Morgunblaðið - 10.02.1985, Side 14

Morgunblaðið - 10.02.1985, Side 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1985 Morgu n blaöið/Bj arni Næmi sýkla gagnvart fúkalyfjum ákvarðað eftir að þeir hafa verið ræktaðir á sérstöku æti. Ör þróun í sýklarannsóknum Annað þróunarstig í þjónustu- rannsóknum bakteríufræðinnar hófst um miðjan áttunda áratug- inn með tilkomu nákvæmra, skjótvirkra og handhægra rann- sókna við tegunda- og mein- væniprófi (pathogenisity) bakt- ería og sveppa. Þetta jók enn gildi rannsóknanna við greiningu og meðferð sýkinga. Nú í upphafi 9. áratugarins hefur þriðja þróunar- skeiðið hafist jpeð sjálfvirkni í rannsóknum, ásamt ýmsum öðr- um nýjum hraðgreiningaraðferð- um. Sýklarannsóknadeildin hefur fengið eitt slíkt sjálfvirkt tæki, sem annast allar blóðræktanir fyrir sjúkrahús á Reykjavíkur- svæðinu og raunar víðar að af landinu. Þannig hefur gildi sýklarann- sókna fyrir læknisfræði vaxið æði hratt síðustu áratugina af þeirri hálfu öld sem Rannsóknastofa Háskólans hefur starfað. Fyrstu tvo áratugina störfuðu við þessar rannsóknir 2 til 3 menn og árlegur fjöldi sendra sýna var 4 til 5 þús- und. Nú er starfsliðið 32 menn. Árlega eru send til rannsóknar yf- ir 80 þúsund sýni frá um 40 þús- und einstaklingum. Svarar þetta til þess að sjötti hver maður á landinu njóti á einn eða annan hátt þjónustu sýklarannsókna- deildar á hverju ári. Á þessu tíma- bili hafa orðið miklar breytingar á öllum rannsóknaaðferðum. Fjöldi nýrra rannsókna hefur verið tek- inn upp og þær eldri endurbættar eða felldar niður. Sem dæmi um hraðgreiningar- aðferðir má nefna nýjar rann- sóknir á heilahimnubólgu. Með þeim er stundum unnt að greina orsök hennar nákvæmlega á einni klukkustund og gefa veigamiklar upplýsingar, þannig að rétt með- ferð geti hafist strax. Enda er mikið í húfi því hér er um hættu- legan sjúkdóm að ræða. Um sjálfvirkni í bakteríufræði má nefna blóðræktunartæki sem greinir bakteríuvöxt með því að mæla reikul geislavirk efni, sem bakteríur kljúfa frá tilteknum efnasamböndum. Tækið ritar niðurstöður rannsóka í tölugild- um, sem gefa upplýsigar um bakt- eríuvöxt og nokkra hugmynd um bakteríufjölda. Samsetning æta til bakteríu- og svepparæktana er allveigamikill þáttur í starfsemi deildarinnar enda framleiðir hún æti fyrir nær allar rannsóknastofur á sjúkra- húsum og heilsugæslustöðvum, sem annast bakteríurannsóknir. Bakteríur eru misjafnlega mat- vandar og margar þeirra þurfa sérrétti. Matseðillinn er því fjöl- breyttur og skiptist í nokkur hundruð rétti, en af þeim eru 70 til reiðu daglega. Auk þjónusturannsóknanna fara fram á deildinni fjölþættar faraldursfræðilegar rannsóknir þar sem aflað er þekkingar um grundvallaratriði varðandi hegð- un vissra sjúkdóma hér á landi. Má þar nefna sem dæmi rannsókn á heilahimnubólgufaraldri á síð- asta áratug. Rannsókn á tíðni og árstíðasveiflum „Camphyobacter" þarmasýkinga. Sá sjúkdómur var fyrst greindur hér árið 1980. Þá má nefna rannsóknir á faraldurs- fræði kynsjúkdóms af völdum „Chlamidia trachomatis", en sá sjúkdómur var fyrst greindur hér á landi árið 1981. Algengni og nýgengni gigtar- þáttar í vissum aldurshópum fólks hér á landi hefur verið rannsakað í samvinnu við Hjartavernd. Þá hefur verið unnið að rannsóknum á bakteríusýkingum í lungum í samvinnu við lyflæknisdeild Landsspítala og Borgarspítaia. Nokkrar rannsóknir hafa verið gerðar í samvinnu við erlenda að- ila á gildi nýrra sýklalyfja og nú er unnið að mati á notagildi nýrr- ar hraðgreiniaðferðar á „Chlam- idia“ sýkingum. Þessar rannsóknir eru aðeins þáttur í hinum fjöl- mörgu, sem vænta má að fram komi á sviði sýklarannsókna í læknisfræði á næstu árum“, sagði Arinbjörn. Réttarkrufningar og blóö- flokkarannsóknir í barnsfaðernismálum í réttarlæknisfræðideild Eins og hér hefur áður komið fram var stofnað sérstakt prófess- orsembætti í réttarlæknisfræði við Háskólann árið 1978 og var Ólafur Bjarnason skipaður í stöð- una, jafnframt því sem hann varð yfirlæknir réttarlæknisfræði- deildar Rannsóknastofunnar sem þá var stofnuð. ólafur var áður prófessor í meinafræði og for- stöðumaður Rannsóknastofunnar. Hann greindi á eftirfarandi hátt frá starfsemi deildarinnar, í sam- tali við biaðamann Mbl.: „Réttarlæknisfræði hefur verið kennd hér á landi frá því Háskóli íslands var stofnaður. Til ársins 1919 kenndi Þórður Sveinsson, læknir á Kleppsspítala, greinina sem aukakennari. Stefán Jónsson tók við kennslunni þegar hann var skipaður dósent í meina- og sýkla- fræði, og stundaði hana sem auka- grein. Síðan var hún tengd meina- fræðinni og kenndi Níels Dungal hana sem aukagrein alla sína tíð. Aðalverkefni deildarinnar er að gera réttarkrufningar, sem hér eru framkvæmdar fyrir allt land- ið. Þær hafa undanfarin ár verið allt að 200 á ári. Með þær fer eftir lögunum um mannskaðarann- sóknir frá árinu 1913, þar sem seg- ir að ef voveiflegt mannslát eigi sér stað eigi að tilkynna það yfir- völdum. Lögregluyfirvöld kveðja siðan til lækni til að skoða hinn látna og ákveða hvort óska eigi eftir réttarkrufningu. Blóðrannsóknir í barnsfaðern- ismálum eru annar umfangsmikill málaflokkur sem heyrir undir þessa deild, en starfsmenn Blóð- bankans taka einnig þátt í þeim rannsóknum. Nokkuð misjafnt er hvernig þau mál ber að. Þegar kona sem ekki er í hjónabandi eða sambúð elur barn tilgreinir hún föður. Siðan getur það komið til að hinn tilgreindi faðir óski eftir því að gerð verði blóðflokkarannsókn til að fá úr því skorið hvort hann geti verið faðir barnsins. Hann getur til dæmis haft spurnir af því að konan hafi verið með öðrum manni eða mönnum á mögulegum getnaðartíma barnsins og eru þá blóðflokkar allra viðkomandi rannsakaðir. Þessi mál eru yfirleitt rekin á vegum yfirvalda. Rannsóknir geta einnig verið einkamál viðkomandi sem þau óska sjálf eftir. Þá getur þetta einnig komið til sem svokall- að vefengingarmál, það er að eig- inmaöur vefengi að hann sé faðir barns þrátt fyrir að það sé fætt í hjónabandi. Þetta eru orðnar viðamiklar rannsóknir. Við fáum um 100 barnsfaðernismál á hverju ári og tengjast að minnsta kosti þrír aðilar hverju máli. Níels Dungal hóf þessar rann- sóknir 1. september 1928. Þá fór hann austur í sveitir vegna tveggja barnsfaðernismála en í hvorugu tilvikinu tókst að útiloka faðerni þeirra, enda voru þá litlir útilokunarmöguleikar, ólíkt því sem nú er. Árið 1933 féll Hæsta- réttardómur þar sem maður var í fyrsta skipti hér á landi útilokað- ur frá faðerni barns á grundvelli blóðflokkarannsóknar," sagði Ólafur Bjarnason. — HBj. Kynhormónabindandi prótein mæld í krabbameinsfrumum úr brjósti. Skipaviðgerðir undirbúningur og framkvæmd Vegna mikillar eftirspurnar veröur námskeiðiö um undirbúning og framkvæmd skipaviögerða haldið í 13. skiptiö 13., 14. og 15. febrúar í aðsetri félags- ins, Hverfisgötu 105. Námskeiðið er ætlað þeim aðilum í smiðjum, sem taka á móti og skipuleggja viðgerðarverk, vélstjórum og/eða þeim, sem hafa umsjón með viöhaldi skipa hjá útgerðum. Fjallaö verður í fyrirlestrum og með verklegum æfingum um: verklýsingar, áætlanagerðir, mat á verkum, mat á tilboöum og val viögerðarverk- stæða, undirbúning fyrir framkvæmd viðgerða, uppgjör o.s.frv. í þessari yfirferð fá þátttakendur gott yfirlit yfir það sem nýjast er í þessum efnum og geta betur áttað sig á eigin stööu og því sem taka þarf á til að ná betri árangri í viðgeröum skipa — bæði frá sjónarhóli útgerðar/skipafélaga og smiðja. Þátttökugjald er kr. 6.000 (hádegisverður, kaffi og námskeiðsgögn innifalin). Þátttöku ber að tilkynna í síma 92-621755 eigi síðar en 12. þ.m. Meistarafélag járniönaðarmanna, samtök málmiðnaðarfyrirtækja. PARKET Einu sinni enn er Tarkett-parket í far- arbroddi í parket-framleiðslu. • Á markaðinn er nú komið parket með nýrri lakkáferö, sem er þrisvar sinnum endingarbetri en venjulegt lakk. • Veitir helmingi betri endingu gegn risp- um en venjulegt lakk. • Gefur skýrari og fallegri áferö. • Betra í öllu viöhaldi. • Komið og kynnið ykkur þessa nýju og glæsilegu framleiðslu frá Tarkett. • Alger bylting á íslenska parket-markaö- inum. Harðviðarval hf., Skemmuvegi 40, Kópavogi, sími 74111.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.