Morgunblaðið - 05.02.1985, Page 42

Morgunblaðið - 05.02.1985, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRCAR 1985 Nóg að gera hjá liðinu Lítum snöggvast á hvað nokkrir frægir leikarar eru að aðhaf- ast um þessar mundir. Robert Redford hefur haldið mikið til uppi á fjalli einu í Utah, þar sem hann á sér bústað og rennir sér f brekkunum á skíðum þegar skapið hentar. Hann þarf svo sannarlega á ró og næði að halda, því kvik- myndin sem hann leikur næst í er byggð á eigi færri en fimm bókum og hann þarf að kynnast þeim mjög náið áður en hann les hand- ritið og lærir það. Á móti Redford leikur m.a. Meryl Streep, en leik- stjóri er Sydney Pollack. Er þetta fyrsta verkefni hans síðan hann sló í gegn með „Tootsie". Jessica Lange, sem einmitt lék eitt aðalhlutverkanna í Tootsie, mætir til leiks innan tíðar í nýrri kvikmynd sem heitir „Country" og hefur því varla tíma til að renna í Laxá í Dölum í sumar. Hún leikur aðalhlutverkið, en á móti henni leikur Sam Shepard. Audrey Landers er nú varla fræg leikkona þó þekkt verði hún að teljast fyrir tilburði sína í Dall- as. Oft og oftast hefur hún hlotið þann dóm, að hún geti ekkert leik- ið og fljóti á útlitinu sem er í fínu lagi. Ekki eru allir sammála um það, það sannaðist er enginn ann- ar en Richard Attenborough (Ghandi og fleiri myndir) bauð henni aðalhlutverkið í nýrri kvikmynd sem hann mun leik- stýra. Myndin heitir „A Chorus Line“ og kostar hún eigi minna en 24 milljónir dollara í framleiðslu. Þar leikur Afton á móti Michael Douglas og þótti hann einnig óvænt val ... COSPER

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.