í miðstjórn og framkvamda-
stjórn Alkirkjuráðsins.
Staalsett tekur við hinu nýja
embætti síðar á þessu ári.