Morgunblaðið - 10.02.1985, Side 24

Morgunblaðið - 10.02.1985, Side 24
24 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1985 TVEIR UNGIR DALVÍKINGAR KLI'FA HRAUNDRANGA Toppurínn þ rugga mátfi að laus að honum tíl Dalvík í oklóber. Þeir sem leiö eiga um Öxnadal eða Hörgárdal veita afhygli hinum tignarlega fjallgarði er skilur að þessa dali. Sérstaka athygli ferðamanna vekur hár og sérkennilegur tindur sem gnæfir upp úr skörðóttum fjallseggjum þessum. Tindurinn heit- ir Hraundrangi og er 1075 m yfir sjávarmáli og var lengst af talinn ókleifur. Fjallamenn sem þarna fara um líta drangana með lotningu. 5. ágúst 1956 sigruðust þrír klifurgarpar á tindinum. Tók það þá sex klukkustundir að klífa tindinn. Samkvæmt munnmælasögum átti kútur, fullur af peningum að vera geymdur upp á Hraundranga og félli hann í skaut þeim er fyrstur kæmi upp. Engin auðæfi höfðu þessir fyrstu klifurgarpar með sér niður og enn hefur kúturinn ekki fundist. Þverhníptur fjallsveggur Hraundranga. Útsýni af Hraundranga niður Öxnadal ann 6. ágúst sl. tóku tveir ungir ofurhugar frá Dalvík sig til og klifu á Hraun- dranga. Gunn- laugur Sigurðs- son og Vilhelm Hallgrímsson, en svo heita þeir, eru báðir 18 ára gamlir og sjálfsagt þeir yngstu sem á tind Hraundranga hafa komið, en samkvæmt heimildum er þetta fjórði leiðangur klifurmanna á Hraundranga. Þeir eru báðir félag- ar í björgunarsveit SVFÍ á Dalvík og hófu æfingar í fjallaklifri, svo- kölluðu tækniklifri, nú fyrst í vor. Tækniklifur krefst mikils útbúnað- ar og hafa þeir komið sér upp öllum búnaði sem samanstendur af hnet- um, fleygum, karabínum, perlon- fjallalínum, lykkjum, prussikbönd- um o.fl. Gunnlaugur og Vilhelm lögðu til atlögu við drangann í norðurhlíð hans, Hörgárdalsmegin. Síðustu 80 metrana er um hreint bergklifur að ræða, en neðri hluti tindsins er úr mölnandi bergi svo erfitt er að fá þar festu, en þegar ofar dregur festist bergið og verður betra til klifurs. Gróðurtægjur teygja sig víða um bergið allt upp undir topp. Að sögn þeirra félaga tók það þá 2‘Æ—3 tíma að klífa sjálfan drang- ann og var klifið í þremur áföngum (spönnum). Er upp á tindinn kom gátu þeir sest á hann klofvega og virt fyrir sér útsýnið allt í kring og hengiflugið til beggja handa. Topp- urinn er stór steinn ‘h. fermetri í þvermál og það laus að rugga mátti honum til. Hraundrangi er talinn einn erf- iðasti tindur að klífa á Islandi. í bókinni Fjallamennska er hann talinn af III—IV gráðu bergklifurs. I sömu bók segir um IV gráðu bergklifur: „Erfitt klifur. Hér má segja að klifrið taki að stefna inn á alvarlegri brautir. Þó nokkur klif- urreynsla nauðsynleg. Aukin notk- un millitrygginga. Lengri spannir". Ferð þessa töldu Gunnlaugur og Vilhelm draumsýn eina f byrjun sumars er þeir hófu æfingar í fjallaklifri. Þeir settu sér það mark að reyna sig við Hraundranga og hétu sér því að tækist þeim að sigra drangann þá gengju þeir í íslenska alpaklúbbinn og töldu sig þannig vera búna að sanna hæfni sína og geta þar með orðið fullgildir með- limir. Drengirnir hafa engrar til- sagnar notið í íþróttinni, en lesið sér til í bókum og þá einkum bók- inni Fjallamennska. Síðan æfðu þeir sig í snarbröttum hlíðum ólafsfjarðarmúla með svarrandi hafið undir svo og í Brimnesárgili ofan Dalvíkur. Nú að lokinni ferð finnst þeim ekki mikið til afreks síns koma. Ætla þeir nú að leggja meira upp úr erfiðasta klifri og klífa helst þverhnípta klettaveggi. Báða lang- ar þá að komast utan og reyna sig við erlend fjöll og eins og allir full- gildir fjallamenn eiga þeir sér þann draum að fá tækifæri að príla í Mt. Everest. Myndir þær sem hér fylgja með tóku klifurgarparnir tveir í ferð sinni. Frcttaritarar. Gunnlaugur Sigurðsson á leið upp Hraundranga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.