Morgunblaðið - 10.02.1985, Síða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1985
Sumir eru þeir sem kalla
hann byltingarmann,
aðrir segja að hann sé
lýðskrumari, enn aðrir
segja að ekki sé ástæða
til að efa lýðræðislegar hugmynd-
ir hans. Sjálfur segist hann vera
frjálslyndur lýðræðissinni. Og þó
að menn séu ekki á eitt sáttir
hvað hann varðar eru flestir á
einu máli um það að hann sé
þekktasti suður-kóreski „andófs-
maðurinn" nú.
Hann hefur verið síðustu tvö ár-
in í Bandaríkjunum, en nú er snú-
ið heim á leið og það leikur varla á
tveim tungum að heimkoma hans
markar þáttaskil í stjórnmálalífi
Suður-Kóreu. Og fáir Kórear hafa
haft jafn djúpstæð áhrif á stjórn-
málastefnu landsins frá 1970 og
hann, jafnvel þessi ár sem hann
hefur dvalið fjarri Suður-Kóreu.
Tvisvar hafa atburðir gerzt, sem
hann hefur átt drjúgan þátt í, leitt
til að sambúð Kóreu við annars
vegar Japan og hins vegar Banda-
ríkin kólnaði um hríð.
Kim Dae Jung er sagður maður
gjörvulegur í útliti, mikill og
snjall ræðumaður og þrautseigur
baráttumaður. Kim var lítt þekkt-
ur þar til árið 1970, er flokkur
hans, Nýi lýðræðisflokkurinn,
kaus hann frambjóðanda sinn í
forsetakosningunum í landinu.
öllum að óvörum sópaði hann til
sín fylgi og var mjótt á mununum
á honum og Park Chung Hee for-
seta, sem flestir höfðu álitið að
myndi vinna sigur án nokkurrar
áreynslu.
Upp frá því hófst stjórnmála-
ferill Kims og hann hefur verið
viðburðaríkur, nefna má að hon-
um var rænt, hann var settur í
fangelsi, dauðadómur kveðinn upp
yfir honum og loks sendur í útlegð.
Hann sagði í viðtali við Newsweek
að hann óttaðist ekki að stjórn
Suður-Kóreu myndi grípa til þess
ráðs að láta fyrirkoma honum.
Hún hefði væntanlega dregið
nokkurn lærdóm af því sem gerzt
hefur á Filippseyjum, eftir morðið
á Benigno Aquino fyrir hálfu öðru
ári.
Eftir forsetakosningarnar sem
áður voru nefndar brá Park for-
Svipmynd á sunnudegi/ Kim Dae Jung:
Kim Dae Jung
Þekktasti stjórnarandstöðu-
leiðtogi Suður-Kóreu og
þrautseigur baráttumaður
seti á það ráð að lýsa yfir herlög-
um, leysa upp þingið og leggja
drög að samningu nýrrar stjórn-
arskrár sem takmarkaði mjög at-
hafnafrelsi andstæðra stjórn-
málaflokka. Breytingar voru gerð-
ar á fyrirkomulagi forsetakosn-
inga og beinar kosningar aflagðar
með þeim afleiðingum, að Park
var kosinn forseti ævilangt, ýms-
um andstæðingum hans til mikill-
ar gremju. Um þær mundir var
Kim kominn til Japans og kaus að
dvelja þar um kyrrt vegna þeirra
breytinga sem höfðu verið gerðar í
Suður-Kóreu. Hann komst síðar í
heimsfréttirnar í ágúst 1973, þeg-
ar honum var rænt úr hótelher-
bergi sínu í miðborg Tókýó, og
fluttur nauðugur til Kóreu og
virðist enginn vafi leika á því að
þar hafi leyniþjónustumenn Suð-
ur-Kóreu verið að verki. Árið 1975
var Kim orðinn aðsópsmikill bar-
áttumaður í andófshreyfingu, sem
hélt uppi gagnrýni á stjórnskipu-
lag landsins. Hann var þá hand-
tekinn og dæmdur í fimm ára
fangelsi, en sleppt ári áður en
Park var myrtur í október 1979.
Eftir að Park forseti lézt keppti
Kim að því að bjóða sig fram til
forseta enn á ný, en var handtek-
inn í maí 1980 þegar herinn fram-
di valdarán sem studdi núverandi
forseta, Chun Doo Hwan, braut til
valda.
Herréttur dæmdi Kim síðan til
dauða á árinu 1980, en víða um
heim var dauðadómurinn gagn-
rýndur mjög, ekki sízt í Banda-
ríkjunum, og hafði mjög neikvæð
áhrif á samskipti Suður-Kóreu og
Bandaríkjanna. Ekki leikur vafi á
því að ríkisstjórnir Carters og síð-
an Reagans beittu diplómatískum
þrýstingi til að dauðadómnum
yrði breytt og gerðist það skömmu
áður en Chun forseti hélt til
Bandaríkjanna að heimsækja
Reagan. Dómnum var síðan breytt
enn úr lífstíðarfangelsi í tuttugu
ára dóm og fyrir þremur árum var
Kim síðan leyft að fara til Banda-
ríkjanna „til að leita sér lækn-
inga“ eins og það var orðað í frétt-
atilkynningu.
Þann tíma sem Kim hefur verið
í Bandaríkjunum hefur hann
haldið sambandi við bandamenn
sína í Suður-Kóreu og hann hefur
einnig haft samstarf við annan
andstæðing núverandi stjórnar
landsins, Kim Young Sam.
Frá því Chun forseti tók við
völdum hefur hann gert ýmsar
breytingar í landinu, sem þykja
stefna í lýðræðisátt. Kim er þó
þeirrar skoðunar, að þar sé alltof
hægt farið og hann segir að þrátt
fyrir framfarir á ýmsum sviðum
og batnandi efnahagsástand búi
meirihluti þjóðarinnar við harð-
ræði og stjórnmálalega kúgun.
Hann segir að ríkti í reynd það
frelsi sem stjórnin lætur í veðri
vaka, myndi ekki vera ritskoðun
við lýði og málfrelsi ætti þá að
vera ótakmarkað. Hann virðist í
fullri einlægni trúa því, að hann sé
réttur maður til þess að leiða þjóð-
ina áleiðis til frelsis og farsælla
stjórnmálalífs og fegurra mann-
lífs. Stjórn Chun hefur lýst því
opinberlega að hún muni ekki
blaka við Kim, en það hefur einnig
verið látið að því liggja, að hann
ætti ekki að fara of geyst og forð-
ast að æsa upp lýðinn. Og allt
bendir til að heimkoma Kims boði
ekki aðeins sigur fyrir hann per-
sónulega, heldur muni þetta verða
Chun forseta og stjórn hans til
framdráttar og auka trú um-
heimsins á því að núverandi
valdhafar vilji stefna að lýðræð-
islegri stjórnarháttum.
(Heimildir: AP, Newsweek o.fl.)
Samantekt: Jóhanna
Kristjónsdóttir.
Sálfræöistofur
Höfum opnaö sálfræöistofur aö Laugavegi 43, sími
12077.
Almenn sálfræðiþjónusta, ráögjöf og meöferö.
Oddi Erlingsson dipl.psych. (Heimasími 39109).
Gunnar Gunnarsson cand.psych. (Heimasími
32296).
Bolholt W Sudurver
6 vikna vetrarnámskeið 18. febr. — 28. marsl
í Suöurveri bjóöum viö 40 flokka á viku yfir
mesta annatímann, svo þú finnur örugglega
flokk viö þitt hæfi í Suöurveri.
★ Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum
aldri.
★ Morgun-, dag- og kvöldtímar.
★ Tímar 2 eöa 4 sinnum í viku.
★ Lausir tímar fyrir vaktavinnufólk.
Fyrir þær sem eru í megrun:
3ja vikna kúr 4 sinnum í viku — vigtun —'
mæling — mataræöi.
Sturtur — sauna —■ Ijós
Kennarar: Bára, Sigríður, Anna og Sigrún.
Innritun í síma 83730.
Gjald 2 sinnum í viku kr. 1.800.
Ath.: Ljósastofa JSB er í Bolholti 6.
Afsláttur á 10 tíma kortum fyrir alla sem eru í skólanum.
Líkamsrækt JSB
Rýmingarsala
Húsgögn
Viö flytjum húsgagnaverslunina von bráöar aö Skútuvogi 4 og
höldum því nú rýmingarsölu á húsgögnum aö Ármúla 23.
etf/°
Boröstofusett, eldhúsborö, stak-
ir stólar, ítölsk stálhúsgögn, ný-
komin, sófasett, hlaörúm, svefn-
bekkir, fatahengi. Gallerímyndir
eftir þekkta íslenska og erlenda
listamenn. Nýjar vörur daglega.
Baðinnréttingar, borðstofu-
sett, eldhúsborð, stakir
stólar, sófasett, rúm, fata-
hengi, gallerímyndir.
15% afsláttur
cSfo Nýborg
O Ármúla 23,
sími 686755.
H
F