Morgunblaðið - 10.02.1985, Page 1

Morgunblaðið - 10.02.1985, Page 1
 D PRENTSMIÐJA MORG UNBLA ÐSINS SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1985 BLAÐ U Iif og fjör á búnabettunum - dauðinn bíður til sveita EFTIR ÓMAR VALDIMARSSON í LANDINU búa líklega um 45 milljónir manna. Þar er fátækt meiri en víðast hvar annars staðar í heiminum. Maður hefur helst á tilfinningunni að aðeins örfáir eigi eitthvað meira en larfa og vatnskrús. Átta eða níu milljónir manna geta enga björg sér veitt þar sem landið er að breyt- ast í eyðimörk og svo er stríð í landinu í þokka- bót — bónus eþíópa, þessa glæsilega og Ijúfa fólks. Nýja blómið Fátæktin tekur á móti manni þegar komið er út úr flugstöð- inni í Addis Ababa (Nýja blóm- inu), sem flestir suður þar kalla Addis Abeba eins og líka var gert til skamms tíma hérlendis. Yms áróðursskilti fagna 10 ára byltingarafmælinu í haust og stofnun flokks hinna vinnandi stétta, bæði á ensku og amar- ísku, hinu opinbera tungumáli. Hermenn gæta flugvallarhlið- anna en þar fyrir utan taka kof- arnir við innan um sendiráð ým- issa Afríkuríkja og fleiri varan- legri byggingar. A götunum er mergð af fólki þótt enn sé árla morguns: fólk með asna til að flytja brenni eða aðrar smávörur á markað, stundum berfætt og vafið í dúk; ófrískar konur með kornabarn og 2—4 lítil kríli á eftir; karlar með geitur, krakkar að leika sér í götubrúnum, prúðbúnar konur í skínandi hvít- um þjóðbúningum, „shemma" eins og það er kallað, mergð hvítra og blárra Renault-leigu- bíla og ýmsar tegundir annarra bíla, allt upp í nýja Benza. Framhjá myndunum stóru af Mengistu Haile Meriam ofursta og Marx, Engels og Lenín (Marx-bræðrum), og komið er á skrifstofu Upplýsingamálaráðu- neytisins til að fá ferðaleyfi út úr borginni. Þar líka, eins og mjög víða, hangir mynd af fé- laga formanni Mengistu. Niður tvær götur til að útvega passa- myndir á skyndimyndastað og þar taka betlararnir við. Samtaka nú! Betlararnir eru af öllum stærðum og gerðum. Konur með börn á brjósti — um ieið og þau fara að hreyfa sig rétta þau fram litlu hendurnar með mömmu sinni og þá er varasamt að horfa í augu barnsins. Betlar- arnir eru börn og gamalmenni og allt þar á milli. Fæstir betlar- anna í Addis virðast illa haldnir eða hungraðir þótt þeir séu grannir og tötralegir, flestir óhreinir og margir eitthvað bæklaðir (dæmdir úr leik frá upphafi). Skyndimyndamaður- inn í jakkafötunum tekst á loft þegar við neitum því að vera Rússar og málinu er lokið í hvelli. Pappírarnir stimplaðir (Nei, því miður er ekki hægt að hafa tal af félaga formanni, hann er önnum kafinn) og komið inn á prýðilega þokkalegt hótel Harambee, sem þýðir Samtaka nú! Margir staðir heita þessu nafni þarna suður frá. Betlarar fyrir utan hótelið — mest frísk- legir strákar, sem reynast eiga heima í slömminu hinum megin við hornið — einkennisklæddir dyraverðir og burðarkarlar, bráðmyndarlegt fólk. Eftir tuttugu tíma ferðalag — þar af tíu um borð í 767-glæsi- þotu Ethiopian Airlines — er gott að koma í náttstað. Borðað með guðsgöfflunum Þegar húmar að kveldi er matreiðslumenningin tekin með trukki undir stjórn Árna Gunn- arssonar fyrrv. þingmanns og núverandi starfsmanns Hjálpar- stofnunar kirkjunnar. Á Hotel de Afrique er boðið upp á indj- ara og wot. Indjara heita risa- SJÁ BLS. 4B WBm Blaðamaður wBM Morgunblaðsins á ferð um hungursvæðin í Eþíópíu • grein ISENBETE Brostin augun, brostnar vonir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.