Morgunblaðið - 05.02.1985, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.02.1985, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985 27 fllttgmifybifrife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakiö. Óráðsía og óstjórn Oráðsía og óstjórn eru þau tvö orð sem setja svip sinn á orkumál þjóðarinnar, ef marka má yfirlýsingar Sverris Hermannssonar, iðn- aðarráðherra, í Morgun- blaðsviðtali á sunnudaginn. Lýsingar ráðherrans á því hve víða er pottur brotinn á þessu mikilvæga sviði þjóðar- búskaparins koma almenn- ingi í opna skjöldu. Um langt árabil hefur verið látið í veðri vaka, að væri einhvers staðar gætt forsjálni og hagkvæmni væri það í orkumálunum — Kröfluævintýrið dýrkeypta væri undantekningin sem sannaði regluna. Því miður er það alltof sjaldgæft að íslenskur ráð- herra gangi fram af þeirri hreinskilni sem Sverrir Her- mannsson hefur gert og bendi á veilur á því verkefnasviði sem undir ráðuneyti hans heyrir. Hitt er miklu algeng- ara, að ráðherrar gerist verj- endur ráðuneyta og stofnana um leið og þeir taka við háum embættum sínum. Fram- ganga Sverris Hermannsson- ar er í samræmi við skyldur ráðherra. Þeir eru fulltrúar fólksins í Iandinu gagnvart hinu opinbera stjórnkerfi en ekki varðhundar kerfisins gagnvart fólkinu. Morgunblaðið er ekki í neinum vafa um, að nauðsyn- legt sé að taka til hendi, með sama hugarfari og Sverrir Hermannsson hefur gert í orkumálum, á öðrum sviðum opinbers rekstrar. Hér eru miklir fjármunir í húfi. Orkufyrirtækin eru lang- stærstu lántakendurnir í út- löndum. Öllum blöskrar nú hin mikla og þunga erlenda skuldabyrði. Önnur ráðuneyti fá tekjur sínar frá skattgreið- endum og ber þá fyrst að nefna stærstu eyðsluráðu- neytin, heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytið og mennta- málaráðuneytið. Sverrir Her- mannsson hefur markað þá stefnu, að orkufyrirtæki eigi að starfa eftir kjörorðinu „greiða skuldir, eyða ekki“. Setja ætti sambærileg mark- mið á öðrum sviðum opin- berrar eyðslu. Fjármálaráðuneytið hefur efnt til auglýsingaherferðar til stuðnings samneyslu og til að telja fólki trú um, hve vel sé farið með skattana sem það greiðir; það sé hið mesta lán að greiða sem hæstar fjárhæðir í ríkishítina. Þeir sem halda, að það tryggi besta nýtingu fjármuna að láta þá renna í gegnum ríkis- sjóð, fagna þessari auglýs- ingaherferð. Ekki væri úr vegi fyrir fjármálaráðuneytið að efna til kynningarátaks til að sýna fram á annað en „nauðsyn skattheimtu í nú- tíma þjóðfélagi", svo sem eins og nauðsyn fyrirhyggju við eyðslu á skattpeningum eða erlendu lánsfé. Sverrir Hermannsson svar- aði á þennan veg í Morgun- blaðsviðtalinu, þegar hann var spurður hverju óráðsían og óstjórnin væri að kenna: „Stjórnmálamönnum, mis- tækum stjórnmálamönnum. Og það er höfuðgalli, sýnist mér, alveg aftur úr, að við höfum sjaldnast átt menn, sem hafa haft minnsta vit á rekstri, í forustu í þessum málum. Það á raunar við um flest stjórnmálaleg svið okkar í framkvæmdum og rekstri, og það á við miklu víðar en í orkumálum. Hafi pólitískur geðþótti verið stundaður á ís- landi hefur það verið gert í orkumálum." Hér er fast að orði kveðið en ekki að ástæðulausu. Með síðustu setningunni vísar Sverrir Hermannsson ekki síst til þeirra stjórnarhátta sem tíðkuðust hjá Hjörleifi Guttormssyni, iðnaðarráð- herra Alþýðubandalagsins, sem fór með yfirstjórn orkumála frá 1978 til 1983. Einmitt á því árabili snerist allt mjög til hins verra á öll- um sviðum orkumálanna. Þá réðu talsmenn félagshyggju og samneyslu ferðinni í orkumálum. Hjörleifur Gutt- ormsson raðaði í kringum sig gæðingaliði Alþýðubanda- lagsins og látið var í veðri vaka, að nú yrði gert átak þjóðinni allri til hagsbóta. Niðurstaðan hefur orðið allt önnur. Þeir sem högnuðust mest í stjórnartíð Alþýðu- bandalagsins voru gæðinga- hirðin sem sat nótt sem nýtan dag við að semja langar skýrslur eða ferðaðist um heiminn þveran og endilang- an til að safna efni í slíkar skýrslur. Á milli óráðsíu og óstjórnar annars vegar og ofstjórnar hins vegar er skemmri leið en flestir ætla. Ofstjórn leiðir til ábyrgðarleysis á lægri stigum stjórnkerfisins. Besta leiðin út úr fjárhagsvanda orkumál- anna er að gera hverja ein- ingu þeirra ábyrga fyrir eigin tekjuöflun og útgjöldum. Ratsjárnar og Jakob séra — eftir Björn Bjarnason Frá því að Geir Hallgrímsson varð utanríkisráðherra í maí 1983 hafa varnar- og öryggismál þjóðarinn- ar verið tekin nýjum tökum. Er það í samræmi við stefnu sjálf- stæðismanna, sem ekki höfðu far- ið með framkvæmd utanríkismála síðan 1953, þegar Geir Hallgríms- son settist í embætti utanríkis- ráðherra. Meginkjarni þessarar stefnu hefur verið sá, að vörnum lands og þjóðar skuli á hverjum tíma hagað í samræmi við ís- lenska öryggishagsmuni, enda sé friður með frelsi leiðarljósið. Til að þessi stefna njóti nauð- synlegs stuðnings er brýnt, að hiklaust sé rætt um alla þætti varnarmálanna á opinberum vettvangi. Miðla þarf til almenn- ings upplýsingum um þær hættur sem að steðja og hvaða ráðstafan- ir eru óhjákvæmilegar til að koma í veg fyrir að hættuástand skapist. í nýlegri skýrslu sem norska yf- irherstjórnin hefur tekið saman um þróun sovésks herafla á hags- munasvæði Norðmanna á síðustu 20 árum er komist að þeirri niður- stöðu, að hættan sem steðjar að Noregi hafi vaxið verulega á þessu árabili. 1 þessari skýrslu er litið til þess sovéska herafla sem beitt yrði gegn íslandi ef til ófriðar drægi. Lýsing norsku herstjórnar- innar á hinni auknu hættu á einn- ig við um ísland. Geir Hallgrímsson gerði þingi og þjóð rækilega grein fyrir þeim áformum sem uppi eru til að styrkja varnir landsins í skýrslu um utanríkismál á liðnu vori. Vék ráðherrann bæði að framkvæmd- um í þágu varnanna og hugmynd- um um meiri þátttöku íslendinga í vörnum landsins. Þá skýrði hann frá því að fulltrúar íslands hefðu setið fund hermálanefndar Atl- antshafsbandalagsins og yrði það gert framvegis þegar tilefni gæf- ist. ★ Samkvæmt íslenskri stjórnskipan fer utanríkisráðherra með endan- legt ákvörðunarvald um allar framkvæmdir í þágu varna lands- ins. Oftar en einu sinni hefur verið um þetta atriði deilt. I fram- kvæmd hafa þó allir stjórnmála- flokkar sætt sig við að lokaákvörð- un sé tekin af utanríkisráðherra einum. Samráð ráðherra við utanrík- ismálanefnd Alþingis og jafnvel meðráðherra í ríkisstiórn hefur verið með ýmsu móti. I apríl 1972 samþykkti Einar Ágústsson, þá- verandi utanríkisráðherra, að flugbrautir á Keflavíkurflugvelli skyldu lengdar, en ráðherra Al- þýðubandalagsins í þeirri stjórn, Lúðvík Jósepsson og Magnús Kjartansson, lýstu vanþóknun sinni með því að bóka andmæli í ríkisstjórninni. Við stjórnarmynd- un ráðuneytis Ólafs Jóhannesson- ar í ágúst 1978 var samþykkt að ekki yrði ráðist í meiriháttar varnarframkvæmdir nema með samþykki allra stjórnarflokkanna (Alþýðubandalaginu var veitt neitunarvald). Þegar stjórn Gunn- ars Thoroddsen var mynduð í febrúar 1980 var þetta neitunar- vald þrengt þannig, að alþýðu- bandalagsráðherrar gátu hindrað framkvæmdir við nýja flugstöð á Keflavíkurflugvefli. A hinn bóginn gat utanríkisráðherra í þeirri stjórn, Ólafur heitinn Jóhannes- son, samþykkt smíði flugskýla á Keflavíkurflugvelli og gerð olíu- stöðvarinnar í Helguvík án tillits til þess sem alþýðubandalags- menn sögðu. Eins og kunnugt er sátu þeir sem fastast í ríkisstjórn- inni. Við myndun þeirrar stjórnar sem nú situr voru utanríkisráð- herra ekki sett nein skilyrði við framkvæmd utanríkisstefnunnar. Á hinn bóginn er óhætt að full- yrða, að Geir Hallgrímsson hefur haft nánara samráð við utanrík- ismálanefnd Alþingis um einstaka þætti varnar- og öryggismála en nokkur fyrirrennara hans. Hann \ hefur einnig lagt sig meira fram en aðrir um að kynna á opinberum vettvangi þá fyrirhuguðu varnar- framkvæmd sem nú er á undir- búningsstigi, smíði tveggja nýrra ratsjárstöðva á Vestfjörðum og við Langanes. Umræður um ratsjárnar í utan- ríkismálanefnd eru trúnaðarmál eins og annað sem þar fer fram. En opinberlega hefur ratsjár- nefnd varnarmálanefndar utan- ríkisráðuneytisins gefið út skýrslu um ratsjárnar. Hafa nefndarmenn undir forystu Sverris Hauks Gunnlaugssonar, deildarstjóra, efnt til kynningarfunda, um rat- sjárnar á Bakkafirði, Þórshöfn og í Bolungarvík. ★ Töluverðar sveiflur hafa verið í málflutningi og rökum þeirra sem hafa risið öndverðir gegn fyrir- huguðum ratsjárstöðvum. Þeir hafa löngum haldið því fram, að stöðvarnar ykju fremur á hættuna sem steðja að landi og þjóð en minnkuðu hana. Þessi rök byggj- ast á þeim misskilningi að varn- arviðbúnaður Vesturlanda sé hættulegri heimsfriðnum en víg- búnaður Sovétríkjanna. Sögulegar staðreyndir sýna, að þau standast ekki. Þeir sem eru óviðbúnir eiga meiri hættu yfir höfði sér en hinir sem gera nauðsynlegar varúðar- ráðstafanir. Svo að dæmi sé tekið úr daglegu lífi, þá gætu menn eins verið andvígir ratsjármælingum lögreglu eða umferðarljósum á þeirri forsendu, að slysahætta yk- ist vegna þeirra áhrifa sem mæl- ingarnar og ljósin hafa. Miðvikudaginn 30. janúar síð- astliðinn birtist hér í Morgunblað- inu grein eftir séra Jakob Ágúst Hjálmarsson, sóknarprest á ísa- firði, undir fyrirsögninni „Sam- mála? Innlegg í ratsjárumræðu". Þar lýsir presturinn yfir stuðningi við meginstefnuna í varnar- og ör- yggismálum þjóðarinnar en varar við því að íslendingar verði virkir í framkvæmd varnanna. Hann vill að vísu, að íslenskir ráðgjafar og sérfræðingar leggi á ráðin og meti öryggis- og varnarmál og Islend- ingar taki þátt í öllu stjórnmála- og „áætlunarstarfi" Atlantshafs- bandalagsins en ekki að Landhelg- isgæsla og Póstur og simi komi þar við sögu „umfram ýtrustu nauðsyn". Þetta slðasta sjónarmið kemur alls ekki á óvart. Um það verður vafalaust mikið rætt, þegar á reynir. Hitt kemur á óvart, að séra Jak- ob, sem skipaö hefur sér í hóp andstæðinga ratsjárstöðva, skuli nú færa fram þau rök, að ratsjár- málið hafi verið illa kynnt. „Læðu- pokagangur, leynimakk og áhersla á aukaatriðum hefur einkennt meðferð málsins. Ekki verður séð nú af skýrslu ratsjárnefndar yfir hverju hefur þurft að þegja," segir séra Jakob. Og hann telur „illa“ kynningu höfuðástæðu andstöðu við stöðvarnar. Þessar fullyrðingar koma öllum sem fylgjast af einhverjum áhuga með varnar- og öryggismálum þjóðarinnar á óvart. Sá grunur hlýtur að vakna að þeim sé slegið fram til að koma andstæðingnum í opna skjöldu, til að draga umræð- urnar inn á nýtt svið og ná þar með forskoti í „umræðunni". í viðtali við Þjóðviljann sem birtist í sunnudagsblaði dagsettu 3. febrúar áréttar séra Jakob at- riði sem hann tæpir á í Morgun- blaðsgreininni, að hann sætti sig ekki við endanlegt ákvörðunarvald utanríkisráðherra um ratsjár- stöðvarnar heldur verði samþykki Alþingis að koma til: „ ... Mér finnst skipta máli hvort um er að ræða úrskurð alþingis eða ráð- herra og lofa engu um að beygja mig fyrir ráðherraúrskurði," segir hann. Enn er komið fram með nýja röksemd og jafnvel hótað að hafa ákvarðanir að engu séu þær teknar af ráðherra í samræmi við stjórnskipun landsins og pólitiska hefð í meira en 30 ár. Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson segir í Þjóðviljanum: „Hér eru slíkir hlutir á ferð að lýðræðis- legri hugsun er gróflega misboðið. Það á einfaldlega að ákveða með ráðherraúrskurði án þess að Al- þingi sé spurt." Þetta er ekki rétt. Öll meðferð ratsjármálsins hefur verið með þeim hætti, að alþing- ismenn hafa getað fengið svör við hverri þeirri spurningu sem þeim hefur legið á hjarta. Með öllu er ástæðulaust að vera sammála þessu „innleggi“ séra Jakobs í „ratsjárumræðuna". Það er til þess eins fallið að ala á tor- tryggni og ýta undir flokkadrátt á röngum forsendum. ★ Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson lýsir eins og áður segir stuðningi við aðild Islands að Atlantshafs- bandalaginu og við varnarsam- starfið við Bandaríkjamenn. Ber að fagna einarðri afstöðu hans í því efni. Láti menn af deilum um þessa grunnþætti íslenskrar stefnu í varnar- og öryggismálum tekst þeim betur að einskorða sig við það sem máli skiptir á líðandi stund. Þegar litið er til þeirra atriða sem koma til álita innan þeirrar stefnu sem séra Jakob aðhyllist eru menn sammála um tvö grund- vallaratriði að auki: 1) Hér skulu ekki vera kjarnorkuvopn nema með samþykki islenskra stjórn- valda. 2) Hér skal aðeins vera sá herbúnaður sem nauðsynlegur er til að halda uppi vörnum á Islandi og í næsta nágrenni landsins. Við hvorugu þessara atriða er hróflað með smíði tveggja nýrra ratsjárstöðva í landinu. Þvert á móti er auðvelt að sýna fram á það með sterkum rökum, að varnir ís- lands verða ekki tryggðar við nú- verandi aðstæður nema með því að auka eftirlit með ferðum flugvéla sovéska hersins við landið. Sé unnt að áfellast íslensk stjórnvöld fyrir eitthvað við fram- kvæmd öryggis- og varnarmála- stefnunnar má segja, að á það hafi skort, að þau hafi gert landsmönn- um nægilega grein fyrir útþenslu sovéska heraflans á norðurslóð- um. Þá hefur það ekki komist nægilega vel til að skila hér á landi, ef marka má margt af því sem menn segja um þessi mál, hve miklar áhyggjur nágrannar okkar í Bretlandi og Noregi hafa af þess- ari þróun. Basl með stjórnmála- ályktun á landsfundi BJ Miklar umræður urðu á landsfundi Bandalags jafnaðarmanna um stjórnmálaályktun samtakanna. Eftir tillögur og gagntillögur var stutt ályktun samþykkt, en þó ekki fyrr en fundarmenn höfðu samþykkt að ómerkja fyrri samþykkt sömu ályktunar. Endanleg stjórnmálaályktun landsfundar BJ er svohljóðandi: Á íslandi býr þjóð í vanda. Kæt- ur hans má rekja til fáránlegrar miðstýringar fjármagns og heilla atvinnugreina, kjördæma- pots og sérhagsmunavörslu stjórnmálamanna. Á þessar ræt- ur verður höggvið með eftirtöld- um hætti: 1. í kosningum til Alþingis verði landið eitt kjördæmi og vægi atkvæða jafnt. Stofnað verði til öflugra heimastjórna í héruðum. Ríkisstjórn verði kjör- in beinni kosningu. 2. Fámennisvald í verkalýðs- hreyfingu og samtökum at- vinnurekenda verði brotið á bak aftur með samningum á vinnu- stöðum. Fámennisvald í við- skiptalífinu svo sem hjá SÍS verði afnumið með auðhringa- löggjöf. Allar breytingartillögurnar verða ekki tíundaðar, en þær sner- ust um orð fremur en efnisatriði. Fyrsta tölulið upprunalegrar ályktunar var þó breytt á þann veg að vægi atkvæða skyldi verða jafnt hvar sem væri á landinu, í stað jafns atkvæðisréttar, sem menn töldu vera fyrir hendi nú þegar. Þá kom fram tillaga um að orða málsgreinina þannig að talað yrði um að forsætisráðherra yrði kosinn beinni kosningu í stað rík- isstjórnar, eins og það er orðað, en sú tillaga týndist í hamagangin- um. Hart var deilt um hvort sagt skyldi fámennisvald eða völd fárra manna í upphafi 2. töluliðar stjórnmálaályktunarinnar, tillaga um breytingu var samþykkt, en síðan breytingartillaga við hana samþykkt, svo orðið fámennisvald stóð í endanlegri útgáfu sem upp- haflegri. Þá lagðist fulltrúi frá Húsavík gegn því að SÍS yrði náfngreint í ályktuninni sem dæmi um afl í viðskiptalífinu sem afnumið skyldi með auðhringa- löggjöf. Guðlaugur Ellertsson lagði til að 3. töluliðnum yrði bætt við ályktunina um að persónuleg togstreita og hagsmunavarsla viki fyrir faglegum vinnubrögðum í is- lenskum stjórnmálum. Var það samþykkt einróma og fundarstjóri taldi ályktunina afgreidda, en í fundarhléi fóru menn af stað, sem töldu innihald 3ja liðs efnislega í formála, og fengu tillögumann til að samþykkja að liður 3 yrði felld- ur út ef hægt yrði að koma við. Fundu viðkomandi flöt á því með fundarstjóra, sem kvaðst mundu taka ályktunina til afgreiðslu að nýju á þeirri forsendu að sér hefðu or^ið á þau afglöp að láta ekki fara fram atkvæðagreiðslu um formálann. Fundarstjóri tjáði fundinum eftir hlé að sér 'tgfðu orðið á af- glöp, að gleymst hefði að greiða atkvæði um formálann. Féllust fundarmenn á tillögu hans um að að ómerkja fyrri samþykkt sína með handaruppréttingu. Lagði forseti þá fyrst til að 3. liður yrði felldur úr ályktuninni þar sem hið sama stæði eiginlega í formála. Var það samþykkt og ályktunin þá borin að nýju upp í heild sinni og samþykkt sem slík. Eftir stóð að formálinn var aldrei samþykktur sérstaklega, eins og látið var líta út fyrir að gera þyrfti. Bandalag jafnaðar- manna kýs sér stjórn — Kristófer Már Kristinsson formaður landsnefndar LANDSFUNDUR Bandalags jafnaðarmanna samþykkti nýjar leikreglur fyrir samtökin og er þar það nýmæli að nú skal 30 manna landsnefnd stýra starfi BJ. Jafnframt var kosið í landsnefndina á fundinum og var Kristófer Már Kristinsson kosinn formaður hennar og Valgerður Bjarnadóttir varaformað- ur. Það voru þeir Kristófer Már og Guðmundur Einarsson alþingis- maður sem sömdu tillögu þá að nýju skipulagi, sem fyrir fundin- um lá. Komu fram breytinga- og viðaukatillögur, en þær ýmist felldar, vísað frá eða vísað til landsnefndar, eftir miklar deilur fundarmanna um nauðsyn skipu- lags og leikreglna fyrir BJ. Kristófer Már sagði í ræðu að samtökunum væri nauðsynlegt að skipuleggja sig betur en væri til að auðvelda fólki að ganga til samstarfs við samtökin. BJ þyrfti einnig á pólitískri loftvog að halda og hér væri hún komin í formi landsnefndar. Og þar ættu þing- menn RI að eiga greiðan aðgang að frjórri umræðu um pólitík. Þegar komið var að því að kjósa til landsnefndar lagði Kristófer Már til að annaðhvort gengi um salinn listi með nöfnum allra fundargesta og hver og einn merkti við 30 nöfn, og þeir sem þannig fengju flest atkvæði sætu í nefndinni. Hins vegar að þingfor- setum yrði falið að draga upp 30 manna lista út frá því hversu menn hefðu látið til sín taka á landsfundinum. Var seinni tillag- an naumlega ofan á, hlaut 38 at- kvæði en sú fyrri 36. Ekki gáfu allir þeir kost á sér Kristófer Már Kristinsson sem var að finna á lista forseta, svosem Árni Sigurbjörnsson og Þorlákur Helgason, en Ólafur Jónsson, Ragnheiður Ríkharðs- dóttir, Helgi Guðmundsson og Bjarni P. Magnússon gáfu ekki kost á sér er stungið var upp á þeim utan úr sal. í landsnefndina voru síðan kosin: Ágúst Einars- son, Arnar Björnsson, Bergþóra Birgisdóttir, Birgir Halldórsson, Einar Gunnar Einarsson, Garðar Sverrisson, Guðlaugur Ellertsson, Guðmundur Páll Jónsson, Guðni Baldursson, Grétar Jónsson, Hall- grímur Ingólfsson, Jón Tynes, Jónína Leósdóttir, Kristján Jóns- son, Kristófer Már Kristinsson, óðinn Jónsson, Páll Bergþórsson, Páll Hannesson, Reynir Hugason, Sigurjón Valdimarsson, Sjöfn Halldórsdóttir, Snædís Gunn- laugsdóttir, Sveinn Björnsson, Valdimar Unnar Valdimarsson, Valgerður Bjarnadóttir, Vil- hjálmur Þorsteinsson, Þorgils Ax- elsson, Þorsteinn Hákonarson, Þórunn Guðmundsdóttir og örn S. Jónsson. Morgunblaöiö/Júlíus Stefán Benediktsson þingmaður Bandalags jafnaöarmanna (t.v.) af- hendir Jóni Baldvini Hannibalssyni formanni Alþýðuflokksins svar landsfundar Bandalags jafnaðar- manna við blómasendingu og bón- orði þess síðarnefnda. Svaraði landsfundurinn með stökum þar sem segir að koma verði í Ijós hvort orð Jóns Baldvins dugi betur en af- skornar rósir í vasa. Fylgdi poki af grasfræi stökunum og var myndin tekin er Stefán afhenti Jóni Bald- vini grasfræið í gær. Jóni Baldvini þökkuð blómin með grasfræi Fundarmenn á landsfundi Bandalags jafnaðarmanna voru lítt hrifnir af blómasendingu og bónorði formanns Alþýðuflokksins, Jóns Baldvins Hanni- balssonar, sögðu uppátækið hreina móðgun, en af kurteisi hefði ekki verið hægt að neita blómunum. Var bónorðinu svaraö með stökum, sem Jóni Baldvin voru afhentar í gær, en þeim fylgdi og poki af grasfræi. í umræðum á landsfundi Bj og viðtölum við fundarmenn kom fram að þeir álitu Alþýðuflokkinn sízt siðbetri, eins og það var orðað, þótt skipt hefði verið um formann. Sagt var og að Bj mundi leysast upp og ganga inn í aðra flokka þegar þeir tækju upp stefnumál bandalagsins. Hefði flokkurinn verið stofnaður út frá þeirri for- sendu. tekið þátt í væru stjórnarviðræð- ur. Þá væri hægt að semja. Stökur þær, sem landsfundur- inn sendi frá sér sem ályktun í tilefni bréfs Alþýðuflokksforyst- unnar eru svohljóðandi: Við skulum bíða og sjá hvað setur og saman í bróðerni masa um það hvort orðin þín endist betur en afskornar rósir í vasa. „Ég átti satt að segja ekki von á því að þeir hlypu svona til við fyrstu tilraun," sagði Jón Baldvin aðspurður um viðbrögð Banda- lagsmanna. „Ég ítreka það hins vegar að ég tek ekki nei fyrir svar. Þrátt fyrir allt vil ég reyna hlúa að þessum fræjum og vona að eitthvað gott vaxi upp af þeim. Annars segi ég bara eins og Vilm- undur forðum á flokksþingi Al- þýðuflokksins. Hann vitnaði í gamlan enskan slagara, sem er á þessa leið: Ég sendi þér stóran rósavönd, í hvert sinn sem þú veldur mér ástarsorg. Skoðanir voru þó skiptar um hvort orðið skyldi við óskum Al- þýðuflokks og Alþýðubandalags um viðræður og kosningasam- starf, en þeir sem voru slíku fylgj- andi voru í minnihluta. Valgerður Bjarnadóttir sagði að Bj ætti ekki láta hræða sig til viðræðna nú. Einu viðræðurnar sem Bj gæti (Poki af grasfræi fylgir.) Afskornar þokkum ástum talandi rósir enda þótt lifi skammæa blómsturtíð án vatns og róta - en landsins grashag- ar ljósir laða samt hugann meira; láengi, hlíð og lindir þar sem ræturnar vökvun hljóta. Túlkar þú viðbrögð þeirra við bréfi þínu og blómum sem beiskju? Einn fundarmanna á Banda- lagsfundinum orðaði það við mig að sér fyndist viðbrögðin bera vott um beiskju og sagði að maður byggði ekki stjórnmálasamtök á beiskju," sagði Jón Baldvin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.