Morgunblaðið - 10.02.1985, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.02.1985, Blaðsíða 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1985 Rannsóknastofa Háskólans við Barónsstíg 50 ára: Hús Rannsóknastofu háskólans við Barónsstíg, sem byggt var 1934. Bráðabirgðahúsið, byggt 1976. Fyrsta rannsóknastofan, síðar Líkn, nú í Árbæjarsafni. Rann- sóknastofan var þar 1917—1934. ,3tærsta framfaraskrefið í vísindarannsóknum á Islandiu — segir forstöðumaðurinn, Jónas Hallgrímsson, prófessor Á SÍÐASTLIÐNU ári var hálf öld liðin frá því að hafin var starfræksla Rannsóknastofu Háskólans við Barónsstíg. Háskólinn hafði þá starfrækt rannsóknastofu í hátt á annan áratug annars staðar í bænum, en haustiö 1934 var hús Kannsóknastofunnar við Barónsstíg tekið í notkun. Þar sem almenningur veit yfirleitt lítið um þá starfsemi sem fram fer innan veggja Rannsóknastofunnar, þótti við hæfí að skyggnast þar innfyrir í tilefni afmælisins. Það var gert á dögunum í fylgd prófessors Jónasar Hallgrímssonar, sem er forstöðumaður stofnunar- innar. Einnig var rætt við aðra yfirlækna Rannsóknastofunnar, þá Arinbjörn Kolbeinsson, yfírlækni sýkladeildar, og Ólaf Bjarnason, yfírlækni réttarlæknisfræðideildar. Stærsta framfarasporið á sviði læknavísinda á íslandi Jónas sagði fyrst frá stofnun og sögu Rannsóknastofunnar: „Rann- sóknastofa Háskólans var stofnuð árið 1917 og var hún til húsa í gömlu „Líkn“, timburhúsi við hlið- ina á alþingishúsinu. Þá var stofn- uð dósentsstaöa í meina- og sýkla- fræði við læknadeild Háskóla ís- lands, sem Stefán Jónsson var skipaður í, og varð hann þar með fyrsti forstöðumaður Rannsókna- stofunnar. Þá voru aðeins tveir aðrir fastráðnir kennarar við læknadeildina, prófessorar í hand- læknisfræði og líffærafræði. Guð- mundur Thoroddsen tók við af Stefáni árið 1923 en árið 1926 var Níels Dungal skipaður dósent, þá ungur maður nýkominn frá námi. Tók hann þá jafnframt við for- stöðu Rannsóknastofunnar. Hann var skipaður prófessor árið 1932 og gegndi þessum störfum þar til að hann lést, árið 1965. Þá tók Ólafur Bjarnason við. Árið 1978 var stofnað prófessorsembætti í réttarlæknisfræði og réttarlækn- isfræðideild hér og tók Ólafur við þessum störfum en ég var skipað- ur prófessor í meinafræði og tók þá jafnframt við forstöðu Rann- sóknastofunnar, sem því starfi fyteir. Haustið 1934 var hús Rann- sóknastofunnar við Barónsstíg tekið í notkun. Starfsemin fór myndarlega af stað og var ný- tískuleg, miðað við það sem þá þekktist. Aðalverkefnin voru sjúk- dómagreiningar í meina- og sýkla- fræði, kennsla læknanema og vís- indalegar rannsóknir undir stjórn Níelsar Dungal. í upphafi var húsaskipan sú að í kjallaranum voru krufningar, rannsóknastof- urnar á 1. hæð, á 2. hæð íbúð Ní- elsar og kennslustofa og í risinu geymslur, kaffistofa og ljós- myndastofa. Frá upphafi hafa þrjár greinar læknisfræðinnar tilheyrt verkefn- um Rannsóknastofunnar. Líffæra- meinafræði: Sjúkdómagreiningar á vefjum sem teknir eru í skurðað- gerðum og krufningar Sýkla- fræði: Greining á sýklum úr hvers konar sýkingum. Réttarlæknis- fræði: Réttarkrufningar sam- kvæmt lögum um mannskaða- rannsóknir, það er á þeim sem lát- ast skyndilega eða voveiflega. Vís- indaverkefni voru fyrst aðallega á sviði sýklarannsókna, bæði á mönnum og búfé. Síðar urðu krabbameinsrannsóknir helsta vísindaverkefnið og urðu tilraunir Níelsar Dungal með saltaðan og reyktan mat þekktar víða um heim. Út frá búfjársjúkdóma- rannsóknunum spratt síðan Til- raunastöð Háskólans í meinafræði sem tók til starfa á Keldum árið 1948, undir forstöðu dr. Björns Sigurðssonar, sem var brautryðj- andi á sviði rannsókna á hæg- gengum veirusjúkdómum. Starfs- menn voru 7 við opnun, árið 1934, en eru nú samtals 94, þar af 18 læknar. Sumir starfsmannanna eru reyndar í hlutastarfi. Við byggingu húss Rannsókna- stofunnar við Barónsstíg varð bylting á sviði þeirra fræða sem hér voru stunduð, bæði hvað varð- ar þjónustu og vísindarannsóknir. Einnig í kennslu læknanema. Ég held að óhætt sé að segja að þetta hafi verið stærsta framfaraskrefið á sviði vísindarannsókna á ís- landi. Níels Dungal stóð fyrir byggingu hússins af sínum al- kunna dugnaði og bjartsýni. Hon- um tókst það þrátt fyrir árekstra við ýmsa valdamenn í þjóðfélag- inu í þá daga. Húsið var að nokkru leyti byggt fyrir fé sem fékkst af sölu bóluefnis við sauðfjársjúk- dómum sem Níels framleiddi og að nokkru fyrir opinberar fjárveit- ingar." Níels Dungal, prófessor, forstöðu- maður 1926—1965. Gæði sjúkrahúsa fara eftir þeim rannsóknum og aðgerð- um sem framkvæmdar eru „Síðan hafa þessar þrjár grein- ar læknisfræðinnar, líffæra- meinafræði, sýklafræði og réttar- læknisfræði, verið stundaðar hér í vaxandi mæli, eftir því sem þörf hefur verið á á hverjum tíma. Rannsóknastofan hefur þjónað öllu landinu frá upphafi og gerir enn að mestu leyti. Auk þjónustu Ólafur Bjarnason, prófessor, forstöðumaður 1965—1978, núver- andi yfirlæknir réttarlæknisfræði- deildar. og kennslu lækna og annarra heil- brigðisstétta hafa áfram verið stundaðar vísindalegar rannsókn- ir, eins og í upphafi. Árið 1977 var tekið í notkun bráðabirgðahús hér á lóðinni sem tvöfaldaði húsrými okkar, en varð samt strax of lítið. Einnig hefur farið fram endurnýjun á eldra húsinu en þeirri endurnýjun er enn ekki að fullu lokið vegna fjár- skorts. Starfsemin fer núna fram í þessum tveimur húsum. Sýkla- fræðin flutti alveg í nýja húsið en önnur starfsemi fer fram í báðum húsunum, sem er til nokkurs óhagræðis. Reksturinn hér hefur lengst af verið á vegum Ríkisspít- alanna og nú er stofnunin í raun hluti af Ríkisspítölunum. Þrátt fyrir það heldur hún sínu gamla nafni og hefur sérstakan fjárhag. Reksturinn stendur undir sér inn- an þess þrönga ramma sem okkur hefur verið markaður af ríkisvald- inu. Tengslin við Háskóla íslands eru fólgin í því að prófessorinn í meinafræði er jafnframt forstöðu- maður Rannsóknastofunnar og hér starfa flestir kennararnir í meina-, sýkla- og réttarlæknis- fræði. Rannsóknastofan er dæmigerð fyrir rannsóknastofu við stórt sjúkrahús, en rannsóknastofurnar eiga verulegan þátt í sjúkdóma- greiningum og ákvarðanatöku varðandi meðferð. Þetta þekkir al- menningur ekki, því að honum snýr fyrst og fremst legurýmið á sjúkrahúsunum. Það er svo í dag að stærð og gæði sjúkrahúsa eru ekki lengur miðuð við rúmafjölda, nema að litlu leyti, heldur frekar við þær rannsóknir og rannsókna- aðgerðir sem framkvæmdar eru, Jónas Hallgrímsson, prófessor, forstöðumaður frá 1978.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.