Morgunblaðið - 10.02.1985, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.02.1985, Blaðsíða 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1985 Á VIT VÉFRÉTTAR Dagstund í Delfí, nafla heimsins Ekki alls fyrir löngu lá leiðin til Delfi, nafla heims- ins eins og Grikkir nefndu staðinn áður fyrr. Við höfðum hugsað okkur að kaupa eina af mörgum pakkaferðum sem eru á boðstólum fyrir túrista, en þegar vinkona mín, sem búsett er í Aþenu, fréttir af slysalausum jeppaakstri á eyjunni Naxos, sting- ur hún upp á því að fara akandi í bflnum hennar. Delfi er í um þriggja klukkustunda ökufjarlægð frá Aþenu, við ákveðum að undirrituð verði ökumaður ferðarinnar, en vinkonan siglingafræðingur, vegna þekkingar hennar á staðháttum og grískri tungu. SéA yfir útileikhúsið í Delfí, byggt úr kalksteini úr Parnassos-fjalli. Leikhúsið er staðsett uppi í hlíðinni og þaðan er gott útsýni yfir hlíðarnar í kring. Hinn ævaforni leikvöllur f Delfí, en hann er talinn hafa verið byggður á 5. ðld f.Kr. Mikilvægasta byggingin í Delff var hof Appollons, súlurnar eru taldar tilbeyra hofínu sem reist var á 4. öld f.Kr. í aftursætinu eru tveir bak- sætisbílstjórar, synir okkar tveir sem aldurs vegna eru ekki komnir með bílpróf upp á vasann. Við ákveðum að leggja af stað snemma morguns og gera tilraun til að verða á und- an túristaumferðinni, og verða ekki alltof óþyrmilega fyrir barðinu á sólinni á leiðinni. Verst er að komast út úr borginni, umferðarþunginn er mikill, og umferðarreglur öðruvísi en við eigum að venj- ast, við erum t.d. ekki fyrr bú- in að koma okkur fyrir á innri akgreininni á hringtorginu, fyrr en siglingafræðingurinn segir: „ég gleymdi að segja þér að það á enginn réttinn í hringtorgum!" Við leggjumst því bara á flautuna eins og hinir bílstjórarnir og olnbog- um okkur á bílnum út úr þvög- unni. ÖDIPUS OG MENNTAGYÐJUR Aksturinn gengur greiðlega eftir að út á þjóðvegina er komið, vegir eru flestir vel merktir, fyrst birtast við vega- brúnirnar stór skilti með leiðbeiningum á grísku, en í nokkurra metra fjarlægð frá má sjá leiðbeiningar á letri sem við skiljum. Smám saman nálgumst við alheimsmiðjuna, ökum upp í hlíðar Parnass- osfjalls, þar sem m.a. gætir mikilla andstæðna í náttúr- unni, öðru megin við veginn er grýttur og hrjóstrugur jarð- vegur en hinum megin skógar og gróður sem minna á lands- lag í Austurrísku Ölpunum. Það ku hafa verið einhver- staðar á þessum slóðum sem Ödipus varð gamla manninum, föður sínum að bana, fór til Þebu og kvæntist þar drottn- ingu sem reyndist vera móðir hans, en hingað fór hann til að flýja örlög sín, spádóm vé- fréttarinnar. Fyrr en varir erum við stödd í borginni Arakova sem er í þúsund metra hæð, hér er opið fyrir vindum úr öllum áttum, enda borgin nefnd storma- borg. Og nokkrum mínútum síðar erum við búin að leggja farartækinu rétt við lindina í Delfi. Sólin er nú farin að hella geislum sínum af miklu örlæti yfir ferðafólkið, eflaust við mismikla hrifningu, því fátt er um skuggsæla staði á leiðinni upp hlíðina. Hér á þessum stað stóð áður lítið þorp, en franskur fornleifafræðingur gróf helgidóminn úr jörð fyrir um 80 árum, þorpið var flutt til og stendur nú handan við hæðina. Fyrir ofan helgistað- inn gnæfa tveir tindar Parn- assosfjalls, þar sem mennta- gyðjurnar eru sagðar hafa tekið sér bólfestu. Þetta er töfrandi staður, meistaraverk náttúrunnar, enda hafa Grikkir frá fyrstu tíð haft hann í hávegum, í fornum grískum sögnum er sagt frá því er trúaðir menn kon,u hingað og vildu hlusta á röc d guðdómsins eins og hún birtist í vindaþyt í klettaskörðum eða gufumekki sem sté upp úr jörðu. Steinninn sem stóð yfir sprungunni sem gufan kom upp úr var í augum þeirra miðdepill landsins og nefndur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.